Morgunblaðið - 30.06.1992, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. 'apríl)
Dagurinn er upplagður til að
hefjast handa við nýtt verk-
efni, sem þig hefur lengi lang-
að að einbeita þér að. Kvöldið
verður rólegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí) .
Þú ert enn að hugsa um gam-
alt vandamál, sem vinur þinn
telur að sé úr sögunni. Ræddu
þetta við hann.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Streita hefur sett mark sitt á
það sem þú hefur tekið þér
fyrir hendur undanfarið. Þú
þarft líklega að leita að nýjum
leiðum til að losa um spenn-
una.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >"$6
Pjármálin eru ekki eins góð
og þú hafðir gert ráð fyrir,
þar sem óvænt útgjöld settu
strik í reikninginn. Ef einhver
skuldar þér, ættir þú að reyna
að innheimta skuldina núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Góður dagur til að sinna hvers
kyns tómstundum og rækta
samband við vini. Þú hefur
mikla þörf fyrir félagsskap og
átt erfitt með að vera einn
núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur haft áhyggjur af
máli sem varðar þína nánustu
og líklega tengist fjármálum.
Nú ættir þú að geta varpað
öndinni léttar. Kvöldið verður
skemmtilegt.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Gamall vinur gerir vart við sig
og kemur þér hugsanlega í
uppnám. Nú er rétti tíminn til
að gera upp sakimar, en
mundu að sannleikurinn er
ekki alltaf sagna bestur.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®Kj0
Þú hefur átt í nokkrum tilfinn-
ingalegum sveiflum upp á síð-
kastið, en nú fer að rofa til.
Kvöldið verður frekar leiðin-
legt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þeir sem eru ástfangnir, verða
sérstaklega tilfinninganæmir
í dag. Kvöldið verður róman-
tískt.
Steingeit
(22. des. — 19. janúar) m
Stirðleiki hefur gert þér gramt
í geði síðustu daga, og þú
þarft að finna tíma til að bæta
þar úr. Ánægjulegt kvöld í
augsýn.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Óvænt sending eða símtal í
dag mun gleðja þig mikið. Þú
átt í vændum skemmtilegt
kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ÓSL
Þínir nánustu bíða eftir að þú
tjáir þig um ákveðið mál og
þar sem rökhugsun þín er með
besta móti í dag, er tilvalið
að ræða málin.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradv'ól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegrastaðreynda.
f-.c ,i. .? r.-,. -j ,,-T
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hollenska landsliðskonan Vri-
end, situr í suður, staðráðin í
að taka 10 slagi í 4 hjörtum.
Staður og stund er Evrópumótið
á írlandi sl. sumar, kvennaflokk-
ur.
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður ♦ K72 ¥D854 ♦ K986 + Á9
Vestur Austur
♦ ÁG86 + 94
TK ¥ 1072
♦ Á3 ♦ D1072
* KG8762 + D543
Suður ♦ D1053 ¥ ÁG863 ♦ G54 + 10
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Pass Pass 1 hjarta
1 spaði 2 spaðar 3 lauf 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Vestur kom út með lítið lauf,
sem Vriend drap á ás og spilaði
strax hjarta á ás!
Hvers vegna?
Útspilið sagði þá sögu að
austur ætti kóng eða drottningu
í laufi. Og með hjartakónginn
til viðbótar hefði hún varla pass-
að laufopnun makkers í upphafi.
En spilinu var engan veginn
lokið. Vriend tók tvisvar tromp
í viðbót og spilaði svo tígli að
blindum. Vestur rauk réttilega
upp með ás og spilaði sig út á
tígli. Vriend hleypti yfír á drottn-
ingu austurs, sem sendi spaða-
níuna til baka. Og nú kom loka-
hnykkurinn — Vriend stakk upp
drottningu og setti vestur í
óleysanlegan vanda. I reynd
drap vestur á ás og spilaði spaða
og Vriend fékk slag á tíuna og
sína 10 slagi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Uppgötvun Ólympíumótsins í
Manila var Vladimir Kramnik, 17
ára gamall Rússi, sem hlaut 8V2
v. af 9 mögulegum. Sá eini sem
náði jafntefli gegn honum var
Helgi Ólafsson. Þessi staða er úr
einni af skákum Kramniks í Man-
ila. Svissneski alþjóðameistarinn
Jean-Luc Costa (2.425) hafði
hvítt, en Kramnik (2.590) var
með svart og átti leik.
22. - Reg4! 232. hxg4 - Rxg4
(Nú getur hvítur ekki bæði valdað
f2 og h2)
24. Rf3 - Bxf2+, 25. Khl -
Bxel, 26. Hxel — Dg3, 27. Be3
- f5, 28. Bgl - fxe4, 29. Hxe4
— Hf5, 30. Hxg4 — Dxg4 og
hvítur gafst upp.
Ásamt Gary Kaspprov átti
Kramnik stærstan þátt í öruggum
sigri rússnesku sveitarinnar í
Manila.
%