Morgunblaðið - 30.06.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPIUIQVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
27
Iðnaður
Jámsteypan hf. að
hefja framleiðslu
úr manganstáli
JÁRNSTEYPAN hf. hefur hafið
framleiðslu úr svonefndu mang-
anstáli sem hentar sérstaklega
fyrir hluti þar sem góðra sliteig-
inleika er þörf. Ekki er vitað til
þess að hlutir úr manganstáli
hafi verið framleiddir hér á landi
heldur hafa þeir einvörðungu
verið fluttir inn. Manganstál
hentar sérstaklega fyrir tog-
hleraskó sem er neðsti hluti tog-
hlera og dregst eftir botninum
við togveiðar. Einnig er þessi
málmur notaður í jarðvinnslu-
tæki t.d. tennur jarðvinnsluvéla
og veghefla þar sem sem mikið
mæðir á.
K
Auglýsing þessi er birt í upplýsingaskyni samkvæmt reglum um skráningu hlutabréfa
á Verðbréfaþingi Islands. Auglýsingin f
i felur ekki í sér tilboð um sölu hlutabréfa.
Tilkynning um skráningu hlutabréfa á Vérðbréfaþingi Islands
Skráning hlutabréfa Hf. Eimskipafélags íslands
Þann 9. júní 1992 voru hlutabréf í Hf. Eirnskipafélagi íslands skráð á
Vérðbréfaþingi Islands. Hf. Eimskipafélag fslands vill þannig stuðla að
áframhaldandi þróun skipulegra hlutabréfaviðskipta hér á landi. Skráningarlýsing
hlutabréfanna, ársreikningur félagsins og samþykktir þess liggja frammi á
skrifstofu félagsins, Pósthússtræti 2, Reykjavík, og hjá helstu
verðbréfamiðlunum.
HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
ið höfum náð árangri í framleiðslu
á magnanstáli og eru að byija á
því að steypa hluti sem fara í litlum
mæli til valinna viðskiptavina til
reynslu," sagði Guðmundur Sveins-
son, framkvæmdastjóri Járnsteyp-
unnar. „Þetta yrði aukaafurð sem
kæmi mjög vel inn í núverandi
rekstur og við yrðum ánægðir með
að ná 10% veltuaukningu. Það er
hins vegar möguleiki á að ryðja
öðrum efnum úr vegi og þá gæti
orðið enn frekari aukning."
Þessi árangur Járnsteypunnar
kemur í framhaldi af samstarfi fyr-
irtækisins við Iðntæknistofnun sem
framkvæmdi frumathugun á hag-
kvæmni mangansálsteypu hérlendis
á sl. ári. Þar kom fram að markað-
ur manganstáls er verulegar og
myndi að öllum líkindum vera tals-
verður ávinningur fyrir innlenda
járnsteypu að sækja inn á þennan
markað. Hráefni til manganstáls-
framleiðslu fellur að verulegu leyti
til hérlendis þar sem uppistaða
manganstáls er smíðajárn. Stálið
er brætt með raforku og því er tal-
ið að innlenda framleiðslan eigi alla
möguleika á að vera samkeppnis-
fær.
MAINIGANSTÁL —
Járnsteypan hefur nú hafið
framleiðslu úr manganstáli sem
hentar sérstaklega í hluti sem
mikið mæðir á eins og toghlera-
skó og tennur jarðvinnsluvéla.
Þessi nýja framleiðsla er tals-
verð búbót fyrir Jámsteypuna
sem til þess hefur mest fram-
leitt úr svokölluðum potti eða
hrájárni.
Járnsteypan er lítið fyrirtæki
með 10 starfsmönnum og hefur
einkum framleitt ristar og brunnlok
til gatnagerðar ásamt útibekkjum.
Að sögn Guðmundar þurfti ekki að
ráðast í viðbótarfjárfestingar vegna
framleiðslunnar úr magnanstáli ef
undan er skilin ráðgjöf Iðntækni-
stofnunar. „Við þurfum að keppa
við innflutning á verði sem er til-
tölulega lágt. Það er raunhæfur
möguleiki með því að nýta fjárfest-
inguna og mannskapinn sem við
erum með fyrir og bæta aðeins
þekkingunni við.“
Greiðslukort
Kreditkort tekur
Sportkort ínotkun
KREDITKORT hf., í samvinnu við iþróttahreyfinguna, tekur bráð-
lega í notkun svonefnd Sportkort sem er alþjóðlegt tengikort við
Eurocard. 30 íþróttafélög, héraðs-, íþrótta- og ungmennasambönd
hafa undirritað samstarfssamning við Kreditkort hf. en innan þess-
ara sambanda eru rúmlega 90 félög um allt land. Hægt er að nota
Sportkortið alls staðar þar sem Eurocard er tekið, jafnt hér á landi
sem erlendis.
í fréttatilkynningu frá Kredit-
kortum hf. segir að íþróttafélögin
hafi samið við fjölda fyrirtækja víðs
vegar um landið um samstarf sem
felist í því að fyrirtækin veiti af-
slátt af viðskiptum með Sportkorti
og gangi afslátturinn til viðkomandi
iþróttafélags. Nokkrir aðilar hafi
að auki ákveðið að veita aukaaf-
slátt allt að 10% sem ganga á beint
til viðskiptavinarins greiði hann
með Sportkorti.
Skipuleg söfnun korthafa hefst
um mánaðamótin júní-júlí. Sport-
korthafar greiða hærra kortagjald
sem nemur 1.500 kr. sem renna á
beint til viðkomandi íþróttafélags
og er áætlað að fyrstu kortin verði
tilbúin í byijun ágúst.
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
Sumarnámskeið í hraðlestri hefst miðvikudaginn 15. júlí nk.
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn og auka ánægju við allan lestur?
Vilt þú bæta námsárangur þinn og auðvelda námið næsta vetur?
Nú er tækifæri fyrir þá sem vilja margfalda lestrarhraða sinn,
en hafa ekki tima til þess á veturna.
Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
10 ÁRA —