Morgunblaðið - 30.06.1992, Blaðsíða 32
/">
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1992
ÍDagbjört Ólafsdóttir
Bjöm Konráðs Sigur-
björnsson - Minning
Dagbjört Ólafsdóttir
Fædd 28. maí 1901
Dáin 20. júní 1992
Björn Konráðs
Sigurbjömsson
Fæddur 6. mars 1894
Dáinn 29. júní 1977
Nú legg ég aftur augun mín,
en öndin hvarflar, Guð, til þín,
þinn almáttugan ástarvæng
lát yfirskyggja mína sæng.
Að rísa upp í heimi hér
með hverri sólu kenn þú mér,
svo líta fái’ ég ljósið þitt,
er lífgar Jesús duftið mitt.
Ken - Sb. 1886. M. Joch.
Hún trúði því hún Dagga mín að
Björn hennar kæmi ríðandi á móal-
ótta hestinum sínum og hefði þann
brúna söðlaðan við hlið sér til að
sækja sig. Með þá sælu trú lagði
hún aftur augun sín aðfaramótt 20.
þessa mánaðar. Dagga, eins og hún
var ævinlega kölluð, hét fullu nafni
Dagbjört Olafsdóttir og var fædd
28. maí 1901 að Keldudal í Vestur-
Skaftafellssýslu, dóttir hjónanna
Guðrúnar Dagbjartsdóttur og Ólafs
Bjamasonar. Böm þeirra vom sex.
Dagbjört var elst, Bjamgerður sem
var næstelst dvelur nú á elliheimil-
inu Gmnd. Anna býr að Austurkoti
í Hraungerðishreppi. Sigurlín dvel-
ur á Hrafnistu í Hafnarfírði. Gunn-
ar bjó á Haga við Selfoss, hann
lést fyrir rúmum tveimur áram síð-
an, en Bjarni lést fýrir allmörgum
ámm.
Dagbjört fór snemma að vinna
fyrir sér sem vinukona og var í þá
tíð talið á við góðan skóla að fara
í vistir á góðum heimilum. Var hún
í einni slíkri vist á heimili þar sem
vom mikil veikindi. Var haft eftir
húsmóðurinni að Dagga ætti að
leggja fyrir sig hjúkmn. Á þeim
ámm vora þó heldur lítil efni til
náms. Árið 1932 réðist hún að
Korpúlfsstöðum í kaupavinnu hjá
Thor Jensen. Sagði hún mér að það
hefði verið skemmtilegur tími, mik-
ið af ungu fólki og glatt á hjalla.
Þar kynntist hún Lóu, vinkonu
sinni, og höfðu þær þann góða sið
að hringja hvor til annarrar á kvöld-
in og bjóða góða nótt. Vil ég þakka
Lóu alla tryggð og hlýju við Döggu
alla tíð. Upp úr þessu veiktist
Dagga af berklum og varð að fara
á Kristnesspítala og síðar á Vífíls-
staðaspítala þar sem hún fór að
vinna eftir að henni batnaði.
Dagbjört var há og grönn, fríð
kona sem hafði ákaflega gaman af
að vera fín og átti vönduð föt og
fór ákaflega vel með allt sem hún
átti. Hún var mikil hannyrðakona
og em rósabandavettlingamir
hennar ógleymanlegir, allir pijónað-
ir úr eingimi, í sauðalitunum.
Úr grýttri götu manns
hann glaður tók upp stein,
í gulli döggin hrein.
Ingþór Sigurbjömsson
Daggir, II. hefti.
Ég sem þessar línur rita er dótt-
ir Bjöms Konráðs Sigurbjömssonar
er fæddur var 6. mars 1884 að
Hvoli í Vestur-Hópi. Faðir hans var
Sigurbjörn Bjömsson, sonur Bjöms
Konráðssonar frá Kljá, sem í dag-
legu tali var kallaður Björn Konr-
áðs. Faðir Bjöms var Konráðs í
Bjamarhöfn, en hann var bróðir
Gísla sagnaritara Konráðssonar.
Móðir Bjöms, kona Konráðs, var
Margrét, dóttir séra Bjöms á Mæli-
felli. Bróðir hennar var séra Brynj-
ólfur í Miklaholti. Móðir föður míns
hét Sigurlaug Níelsdóttir Þórðar-
sonar. Móðir hennar, Ingigerður,
var dóttir Bjarna bónda í Bjargi í
Miðfirði, en hann var bróðir Mar-
grétar, konu Konráðs i Bjamar-
höfn. Ættartengslin voru því náin.
Bróðir Björns föður míns, Ing-
þór, er lést 27. apríl 1992, ritaði
endurminningar sínar í Dagsins
önn, II. hefti. Þar segir hann frá
að á fýrstu búskaparáram foreldra
þeirra bræðra hafí þau eignast þijá
drengi, en móðir þeirra átti lengi
við vanheilsu að stríða. Bræður föð-
ur míns voru þrír. Elstur var Gunn-
laugur Pétur, en hann bjó að Torfa-
stöðum í Vestur-Húnavatnssýslu.
Síðan kom Bjöm, þá Ingþór og
yngstur var Skarphéðinn Kári, sem
einn er á lífí og býr suður með sjó.
í endurminningum Ingþórs segir
svo: „Hlutskipti Björns í uppvextin-
um var ekki gott. Hann varð að
koma allvíða við og sumstaðar voru
kjörin kröpp svo ekki sé meira
sagt.“ í eftirmælum föður míns
segir Ingþór: „Á leið heim eitt
kvöldið reið fram á mig par, og
maðurinn á einum af glæsilegustu
hestum sem maður sá. Allar teg-
undir ferðafólks á hestum sá maður
alla daga, að landpóstinum meðt-
öldum, því að bílaöldin var ekki
runnin upp, en þetta fannst mér
með þvi glæsilegasta, og varð því
meira undrandi, er kallað var á mig
með nafni“ og áfram segir Ingþór:
„þar reyndist vera kominn Björn,
bróðir minn, þá kaupmaður á Holts-
stöðum í Langadal, og með konu-
efnið sitt, Arndísi Guðmundsdóttur
frá Móbergi." Og Ingþór heldur
áfram: „Ég hef síðar oft hugsað
sem svo, að ekki hafi verið undra-
legt þótt Björn væri hrifínn af Arnd-
ísi, því ég stráklingurinn dáðist að
glæsileik hennar." Þau hófu búskap
í sveitinni og eignuðust tvo drengi,
Leif sem er múrarameistari í Hafn-
arfírði og Sigurbjörn, fyrmrn sendi-
bílstjóra hér í borg, er látinn er
fyrir nokkrum ámm. Bjöm faðir
minn missti konu sína frá drengjun-
um ungum og varð að bregða búi
og koma þeim í fóstur. Eftir það
fór hann hér suður á land og vann
alla almenna verkamannavinnu sem
til féll. Mörgum ámm síðar eignað-
ist Björn undirritaða með sveitunga
sínum, Guðnýju Þórðardóttur.
Var getin harmi við aflsins yl,
sjálf orkan var forsjón hans.
Og jörmunsterk var sú jámstöng skírð,
nefnd JÁRNKARL í hendi manns.
Gunnlaugur Sigurbjörnsson
Daggir, II. hefti.
Þetta yrkir bróðir hans um styrk-
leika jámkarls og koma mér þessar
hendingar í hug, því mikið var látið
af afli föður míns.
Björn faðir minn kunni ekki að
hlífa sér sem verkamaður og lýsir
Ólafur Þorkelsson honum svo sjö-
tugum: „Magnþmngin orka í hveij-
um leik. Hann kynntist minna gulli
en hörðu gijóti, en gafst ei upp við
lífsins harða slag.“
Það var ekki fyrr en um 1964-66
að sólin fór að skína fyrir alvöru
hjá föður mínum og Dagbjörtu Ól-
afsdóttur. Þau felldu hugi saman
og stofnuðu heimili, fyrst á Skarp-
héðinsgötu og síðar í Múlakampi.
Mikið var notalegt að koma að
Suðurlandsbraut 18 uppi á holtinu.
Þar höfðu þau hesthús fyrir 7 hesta
við hliðina á litla húsinu sínu og
fallegan garð í kring. Faðir minn
var mikill hestamaður og var virkur
félagsmaður í hestamannafélagi
Fáks alla tíð. Einnig var hann virk-
ur í verkalýðsbaráttunni og lét mik-
ið til sín taka ef ráðist var að þeim
t
Þann 27. júní andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, móðir
okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐFINNASTEFÁNSDÓTTIR.
Björgvin Ottó Kjartansson, Þuríður Jónsdóttir,
Ásgeir Kjartansson, Pálfna Gunnmarsdóttir,
Stefán Kjartansson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Jóhann Kjartansson, Ingibjörg Þorgilsdóttir,
Sigurður Rúnar Kjartansson, Sólveig Smith,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
OTTÓ S. JÓNASSON
fv. brunavörður,
Hringbraut 78,
venður jarðsunginn frá Nýju kapellunni, Fossvogi, í dag, þriðjudag-
inn 30. júní, kl. 15.00.
Ása G. Ottósdóttir, Albert Stefánsson,
Elísabet S. Ottósdóttir, Örn Johnson,
Helga K. Ottósdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og móðurbróðir,
WALTERANTONSSON
hæstaróttarlögmaður,
Eskihlfð 8,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 30. júnf,
kl. 13.30.
Jónfna Kristín Gunnarsdóttir,
Elsa Rúna Antonsdóttir, Eyjólfur Björgvinsson,
Gunnar H . Antonsson, Anton Eyjólfsson.
+
Stjúpmóðir mín og systir okkar,
DAGBJÖRT ÓLAFSDÓTTIR,
vistheimilinu Seljahlfð,
sem lést 20. júní, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
í dag, þriðjudaginn 30. júní, kl. 15.00.
Jónína Björnsdóttir,
Anna Ólafsdóttir,
Bjarngerður Ólafsdóttir,
Sigurlín Ólafsdóttir.
+
Bróðir okkar,
MAGNÚS YNGVAR KRISTJÁNSSON,
Freyjugötu 11A,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 1. júlí kl. 13.30 frá Fossvogs-
kapellu.
Fjóla Kristjánsdóttir,
Finnborg Kristjánsdóttir
og vinir hins látna.
Tökum að okkur að rétta og
lagfæra legsteina í kirkjugörðum.
i
S.HELGASONHF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 4aSIMI 76677
sem minna máttu sín. Björn og
Dagbjört áttu fjölmörg sameiginleg
áhugamál og ferðuðust til dæmis
mikið og spiluðu við sama fólkið í
mörg ár. Faðir minn var eftirsóttur
dansherra og voru þau Dagbjört
afar glæsilegt par á dansgólfinu.
Ég held ég fari með rétt mál að
faðir minn hafi stjórnað dansi á
gamla Hótel íslandi einna fyrstur
manna.
Eftir að byggðin var rifín á Holt-
inu við Suðurlandsbrautina keyptu
Bjöm og Dagbjört sér íbúð að Oð-
insgötu 8A og bjuggu þar uns fað-
ir minn lést þann 29. júní 1977,
83 ára gamall. Eftir það bjó Dag-
björt ein í íbúð sinni meðan kraftar
leyfðu. Síðustu fímm árin hefur hún
búið á dvalarheimilinu í Seljahlíð.
Nú legg ég augun aftur,
Ó Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Ég vil þakka hjúkrunarfólkinu á
3. hæð og á sjúkradeildinni í Selja-
hlíð fyrir þá miklu umhyggju og
hlýju sem Dagbjörtu var 'sýnd þar
alla tíð.
Um leið og ég kveð Dagbjörtu
Ólafsdóttur með virðingu og þökk
og óska henni góðra endurfunda
við föður minn, Bjöm Konráðs Sig-
urbjörnsson, votta ég systmm
hennar svo og ættingjum og vinum
samúð mína.
Útför Dagbjartar Ólafsdóttur fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, 30. júní kl. 15.00 og verður
hún lögð til hinstu hvfldar við hlið
föður míns í Selfosskirkjugarði.
Veri stjúpa mín kært kvödd, Guð
á hendur falin, hafí hún hjartans
þökk fyrir allt og allt.
Jónína Björnsdóttir frá
Oddgeirshólum.
blómaverkstæði
INNAsfe
Skólavörðustíg 12
á horni Bérgstaðastrætis
sími 19090
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
vid öll tækifæri
'&Cóm,
d&iecýtúiycisi,
Opið alla daga frá kl. 9-22.
alia
FAKAFEN111
SÍMI: 68 91 20