Morgunblaðið - 30.06.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1992
ÞRIÐJUDAGS-
TILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á KRÓK,
STRÁKANA I HVERFINU OG
ÓÐ TIL HAFSINS.
BUGSY
STÓRMYND
BARRYS LEVINSON
WARRIiN BEATTY, ANNETTE
BENINQ, HARVEY KEITEL, BEN
KINGSLEY, ELLIOTT GOULD OG
JOE MANTEGNA.
MYNDIN, SEM VAR TILNEFND
TIL 10 ÓSKARSVERÐLAUNA.
MYNDIN, SEM AF MÖRGUM VAR
TALIN BESTA MYND ÁRSINS.
MYNDIN UM GOÐSÖGNINA
BUGSY SIEGEL.
MYNDIN, SEM ENGINN MÁ LÁTA
FRAM HJÁ SÉR FARA.
★ ★★DV.
★ ★★★AI. MBL.
★ ★ ★BÍÓLÍNAN
Sýndkl. 5,9 og 11.30.
Bönnuð börnum i. 16 ára.
KROKI
Sýnd kl. 4.45.
STRÁKARNIR Í HVERFINU
Sýnd kl. 11.35.
Bönnuði. 16ára.
BÖRN NÁTTÚRUNNAR
Sýnd kl. 7.30
í A-sal. 11. sýn.mán.
Mióasala Þjóöleikhússins er lokuð tii 1. september.
Fáránlegur fortíðarvandi
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin:
„Fourth Story“.
Leikstjóri Ivan Passer.
Aðalleikendur Mark
Harmon, Mimi Rogers,
Paul Glarson, Michael
Boatman, M. Emmet
Walsh, Cliff DeYoung.
Bandarísk. Viacom Pict-
ures 1991.
Einn blíðviðrismorgun
étur DeYoung komfögum-
ar sínar, kveður sitt ektavíf
(Rogers) og hverfur síðan
sporlaust. Ræður frúin
einkaspæjarann Harmon til
að hafa upp á spúsa sínum,
jafnvel þó að nokkrir fáleik-
ar hafi verið með þeim
hjónum. Spæjarinn kemst
fljótlega á snoðir um að
ekki er allt með felldu með
mannshvarfið því DeYoung
hefur greinilega lifað tvö-
földu lífi alla tíð. Þjáist
jafnvel af fortíðarvanda
sem aukinheldur gæti snert
bemsku Harmons ...
Ein þeirra mynda sem
má hafa nokkurt gaman
af þótt þær risti grunnt.
Passer er sögumaður góður
en sagan tæpast nógu góð.
Raunar full af holum ef
betur er að gáð. En hún
rennur bærilega áfram uns
áhorfandanum er ofboðið
undir lokin með risa-
skammti af ólíkindum.
Sögufléttan er fjári lang-
sótt.
Svo virðist vera sem bíó-
in séu nú að „taka til á
lagernum“, hreinsa upp
gamlar birgðir af hæpnum
göngumyndum sem gjarn-
an er ýtt til hliðar ef eitt-
hvað skárra er í boði. Þó
svo að Fourth Story státi
af hinni glæstu Mimi Ro-
gers (sem vissulega á mikið
betri hlutverk skilið) og al-
mennt ærlegum vinnu-
brögðum, að undanskildu
glompóttu handriti, þá
flokkast hún greinilega
undir svona óheppilega
birgðasöfnun. Enda hefur
hún allt útlit kapalmyndar.
Málæði
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Saga-bíó:
Allt látið flakka — „Stra-
ight Taik“. Leikstjóri
Barnet Kellman. Fram-
leiðandi Robert Chartoff.
Aðalleikendur Dolly Par-
ton, James Wood, Griffin
Dunne, Michael Madsen,
Philip Bosco, Spaiding
Gray. Bandarísk. Holly-
wood Pictures 1992.
Parton leikur konu sem
missir hveija vinnuna á
fætur annarri sökum mál-
æðis. Þegar öll sund virðast
lokuð gerist hún fyrir tilvilj-
un stjórnandi útvarpsþáttar
sem gefa á fólki í hugarvíli
góð ráð. Og fær nú útrás
fyrir kjaftavaðalinn og
verður samstundis stór-
stjama. Til sögunnar kem-
ur biaðamaðurinn Woods
sem fær þá hugmynd að
fletta ofan af fortíð þessa
sálnahuggara — sem að
vonum er neikvætt ímynd
stjörnunnar. En hann verð-
ur ástfanginn, leggur árar
í bát en fraukan fær bak-
þanka yfir þessu öllu sam-
an.
Það er því miður fátt
gott að segja um þessa
mislukkuðu blöndu af gam-
anmynd með afar korgugu
boðskapsívafí og Amer-
ískadraumsfantasíu. Hún á
nokkra háðska kafla, svo
sem rabbþáttinn í sjónvarp-
inu og fyndnar setningar.
En þetta kafnar velflest í
yfirgengilegri tilfinninga-
vellu sem verður æ ómerki-
legri eftir því sem á líður
og endirinn slær flestu við
sem maður hefur séð á
ódýru nótunum. Parton á í
erfiðleikum með að túlka
hina ótrúlegu og illa til-
reiddu persónu gengilbein-
unnar kjaftaglöðu með
gullhjartað og útkoman er
eftir því. En Woods, þessi
afburðaleikari, á jafnvel
enn verri dag og honum
tekst ekki að leyna því að
hann veit ósköp vel af því.
Það er eftir öðru hér að
bestan daginn á engin ann-
ar en Griffin Dunne, sem
hingað til hefur síst verið
orðaður við verðlaun fyrir
leikhæfileika. Það væri
fróðlegt að vita hvaða
markað Robert Chartoff,
hinn kunni framleiðandi
fjölmargra ágætismynda,
ætlaði þessari afurð.
p
Meísölublaó á hverjum degi!
STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM
ALLIR SALIR ERU FYRSTA
FLOKKS
HASKÓLABIÓ SÍMI22140
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300,- Á ALLAR MYNDIR NEMA VERÖLD WAYNES.
SAMFELLDUR BRANDARI FRA UPPHAFI TiL ENDA.
STÓRGRÍNMYND SEM Á ENGA SÉR LÍKA.
ATH: GEGN FRAMVÍSUN BÍÓMIÐA AF „VERÖLD WAYNES" ER VEITTUR 10%
AFSLÁTTUR AF PIZZUM HJÁ PIZZA HUT Í MJÓDDINNIOG HÓTEL ESJU.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.10.
STEIKTIR GRÆNIR TÓMAT AR
Umsögn bíógests:
„Ég geri ekki mikið af þviað fara í kvik-
myndahus, en fór nýlega í Háskólabío og
sá myndina Steiktir grænir tómatar. I
stuttu máli kom myndin mér þægilega á
óvart. Hún er með þvi besta sem sést
hefur á hvíta tjaldinu í langan tíma.
Ég vil hvetja fólk til að sjá hana, því þarna
er á ferðinni mjög áhrifarík og hugljúf
mynd, án þess að geta talist væmin.
Það er auranna virði að sjá Kathy Bates
og Jessicu Tandy.“
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
. .ikWuistil sroi’ cwt J
WKKKm r-.JF ... •> JT;
«AB» I.oi!<sr Pakki-h *» MAm Skuaot MAsimsoA
Námskeið í skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD Rauða kross íslands gengst
fyrir námskeiði í skyndihjálp sem hefst miðvikudaginn
1. júlí kl. 20 og stendur fjögur kvöld. Kennsludagar
verða 1., 2., 6. og 7. júlí. Námskeiðið verður haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð. Óllum 15 ára og eldri er heimil
þátttaka.
Meðal þess sem kennt
verður á námskeiðinu er
blástursmeðferðin, hjarta-
hnoð, hjálp við bruna, blæð-
ingum, beinbrotum og
mörgu öðru. Einnig verður
fjallað um það hvernig má
koma í veg fyrir slys. Sýnd
verða myndbönd um helstu
slys.
Að námskeiðinu loknu fá
nemendur skírteini sem
hægt er að fá metið í ýmsum
framhaldsskólum. Tekið
skal fram að Reykjavíkur-
deild RKÍ útvegar leiðbein-
endur til að halda námskeið
í fyrirtækjum og hjá öðrum
sem þess óska.