Morgunblaðið - 10.07.1992, Page 30

Morgunblaðið - 10.07.1992, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992 fclk f fréttum LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR Vel heppnuð ferð í Þórsmörk Sumarferð Landsmálafélagsins Varðar var farin síðastliðinn laugardag og að þessu sinni var förinni heitið í Þórsmörk. Lagt var af stað frá Reykjavík snemma morguns og ekið til Hellu, þar sem sjálfstæðismenn drukku morgun- kaffí og hlýddu á ávarp'Eggerts Haukdals, sjötta þingmanns Suðurlandskjördæmis. Að því loknu var ekið yfir nýju Markar- fljótsbrúna og haldið að svæði Ferðafélags íslands í Langadal í Þórsmörk. Er þangað var komið fóru margir í gönguferðir um svæðið og hinir sprækustu klifu Valahnúk. Að áreynslunni lokinni komu Varðarfélagar saman í Langadal og grilluðu kjöt en síðan ávarpaði Davíð Oddsson forsætis- ráðherra ferðalangana og aðra Þórsmerkurfara. Þegar degi var tekið að halla var haldið heimleið- is og ekið um Fljótshlíð áleiðis til Reykjavíkur. Yfírfararstjóri ferð- arinnar var Höskuldur Jónsson fonnaður Ferðafélags íslands en undirbúningurinn hvíldi að miklu leyti á Baldvini Einarssyni stjórn- armanni í Verði. Sagði Baldvin að Varðarferðin hefði heppnast vel að þessu sinni og væri það ekki sízt að þakka veðurguðunum, sem glöddu Þórsmerkurfara þennan dag með einstaklega góðu veðri. Varðarfélagar hvíla lúin bein í Langadal eftir gönguferð um svæðið. Áð á Hellu. Fremst á myndinni er Ástríður Thorarensen forsætisráð- herrafrú ásamt Þórhildi og Kristínu Baldursdætrum. Fjær situr Karítas Kvaran, móðir telpnanna. Mikill fjöldi unglinga var að skemmta sér í Þórsmörk um siðustu helgi og áttu þeir ekki von á því, að hitta þar sjálfan forsætisráðherr- ann. Gripu þeir tækifærið og ræddu dágóða stund við Davíð Oddsson. MEXICO Rolf útnefndur aðal- ræðismaður Rolf Johansen stórkaupmaður hefur verið útnefnd- efni hélt sendiherra Mexico, Manuel Rodríguez Arr- ir aðalræðismaður Mexico á íslandi. Af því til- iaga, boð fyrir gesti á Hótel Sögu og var það fjölsótt. Morgunblaðið/Sverrir Rolf Johansen, eiginkona hans Kristín Ásgeirsdóttir, Jón Sigurðsson, starfandi utanríkisráðherra og sendiherrahjónin Isabel Lange de Rodríguez Arriaga og Manuel Rodríguez Arriaga. Meðal fjölmargra gesta voru Friðrik Sophusson og eiginkona hans, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Mexikönsk vín hefur e.t.v. borið á góma í samræðum Höskuldar Jónssonar forstjóra ÁTVR og Ólafs Ragnars Grímssonar alþingis- manns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.