Morgunblaðið - 10.07.1992, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚU 1992
28
t
Elskulegur sonur minn og bróðir okkar,
SIGURGEIR ÞORGRÍMSSON
sagnfræöingur,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans að kvöldi 8. júlí.
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Sveinn Þorgrímsson,
Magnús Þorgrímsson.
+ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir. afi og langafi,
SVEINN SVEINSSON
frá Hólmaseli,
Birkivöllum 13,
Selfossi,
lést miðvikudaginn 8. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Klara Karlsdóttir.
t
STEFÁN ÞÓRÐARSON
frá Fossi
íVopnafirði,
andaðist 4. júlí sl.
Athöfninferfram íVopnafjarðarkirkju laugardaginn 11.júlíkl. 11.
Jarðsett verður í Hofskirkjugarði.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn og faðir
okkar,
BJÖRN MAGNÚSSON,
Ásbraut 21,
Kópavogi,
verður jarðsettur í dag, föstudaginn
10. júli, kl. 15.00 frá Fossvogskirkju.
Matthildur Valdimarsdóttir,
Valdimar Björnsson,
Pétur Björnsson.
t
Konan mín og móðir okkar,
VALEY BENEDIKTSDÓTTIR,
Sandabraut 11,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn 13. júlíkl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Akraness.
Jónmundur G. Guðmundsson,
Una, Guðmundur og Benedikt.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Lyngholti 6,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 13. júlí
kl. 13.30.
Margrét Ásgrfmsdóttir, Benjamín Antonsson,
Heba Ásgrímsdóttir, Hallgrímur Skaptason,
Jón Ævar Ásgrfmsson, Þórunn Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
sonur og afi,
BALDVIN HARALDSSON
múrari,
Heiðarási 24,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
þriðjudaginn 14. júlí kl. 13.30.
Steina G. Guðmundsdóttir,
Tómas Aldar Baldvinsson
Lára G. Hammer,
Jóna Björg Pálsdóttlr,
Theodór Aldar T ómasson,
Hrefna Tómasdóttir,
Berglind Mjöll Tómasdóttir,
Steína Guðbjörg Tómasdóttir.
Minning:
Björn Magnússon
Fæddur 20. febrúar 1933
Dáinn 4. júlí 1992
Vinur minn Bjöm er látinn, eftir
erfið veikindi. í huga mínum er djúp-
ur söknuður. Hann var einn af þess-
um mönnum sem á lífsleiðinni verða
manni ógleymanlegir. Alltaf sama
jafnaðargeðið, ljúfmennskan og hlý-
leikinn í garð allra.
Á vinnustað okkar hjá Olís, leituðu
menn úr ölium deildum ráða hjá hon-
um og alltaf var hann tilbúinn að
hjálpa og leiðbeina með sinni enda-
lausu þolinmæði sem undirritaður
kynntist þó líklega best.
Það væri ekki samkvæmt vilja Bjöms
að upphefja um hann lofræður, sem
mun ekki gert hér. Um leið og ég
kveð þennan vin minn með fátæklegu
orðum, sendi ég Matthildi, Valdimar
og Pétri mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Gunnar H. Pálsson.
í dag er til moldar borinn Bjöm
Magnússon, deildarstjóri, en hann
lést sl. laugardag eftir erfíða glímu
við illvígan sjúkdóm. Bjöm starfaði
hjá Olíuverzlun Íslands hf. samfellt
í 37 ár af einstakri samviskusemi
og trúnaði. Ábyrgðarsvið hans,
birgðabókhald félagsins, markaðist
af yfírburða þekkingu hans á við-
fangsefninu. Vandamál sem upp
komu í því flókna kerfí laga og regla
sem gilt hafa um olíuviðskipti hér á
landi, fann Bjöm oft lausnir á sem
allir gátu sætt sig við. Hann naut
virðingar langt út fyrir veggi félags-
ins. Sem samstarfsmaður var Bjöm
dagfarsprúður sjentilmaður, vinsæll
með afbirgðum, sem margir leituðu
ráða hjá um hin ólíklegustu málefni.
Hann var einn af þeim starfsmönnum
sem hverju fyrirtæki em nauðsynleg-
ir til að njóta velgengni. Það er því
skarð fyrir skildi þegar svo traustur
starfsmaður hverfur af sviðinu.
Fyrir hönd Olíuverzlunar íslands
hf. starfsfólks félagsins og stjómar,
þökkum við Bimi Magnússyni sam-
fylgdina um leið og við sendum eigin-
konu hans og sonum, okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Hallgrímur Jónasson.
Loks kom heilög hönd, sem um þig bjó
himnesk rödd er sagði: það er nóg.
Þegar langri og erfíðri lífsbaráttu
vinar míns, Bjöms Magnússonar, er
lokið koma ósjálfrátt framangreindar
ljóðlínur upp í huga minn. Og þrátt
fyrir söknuð, er eins og maður fínni
til eins konar þakklætis, er vonlaus
barátta við ólæknandi sjúkdóm er á
enda. Þannig er því farið með mig
nú, er ég kveð vin minn, en hann
andaðist á Grensásdeild Borgarspít-
ala sl. laugardag. í langan tíma hef
ég fylgst með baráttu hans fyrir líf-
inu. En þó að aðrir vissu, að hveiju
dró, var eins og hjá honum blundaði
ætíð von um, að hann myndi öðlast
lífskraft að nýju. Og eftir á að hyggja
fínnst mér, að þessi vonameisti hafi
létt honum baráttuna.
Vinátta okkar Bjöms spannar yfír
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HJÁLMAR EIÐSSON
bankafulltrúi,
Birkihlíð 16, Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 11. júlí 1992
kl. 14.00.
Guörún Ágústa Óskarsdóttir,
börn, tengdadóttir og barnabarn.
GUÐBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Bjargi í Selvogi,
sfðast á Hrafnistu í Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Strandakirkju laugardaginn 11. júlí kl. 14.00.
Synir og aðrir vandamenn.
+
Þökkum inniiega samúð og hlýhug við andlát og útför
SÆMUNDAR JÓNSSONAR
frá Austari-Hóll ■ Fljótum,
Aðalgötu 9,
Ólafsflrði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13-D, Landspítalanum.
Bára Sæmundsdóttir, Bjarni Ingólfsson,
Guðmundur Sæmundsson, Sigrún Finnsdóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Barry Weaving,
Sæbjörg Anna Bjarnadóttir,
Linda Salbjörg Guðmundsdóttir,
Edda Herdís Guðmundsdóttir,
Alda Björk Guðmundsdóttir,
Helga Weaving,
Olivia Weaving,
Sigurður Weaving,
Sæmundur Weaving.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð-
ur og afa,
BJÖRNS OTTÓS KRISTINSSONAR,
Hríseyjargötu 20,
Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki dvalarheimilisins Hlíðar,
Akureyri, fyrir hlýhug og góða umönnun.
Guð blessi ykkur.
Halldóra Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Björnsson, Ester Steindórsdóttir,
Elsa Björnsdóttir, Gestur E. Jónasson,
Björn Kr. Björnsson, Lára Heimfsdóttir
og barnaböm.
fjörutíu ár. Hefur hún haldist allt frá
því er við hófum nám í Verrslunar-
skóla íslands, haustið 1948. Á skóla-
árunum og nokkur ár þar á eftir
höfðum við mikið samband, en eftir
að hafa, hvor um sig, stofnað heim-
ili, dró úr því, án þess nokkum tíma
að rofna. Bjöm var ekki mjög mann-
blendinn að eðlisfari og má vera, að
það hafí, á einhvem hátt, átt sinn
þátt í því, að samband okkar varð
minna, en ástæða hefði verið til.
Frómur maður sagði: „Þegar vinur
minn er vansæll leita ég hana uppi,
þegar hann er hamingjusamur bíð
ég komu hans.“ Það kom ósjaldan
fyrir, að ég heimsótti hann á vinnu-
stað og oft hringdum við hvor í ann-
an, er okkur fannst, sem of langt
væri um liðið, frá því er við höfðum
heyrt hvor í öðram. Þannig var vin-
átta okkar, - traust alla tíð. Bjöm
sóttist, í lífi sínu, ekki eftir metorð-
um. Metnaður hans fólst í starfí hans,
sem ég veit, að hann sinnti af mik-
illi alúð og samviskusemi. Og öll
hans verk einkenndust af einstakri
snyrtimennsku. Allt frá því, er hann
lauk námi, þjónaði hann sama vinnu-
veitanda, en hann réðst til starfa hjá
Olíuverslun íslands hf. árið 1952. í
starfí sínu þurfti Bjöm að hafa sam-
vinnu við marga aðila, víða um land.
Varð ég oft vitni að því, er ég var
staddur á skrifstofu hans, hve vel
fór á með honum og þeim, er hann
þurfti að hafa samskipti við. Tel ég,
að svo hafí einnig verið um vinnufé-
laga hans aðra. Hann var ósérhlíf-
inn, fastur fyrir, ef þvi var að skipta,
en hreinlyndur.
Nóbelsskáldið okkar segir í einu
kvæða sinna:
„og hvað er auður og afl og hús
ef eingin jurt vex í þinni krús.“
Garður sá, er Bjöm ræktaði á lífs-
leiðinni var ekki stór, en hann var
fagur. Sá garður var heimili hans.
Fyrst sambúð hans með móður sinni
uns hann stofnaði sitt eigið heimili.
Umhyggja hans og tryggð við hana,
á meðan hún lifði. Síðar heimili hans
og Matthildar og sonanna tveggja.
En við ræktun þess garðs var öll fjöl-
skyldan að verki. Fann ég það best,
hve sterkt og innilegt samband var
milli þeirra allra, er ég heimsótti vin
minn. í veikindum hans sýndu þau
aðdáunarverða tryggð og umhyggju.
Um leið og ég votta Matthildi,
Valdimar og Pétri einlæga samúð
mína vil ég kveðja vin minn með
orðum Kahlil Gibran:
M skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við
vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst
um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjar-
veru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjall-
ið best af sléttunni.
Þorsteinn Guðlaugsson.
MEG frá ABET
UTAN ÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
18 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640