Morgunblaðið - 30.06.1992, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
Borgarfjarðarrall:
Óvæntar flugferðii*
hrelldu keppendur
STEINGRÍMUR Ingason og Guðmundur Björn Steinþórsson á
Nissan hafa tekið forystu í íslandsmeistarakeppninni í rall-
akstri eftir sigur í rallkeppni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavík-
ur og Hreðavatnsskála, en keppnin fór fram í Borgarfirði sl.
laugardag. Feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson náðu
öðru sæti á Mazda 323 4x4 og Páll Harðarson og Witek Bogd-
anski á Ford Escort þriðja sæti. Flokk óbreyttra bíla unnu
Baldur Jónsson og Guðmundur H. Pálsson á Mazda 323 4x4
eftir mikla keppni við Óskar Ólafsson og Jóhannes Jóhannsson
á Suzuki Swift GTi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Kögnvaldsson
Sigurvegararnir Steingrímur Ingason og Guðmundur Björn eru
efstir til íslandsmeistara og njóta hér veðurblíðunnar við Hreða-
vatnsskála.
Leiðirnar í rallinu voru krók-
óttar og erfíðar yfirferðar á köfl-
um og nokkrar beygjur og hæðir
slógu keppendur út af laginu á
þeim 92 sérleiðar kílómetrum
sem eknir voru. Meira að segja
sigurvegararnir Steingrímur og
Guðmundur máttu hafa sig alla
við þegar bíll þeirra stökk harka-
lega uppúr hvarfi á sérleið við
Bæ. „Eg hef aldrei verið jafn
nálægt því að endastinga bíl á
miðjum vegi og í þessu hvarfi,
áhorfendur sáu toppinn koma á
móti sér í stað grillsins", sagði
Steingrímur um atvikið en hann
tók strax forystu í keppninni.
„Helstu bflar keppinauta okkar
biluðu á fyrstu leið, Metro Ás-
geirs Sigurðssonar og Braga
Guðmundssonar, og Rúnar og
Jón áttu í vandræðum með gír-
kassann á sínum bíl, sem þýddi
að ég fékk minni keppni en ella.
Ég er ánægður með að bíllinn
sem ég hannaði og smíðaði
ásamt vinum skilaði sigri. Það
eru góð laun fyrir okkar aðila
og alla þá þúsund vinnutíma sem
í bflinn hafa farið.“
Steingrímur hefur verið lengi
í rallakstri og í síðasta ralli varð
hann í öðru sæti en vann haust-
keppnina í fyrra og því óhætt
að reikna með honum í barátt-
unni um meistaratitilinn. „Ég
leiði náttúrulega hugann að titl-
inum, en það mikilsverðasta við
hann er hvaða rásröð hann hefur
handahafa hans í mótum erlend-
is“ sagði Steingrímur, en rall á
hug hans allan frá morgni til
kvölds. „Ég myndi gjarna vilja
hafa meiri tíma til að huga að
líkamlegu formi mínu sem skipt-
ir máli í rallakstri en ég hef ver-
ið í bílskúrum nánast frá áramót-
um að smíða bílinn. Þegar hrað-
inn er mikill í rallinu eins og í
dag þá þarf mikla einbeitningu
og gott líkamlegt form. Smá ein-
beitningarleysi á 180 km hraða
getur verið dýrkeypt. Á þeim
hraða ferðu 50 metra á sekúndu
og það getur margt skeð á
nokkrum metrum, líka þó hægar
sé farið“, sagði Steingrímur.
Þetta fengu menn að reyna í
keppninni. A sérleið við Svartag-
il hlekktist tveimur keppendum
harkalega á eftir að hafa farið
fullgreitt yfir hæð. Tómas Jó-
hannesson og Elías Jóhannsson
á Mazda urðu að hætta keppni
eftir harkalega lendingu þegar
demparafesting gaf sig. Sigurð-
ur B. Guðmundsson á Nissan
lenti illa á svipuðum slóðum og
höggið varð svo mikið að hann
átti um tíma í erfiðleikum með
andardrátt og dró sig í hlé. I
slag milli óbreyttra bíla sveif
Mazda Baldurs og Guðmundar
hátt í 15 metra leið á sömu flug-
leið. „Ég hef aldrei farið aðra
eins flugferð. Við komum að hæð
sem við höfðum ekið fyrr um
daginn og fórum of geyst. Bíllinn
flaug á loft og lenti það harka-
lega að ég keyrðist ofan í sætið
og stýrið bognaði og spyrnan
sömuleiðis, Ég missti stýrið úr
höndunum en náði að grípa það
aftur og slapp með skrekkinn
og kíki betur á hraðamælinn
næst“, sagði Baldur, sem vann
flokk óbreyttra bíla með aðeins
12 sekúndna mun. Fyrir síðustu
sérleiðina í Langadal munaði
aðeins tveimur sekúndum á hon-
um og Óskari. „Ég tapaði mikl-
um tíma á leiðinni á undan þeg-
ar ég ók um vitlaust merkt gat-
namót, þurfti að bakka og var
næstum fastur á vegi því ég sá
illa út. Við þetta tapaði ég 46
sekúndna forskoti í 2 sekúndur
og keyrði síðustu leiðina á fullu.
Afturspyrnan var brotin en hún
hafði verið vafín með gaddavír
og hélt alla leið. Ég náði að aka
þessa sérleið 10 sekúndum hrað-
ar en Óskar en tæpur var sigur-
inn. Ég tók líka nokkra sjénsa á
leiðinni, ætlaði ekki að tapa á
síðustu metrunum", sagði Bald-
ur.
Óhapp varð á síðustu leiðinni
þegar félagamir Einar Þ. Magn-
ússon og Haukur Antonsson á
Escort veltu í beygju. Einar
handarbrotnaði og var fluttur á
sjúkrahús en slapp við önnur
meiðsli og bíllinn skemmdist lít-
Witek Bogdanski og Páll Harðarsson náðu þriðja sæti og Witek synir hér Ieiðarlýsingu sem margir
aðstoðarökumenn þylja í síbylju fyrir ökumenn á meðan keppni stendur. Þannig geta sumir ökumenn
nánast ekið blint um veginn.
ið. Stefán Ásgeirsson og Ari
Amórsson veltu einnig Escort
sínum, fyrrum meistarabíl Jóns
og Rúnars, eftir að hafa ekið
útaf og upp á stóran stein. Þeir
urðu að hætta keppni. Eftir
Borgarfjarðarrallið hafa Stein-
grímur og Guðmundur 35 stig
til Islandsmeistara, Rúnar og Jón
27 en Ásgeir og Bragi 26, en
þeir eru núverandi meistarar.
Spansgræna á öryggi sló þá útaf
laginu á fyrstu sérleið og sú bil-
un uppgötvaðist ekki fyrr en að
nokkmm mínútnum liðnum, mín-
útum sem sendi þá í sjötta sæti
í keppninni þegar yfir lauk, en
Baldur Jónsson og Guðmundur H. Pálsson unnu flokk óbreyttra þeir sprengdu einnig dekk á
bíla á Mazda í annari keppninni í röð, en Baldur er sonur Jóns næst síðustu leið.
Ragnarssonar. . q.r.
GÓÐ þátttaka var í fyrsta kvartmílumóti ársins á kvartmílubraut-
inni við Straumsvík og gekk keppnin fljótt og vel fyrir sig. Keppt
var í fimm flokkum og sló Sveinn Logi Guðmundsson Islandsmet-
ið í flokki mótorhjóla með 750 cc vélar, ók brautina á 10,77 sek-
úndum en gamla metið átti Karl Gunnlaugsson.
í flokki götubíla vann Benedikt
Svavarsson á Chevrolet Nova á
tímanum 11,67 sekúndum, Árni
Hjaltason á Camaro varð annar
og Ríkharður Rúnarsson á Trans
Am í þriðji. „Mér líst vel á sumar-
ið eftir þetta fyrsta mót ársins,
kvartmílan er á uppleið," sagði
Benedikt Svavarsson í samtali við
Morgunblaðið eftir sigurinn. Hann
ekur götubíl sem hefur fengið
heitari ás, nitro-búnað og stærri
blöndunga í vélarsalinn frá Hol-
ley. Þá eru undir honum 13
tommu breið dekk í stað 5-6
tommu dekkja, þannig að gripið
er gott. Þótt bíllinn sé búinn til
keppni gæti hann allt eins ekið
um götur bæjarins og af því dreg:
ur nafn flokksins nafn sitt. í
„bracket" flokki geta allir bílar
keppt, bæði sérsmíðaðir og venjú-
legir bílar. Þar vann gamla kemp-
an Gunnar Ævarsson á Camaro,
mætti meira til gamans og hristi
fram úr erminni gamalkunna
takta og vann Halldór Hauksson
á Concord í úrslitum, en Toyota
Mf2 sportbíll Guðmundar Einars-
sonar varð í þriðja sæti.
í fiokki aflmestu bílanna,
„competition“, háðu Sigurjón
Haraldsson á Ford Pinto og Auð-
unn Stígsson á Camaro lokaein-
vígið en þessi kappar hafa einnig
keppt í sandspyrnu á árinu. Sigur-
jón hafði betur á tímanum 10,21
sekúnda og virðist stefna í meist-
aratitil í kvartmílu og sandspymu
ef svo heldur fram sem horfir. I
þriðja sæti lenti Theodór Sig-
hvatsson á Duster og bætti akst-
ursmet bílsins sem er í eigu Sva-
vars Svavarssonar, reynds kvart-
mílukeppanda. í flokki mótorhjóla
var íslandsmeistarinn Hlöðver
Gunnarsson fljótur að venju, lagði
fyrrum meistara Guðjón Karlsson
að velli í úrslitum en báðir óku
breyttum Suzuki mótorhjólum.
Slagurinn gæti harðnað milli
þeirra, því báðir munu bæta hjól
sín fyrir næstu keppni, en mjög
mikil þátttaka var í flokki kraft-
mestu hjólanna. I minni flokknum
vann Sveinn Logi, Júlíus Eggerts-
son í úrslitum en Karl Gunnlaugs-
son varð þriðji. Allir óku Suzuki
mótorhjólum.
1 flokki götubíla vann Benedikt Svavarsson á Chevrolet Nova.
Sigurvegarar í mótorhjólaflokknum voru Sveinn Logi og Hlöðver
Gunnarsson Suzuki.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Þeir öflugustu í kvartmílunni Auðunn Stígsson og Sigurjón Har-
aldsson börðust um sigurinn í „competition" flokki og sá síðar-
nefndi á meistaratitilinn sem hann vann í fyrra.
íslandsmet í
kvartmflu