Morgunblaðið - 30.06.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
33
Minning:
Ottó S. Jónasson
Fæddur 19. maí 1919
Dáinn 18. júní 1992
Elsku afi minn, Ottó Stefán Jón-
asson, er dáinn, aðeins hálfu ári á
eftir ömmu. Nú verða sund- og
gönguferðirnar ekki fleiri með hon-
um. Það var oft gaman þegar við
röltum niður á höfn þegar ég var
yngri og er við fórum saman og
heimsóttum vini hans, þar á meðal
Þorkel, Gillimann eins og ég kallaði
hann. Sá tók álltaf vel á móti okkur.
Afi átti alltaf Prins Póló handa
okkur barnabörnunum, en ef það
þraut þá var það beiski brjóstsykur-
inn sem bjargaði málunum.
Skódarnir hans afa voru sann-
kallaðar glæsikerrur enda taldi
hann þá bestu bíla í heimi og annað
tók hann ekki í mál. Eins og oft
vill verða minnkaði samband okkar
eftir að ég varð eldri en þó var ég
alltaf með annan fótinn heima hjá
ömmu og afa og alltaf var hann
jafn sprækur. Hann synti daglega
í Vesturbæjarlauginni og fór alltaf
í gönguferðina sína fyrir kvöldmat-
inn.
Eftir að amma varð veik sá afi
nánast alveg um hana, hlúði að
henni og hjúkraði. Eftir að hún dó
var hann lengi að ná áttum eins
og við öll, fráfall hennar var okkur
öllum mikill missir.
Nú þegar aðeins var farið að birta
yfir honum fór hann til Portúgal
með Félagi eldri borgara og hresst-
ist mjög við það. Hann var nýkom-
inn heim þegar hann varð bráð-
kvaddur og eru amma og afi nú
saman á ný.
Ég á eftir að sakna elsku afa
míns og ég þakka fyrir þann tíma
sem hann gaf mér.
Þvi særinn er veraldarsærinn,
og sjálfur er vesturbærinn,
heimur, sem kynslóðir hlóðu,
með sálir, sem syrgja og gleðjast
og sálir, sem hittast og kveðjast
á strönd hinnar miklu móðu.
(Tómas Guðmundsson)
Helga Kristín.
Látinn er í Reykjavík Ottó Stefán
Jónasson, fyrrverandi brunavörður.
Hann varð bráðkvaddur á heimili
sínu 18. þ.m.
Ottó var fæddur á Akureyri 19.
maí 1919. Hann var yngstur fimm
systkina, sem nú eru öll látin, en
foreldrar hans voru Jónas Jóhanns-
son, verkstjóri, frá Hjalteyri og
Guðrún Eiríksdóttir frá Krossi á
Beruijarðarströnd.
Ottó ólst upp á Akureyri, en flutt-
ist fermingarárið með móður sinni
til Reykjavíkur, en faðir hans var
þá látinn. Að lokinni skólagöngu
starfaði hann um tíma hjá föður-
bróður sínum, Metúsalem, sem bjó
stórbúi á Nesjavöllum í Grafningi,
en síðan stundaði hann ýmsa vinnu
í Reykjavík þar til hann gerðist
brunavörður árið 1945, en sem slík-
ur starfaði hann hjá Slökkviliði
Reykjavíkur til ársins 1990, er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Hafði hann þá starfað við sjúkra-
flutninga og slökkvistörf samfellt í
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
blómQueil
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
45 ár. Jafnframt brunavarðarstarf-
inu vann Ottó um árabil við húsa-
málun, enda harðduglegur til vinnu
og lagtækur vel.
Ottó kvæntist árið 1940 Elísa-
betu Arndal, hjúkrunarkonu, sem
nú er nýlátin, en foreldrar hennar
voru Kristínus F. Arndal, forstjóri
í Reykjavík og Níelsína Ásbjörns-
dóttir, íþróttakennari. Ottó og_ E1 -
ísabet eignuðust þijár dætur, Ásu
Guðrúnu, hjúkrunarfræðing, sem
gift er Albert Stefánssyni, stýri-
manni, og eiga þau þijár dætur;
Elísabet Sigríði, fulltrúa, sem gift
er Erni Johnson, forstjóra, en þau
eiga þijú börn; og Helgu Kristínu,
sem er flugfreyja.
Ottó var fríður maður, glæsilegur
á velli og mikið snyrtimenni. Hann
var alla tíð mikill áhugamaður um
íþróttir, lék knattspyrnu með Fram
á sínum yngri árum og stundaði
sund og göngur lengst af ævinnar.
Hann hafði einnig áhuga á ljós-
myndun og tók mikið af ágætum
myndum, sem hann varðveitti af
einstakri snyrtimennsku.
Ottó var góður drengur, bóngóð-
ur og hjálpsamur, en hann var ekki
allra. Hann var ósérhlífinn, sam-
viskusamur og skyldurækinn með
sterka réttlætiskennd. Hann var
fróður um margt og áhugasamur
um þjóðmál og þróun alþjóðastjórn-
mála, enda þótt hann væri sjálfur
ekki virkur þátttakandi. Hann hafði
mikinn áhuga á ferðalögum, og
ferðuðust þau hjónin mikið, bæði
innanlands og utan. Nú seinni árin
ferðuðust þau mjög mikið innan-
lands, til upplýsingasöfnunar vegna
ættfræðiáhuga eiginkonunnar.
Naut hann þeirra ferða vel, jafnvel
svo, að nokkur áhugi kviknaði fýrir
ættfræðinni.
Missir eiginkonunnar, sem reynst
hafði honum svo traustur förunaut-
ur og góður vinur í meira en hálfa
öld, reyndist Ottó erfíður. En lífið
heldur áfram, og síðustu vikurnar
hafði Ottó af miklum dugnaði tek-
ist að ná fótfestu á ný, er hann var
svo skyndilega og óvænt kvaddur
á fund Drottins.
Margs er að minnast af löngum
kynnum. Ég minnist margra
ánægjulegra heimsókna á heimili
Ottós og Elísabetar, en sérstaklega
þó jólaboðanna, sem jafnframt vru
afmælisveislur Betu. Það var ávallt
tilhlökkunarefni að hitta ættingjana
og njóta hinnar frábæru gestrisni
hjónanna. Nú verða þær ekki fleiri
heimsóknirnar á Hringbrautina. Nú
eru þau bæði, Beta og Ottó, horfin
yfir móðuna miklu, gengin á fund
þess er öllu ræður og öllum líknar.
í nóvember sl. kvöddum við Betu.
Nú, aðeins sjö mánuðum síðar,
kveðjum við Ottó. Hans er sárt
saknað af bömum, bamabörnum
og öðrum ástvinum.
Ottó verður jarðsunginn í dag,
þriðjudaginn 30. júní, frá nýju kap-
ellunni í Fossvogi.
Ég, og fjölskylda mín, þökkum
langa samfylgd og vináttu, og biðj-
um þeim hjónum og ástvinum þeirra
Guðs blessunar.
Stefán Arndal.
+
KRISTJANA JÓNSDÓTTIR
kennari
frá Sólheimum í Landbroti,
andaðist 25. júní.
Helgi Magnússon,
Guðrún S. Magnúsdóttir, Björn Jónsson,
Heiður A. Björnsdóttir, Magnús J. Björnsson.
Mágur minnr
GESTUR ÓLAFSSON,
Suðurgötu 3,
Keflavík,
lést á Garðvangi 29. júní.
Kristín Guðmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR AUÐUNS,
lést ( Borgarspítalanum 28. júní.
Sigríður Torfadóttir,
Auður Torfadóttir,
Torfi Sigurðsson,
Sigurður Gústavsson,
Gústav Sigurðsson.
+
ÁGÚST FJELDSTED
hæstaréttarlögmaður,
Freyjugötu 36,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. júlikl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Foreldra-
og vinafélag Sólheima, Grímsnesi, hjá Styrktarfélagi vangefinna.
Guðrún Jónsdóttir,
Vigdis Ágústsdóttir, Björgólfur Eyjólfsson,
Andrés Fjeldsted, Eva Marie Fjeldsted,
Skúli Th. Fjeldsted, Guðrún Þórsdóttir,
Lárus Fjeldsted
og barnabörn.
+
Dóttir okkar,
SIGNÝ SIGURVINSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum 23. júní.
Jarðað verður að Ingjaldshóli, Hellissandi, 3. júlí kl. 15.00.
Hansfna Guðmundsdóttir,
Sigurvin Georgsson.
+
Minningarathöfn um sambýlismann minn og föður okkar,
ÁRNA SIGURJÓN FINNBOGASON
skipstjóra
frá Vestmannaeyjum,
Stórholti 14, Reykjavík,
verður í Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. júlí kl. 15.00.
Jarðsungið verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn
3. júlí kl. 14.00.
Erla Kristjánsdóttir
og börn hins látna.
+
Systir okkar,
STEFANÍA SIGRÍÐUR GÚSTAVSDÓTTIR DWYER,
(Didda),
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hálfdán Gústavsson,
Ásta Gústavsdóttir Orsini,
Gústav Gústavsson,
Emma Gústavsdóttir.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR ELÍSABETAR BJÖRNSDÓTTUR,
Deildarási 18.
Guörún Þórðardóttir, Hörður Sigmundsson,
Erla Þórðardóttir, Sigfríð Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ÞORGERÐAR KARLSDÓTTUR,
Steinum 6,
Djúpavogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elfs Þórarinsson.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
INGEBORG B. SIGURÐSSON,
Grænumörk 3.
Ernst Sigurðsson,
Kristín M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson,
Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson.
+
Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og
vináttu vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
SVEINBJÖRNS ENOKSSONAR
bifreiðastjóra,
Kirkjuvegi 10A,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkirtil Hannesar Finnbogasonar, yfirlæknis, og heima-
hjúkrunarfólks Heilsugæslu Hafnarfjarðar sem gerðu okkur það
kleift að hann dvaldi heima til hinstu stundar.
Jóhanna Hall Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
+
Alúðar þakkir færum við þeim fjölmörgu, vinum og samstarfs-
mönnum nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
verkfræðings,
Vogatungu 10.
Bæjarstjórn Kópavogs eru færðar sérstakar þakkir fyrir þá virð-
ingu sem hún sýndi minningu hans.
Hulda Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þór Björnsson, Sigri'Aur Rafnsdóttir,
Brynjar Björnsson, Linda Björk Ólafsdóttir,
Hildur Elfa Björnsdóttir, Helgi Hafsteinsson,
Ólafur Vignir Björnsson, Berglind Hrönn Hrafnsdóttir
og barnabörn.