Morgunblaðið - 30.06.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
Minninff:
Andri Már Karlsson
Fæddur 16. nóvember 1989
Dáinn 22. júní 1992
Legg ég nú bæði líf og önd
ljúfi Jesús í þína hönd
síðast þegar ég sofna fer
sitji guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Með þessum orðum vil ég kveðja
hjartfólginn vin minn sem var mér
góður félagi síðastiiðið ár á Lyng-
ási og í Álfalandi. Þær voru ófáar
stundimar sem við eyddum saman
í „litla heiminum" og ég þakka
honum vinarþel, tjáskipti sem okkur
einum var gefið að skilja.
Þín vinkona, Ólöf.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Fréttin kom sem reiðarslag.
Andri Már var dáinn. Enn einu sinni
reiddist ég og skildi ekki af hveiju
var verið að taka þetta litla ljós frá
foreldrum sínum og skilja þau eftir
með opið sár. Einhver tilgangur
hlýtur að vera með þessu öllu sam-
an _sem við fáum aldrei svar við.
Ég kynntist Andra Má og móður
hans fyrir tæpum tveimur árum.
hann var mikið fatlaður og gat lítið
tjáð sig eða hreyft. En þrátt fyrir
fötlun sína tókst honum að lokka
alla til sín með fallega brosinu og
bað um að vera kitlaður svolítið.
Þá skellihló hann svo það skein í
hvítar tennurnar og líkaminn iðaði
allur.
Móðir Andra gerði allt sem hún
gat gert svo honum liði sem best.
Þrátt fyrir að hafa öðrum skyldum
að gegna heima fyrir og í vinnu
gat hún með fágætri hjálp írisar
dóttur sinnar dvalið langtímum
saman hjá Andra er hann lá á deild
12-E, Bamaspítala Hringsins.
Starfsfólkið þar á miklar þakkir
skyldar fyrir þá einstöku umönnun
sem það veitti honum og fjölskyldu
hans.
Margir aðrir lögðu hönd á plóginn
til að gera Andra lífið sem létt-
bærast. Sérstaklega vil ég nefna
starfsfólkið á Lyngási þar sem hann
vistaðist hálfan daginn og starfsfólk
Álfalands þar sem hann naut vist-
unar nokkra sólarhringa í mánuði.
Það starf sem innt er af hendi á
þessum stöðum og sú umhyggja
sem látin er í tré er ómetanlegur
styrkur og stuðningur þeim sem
þangað leita.
Elsku Valia, Ámi, íris og Hildur,
ég mun biðja Guð að styrkja ykkur
á erfiðum tímum. Ég veit að orð
eru fátækleg á svona stundu en
minninguna tekur engin frá ykkur
um litla fallega Andra.
V
Minning
Gísli Gíslason
Gísli var fæddur á Kalastöðum á
Stokkseyri. Foreldrar hans voru
Gísli Gíslason formaður og vélstjóri
á Kalastöðum, fæddur 1866 í Kot-
feiju og dáinn 1935 í Vestmanna-
eyjum af Auðsholtsætt í Ölfusi.
Kona hans var Guðrún Sigurðar-
dóttir fædd 1868 á Kalastöðum,
dáin 1945 í Vestmannaeyjum, af
íragerðisætt.
Gísli var fímmti í röðinni af átta
systkinum. Elstur var Sigurþór,
fæddur 1896, dáinn 1915, Anna
Gíslína, fædd 1898, dáin 1984, Sig-
urður, fæddur 1900, dáinn 1966,
Víglundur, fæddur 1902, dáinn
1977, Þóra, fædd 1906, dáin 1982,
Hinrik, fæddur 1908, dáinn 1986
og Ingibjörg, fædd 1911. Gísli fór
ungur á sjóinn, 15. maí 1920 er
hann skráður á Bifröst frá Hafnar-
fírði, þá ekki 16 ára gamall og
gekk hann alla leiðina frá Stokks-
eyri, síðar komu skipin Surpnse,
Loki, Víkingur, Síðu Hallur. Árið
1928 flytur hann ásamt íjölskyldu
sinni til Vestmannaeyja og þar held-
ur hann áfram á sjónum, þá ýmist
stýrimaður eða háseti, má nefna
Þorgeir Goða, Karl, Hiimi, Öminn,
Garðar, Leó og Helga. Þegar ég
kynnist Gísla 1953 er hann hættur
á sjónum og vann hann við neta-
gerð eftir það, meðan aldur leyfði.
Gísli giftist ekki eðá átti böm,
en systursonur hans Sigurþór ólst
upp hjá mömmu hans og pabba og
kom Gísli þar fljótt í föður stað er
afinn dó. Eftir Eyjagosið fluttu þau
systkinin Gísli og Ingibjörg til
Stokkseyrar aftur, og síðustu þijú
árin dvöldu þau á Hrafnistu í
Reykjavík. Gísli var einstakt prúð-
menni, þau 39 ár er ég þekkti hann,
skipti hann aldrei skapi, alltaf bros-
andi og naut þess að tala um ætt-
fræði og Ámesinga. í yfír 40 ár
hélt systir hans Ingibjörg heimili
fyrir þau og er hennar missir mik-
ill. Að leiðarlokum þökkum við, ég
og fjölskylda mín, Gísla fyrir allt
er hann var okkur og óskum honum
Guðs blessunar.
Þóra Ása.
Vegna mistaka við vinnslu blaðs-
in8, birtist grein þessi, sem birt-
ist sl. laugardag , aftur í heild
sinni og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
BIODROGA
Silkimjúkar hendur
Bio Repair
handáburðurinn
340 kr.som..
BIODROGA lífrænar jurtasnyrtivörur
Útsölustaðir: Stella, Bankastræti; Ingólfsapótek, Kringlunni;
Brá, Laugavegi; Gresika, Rauðarárstíg; Lilja, Grenigrund 7, Akranesi; Kaupf.
Skagfirðinga; Kaupf. Eyfirðinga; Vestmannaeyjaapótek.
Ég sendi einnig ömmum hans og
pabba, mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hönd þín snerti
sálu okkar.
Fótspor þín liggja
um Líf okkar allt
Gleym mér ei.
Jóhanna Hauksdóttir.
Það vom þungbærar fréttir sem
okkur bámst mánudaginn 22. júní
sl. Elsku litli og fallegi drengurinn
hann Andri Már var látinn, aðeins
rúmlega 2 ára að aldri. Lífíð var
honum ávallt erfítt og þurfti hann
að beijast við veikindi allt til hinsta
dags. Þrátt fyrir þessi miklu veik-
indi var þó stutt í fallegt bros og
hlátur. Með þessum yndislega ljós-
hærða dreng áttum við saman
margar en þó alltof fáar ánægju-
stundir. Huggunarorðin em fá en
við emm þess fullviss að Andra
Má líður nú vel í faðmi Guðs.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við kveðja elsku litla dreng-
inn sem alltof snemma var kallaður
yfír móðuna miklu.
Elsku Valla, Kalli, íris, Ámi og
Hildur Ósk, megi Guð styrkja ykkur
í þessari miklu sorg. Sorgin og eftir-
sjáin er mikil. Hvíli elsku Andri
Már í friði, minningin um hann lifir
að eilífu í hjörtum okkar allra.
Dáinn, horfinn! - Harmafregn!
Hvílík orð mig dynur yfir
en ég veit að látinn lifir
það er huggun harmi gegn,
hvað væri annars Guðleg gjöf,
geimur heims og lífið þjóða?
Hvað væri sigur sonarins góða?
illur draumur, opin gröf.
(Jónsas Hallgrímsson)
Kolbrún, Árni, Eva
og Brynjar.
„Að gefa af eigum sínum er lítil
gjöf. Hin sanna gjöf er að gefa af
sjálfum sér.“ (Spámaðurinn, Kahlil
Gibran).
Það má sannarlega segja um litla
Andra Má, sem við kveðjum nú í
dag, að hann hafí gefíð mikið af
sjálfum sér.
Fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári
kynntumst við Andra Má fyrst en
þá stóð til að hann kæmi á deildina
til okkar í Lyngás/Safamýrarskóla.
Vegna veikinda hans dróst á lang-
inn að hann kæmi til okkar. Fyrstu
kynnin urðu því á Landspítalanum,
enda þurftum við að læra sérhæfða
umönnun sem fylgdi veikindum
hans og fötlun.
Þrátt fyrir það mikla álag sem
Andri Már þurfti að ganga í gegn-
um á hveijum degi, til að létta á
veikindum sínum, gat þessi litli
snáði oft snúið þessum athöfnum
upp í skemmtilegan leik. Andri Már
var mjög félagslyndur og naut þes
að vera í návist annarra. Hann var
óspar á fallega brosið sitt og hafði
í eðli sínu létta lund.
Þótt hjúkrun og umönnun hafí
skipað stóran sess í lífí Andra fékk
hann líka annars konar þjálfun og
ekki var annað að sjá en að hann
kynni vel að meta hveija athöfn
fyrir sig. Þrátt fyrir hans miklu
fötlun voru möguleikar til þjálfunar
og leiks með Andra ótal margir og
skemmtilegir. Þar kom til hæfileiki
hans til samspils við aðra. Andri lét
óspart í ljós vilja sinn og gerði
greinilega mannamun. Við getum
ekki látið hjá líða að minnast á
kassabílinn hans sem annar lítill
vinur hans dró hann stundum í og
þá skríkti Andri af kæti. Okkur er
líka minnisstætt hans fyrsta vor-
ferðalag sem farið var í fyrir
skömmu í Hveragerði, þar naut
Morgunblaðið/Sveinbjörn Berentsson
Lögregla og slökkvilið að störfum við sumarbústaðinn.
Með reykeitrun eft-
ir eld í sumarbústað
TVEIR menn voru fluttir á slysadeild með reykeitrun er sumar-
bústaður í landi Stekks á Álftanesi brann á laugardag. Slökkvi-
liði gekk vel að ráða niðurlögum eldsins, sem kviknaði út frá
olíukyndingu. Mennirnir voru að reyna kyndinguna er eldur-
inn braust út. Annar mannanna fékk að fara heim strax, en
hinn síðar sama dag.
Klukkan 14.52 á laugardag
barst slökkviliðinu í Hafnarfirði
tilkynning um að eldur væri laus
í sumarbústaðnum. Nýbúið var
að setja olíu á kyndinguna og
mennimir voru að reyna hana
er eldur braust út. Að sögn
slökkviliðsins gekk vel að
slökkva eldinn, sem var á byijun-
arstigi þegar að var komið.
Mennimir höfðu þá sjálfír reynt
að slökkva eldinn með hand-
slökkvitæki.
Skemmdir á bústaðnum vom
litlar, að sögn slökkviliðs. Sperr-
ur kringum skorsteininn sviðn-
uðu, og rífa varð plötur af þaki.
Engar skemmdir urðu af vatni
og litlar af reyk.
Andri sín í góðum félagsskap vina
sinna.
Við söknum Andra Más sárt og
dapurlegt er að horfa á „skotið
hans“ og litlu fallegu leikföngin
hans sem hann snertir ekki framar.
Félagar hans á deildinni hafa einn-
ig misst góðan vin.
Við höfum fylgst með fjölskyldu
Andra Más sem hefur af miklum
krafti, dugnaði og umhyggju ann-
ast um velferð hans og yndislegt
er að sjá þau miklu tengsl sem
sköpuðust milli þeirra.
Elsku Valla, Karl, íris, Ami,
Hildur og fjölskylda. Við vottum
ykkur okkar innilegustu samúð.
Minningin um Andra Má mun lifa
með okkur.
Mér er sem leggi ég lófann
á litla höfuðið þitt,
biðjandi guð að geyma
gullfagra bamið mitt.
(Heine - B. Grðndal).
Starfsfólk í deild 1,
Lyngási/Safamýrarskóla.
En svo era vonimar - vonir um líf,
sem veldinu heljar ei lúti,
þær lýsa oss hátt yfir kvalir og kíf
- og kennist, þá bemskan er úti.
Þær tala um sífögur sólskinslönd
og saklausa éilífa gleði,
með kærleik og frið, engin Qötrandi bönd,
en fijálst allt, sem Drottinn léði.
Og því er oss erfitt að dæma þann dóm,
að dauðinn sé hryggðarefni,
þó Ijósin slokkni og blikni blóm. -
Er ei bjartara land fyrir stefni?
Þér foreldrar grátið, en grátið lágt,
við gröfina dóttur og sonar,
því allt, sem á líf og andardrátt,
til ódáinsheimanna vonar.
(Einar Benediktsson ,
Elsku Valla, Karl og systkini,
megi Guð styrkja ykkur og styðja
í sorginni. Við munum geyma minn-
inguna um lítinn dreng með fal-
legt, bjart bros í hjörtum okkar.
Guð geymi litla Andra Má.
„Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
min veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt."
Allir í Álfalandi.
Eftirlit með
laxveiði í sjó
AUKIN áhersla verður á næstunni
lögð á eftirlit með ólöglegum lax-
veiðum í sjó, og að sögn Einars
Hannessonar þjá Landssambandi
veiðifélaga verður það gert í sam-
vinnu hagsmunaaðila og opin-
berra aðila.
„Eins og áður þá verður þetta
fyrst og fremst í höndum veiðieftir-
litsmanna sem ráðnir eru tímabundið
til að sinna þessu, en nú verður lögð
aukin áhersla á eftirlit með veiðum
í sjó og allt upplýsingastreymi þar
að lútandi. Þá er ætlunin að auglýsa
betur hvaða verðmæti eru þarna á
ferðinni, en það skiptir öllu máli varð-
andi framtíð hafbeitar að það takist
að stemma stigu við veiðiþjófnaði,"
sagði Einar.
------» ♦ ♦
*
Omerkt net í
Keflavíkurhöfn
EFTIRLITSMENN frá veiðimála-
stjóra gerðu í fyrrinótt upptækt
net í höfninni í Keflavík sem
strengt hafði verið á milli tveggja
báta. Enginn fiskur var í netinu,
sem var ómerkt. Víðtækt eftirlit
verður með ólöglegum netalögn-
um á strandlengjunni og höfnum
á Reykjanesi í sumar.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
verða eftirlitsmennirnir með víðtækt
eftirlit við strandir og hafnir á Suður-
nesjum, allt frá Straumsvík til
Reykjanestáar, til_ að koma í veg
fyrir veiðiþjófnað. í Vogum á Vatns-
leysuströnd er laxeldisstöðin Vogar
og að sögn lögreglunnar, eru menn
að fiska eftir hafbeitarlaxi í netin. í
síðustu viku fannst ólöglegt net í
höfninni í Helguvík.