Morgunblaðið - 30.06.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1992
17
Sinfóníuhljómsveit íslands:
PARKETTPARl
RKETrPARKETTPARKETTPARKnTPARKETT
Lofsamleg umfjöllun ytra um
geisladisk hljómsveitarinnar
FYRIR stuttu kom út í Bretlandi
þríðji geisladiskurinn með Sin-
fóníuhjjómsveit Islands í útgáfu-
röð Chandos-útgáfunnar. A diskn-
um eru verk eftir Grieg og
Svendsen og hefur diskurinn
fengið mjög góðar viðtökur gagn-
rýnenda.
Nýútkominn diskur er þriðji í röð
níu diska sem koma eiga út á næstu
mánuðum, en þegar hafa komið út
diskar með verkum eftir 'Rak-
hmanínoff og Levi Madetoja. Á nýja
disknum eru verkin Um haust, for-
leikur op. 11, Gömul norsk rómansa
með tilbrigðum op. 51, Ljóðræn
smálög op. 43 og Norskir dansar
op. 35 eftir Grieg og Tvö íslensk
stef eftir Svendsen. Að sögn Petri
Sakari, stjórnanda Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, voru sérstaklega valin
á diskinn sjaldheyrð verk eftir Grieg
til að vekja athygli á hljómsveitinni
áður en tekið er til við þekktari verk.
Það virðist hafa gengið eftir, því í
nýútkomnu tölublaði tónlistartímar-
ritsins Classic CD er fjallað mjög
Styrkurtil
rannsókna
STYRKUR var nýlega veittur úr
Minngarsjóði dr. phil. Jóns Jó-
hannessonar prófessors. Styrk-
inn hlaut að þessu sinni Svanhild-
ur Óskarsdóttir, MA.
Svanhildur hefur numið íslensku
og heimspeki við Háskóla íslands
og einnig miðaldafræði við Háskól-
ann f Toronto og Hafnarháskóla.
Hún hyggst gera samsteypurit á
miðöldum að doktorsverkefni sínu.
Viðfangsefnið felst m.a. í könnun
á skáldskaparfræðum miðalda,
hugmyndum miðaldamanna um
höfundinn og um meðferð heimilda.
Minningarsjóður dr. phil. Jóns
Jóhannessonar prófessors er eign
Háskóla Islands. Tekjum sjóðsins
er varið til þess að veita stúdentum
eða kandidötum í íslensku og sagn-
fræði styrki til einstakrá rann-
sóknaverkefna, er tengjast námi
þeirra.
♦ ♦ ♦
Brids
Umsjón Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
Mjög góð aðsókn var í Sum-
arbrids síðasta þriðjudag. 45 pör
mættu til leiks, sem er þriðja besta
aðsókn á einu kvöldi til þessa. Úr-
slit urðu (efstu pör):
N/S:
Anna Þóra Jónsdóttir — Ragnar Hermannsson 493
436
430
430
Bemódus Kristinsson - Georg Sverrisson
Cecil Haraldsson - Albert Þorsteinsson
Guðlaugur Sveinsson - Guðjón Jónsson
A/V:
Láras Hermannsson - Óskar Karlsson
Sigfús Þórðarson - Garðar Garðarsson
Magnús Aspelund - Steingrímur Jónasson
Unnur Sveinsdóttir - Inga Lára Guðmundsd.
Og enn var góð aðsókn á fimmtu-
daginn. Spilað var í 3 riðlum, sam-
tals 34 pör. Úrslit urðu (efstu pör):
A/
Guðmundur Pétursson - Magnús Torfason
Dröfn Guðmundsdóttir - Guðlaug Jónsdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir - Jón Hersir Elíasson
Erlendur Jónsson - Jens Jensson
B/
Höskuldur Gunnarsson - Jóhannes Laxdal
Gísli Steingrímsson - Sigurður Steingrímsson 125
Ingibjörg Grímsdóttir—Þórður Bjömsson 118
Friðgerður Benediktsd. — Friðgerður Friðgd. 113
C/
Kristín Elínb. Þórarinsd.—Siguijón Harðars. 110
Baldvin Valdimarss. - Steingrfmur G. Péturss. 105
J. Hinrik Gunnarsson—Kari Erlingsson 91
Þátttakan í Sumarbrids í Reykja-
vík hefur verið góð. Meðalþátttaka
á kvöldi er um 35 pör (ef tvö slök-
ustu kvöldin eru undanskilin). Hátt
í 200 spilarar hafa áunnið sér meist-
arastig, þau 22 kvöld sem lokið er
við að spila.
429
420
410
405
262
239
232
228
126
lofsamlega um diskinn nýja og
verkaval á hann. Meðal annars er
brot af honum á geisladisk sem jafn-
an fylgir með blaðinu lesendum að
- kostnaðarlausu, aukinheldur sem
hann er boðinn lesendum með dijúg-
um afslætti.
í umfjöllun gagnrýnandans Ant-
honys Hodgsons um diskinn sem ber
yfírskriftina Bregðum okkur í ævin-
týri, er farið lofsamlegum orðum um
verkefnaval hljómsveitarinnar, enda
þykir Hodgson sem of einlit mynd
af Grieg hafi blasað við tónlistará-
hugafólki. Hann fer lofsamlegum
orðum um upptökuna og segir hljóm-
inn í Háskólabíói gefa verkinu aukna
vídd og glæsilegri en hann hafí áður
heyrt og undirstrika kraftmikinn
flutning Sinfóníunnar. Verk Svends-
ens segir hann uppfyllingu, þó ágæt
séu.
í lok dómsins segir Hodgson: ,,[Á
disknum er] spennandi dagskrá sem
flutt er af smekkvísi og öryggi.
Gaman væri að fá að heyra meira
með þessari fyrirtaks hljómsveit og
hæfileikamiklum stjórnanda henn-
ar.“ Hodgson klykkir síðan út með
því að gefa disknum fjórar stjömur
af fímm í einkunn sem þýðir að disk-
urinn sé vel eigulegur.
PARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETTPARKETT
Verðlækkun á STORIUO farsímum frá MOTOROLA
■
Mú er réfta
tækifærið ef
þú vilt eignast
síma í bflinn
Nú getur þú eignast Stomo farsíma á sérstöku
sumarverði. Tilefnið er að Póstur og sími
hefur selt meira en 2000 Storno farsíma og
þess vegna ætla framleiðendur Stomo,
MOTOROLA, að bjóða 100 farsíma á sérstöku
sumarverði, aðeins frá
kr. 69.900
staðgr. m.vsk. Einnig bjóðast góð greiðslukjör.
(Kostaði áður kr. 79*580 stgr. m.vsk.)
Storno bílasímanum fylgir allur búnaður til tengingar í bílinn, svo
sem kaplar, festingar, loftnet og búnaður til að geta talað handfrjálst.
Storno farsíminn hefur skammvalsminni fyrir 99 númer og nöfn, tíma- og
verðmælingu, læsingu, fullkominn tvíátta handfrjálsan búnað, þjófavörn,
tónval, tímastillt straumrof og 10 númera endurvalsminni.
Storno Mj
pf ■ .. !
AA) MOTOROLA
POSTUR OG SIMI
Við spörum þér sporin
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt.
PARKETTPARKETTPARKETTPARKETT