Morgunblaðið - 30.06.1992, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPHjQVINNULÍF þriðjudagur
30. JUNI 1992
iiimm.ii.miF
Heill heimur út af fyrir sig
íslenski hesturinn kynntur á einni af stærstu landbúnaðarsýningum Bretlands
„Og nú, dömur mínar og herrar,
fáið þið að sjá eitthvað sem ég get
lofað ykkur að þið hafið aldrei séð
áður“, sagði kynnirinn á „The Roy-
al Bath and West of England
Show“, þegar 10 manna sýningar-
sveit frá Eddahestum reið inn í
aðalhring sýningarinnar. Það voru
eflaust orð að sönnu, því að hér í
Bretlandi er íslenski hesturinn lítið
þekktur.
Fyrirtækið Eddahestar var stofn-
að af 100 hrossaeigendum og
-ræktendum í fyrra með það að
markmiði að flytja út og kynna ís-
lenska hestinn eríendis. Upphaflega
ætlaði fyrirtækið að* einbeita sér á
Þýsklandsmarkaði til að byija með
og hefur komið sér upp aðstöðu til
þess í Kaufungen. Málin hafa hins
vegar þróast þannig að fyrsta söl-
umiðstöð Eddahesta var formlega
opnuð 11. maí sl. á búgarðinum
Pitton í námunda við Salisbury í
Suður-Engandi. Á opnunardaginn
komu um 200 manns alls staðar
að frá Bretlandi og sýndu starfsem-
inni mikinn áhuga. í framhaldi af
því hefur 10 manna sýningarsveit
á vegum Eddahesta, skipuð 5 ensk-
um og 5 íslenskum knöpum, tekið
þátt í tveimur sýningum til að
kynna íslenska hestinn. Fyrri sýn-
ingin var „The Rutland Show“, í
námunda London, sem um 20.000
manns sækja árlega, en sú seinni
„The Royal Bath and West of Eng-
land Show“. Sú sýning er önnur
stærsta landbúnaðarsýning Eng-
lands og hana sækja árlega um
150.000 manns. Sýningin stóð yfír
dagana 27,- 30. maí og kom sýn-
ingarsveit Eddahesta fram daglega
með 10 mínútna atriði á aðalsýning-
arsvæðinu sem kallaðist „A World
in it self“ eða heimur út af fyrir
sig. Að auki var veglegur kynning-
arbás á vegum fyrirtækisins á
staðnum, þar sem fólki gafst kostur
á að skoða söluhesta, horfa á mynd-
bönd og fá upplýsingabæklinga.
HESTASYNING — Sendiherrann í hópi íslensku knapanna eftir vel heppnaða sýningu. Frá vinstri
eru Jónas Hrólfsson, Helgi Ágústsson, sendiherra, Þorvaldur Sveinsson, Sigrún Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri Eddahesta, Bergur Jónsson og Pétur Traustgson.
Óhætt er að segja að íslensku hest-
amir hafí vakið mikla athygli. Fjöldi
fólks fylgdist með sýningunni dag-
lega og stöðugur straumur áhuga-
samra lá að kynningarbásnum.
Sigrún Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Eddahesta, sagðist
mjög ánægð með undirtektimar og
fínna fyrir miklum áhuga. Hún
sagði áhuga fjölmiðla hafa verið
mikinn og fréttafólk af blöðum,
útvarpi og sjónvarpi hafa gert þeim
skil. Hún sagði ennfremur greini-
legt að fólk sæi með íslenska hestin-
um möguleikann á að gera reið-
mennsku að fjölskylduíþrótt.
Rétti timinn núna
Búgarðurinn Pitton, þar sem söl-
umiðstöð Eddahesta í Bretlandi er,
er í eigu þeirra hjóna í Clair og Jim
ISLANDSHESTAFELAGIÐ — Þijár atkvæðamiklar
konur úr félaginu. Frá vinstri standa Michelle Food, Jackie Elias og
Clair Grocott.
Þú færð ekki betri
æfingaaalla á betra
verði.. 4
íÉK' *
xii ■
m m
ÍÁ
Grocott. Upphaflega kviknaði áhugi
þeirra á íslenska hestinum fyrir
íjórum ámm þegar þau fóru í ferð
með íshestum yfír hálendi íslands.
Síðan hafa j)au farið í slíka ferð á
hveiju ári. Áhugi þeirra leiddi síðan
til þess að þau keyptu sér tvo hesta
fyrr á þessu ári, sem varð aftur til
þess að þau keyptu búgarðinn Pit-
ton til að hafa aðstöðu fyrir þetta
nýja áhugamál sitt.
„Þegar Einar Bollason sagðí okk-
ur frá áformum Eddahesta um að
opna sölumiðstöð í Þýskalandi,
bentum við honum á, meira í gríni
en alvöru, að við ættum nægjanlegt
land til að hýsa eina slíka. Áður
en við vissum af var hann búinn
að taka okkur á orðinu“, Segir Cla-
ir brosandi.
í framhaldi af því settust þau
hjónin niður á eldhúsgólfínu hjá sér
og skrifuðu til um 120 sýningarað-
ila, þar sem þau kynntu og buðu
TUDOR og S0NNAK
rafgeymar í öll farartæki
I v . K«i, ■ ■JH SP l
,á alla fjölskylduna!
Barnagallar: frá kr. 4.380,-
STÆRÐIR: 128 - 176
FuUorðinsgallar: frá kr. 4.980, ■
REYKJAVÍK: BoKamaðurinn, Trlmmið, Sportmaðurinn,
Búsport, Sportval AKRANES: Versl.Óðinn AKUREYRI:
Sporthúslð SELFOSS: Vöruhús KÁ fSAFJÖRÐUR:
Sporthlaðan SEYÐISFJÖRÐUR: Aldan H/'TEC
Heildsöludreifing
Allar stærðir - Langbestu verðin
Umboðsmenn um land allt
-meiriháttar merki!
fram kynningaratriði með íslenska
hestinum. „Við bjuggumst við að
árangurinn yrði sá að við kæmumst
inn á eina til tvær smásýningar.
Við urðum því bæði undrandi og
glöð þegar okkur barst jákvætt
svar frá þessari stóru og virtu sýn-
ingu“, segir Clair, en viðurkennir
að þau hafí ekki vitað hvað þau
voru búin að koma sér í. Hún segir
að samhentur hópur íslandshesta-
eigenda hafí brett upp ermamar
og gert þetta allt mögulegt.
Clair segir að nú séu hagstæð
skilyrði til markaðssetningar á ís-
lenska hestinum í Bretlandi. „Það
hafa átt sér stað breytingar á land-
búnaðarlöggjöfínni hér í Bretlandi
í þá veru að hestahald á búgörðum
fellur nú undir landbúnað sem það
gerði ekki áður. Það er okkur til
framdráttar."
Aðspurð um framtíðina segir Cla-
ir: „Við gefum þessu tvö ár og
sjáum svo til, en það að hafa kom-
ist inn á þessa sýningu hefur afar-
mikið kynningargildi og gefur okk-
ur vissulega ástæðu til að vera
bjartsýn.“
Þetta er mjög spennandi
íslandshestafélagið í Bretlandi
var stofnað árið 1986. Nokkuð af
íslenskum hestum hafa verið í Skot-
landi allar götur frá 1956, en áhug-
inn hefur breiðst hægt út. Það er
ekki fyrr en nú síðasta áratuginn
sem Englendingar hafa farið að
taka við sér, en Jackie Elias er ein
brautryðjendanna í íslandshesta-
starfínu í Englandi. Hún keypti
fyrsta íslenska hestinn sinn frá
Skotlandi árið 1981. „Þá vissi eng-
inn hér hvað gangur var“, segir
hún. „Smám saman hafa fleiri kom-
ið inn í starfíð og við höfum verið
dugleg að skrifa greinar í tímarit
um hesta til að kynna íslenska hest-
inn og kosti hans. „Jackie segir að
fram að þesu hafí Englendingar
einkum keypt hesta sína frá Þýska-
landi, Hollandi, Belgíu og Dan-
mörku, „Því við vprum ekki í sam-
bandi við neina íslendinga". „Nú
eru hjólin hins vegar farin að snú-
ast hratt og í fyrra urðu þau kafla-
skil í starfí okkar að við héldum
fyrsta breska meistaramót íslands-
hestafélagsins". Jackie segir mjög
spennandi að fylgjast með þróun-
inni og það sé félaginu mikil lyfti-
stöng að íslendingar skuli nú hafa
áhuga á að koma út og vinna með
þeim. „Við viljum læra að umgang-
ast íslenska hestinn á ykkar vísu
og halda honum upprunalegum. Við
höfum engan áhuga á að breyta
honum og það er því sérstaklega
ánægjulegt að fá nú tækifæri til
að læra af íslendingum".
Texti og myndir: Anna Hildur
Hildibrandsdóttir.
Rekstrarvör-
ur eru ekki
hlutafélag
í frétt í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins sl. fímmtudag var sagt frá
samningi Innkaupastofnunar ríkis-
ins og Rekstrarvara um kaup á
pappírsvörum fyrir ríkisstofnanir.
Fyrir misskilning stóð þar Rekstrar-
vörur hf. sem er ekki rétt, fyrirtæk-
ið er í einkaeigu. Þá var sagt að
Kristján Einarsson væri forstjóri
Pappírsvara, en hið rétta er að sjálf-
sögðu að hann er forstjóri Rekstrar-
vara.
TAXI
ENOK hf. Hamraborg 14, Kópavogi, simi 91-40097.
Bíldshöfða 12 - sími 680010
LEIGUBÍLL
ER ÓDÝRARI
EN ÞÚ HELDUR