Morgunblaðið - 23.07.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
fclk í
fréttum
ÞRÍÞRAUT
Skemmtileg keppni á Akranesi
hannesson úr Reykjavík fékk besta
tímann í karlaflokknum. í unglinga-
flokki var Karl Kristjánsson fyrstur
en í þeim flokki var fyrst synt 400
metra sund, þá hjólaðir 10 km og
að lokum hlaupnir 2,5 km. Níu ára
gamall drengur, Guðgeir Guð-
mundsson, vakti athygli, en hann
náði fjórða sæti í unglingaflokkn-
um.
Þessir urðu efstir að stigum:
í karlaflokki: Einar Jóhannesson,
Guðmundur Bjömsson, Bjami
Svavarsson, Óskar Ö. Guðbrands-
son, Ingþór frá Reykjavík og Hall-
dór Matthíasson.
í unglingaflokki 14 ára og yngri:
Karl K. Kristjánsson, Kristín M.
Pétursdóttir, Anna L. Smáradóttir
og Guðgeir Guðmundsson.
- J.G.
Akranesmótið í þríþraut var í karlaflokki var fyrst synt 750
haldið á þjóðhátíðardaginn 17. metra sund, þá hjólaðir 20 km og
júní og var keppt í tveimur flokkum. að lokum hlaupnir 5 km. Einar Jó-
Sigurvegarar í karlaflokki.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Stundum getur verið þreytandi að vera með 67 hressar stelpur frá
því kl. átta á morgnana til miðnættis, viku eftir viku. Á myndinni
má sjá starfsstelpurnar styðja hönd undir kinn við matarborðið.
SUMARBÚÐIR
Lokkarnir lokka
*
Isumarbúðunum í Vindáshlíð í
Kjósarsýslu verða 10 flokkar af
stelpum þetta sumarið, auk kvenna-
flokks. Byggist dagskráin upp af
Biblíulestrum, helgistundum kvölds
og morgna, kvöldvökum, íþrótta-
keppni, brennó, gönguferðum og
busli í Laxánni, þótt lítið sem ekkert
hafí viðrað til þess háttar í sumar
vegna kulda og sífelldrar rigningar.
I sumar var tekin upp sú ný-
breytni, að stelpumar hafa fengið
að búa til sína eigin eyrnalokka,
og hefur það verið rosalega vinsælt
hjá þeim, einkum þar sem ekki
hefur viðrað vel til útivera. Þó geta
stelpurnar verið í innileikjum í
íþróttahúsinu í Vindáshlíð, þegar
ekki viðrar vel. Það mátti því sjá
flestar stelpurnar með eyrnalokka
sem þær höfðu hannað sjálfar og
búið til, og sögðust þær vera lokk-
andi með svona fína lokka.
P.Þ.
Mannrækt undir Jökii
BREKKUBÆ, HELLNUM, SNÆFELLSNESI, 31. JÚLÍ - 3. ÁGÚST 1992
Góður valkostur um
verslunarmannahelgina
Ein af athyglisverðari útihátíðum um verslunarmannahelgina undan-
farin ár hefur verið SNÆFELLSÁSMÓTIÐ, en það er sjötta mót sinn-
ar tegundar og verður haldið að Brekkubæ, Hellnum, Snæfells-
nesi. Að þessu sinni verður þemað helgað gleðinni. Mótið verður
sett föstudaglnn 31. Júlí og slitið eftir hádegi þann 3. ágúst.
AðgöngumiAaverA er 4.000,- krónur fyrlr gesti eldri en 14
ára, en aAgangur fyrlr börn er ókeypis. Innifalinn í miðaverði
er aðgangur að öllum dagskrárliðum mótsins, að undanskildum
námskeiðum og einkatímum.
Dagskrá mótsins verður fjölbreytt að
vanda og verða fyrirlesarar og leiðbeinendur
bæði innlendir og erlendir. M.eðal erlendra
gesta má benda á tónlistarheilunarmeistar-
ann dr. Molly Scott, sem mun sjá um tónlist-
arflutning og námskeið, og Chukchansi indí-
ánann Harold Hammond, sem stjórnar svita-
hofi og helgiathöfn að hætti indíána. Meðal
annars efnis má benda á útiguðsþjónustu,
dulspeki, heilun, söng, nýja framtíðarsýn,
miðlun frá æðri verum og margt fleira.
Einnig verða leiddar hugleiöslur. Hægt
verður að stunda svltahof (sweat lodge)
að hætti indíána og námskeið í tónlistarheil-
un og æðri hugleiðslu; Á sunnudagsmorgn-
inum verður helglstund við Lffsllndlna. Á
kvöldin verða kvöldvökur með fjöldasöng
og varAeldl.
Á mótssvæðinu eru tjaldstæði, en í gegnum
mótsstjórn er einnig hægt að panta svefn-
pokapláss í félagsheimilinu á Amarstapa.
Þaðan erfimm mínútna aksturað móttsvæð-
inu. Aðgangur að mótssvæðinu verður tak-
markaður við ákveðínn fjölda, en forsala
aðgöngumiða og upplýsingar um dagskrá
verður í versluninni
Betra líf, Laugavegl 66, Reykjavík.
Hundaeigendum er bent á að hundar meiga
ekki ganga lausir á mótssvæðinu.
Fylglð nýjum straumum. Veljlð SNÆFELLSÁS '92 um
verslunarmannahelglna.
Mótsnefnd SNÆFELLSÁSS '90
Áfengisneysla er bönnuð á mótssvæðinu.
HARD ROCK HAMBORGARI..............
GRÍSASAMLOKA......................
HICKORY-REYKTUR BAR-B-QUE KJÚKLINGUR
EFTIRLÆTIROKKARANS................
GOSDRYKKIR - SOFT DRINKS..........
_________ Allirfá afmælitertu
REYIifAVIK
5 ÁRA
4 DAGA AFMÆLISTILBOÐ
FIIVIIVITUDAG, FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG
AFMÆLISHATIÐ,
SEM ENDAR MEÐ
ÓKEYPIS
ÚTITÓNLEIKUM
SUNNUDAGINN
26. IÚLÍKL. 16
FYRIR FRAMAN
HARD ROCK CAFE
Tommi eldri og
Tommi yngri skera
i afmælistertuna á
HardRock á
UTIGRILL
næsta sunnudag (26. Júlí) kl. 16.00
Síóan skein sól, Ný dönsk, Stjórnin, Sléttuúlfarnir, Bogo- mil, Júdas,
Testimony, Silfurtónar, Laddi, Tveir m/öllu Jón og Gulli. Allir velkomnir næsta
sunnudag á útitónlcika og útigrill i tilefni 5 ára afmælis okkar.
TEYGJUHOPP (Bungee jump) í fyrsta sinn á íslandi sunnudag ld. 17.
Tommi stekkur sjálfur. Allur ágóói af útigrilli rennur til þroskaheftra.