Morgunblaðið - 23.07.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
Morgunblaðið/Ingvar
Tveir menn urðu fyrir lyftara
Tveir verkamenn slösuðust nokkuð þegar þeir urðu fyrir stórum
lyftara á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í gærmorgun. Guð-
jón Jónsson hjá Vinnueftirliti ríkisins segir að allar aðstæður hafi
verið skoðaðar vegna slyssins og helst Iíti út fyrir að ökumaður
hafí ekki haft fulla stjóm á lyftaranum þar sem of lítið loft hafí verið
í öðru framdekkinu. Þessi mynd var tekin þegar lögreglumenn könn-
uðu aðstæður á slysstað.
Embætti ríkisskattstjóra:
Eftirlit skattstjóra skilaði
344 millj. í auknum VSK
Eftirlit á vegnm rannsóknardeildar skilaði 35 millj. í viðbót
HAUSTIÐ 1991 hófst sérstakt eftirlitsátak á skilum á virðisaukaskatti
hjá skattsljórum í samvinnu við embætti ríkisskattstjóra. Árangurinn
af eftirlitisaðgerðum skattstjóraa var m.a. sá að virðisaukaskattur var
hækkaður um 344 milljónir króna eða sem svarar 0,37% hækkun á
heildarhlutfalli útskatts í landinu. Um var að rgeða samanburð ársreikn-
inga og fleira en með hliðsjón af framangreindu telur ríkisskattstjóri
brýnt að leggja aukna áherslu á öflugt samtimaeftirlit með VSK.
Þessar upplýsingar er að finna í nemur meðalhækkunin á fyrirtæki
nýútkominni ársskýrslu ríkisskatt-
stjóra. Þar kemur einnig fram að á
árinu 1991 var af hálfu skattrann-
sóknarstjóra lögð megináhersla á
eftirlit með virðisaukaskattskilum
fyrirtækja. Annarsvegar með upplýs-
inga- og leiðbeiningaþjónustu og
hinsvegar með eftirliti með þeim sem
vísvitandi vanrækja skyldur sínar.
Helstu niðurstöður úr virðisauka-
skattseftirliti rannsóknardeildar voru
þær að úrskurðaðar hækkanir námu
35 milljónum króna að meðtöldu
álagi. Þarna áttu í hlut 73 aðilar og
470.000 króna í viðbótarskatt og
álag.
I skýrslunni segir m.a. að á árinu
' 1991 námu hækkanir alls vegna
skatteftirlits á vegum rannsóknar-
deildar embættisins tæplega 107
milljónum króna hjá 10 aðilum.
Hækkunin vegna tekjuskatts og út-
svars var alls tæplega 68 milljónir
króna. Hækkun annara opinberra
gjalda um 6,2 milljónir króna og
hækkanir vegna sölugjalds alls tæp-
lega 33 milljónir króna hjá 2 aðilum.
Til samanburðar má nefna að hækk-
anir á árinu 1990 námu 388 milljón-
um króna en þar með eru taldar
hækkanir vegna óvenjumargra mála
frá árinu 1989 sem úrskurðuð voru
á árinu 1990.
A árinu 1991 afgreiddi ríkis-
skattanefnd 19 mál sem voru óaf-
greidd hjá henni frá árinu 1990 og
fengu 14 aðilar sekt. Alls námu sekt-
ir 1,6 milljónum króna eða að meðal-
tali 116.500 kr. á hvem gjaldenda.
Á árinu 1991 sendi skattrannsóknar-
stjóri engin mál til ríkisskattanefndar
til sektarmeðferðar.
Heimsmeistaramót unglinga 1 snóker:
VEÐUR
Helmild: Veíuretola islands
(Byggt é veðurspá Kl. 16.15 I gœr)
/ DAG kl. 12.00
VEÐURHORFUR í DAG, 23. JULI
YFIRLIT: Við suðurströndina er grunnt tægðardrag sem grynnist en all-
víðáttumikil lægð við Norður-Noreg. Vestur af (rlandi er víðáttumikil og
vaxandi lægð sem þokast norðnorðaustur.
SPÁ: Hæg austlæg átt og súld á stöku stað við suðaustur- og austur-
ströndina en norðaustangola eða kaldi annars staðar. Víðast léttskýjað
vestanlands en skýjað og smáskúrir norðaustanlands. Hiti 7-15 stig að
deginum, hlýjast suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustlæg eða breytileg átt. Léttskýjað um
sunnan- og vestanvert landið en skýjaö og dálítil rigning eða súld norðaustan
til. Svalt í veðri noröanlands en hiti 10-14 stig að deginum sunnanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustan- og austanátt um austanvert landið
víða með rigningu og súld. Hæg noröaustlæg eða breytileg átt, skýjað með
köflum og þurrt vestanlands. Hiti á bilinu 8 til 16 stig, hlýjast vestanlands.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
rN rN yN Sunnan, 4 vindstig.
-{ j. *{ jT\ \ f \ Vindörin sýnir vindstefnu
HP vsSaw og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjööur er 2 vindstig.
/s / */**#* » t * 10° Hitastig
' ' * ' * * V V V V súld J
////*/*** V v y ) >
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El — Þoka_______________
FÆRÐÁ VEGUM: 00.17.30^)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um
mestallt hálendið. Þó er Hlöðuvaliavegur ennþá ófær. Uxahryggir og
Kaldidalur eru opnir allri umferð. Að gefnu tilefni skal bent á að klæöinga-
flokkar eru nú að störfum víða um landið og eru ökumenn beðnir um
að virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess að forðast tjón af völdum
steinkasts. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-
631500 og á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 7 13 veöur hálfskýjað léttskýjað
Bergen vantar
Heleinki vantar
Kaupmannahöfn vantar
Narssarasuaq 9 háifskýjað
Nuuk 3 þoka
Ósló vantar
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn vantar
Algarve vantar
Amsterdam vantar
Barcelona 27 léttskýjað
Berlín 21 skýjað
Chicago 17 alskýjað
Feneyjar 28 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 16 hálfskýjað
Hamborg 21 skýjað
London 21 skýjað
LosAngeles 21 alskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madríd 31 heiðskírt
Malaga vantar
Mallorca 31 hálfskýjaö
Montreai 14 skýjað
NewYork 21 hálfskýjað
Orlando 26 alskýjað
París 23 hálfskýjað
Madeira 23 léttekýjað
Róm 28 léttskýjað
Vín 28 skýjað
Washington 23 skýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Sigurganga Islend-
inga heldur áfram
Bandar Scri Begawar. Frá Guðiéni Guðmundssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
SIGURGANGA Islendinga á
heimsmeistaramóti 21 árs og
yngri í snóker í Bandar Seri
Begawar heldur áfram. Foure
Saheed, forseti Alþjóða billjarðs-
og snókersambandsins, sagði í
gær við blaðamann Morgunblaðs-
ins, að ef svo ólíklega vildi til að
spilari frá Sri Lanka yrði af hnoss-
inu, stæði íslendingur uppi sem
sigurvegari. Saheed er gimsteina-
sali frá Colombo og kom hann til
íslands fyrir 20 árum.
Keppni hófst á þriðjudag með leik
Hjalta Þorsteinssonar og Nazeers frá
Sri Lanka. í sjöunda og úrslitaram-
manum var aðeins sjöan eftir á borð-
inu. Hjalti, sem hafði leikið góðan
vamarleik, sendi kúluna þétt að mið-
gatsbattanum og ætlaði að freista
þess að fá færi á henni síðar. En
Nazeer náði að senda sjöuna rakleið-
is í homvasann og þar með hafði
Sri Lanka-búinn sigur.
í innbyrðis viðureign Gunnars A.
Ingvarssonar og Halldórs M. Sverris-
sonar hafði Halldór betur í úrslita-
ramma í æsispennandi leik. Kristján
Helgason vann Mung Kong frá Bm-
nei 4—3r Gunnar vann Salam frá
Sameinuðu furstadæmunum 4—1,
Jóhannes R. vann Rukmal frá Sri
Lanka 4—1, Ásgeir Ásgeirsson, sem
hefur spilað afar vel á þessu móti,
vann Rashid frá Branei 4—0, Hjalti
vann Leong frá Brunei 4—0, Jóhann-
es R. vann Pang Huut frá Branei
4—0 og Þorbjöm Sveinsson vann
Perwani frá Malasíu 4—2.
Alls taka 19 þjóðir þátt í mótinu
og er keppendum raðað í 8 riðla. Sá
keppandi sem fyrr vinnur 4 ramma
vinnur leikinn, en tveir keppendur
komast upp úr hveijum riðli. Það
vakti athygli að Pengiran Billah
prins, sonur Bolkiah soldáns í Brun-
ei, mætti ekki til leiks á móti Hall-
dóri M. Sverrissyni og er talið að
hann sé hættur keppni. Sagt er að
faðir hans hafi viljað hafa hann hjá
sér á meðan hátíðahöld vegna afmæl-
is hans standa yfir, en þau hófust
15. júlí og lýkur 1. ágúst.
íslensku keppendumir fluttu sig á
annað hótel sl. þriðjudag því hér á
Princess Inn er stækjan alla að drepa
og ódauninn leggur upp af opnum
skolplögnum.
------♦--------
Neytendasamtökin:
Hárgreiðslu-
stofa ábyrg-
fyrir skaða
HÁRGREIÐSLUSTOFUR bera
fulla ábyrgð á vinnu starfsfólks
og þeim vörum sem þær sejja, eins
og önnur þjónustufyrirtæki, að
sögn Jóhannesar Gunnarssonar,
formanns Neytendasamtakann.
í Morgunblaðinu í gær var fjallað
um mál Tatiönu Dimitrovu en hár
hennar skaddaðist af völdum per-
manentolíu á hárgreiðlustofunni
Kristu. Jóhannes sagði að samtökin
þekktu dæmi þess að hár hefði farið
illa á hárgreiðslustofum en að þetta
tilfelli væri óvenju slæmt.
Jóhannes Gunnarsson sagði að
hann gæti ekki dæmt um mál Tati-
önu þar sem þar stæði fullyrðing á
móti fullyrðingu en að ljóst væri að
hárgreiðslustofur bæru fulla ábyrgð
á þeirri þjónustu og vöru sem þær
byðu upp á, ásamt vinnu starfsfólks.
Jóhann telur að hárgreiðslustofan
sleppi með skrekkinn þar sem hún
hefði tryggingu. Hann sagði að erf-
itt væri að meta skaðann sem Tat-
iana hefði orðið fyrir þar sem hann
væri að hluta sálrænn.
Bókin um Díönu komin út
„DIANA - sönn saga“ eftir brezka blaðamanninn Andrew Morton er
komin út á íslenzku hjá Almenna bókafélaginu. í bókinni, sem vakið
hefur mikla athygli erlendis, er lýst meintum hjónabandserfiðleikum
Díönu prinsessu og Karls prins af Wales og „vakin athygli á sjúkleika
hennar og einangrun innan konungsfjölskyldunnar", eins og segir í
fréttatilkynningu frá AB.
Bókin um Díönu varð á svipstundu
metsölubók í Bretlandi og Bandaríkj-
unum og hefur hálf önnur milljón
eintaka selzt á einum mánuði. Fyrsta
prentun bókarinnar í Bretlandi seld-
ist upp á nokkram klukkustundum.
Höfundurinn naut aðstoðar ýmissa
nánustu skyldmenna og vina Díönu
prinsessu við samningu bókarinnar,
að því er segir í tilkynningu forlags-
ins. „Þessi ævisaga prinsessunnar
af Wales er óvenjuleg að því leyti
að að skráningu hennar var ekki
stjórnað úr Buckinghamhöll, en
margir úr fjölskyldu prinsessunnar,
einnig vinir og ráðunautar, sam-
þykktu að veita mér viðtal um einka-
hagi hennar og opinbert líf og all-
margir veittu slíkt viðtal í fyrsta
sinn,“ segir í aðfararorðum höfund-
arins.