Morgunblaðið - 23.07.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JUU 1992
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Heimasæta Arna Kópssonar í flugtaki.
Torfæra:
Arni Kópsson ætl-
ar að hætta keppni
ÞREFALDUR íslandsmeistari í torfæruakstri, Bílddælingurinn
Árni Kópsson, hefur hug á að hætta keppni. Árni hugðist draga
sig í hlé í fyrra, en hætti við, en kvaðst nú ákveðinn að hætta,
jafnvel áður en timabilinu lýkur.
„Mér hefur ekki tekist nægilega keppnistæki sitt, ýmist í torfæru
vel að ná endum saman í mótum
ársins og mistök í vélakaupum
eiga sinn þátt í því,“ sagði Árni í
samtali við Morgunblaðið. Hann
réðist í kaup á mjög dýrri keppnis-
vél sem nú gerir honum erfitt um
vik fjárhagslega. „Auk þess hef
ég haft í mörg hom að líta og hef
ekki getað einbeitt mér að torfær-
unni sem skyldi á þessu ári. Sjálf-
sagt mun þessi ákvörðun koma
mörgum á óvart, en bíllinn er til
sölu fyrir rétt verð ásamt auka-
búnaði," sagði Árni, sem hefur 50
sinnum unnið til verðlauna á
Heimasætunni, sem hann nefnir
eða sandspyrnu.
„Ég er viss um að fjöldi manns
vill spreyta sig á Heimasætunni í
stað þess að smíða sína eigin og
það verður eftirsjá í henni. En ég
er búinn að gera upp hug minn,
dæmið hefur einfaldlega ekki
gengið upp hjá mér fjárhagslega
og ég er í raun búinn að vera of
lengi í þessu sporti. Mig langar
því að fást við ný verkefni, breyta
til,“ sagði Árni. Hann vann ís-
landsmeistarabikar til eignar í
fyrra eftir að hafa unnið titilinn
þrívegis og er einn sigursælasti
torfæruökumaðurinn frá upphafi.
Norska hafrannsóknarskipið Johan Hjort.
Lánskj aravísitala hækkar nm 0,12%
Lánskjaravísitalan hækkar
um 0,12% í júlimánuði, sam-
kv'æmt útreikningum Seðla-
bankans. Hækkun launavísitölu
og byggingarvísitölu í mánuðin-
um er 0,1%, samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Hagstofunni.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Seðlabankanum hefur verið
reiknuð út lánskjaravísitala fyrir
ágúst 1992 og er hún 3.234.
Norrænt samstarf
um hafrannsóknir
NORSKA hafrannsóknaskipið Johan Hjort er nú í Reykjavík og fer
aftur á hádegi í dag. Johan Hjort tekur þátt í WOCE, alþjóðlegu
samstarfi um rannsóknir á hafstraumum og áhrifum þeirra á veðr-
áttu. Rannsóknir þessar ná til allra úthafanna og hafa Norðurlöndin
ákveðið að vinna saman að rannsóknum á svæðinu milli þJoregs,
Færeyja, Islands og Grænlands. Um borð í norska skipinu eru vísinda-
menn frá öllum Norðurlöndunum, þar af tveir íslendingar, Jón Ólafs-
son og Stefán S. Kristmannsson.
Sven Aage Malm-
berg haffræðingur
hjá Hafrannsókna-
stofnun er formaður
íslensku Nordic
WOCE-nefndarinn-
ar. Hann sagði að
hafstraumar hafðu
áhrif á veðurfarið á
jörðinni og það væri
vísindamönnum, sem
fást við veðurfars-
rannsóknir og þróun
veðurfars á jörðinni, nauðsynlegt að
hafa gögn sem leiða til aukinnar
þekkingar á þeim. Rannsóknir þessar
hófust árið 1991 og eiga að standa
til ársins 1997. Þess er vænst að í
kjölfar þeirra og annarra rannsókna
megi gera líkan sem auðveldi spár
um þróun veðurfars á jörðinni.
Það svæði sem Norðurlöndin rann-
saka eru aðeins smá þáttur í heildar-
rannsóknunum, en þetta svæði gæti
samt verið þýðingarmikið. Rann-
sóknir hafa m.a. leitt í ljós seltulækk-
un á undanfömum áratugum í Norð-
urhöfum. Seltulækkun í sjónum gæti
dregið úr flæði í djúplögum suður á
bóginn, sem aftur getur valdið
minnkandi flæði hlýsjávar norður
eftir til stranda Evrópu, með augljós-
um afleiðingum.
Haffræðingar á Norðurlöndum
hafa nána samvinnu um þessar rann-
sóknir. Stefnt er að því að hafa gagn-
amiðstöð í Bergen, sem mun sjá um
samskiptin við aðra WOCE-aðila fyr-
ir allar Norðurlandaþjóðirnar.
Hækkun vísitölunnar frá vísitölu
júlímánaðar er 0,12%, hækkunin
síðustu þrjá mánuði 3,9% og síð-
ustu 12 mánuði 2,4%.
Hagstofa íslands hefur reiknað
út launavísitölu fyrir júlímánuð og
er hún 130,1 stig, eða 0,1% hærri
en í fyrra mánuði. Samsvarandi
vísitala, sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána,
tekur sömu hækkun og verður því
2.846 stig í ágúst.
vm
Hagstofan hefur einnig reiknað
út vísitölu byggingarkostnaðar
eftir verðlagi um miðjan júlí. Hún
reyndist vera 188,8 stig og hækk-
ar um 0,1% frá júní. Þessi vísitala
gildir fyrir ágúst. Byggingarvísi-
talan hefur hækkað um 1,3% síð-
astliðna tólf mánuði. Síðustu þrjá
mánuði hefur hún hækkað um
0,8%, sem samsvarar um 3,2%
hækkun á ári.
Gt'isasW0ðan0,í Inwnwmtm,,,
meWí«aQksb,al)ð' | Barbecue grísar/f
& 6lns 09 Þau Serast best i
1.100 kr.
Rifiasteik
00 meðrauðká'i
°9 sPanskri SÓSu
1'100krm
T1
GRlSRVEISLH
Óslitin grísaveisla stendur yfir á Aski dagana 16. - 26. júlí.
Þar svigna borö undan girnilegum grísaréttum á sannkölluöu sparigrísaveröi!
Minnstu veislugestirnir eru leystir út með grislingapökkum.
Heimsendingarþjónusta á veislutíma - án endurgjalds - fyrir íbúa
Reykjavíkursvæðisins, sími 681344.
ASKUR
Suðurlandsbraut 4a og Suðurlandsbraut 14.
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA