Morgunblaðið - 30.06.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
Steindórsprent kaupir
allt hlutafé í Gutenberg
STEINDÓRSPRENT keypti í gær allt hlutafé í Prentsmiðjunni Guten-
berg hf. Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, undirritaði
samninginn fyrir hönd ríkissjóðs og Hálfdán Steingrímsson, for-
stjóri Steindórsprents, fyrir hönd fyrirtækis síns. Tilboð Steindórs-
prents var metið á 84.900.000 kr. og hljóðaði það upp á greiðslu á
öllu kaupverðinu fyrir júlUok. Hálfdán Steingrímsson segist afar
ánægður með kaupin, en fyrir Steindórsprenti vaki fyrst og fremst
að styrkja samkeppnisstöðu sina á markaðnum og ná fram hagræð-
ingu með því að stækka rekstrareininguna.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu
bárust þrjú tilboð í allt hlutafé
Gutenbergs, auk viljayfírlýsinga
starfsmanna um þátttöku í kaupun-
um. Eftir að tilboð voru opnuð hafí
starfsmenn hins vegar hætt við
þátttöku sína. Landsbréfum hf.
hafí verið falið að meta tilboðin til
núvirðis og var niðurstaðan eftirfar-
andi. Tilboð ísafoldarprentsmiðju
var upp á 80.900 þúsund kr., tilboð
Prentsmiðjunnar Odda 84.950 þús-
und kr. og tilboð Steindórsprents
upp á 84.900 þúsund kr.
I fréttatilkynningunni segir að
tilboð Steindórsprents hafí hljóðað
upp á greiðslu á öllu kaupverðinu
fýrir lok júlímánaðar næstkomandi
og hafí því verið ákveðið að taka
því tilboði, en það feli í sér minnsta
áhættu fyrir seljanda. Heimild til
sölu hlutabréfanna sé veitt í fjárlög-
um yfírstandandi árs og hafí flár-
málaráðherra þegar fallist á söluna
fyrir sitt leyti.
Þá segir í tilkynningunni að það
veki athygli að litlu hafí munað á
kauptilboðunum, en fyrirtækið sé
selt á genginu 1,07 eða á 85,6 millj-
ónir króna. Söluverðið sé hins vegar
lægra en bókfært verð fyrirtækis-
ins, sem nemi 148 milljónum króna.
Skýringamar virðist vera þijár, í
fyrsta lagi lægra markaðsverð fast-
eigna fyrirtækisins en sem nemur
bókfærðu verði (um 25 milljónir
kr.), í öðru lagi lægra markaðsverð
véla (23,7 m.kr.) og í þriðja lagi
óbókfærðar skuldbindingar, sem
lækki verðið um 10 milljónir króna.
Steindórsprent hf. var stofnað
1934 af Steindóri Gunnarssyni og
fleirum og hefur tengdasonur hans,
Hálfdán Steingrímsson, verið prent-
smiðjustjóri frá 1951. Fyrirtækið
er í dag alfarið í eigu Hálfdáns og
fjölskyldu hans. Hann segir að þessi
kaup breyti mjög miklu fyrir fyrir-
tækið. Hann hafí rekið það þannig
í 40 ár að hann hafí ekki þurft að
skulda neinum neitt en á því verði
auðvitað breyting nú. Hins vegar
telji hann að kaupin geti styrkt
fyrirtækið í samkeppni á markaðn-
um og gera megi ráð fyrir að hag-
ræðing náist fram með því að
stækka rekstrareininguna.
VEÐUR
VEÐURHORFURI DAG, 30. JUNI
YFIRLIT: Um 700 km austnorðaustur af Langanesi er 1005 mb lægð
sem þokast austur og grynnist, en skammt vestur af Vestfjörðum er
1030 mb hæð á hægri hreyfingu austur.
SPÁ: Hæg norðaustlæg eða breytileg ótt, smáskúrir á annesjum norð-
austanlands í fyrstu en annars víðast bjart veður, einkum sunnanlands
og vestan. Hiti frá 6 stigum norðaustanlands upp í 15-18 stig yfir hádag-
inn suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Hæg suðaustan eða breytileg átt og hlýn-
andi veður. Bjart veður víða um land, einkum norðanlands og vestan.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi suð-
vestanlands en hægari annars staðar. Skýjað og súld á stöku stað við
suður- og austurströndina, en léttskýjað ófram í öðrum landshlutum.
Hiti á bilinu 7-18 stig. hiýjast á Vestur- og Norðvesturlandi.
-Svflrsími Vfiðurstofu Ísjands - Veðuilregnir: 880600.
O
Heiðskírt Léttskýjað
/ / r
f f
f f f
Rigning
* / *
* /
f * f
Slydda
é
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V $
Skúrir Stydduél
* * *
♦ *
* * *
Snjókoma
V
É
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig-.
(Kl. 17.30ígær)
FÆRÐA VEGUM:
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir og hálkulausir á ný. Kjalveg-
ur er nú opinn umferð fjallabíla. Opið er í Landmannalaugar um Sig-
öldu. Uxahryggir eru nú opnir fyrir alla upmferð. Kaldidalur og Sprengi-
sandur munu opna á fimmtudag í þessari viku.
Að gefnu tilefni skal bent á að klæðningaflokkar eru nú aö störfum viða
um landiö og eru ökumenn beönir um að virða sérstakar hraðatakmarkan-
ir til þess að forðast tjón af völdum steinkasts. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hití 6 10 veður skýjað hátfskýjaft
Bergen 16 skýjað
Helslnki 21 léttskýjað
Kaupmannahöfn 25 hóttskýjað
Narssarssuaq 8 hálfskýjað
Nuuk 6 alskýjað
Osló 20 skýjað
Stokkhólmur 25 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 29 skýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Berlín 28 léttskýjað
Chicago vantar
Feneyjar 26 heiðskírt
Frankfurt 27 léttskýjað
Glasgow 20 mistur
Hamborg 29 léttskýjað
London 28 skýjað
LosAngeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 25 iéttskýjað
Madrtd 28 skýjað
Malaga 27 léttskýjað
Mallorca 26 hálfskýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork 23 heiðskírt
Orlando 24 alskýjað
París 29 léttskýjað
Madelra 23 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Vín 25 léttskýjað
Washington 21 skýjað
Winnipeg 8 heiðskirt
ÍDAGkl. 12.00
Heimlld: Veöurelota íslands
(Byggt á veðurepá kl. 16.fS I gær)
LJðsmynd/Tómas G. Gíslason
Aðstoð veitt undir Eyjafjallajökli
Aldrei verður nægilega brýnt fyrir þeim sem leggja í fjallaferðir að sýna
fyllstu aðgát. Þessi mynd var tekin á sunnudaginn við lón undir Gíg-
jökli, sem er skriðjökull úr Eyjafjallajökli. Jeppabifreið á leið úr Þórs-
mörk var ekið út í lónið, þar sem hún stöðvaðist og tókst ökumanni
engan veginn að losa hana. Vatn flæddi bæði yfír vélarhlífína og inn í
húsið og var óttast að talsverðar skemmdir hefðu orðið. Það var ekki
fyrr en hjálpsamir ferðalangar komu á vettvang að hægt var að ná jepp-
anum upp úr og tóku þær tilraunir rúmlega hálfa klukkustund. Tveir
menn voru í bílnum en ekki er talið að þeim hafi orðið meint af volkinu.
Atvinnumál námsmanna:
Tíu millj. til haguýtra
rannsóknarverkefna
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt að verja um tiu milljónum
króna til hagnýtra rannsóknar-
verkefna. Þessir fjármunir eru
ætlaðir til að nýta starfskrafta
námsmanna í sumar. Um 75 náms-
menn vera ráðnir sem aðstoðar-
menn við hagnýt rannsóknarverk-
efni í þágu atvinnulífsins.
Ein þeirra tillagna sem nefnd sem
starfað hefur á vegum ríkisstjórnar-
innar undir forystu Ólafs Davíðsson-
ar ráðuneytisstjóra .hefur fjallað um
gerir ráð fyrir að nýta starfskrafta
háskólanema við hagnýt verkefni á
sviði rannsókna og þróunarstarfa.
Námsmenn hafa nú þegar tilbúin
verkefni sem unnt væri að takast á
við í sumar. Um er að ræða verk-
efhi á vegum kennara eða rannsókn-
arstofnana þar sem námsmenn gætu
nýst sem aðstoðarmenn kennara.
Þessi verkefni eiga að vera hagnýt
rannsóknarverkefni tengd atvinnu-
lífínu sem byggja m.a. á framlögum
frá fyrirtækjum og stofnunum.
Á fundi ríkisstjómarinnar síðast-
liðinn föstudag var samþykkt að
ráði Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra að veita til þessara
verkefna um 10 milljónum króna.
Þess er vænst að þessi upphæð
muni nægja til að greiða sumarvinn-
ulaun u.þ.b. 75 námsmanna. En
skipting og ráðstöfun þessa fjár er
ekki fullákveðin. Meðal námsmanna
em hugmyndir um að úthlutun yrði
falin sérstakri sjóðsstjóm. Ættu þar
sæti fulltrúar Háskóla íslands, rann-
sóknarstofnanna, stúdenta, atvinnu-
lífs og einnig ríkisvaldsins.
Eftir helgina munu menn frá
ráðuneytum mennta- og félagsmála
halda fund með námsmönnum og
formanni atvinnumálanefndarinnar,
Ólafí Davíðssyni, til að ræða hvemig
ÁTVR:
Framleiðsludeild seld
fyrir rúmar 15 milljóiiir
SAMNINGUR um kaup á framleiðsludeild Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins var undirritaður á milli Halldórs Kristjánssonar og ÁTVR í
gær. Umsamið kaupverð er rúmar 15 mil(jónir auk virðisaukaskatts.
Kaupverðið er byggt á tilboði Halldórs Kristjánssonar í framleiðslu-
tæki, framleiðslurétt og lager ÁTVR miðað við endurskoðun á fylgihlut-
um og staðgreiðslu.
þessir fjármunir geti sem best og
skjótast nýst atvinnulífinu og náms-
mönnum.
150 milljónir
í sérstöklán
tilfiskeldis
ÚTHLUTUNARNEFND sér-
stakra rekstrarlána til fisk-
eldis hefur auglýst eftir um-
sóknum um lán á þessu ári,
og er um lokaúthlutun að
ræða. Að sögn Ingimars Jó-
hanssonar, formanns úthlut-
unarnefndarinnar, verða alls
lánaðar 150 milljónir, en það
er sama upphæð og lánuð var
til fiskeldisfyrirtækja í fyrra.
Ríkisstjómin ákvað í fyrra að
lána 150 milljónir króna á því
ári og jafnháa upphæð nú í ár
til nokkurra fiskeldisfyrirtækja í
því skyni að viðhalda þróunar-
starfí í fískeidi. Yfirlýst markmið
við úthlutun fjárins er að það
nýtist til fískeldis í framtíðinni,
en því verði ekki varið til þess
að greiða niður tap sem þegar
er orðið. Þá sé mjög mikilvægt
að fénu verði varið þar sem það
nýtist til áframhaldandi rekstrar,
en ekki þar sem fyrirsjáanlegt
sé að upphæðir af þeirri stærð-
argráðu sem um sé að ræða
nægi ekki.
Ingimar Jóhannsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að um
tíu fískeldisfyrirtæki hefðu feng-
ið sérstök rekstrarlán af þessu
tagi í fyrra, og væru þau öll
starfandi ennþá.
Halldór Kristjánsson stóð ásamt
konu sinni, Kristínu Stefánsdóttur,
að þremur hæstu tilboðunum í fram-
leiðsludeild ÁTVR þegar hún var
boðin út af Innkaupastofnun ríkisins,
fjármálaráðuneytinu og ÁTVR.
Þriðja hæsta tilboðið kr. 15.425.500
var frá Rek-ís hf. en Halldór og
Kristín eiga bæði sæti í stjóm þess
fyrirtækis. Tilboð Halldórs, er var í
öðru sæti, hljóðaði upp á kr.
16.425.500 en Kristín átti hæsta til-
boðið kr. 17.425.500. Með þessum
samning hlýtur Halldór framleiðslu-
rétt, framleiðslutæki, lager, vöruheiti
og uppskriftir ÁTVR.