Morgunblaðið - 30.06.1992, Side 44
MORGVNBLAÐID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SlMl 091100, SlMBRÉF 691101, PÓSTHÓLF 155S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
ísland gengur úr Alþjóðahvalveiðíráðinu:
Vona að við get-
um hafið hrefnu-
veiðar á næsta ári
- segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, segist vonast til
þess að íslendingar geti hafið
hrefnuveiðar á næsta ári. Stjóm-
völd hafi markvisst stefnt að því
að hefja þessar veiðar á nýjan
leik en um það hafi þó ekki enn
verið tekin formleg ákvörðun.
Úrsögn íslendinga úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu kom til fram-
kvæmda í gær og segir Þorsteinn
að sú ákvörðun hafi sett aukinn
þrýsting á Norðmenn um að
hefja hvalveiðar að nýju, en
norsk stjórnvöld tilkynntu um þá
ákvörðun sína í gær.
íslendingar sátu ársfund Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í síðasta sinn
í gær og sagði formaður íslensku
sendinefndarinnar, Guðmundur
Eiríksson, við það tækifæri, að hval-
veiðiráðið fylgdi úreltri stefnu í
umhverfismálum og ekki væri sjá-
anlegt að þar væri neinna breytinga
að vænta. í gær tilkynnti Gro Harl-
em Brundtland, forsætisráðherra
Noregs, um þá ákvörðun norskra
stjómvalda að hefja hvalveiðar að
nýju. Hún sagði að þau ætluðu
ekki að láta óábyrga tískustefnu
ráða því hvemig Norðmenn nýttu
sér auðlindir hafsins.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, segir að ljóst sé, að
ákvörðun íslendinga um að segja
sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu hafi
aukið þrýsting á Norðmenn um að
taka ákvörðun um að hefja aftur
hvalveiðar. Sú ákvörðun Norð-
manna í gær verði n\jög til að
þjappa þessum tveimur þjóðum
saman í baráttunni sem framundan
sé, þótt sá munur sé á aðstöðu þjóð-
anna, að Norðmenn hafí mótmælt
hvalveiðibanninu á sínum tíma, en
það hafí íslendingar ekki gert.
Þorsteinn segir, að íslendingar
þurfí meðal annars af þeim sökum,
að skoða málið betur og huga til
dæmis að því hvernig þeir geti nýtt
sér aðild að nýjum samtökum hval-
veiðiþjóða við Norður-Atlantshaf.
Hann voni að hvað sem því líði
verði hægt að hefja hrefnuveiðar á
næsta ári. Lengra sé í að hægt
verði að hefja að nýju veiðar úr
öðrum stofnum, en að því stefni
stjómvöld markvisst.
Sjá fréttir á bls. 43.
Stuttfætlingar í Pönnulandi
Morgunblaðið/Öl.K.Mag.
Stuttfætlingamir Skussi (sem er til hægri á mynd-
inni) og Dmssi úr Litla leikhúsinu eru þessa dagana
ásamt félaga sínum að skemmta börnum á gæsluleik-
völlum borgarinnar. Vekur koma þeirra mikla
ánægju eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var
á vellinum við Frostaskjól í gær. Skussi og Dmssi
fara með bömin í ævintýraferð til Pönnulands þar
sem stuttfætlingamir búa.
Viðræður íslenzkra aðila og Treuhandanstalt í A-Þýzkalandi:
Kaup á næststærsta útgerð-
arfélagi Þýzkalands áformuð
Hugsanlegt að fyrirtækið fái hluta af karfakvóta EB hér við land
ÍSLENZKA ráðgjafarfyrirtækið Ráð hf. hefur að undanförnu staðið
í viðræðum við Treuhandanstalt, fyrirtækið sem sér um einkavæð-
ingu ríkisfyrirtækja í austurhluta Þýzkalands, um að hópur ís-
lenzkra fyrirtækja kaupi meirihluta í næststærsta útgerðarfélagi
Þýzkalands. Fyrirtækið sem um ræðir er Rostocker Fischfang Rede-
rei (RFFR) í Rostock, stærstu hafnarborg gamla Austur-Þýzka-
lands. Stjórnendur RFFR hafa verið hér á landi undanfarna daga
og standa samningar um kaup á fyrirtækinu yfir.
RFFR rekur átta stóra verk-
smiðjutogara, sem búnir eru til út-
hafsveiða. Hjá fyrirtækinu starfar á
§órða hundrað manns. Það hefur
m.a. veiðiheimildir við Nýfundna-
land, Færeyjar, Grænland, í Noregs-
hafí, Norðursjó og Barentshafi.
Kvóti fyrirtækisins af síld, makríl
og karfa er 20-30.000 tonn. Einnig
eru taldir möguleikar á að fyrirtæk-
ið fái að veiða hluta þeirra 3.000
tonna af karfa, sem skip Evrópu-
bandalagsins munu fiska hér við
land árlega samkvæmt drögum að
samstarfssamningi um sjávarút-
vegsmál milli íslands og EB.
Ráð hf. hefur gert úttekt á starf-
semi RFFR og samið áætlun um að
snúa rekstri fyrirtækisins, sem
gengið hefur fremur illa, til betri
vegar. Forsvarsmenn Ráðs hf. telja
að um arðvænlega fjárfestingu sé
að ræða og einnig opni kaup á meiri-
hluta hlutabréfa í RFFR íslenzkum
útgerðarfyrirtækjum aðgang að
Evrópubandalaginu. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins í Þýzka-
landi telja hagsmunaaðilar og stjórn-
völd í Rostock og sambandslandinu
Mecklenburg-Vorpommern að þekk-
Ríkisstjómin óskar eftir að Kjaradómur endurskoði niðurstöðu sína:
Dómurinn hækkar eftirlaun
úr ríkissjóði um 120 millj. kr.
ing og reynsla íslendinga á sviði
útgerðar geti orðið RFFR til bjargar.
Aðstandendur Ráðs hf. hafa
kynnt málið fyrir talsverðum hópi
íslenzkra fyrirtækja. Þar á meðal eru
útgerðarfyrirtæki, skipafélög, veið-
arfæraframleiðendur og umbúðafyr-
irtæki. Búizt er við að kynning fyrir
væntanlegum fjárfestum muni halda
áfram í sumar.
Undanfarna daga hafa stjórnend-
ur Rostocker Fischfang Rederei og
Deutsche Fischwirtschaft, eign-
arhaldsfélags RFFR, verið hér á
landi til að kynnast starfsemi ís-
lenzkra fyrirtækja, sem tengjast
sjávarútvegi, og ræða hugsanlegan
samstarfsgrundvöll. Stefnt er að því
að á næstu dögum muni aðilar móta
sín á milli næstu skref í átt að kaup-
um íslendinga á fyrirtækinu og sam-
starf sín á milli. Til að byija með
er rætt um kaup RFFR á veiðarfær-
um héðan og íslenzkri þekkingu á
útgerð og framleiðslu, sem gætu
orðið grunnur að næstu skrefum.
Sjá Af innlendum vettvangi á
bls. 18.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hefur ritað Jóni Finnssyni, for-
manni Kjaradóms, bréf þar sem þess er eindregið farið á leit að'dómur-
inn taki til endurmats nýlegan dóm sinn sem hefur í för með sér launa-
hækkanir til embættismanna og kjörinna fulltrúa. Forsætisráðherra
á von á svari eftir fund Kjaradóms í dag. Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra og varaformaður Alþýðuflokksins, segir að ríkis-
valdinu beri skylda til að koma í veg fyrir að dómurinn komi til fram-
kvæmda ella muni hann skapa stríðsástand á vinnumarkaðnum. Niður-
staða Kjaradóms eykur ellilífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins hjá tæplega 300 manns, um samtals 120 milljónir króna
á ári samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Um 100 fyrrum alþingis-
menn eða ekkjur þeirra eru í þeim hópi. Meðaltalsgreiðslur til þeirra
námu um 800.000 krónum á síðasta ári eða um 66.000 krónum á
mánuði. Með dómi Kjaradóms hækkar meðaitalið í rúmlega 90.000
krónur á mánuði. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, segir ríkisstjórn-
ina hafa tvo kosti í stöðunni; að aðrir launamenn fái tilsvarandi hækk-
anir eða að ákvörðun Kjaradóms gangi til baka.
„Að öðrum kosti munum við ekki
sætta okkur við annað en að nýgerð-
ir kjarasamningar okkar verði tekn-
ir til endurskoðunar," segir Ásmund-
ur. „Það er víðast hvar brýnni þörf
á leiðréttingu Iauna en hjá toppunum
í ríkiskerfinu."
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði við Morgunblaðið að ríkis-
stjórnin efaðist ekki um að dómur
Kjaradóms væri í samræmi við lög
um störf dómsins en ljóst sé að dóm-
urinn „gæti ýft mjög með mönnum
í þjóðfélaginu og gert mikinn skaða
á landsvísu. Því finnst okkur eðlilegt
að beina þessum tilmælum til dóms-
ins“.
I bréfí forsætisráðherra til for-
manns Kjaradóms segir að það sé
mat ríkisstjómarinnar að nýfallinn
kjaradómur sé til þess fallinn að
skapa mikinn óróa í þjóðfélaginu og
geti hæglega rofíð þá samstöðu sem
náðst hafi um að þjóðin vinni sig
sameiginlega út úr þeim efnahags-
legu þrengingum sem nú sé við að
etja.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segir niðurstöðu
Kjaradóms skelfílega. „Þetta mun
að mínu viti stefna öllum efnahags-
markmiðum ríkisstjómarinnar í
hættu og skapa upplausn á vinnu-
markaði, nái þessi dómur fram að
ganga,“ sagði hún við Morgunblaðið.
Valtýr Sigurðsson, formaður
Dómarafélags íslands, en félags-
menn þess eru meðal þeirra sem
ákvarðaðar voru launahækkanir
með dómi Kjaradóms, segir launa-
kjör dómara hafa verið mörgum
áhyggjuefni á síðustu ámm. Valtýr
benti á að ísland væri aðili að al-
þjóðasambandi dómarafélaga 60
landa en til að geta verið aðilar að
sambandinu séu gerðar vissar kröfur
um sjálfstæði dómstóla. ísland hafí
fullnægt skilyrðum um ákvörðun
launa þar sem laun þeirra ákvarðist
af Kjaradómi. „Knýi stjórnvöld dóm-
inn til að breyta niðurstöðum sínum
má efast um að ísland fullnægi að-
ild að Alþjóða dómarasambandinu,"
segir hann.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra segir að verið sé að reikna út
í fjármálaráðuneytinu hve mikið
dómur Kjaradóms muni kosta ríkis-
sjóð og vonast hann til að hægt sé
að leggja þá útreikninga fyrir ríkis-
stjórnarfund fyrir hádegi í dag.
Sjá fréttir á miðopnu
Sól og hiti
næstudaga
SPÁÐ er batnandi veðri um
allt land næstu daga. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Islands er búist við
að léttskýjað verði viða um
landið og að hitastig muni
hækka.
Magnús Jónsson, veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofu íslands,
sagði að frá og með miðviku-
degi yrði ágætis veður á land-
inu. Magnús sagði að sam-
kvæmt spám mætti búast við
að hiti færi vel yfír 15 stig víða
inn til landsins og að það yrði
léttskýjað. Þessi góðviðrisspá
nær fram á föstudag.