Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
SUNNUDAGUR 21. JUNI 1992
*
MargrétA. Oskars-
dóttir - Kveðjuorð
Ég vil þakka mömmu minni,
Margréti Ásdísi Óskarsdóttur, allar
þær yndislegu stundir sem ég hef
fengið að njóta með henni. Ég var
tveggja ára þegar ég fyrst kom inn
á heimili þeirra mömmu og pabba
og frá þeim degi var mér alla tíð
tekið sem þeirra eigin dóttur,
hversu mörg skammarstrik sem ég
gerði af mér. Eins og mamma sagði:
„Aldrei verð ég svo fátæk að geta
ekki gefið einu barni að borða,“ en
hún gaf mér meira en að borða,
hún gaf mér alla þá ást og um-
hyggju sem ég á, og ég vona að
ég geti gefið bömunum mínum það
sama. Aðeins annað barnið mitt
mun muna eftir ömmu sinni, því
Gunnsteinn Már er nú 11 ára, en
á sinni stuttu ævi fékk hann að
kynnast ömmu sinni á margan hátt
betur en margir aðrir, því mamma
sá ekki sólina fyrir honum. Senni-
lega er það Gunnsteini minnisstæð-
ast þegar þau voru að fara í göngu-
ferðir saman um hverfið að
ógleymdum Bubba, hundinum okk-
ar. Þá var Gunnsteinn 5-6 ára og
þá var labbað á milli garða og
mamma var að sýna honum ljónin,
apana og öll hin dýrin sem aldrei
hafa sést hér á landi, og er ég viss
um að hann sá þessi dýr og ekki
bara sá, hann heyrði líka í þeim,
því innlifunin var svo mikil. Eins
er ég viss um að Gunnsteinn á oft
eftir að segja: En amma sagði þetta
eða hitt.
Mamma fékk því miður bara að
kynnast Margréti, dótturdóttur
sinni, í átta mánuði, og oft sagði
mamma við mig: „Því miður á ég
ekki eftir að sjá hana alast upp.“
Þetta var ein af þeim mörgu erfiðu
setningum sem hún sagði við mig,
þannig að ég vildi helst vera lítil
líka, þannig að ég skildi ekki á
hverju var von, en því miður verðum
við öll fullorðin og verðum að tak-
ast á við meira en okkur þykir gott,
og skrýtið þykir manni að fólk á
besta aldri, eins og mamma, þurfi
að takast á við eins erfíðan sjúkdóm
og krabbamein er. En mamma var
mjög sterk persóna og þegar aðrir
voru að bresta í grát, var það hún
sem fékk mann til að brosa og tala
um það sem betra var, og hjálpaði
þetta henni í gegnum sinn erfiða
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
blteoudl
Opiö alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
sjúkdóm, þó svo að við vissum að
þegar við vorum farin og hún orðin
ein grét hún í hljóði.
Mamma var búin að vera veik
lengi þegar upp kom að hún var
með ólæknandi krabbamein, en það
var í janúar á þessu ári, og þá voru
fyrstu jólin búin sem við vorum án
hennar, því þá lá hún á Borgarspít-
alanum, deild A-5, þar sem hún
hafði svo oft áður legið. Þetta voru
mjög erfið jól og áramót því alla
tíð höfum við verið saman á þessum
tíma og þar af leiðandi var mikið
sem vantaði þegar mömmu vant-
aði, og ennþá meira á eftir að vanta
um næstu jól, þegar við vitum að
hún á aldrei eftir að sitja til borðs
með okkur aftur. Það er aðeins eitt
sem við getum huggað okkur við,
hún þarf ekki að kveljast meira og
er örugglega í góðum höndum.
Ég vona að elsku mamma mín
hafir kennt mér að takast á við líf-
ið og það sem uppá vantar er ég
viss um að hún átt eftir að hjálpa
mér með, því hún munt ætíð vera
í huga mér.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég fá að þakka starfsfólki á
deild A-5 Borgarspítalans þá bestu
umönnun sem hægt er að hugsa
sér og þann styrk sem það veitti
mér og pabba á þessum erfiða tíma.
Pabbi minn, við vitum öll að þú
hefur misst mikið og vona ég að
ég, Eddi, Gunnsteinn og Margrét
getum hjálpast að við að græða
þetta hjartasár.
Guðsblessun 'fylgi elskulegri
móður minni inn á veg nýrra heimar.
Sigríður.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
Samvinnuferðir-Landsýn býður ódýrari fargjöld:
ÓDÝRASTA LEIÐIN
TIL BRETLANDSEYJA!
Til Dublin fyrir
16.500
kr.
Nú er iag að komast ódýrt til írlands.
Dublin heillar alltaf og ökuferð á eigin vegum um landið er ógleymanleg
upplifun. Láttu okkur útvega þér gistinguna, hvort sem er á hóteli, á
sveitakrá, í kastala eða á húsbát! Bílaleigubílinn útvegum við auðvitað
líka og hvaðeina annað sem tryggir þér góða ferð á verði fyrir þig!
Nú getum við líka boðið ísiendingum að fljúga til London í sumar með
viðkomu í Dublin á írlandi á lægsta verði sem um getur:
Flug til London frá
Notaðu tœkifœrið!
i ■■■■■■■■■■■
“ ÍBLIN / LONDON
júní Uppselt / biðlisti.
19.800
kr.
5 sæti laus
nokkur sæti laus
nokkur sæti laus
4 sæti iaus
5 sæti laus
Lágmarksdvöl er ein vika.
UUWAoaÍBnAftB
* Við þetta verö bætast flugvallarskattar
og gjöld, samtals 3.550 kr. fyrir fullorðna.
Hreint ótrúlegt verð en staðreynd engu að síður. Og þú átt ennþá
möguleika á að komast með!
Þú hefur þetta auðvitað alveg eins og þér hentar, skellir þér beint í lífs-
ins lystisemdir í London eða ákveður að kynnast fyrst frændum okkar á
írlandi og einstakri gestrisni þeirra. Við útvegum að sjálfsögðu gistingu
við þitt hæfi í London, bílaleigubíl o.fl. í samræmi við þínar þarfir.
Smin/iniiiiíei’úii’Lniiílsi/ii
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Sfmbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87
HVÍTA HÚSIÐ / SlA