Morgunblaðið - 23.07.1992, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JULI 1992
1
ARNAÐ HEILLA
HJÓNABAND. Laugardaginn 27.
júní voru gefín saman í Bústaða-
kirkju af séra Pálma Matthíassyni
Þorbjörg Gísladóttir og Gísli Wium.
Heimili þeirra er í Engihlíð 18, Ól-
afsvík.
Ljósm.st. Gunnars Ingimarssonar.
HJÓNABAND. Hinn 6. júní voru
gefín saman í hjónaband í Selja-
kirkju Sigríður María Gísladóttir og
Kristinn Richter. Sr. Valgeir Ástr-
áðssson gaf brúðhjónin saman.
Heimili þeirra verður að Jörvabakka
12, Reykjavík.
Ljósmyndastofan Mynd
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 6. júní Guðmundur Víðir Reyn-
isson og Sigrún María Kristjáns-
dóttir af sr. Kjartani Emi Sigur-
bjömssyni í Háteigskirkju. Þau eru
til heimilis á Fumgmnd 76, Kópa-
vogi.
HJÓNABAND. Hinn 20. júní sl.
voru gefin saman í hjónaband í
Þingvallakirkju af séra Hönnu Mar-
íu Pétursdóttur, Eva Marie Sand-
gren og Pétur Jóhannsson. Heimili
þeirra er að Korparsvag 16, Umeá,
Svíþjóð.
HJÓNABAND. Á þjóðhátíðardag-
inn, 17. júní, voru gefin saman í
hjónaband Lise Kjær Nielsen
Stensved, S-Sjálandi og Geir Eð-
varðsson, námsmaður. Heimili
þeirra er að Skeggjagötu 15, Rvík.
RADA UGL YSINGAR
Lögfræðingur
óskast nú þegar til afleysingastarfa
í 7-8 mánuði.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 28. þ.m.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
Hjúkrunarfræðingar
Okkur vantar enn hjúkrunarfræðing til starfa
við nýja hjúkrunardeild aldraðra í Grindavík.
Deildin er legudeild með 14 rúmum til að
byrja með og er öll aðstaða góð og vel búin
tækjum.
Aðstoð við húsnæðismál.
Vinsamlegast hafið samband við hjúkrunar-
forstjóra í síma 92-14000 og fáið upplýsingar
um starfið og launakjör.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs.
Sjúkraþjálfarar
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs óskar að
ráða sjúkraþjálfara til að annast endurhæf-
ingu sjúklinga og undirbúning þeirra sem eru
svæfðir á skurðstofu. Vinnuaðstaða er í
Sjúkrahúsinu í Keflavík og síðar meir einnig
á hjúkrunardeild fyrir aldraða í Grindavík.
Þeir sjúkraþjálfarar, sem hafa áhuga, eru
vinsamlegast beðnir um að hafa samband
við yfirlækni eða framkvæmdastjóra sem
allra fyrst í síma 92-14000.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs.
Amma óskast
Barngóð og áreiðanleg amma óskast til að
gæta 4ra ára stúlku í Selási í 5 klst. á dag,
3-4 daga vikunnar, frá 15. ágúst.
Heimilisstörf samningsatriði.
Upplýsingar í síma 686288 eftir kl. 17.00.
Ritari
Virt fasteignasala óskar eftir að ráða ritara
í 50-100% starf.
Verksvið: Almenn skrifstofustörf, s.s. bók-
hald, innheimtustörf, útskrift reikninga, síma-
varsla og fleira.
Þarf að geta byrjað strax. Starfsreynsla
æskileg. Reykleysi skilyrði. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum um-
sóknum verður svarað.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl merktar: „Ritari
- 10409“ fyrir 27. júlí.
Sumarbústaðalönd
Til sölu eru nokkur sumarbústaðalönd í Hval-
firði, aðeins 40 mín akstur frá Reykjavík á
malbiki. Um er að ræða land sem liggur að
sjó, landið verður afgirt og vegur lagður um
svæðið. Einnig er til staðar á landinu heitt
og kalt vatn. Á svæðinu eru veiðiaðstaða,
golfvöllur, bátabryggja, veitingarekstur,
hestaleiga og ýmislegt fleira t.d. er væntan-
leg sundlaug. Hver lóð verður ca 0,4 ha.
Upplýsingar gefur
Fjárfesting fasteignasala,
sími 624250.
Til sölu
Steinunn RE-257
5 tonna SELFA plastbátur. Vél SAAB diesel
117 hö. Skiptiskrúfa. Tæki um borð m.a.:
Loran, dýptarmælir, radar, sjálfstýring, tal-
stöð APELCO VXE 200 og 4 DNG handfæra-
rúllur. Krókaleyfi.
Málflutningsstofa
Baldvins Hafsteinssonar hdl.,
sími 627888.
Til leigu
í Síðumúla 24-26.
Hús 327 m2 og lóð 3.480 m2.
Upplýsingar í síma 621566.
Erum tveir
vel uppaldir, hljóðlátir og reyklausir væntan-
legir námsmenn við Háskóla íslands nú í
haust. Okkur vantar því 2ja-3ja herb. íbúð,
helst í göngufæri við Háskólann.
Finnur Fiðriksson, Akureyri, sími 96-22519
og Karl Pálsson, Selfossi, sími 98-22712.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Fjölbreyttar helgarferðir
24.-26. júlí.
1. Miðsumarsferð í Þórsmörk.
Gönguferðir við allra hæfi.
Góð gisting í Skagfjörðs-
skála. Muníð sumardvölina.
2. Landmannalaugar-
Brandsgil-Brennisteinsalda.
Gist ( sæluhúsi F.l.
3. Á fjallahjóli í óbyggðum.
Gist í sæluhúsinu I Land-
mannalaugum. Hjólað á laug-
ardeginum í Eldgjá og um
Dómadal á sunnudeginum.
4. Leppistungur-Kerfingargljúfur.
Ferð á nýjar slóðir í nágr.
Kerlingarfjalla. Staðfestið
pantanir fyrir hádegi föstu-
dag.
Styttri ferðir um helgina
Laugardagur 25. júlí kl. 8.00
Hekla. Ekið í Skjólkvíar og gengið
þaðan. 7-8 klst. ganga.
Verð 2.000,- kr.
Sunnudagur 26. júlí.
Raðgangan um Hvalfjörð 6.
ferð.
1. Kl. 10.30 Hvalfell-Glymur.
2. Kl. 13.00 Brynjudalur
-Botnsdalur.
Athugið breytingu á ferð nr. 2
frá þvf sem stendur í prentaðri
áætlun.
Sunndags- og miðvikudags-
ferðir f Þórsmörk kl 8.00. Brott-
för í allar ferðir frá Umferðarm-
iðstöðinni, austanmegin.
Ferðafélag íslands.
fámhjálp
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúöum. Mikill söngur
og vitnisburðir. Orð hefur Helgi
Jósefsson. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
UTIVIST
Hallveigarstíg 1 • simi 614330
Helgarferð 24.-26. júlí
kl. 20.00.
Básará Goðalandi.
Gönguferðir um Þórsmörk og
Goðaland við allra hæfi. Gisting
við góðar aðstæður í skála eða
í tjöldum.
Sjáumst í Útivistarferð.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Fimmtudagur 23. júlí kl. 21:
Skemmtisigling um Kolla-
fjörð með m/s Árnesi
Brottför frá Grófarbryggju
(gamla Akraborgarbryggjan).
Siglt norður fyrir Viðey að Lund-
ey (mikil lundabyggð). Um Þer-
neyjarsund á bakleiö. Tekin
botnskafa með ýmsum sjávarlíf-
verum. Harmónikuleikari verð-
ur með í för. Siglingartími 1,5
klst. 'Verð 700,- kr., fritt fyrir
börn með fullorðnum.
Ferð fyrir unga sem aldna.
Kynnið ykkur ferðirnar um
verslunarmannnhelgina,
6 ferðir í boði.
Ferðafélag íslands.
Miðilsfundir
Miðillinn Jean Murton af Kent
verður með einkafundi, lófalest-
ur, tarotlestur og dáleiðslu (fyrri
líf) frá 21. júlí. Jean rekur skóla
í dulrænum málefnum og hefur
yfir 30 ára reynslu.
Silfurkrossinn,
Sími 688704.