Morgunblaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C
173. tbl. 80. árg.
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Langt
einvígi?
„ÞAÐ MÁ búast við löngu einvígi
milli Fischers og Spasskis, það
gæti vel staðið nokkra mánuði,"
sagði Þjóðveijinn Lothar Schmid,
sem dæmdi skákir þeirra í Reykja-
vík 1972, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann gerir ráð fyrir
að dæma fyrstu skák einvígisins
sem hefst í Svartfjallalandi 2. sept-
ember en eftir það taki Svetozar
Gligoric líklega við.
Schmid er bókaútgefandi og
kveðst ekki geta tekið sér svo langt
hlé frá störfum að dugi til loka ein-
vigisins. Schmid segir að það fyrir-
komulag sem Fischer vilji hafa bygg-
ist á viðureign Wilhelm Steinitz og
Herman Zukertorts árið 1886. Jafn-
tefli gildi ekki og tíu vinninga þurfi
til sigurs. Schmid bendir á að einvígi
Karpovs og Kasparovs 1985 hafí
staðið hálft ár þótt aðeins sex skák-
ir hafi nægt Kasparov til að vinna.
Guðmundur G. Þórarinsson, for-
seti Skáksambandsins, segist ekki
hafa fengið formlega ósk um að
skákborðið sem notað var 1972 verði
lánað til keppninnar. „Stjórn sam-
bandsins yrði að taka ákvörðun um
málið,“ segir Guðmundur, „en mér
fínnst þetta koma mjög vel til greina.
Borðið er einhver merkilegasti grip-
urinn í islenskri skáksögu og ef það
færi úr landi yrði að tryggja það
rækilega."
----»■♦ ♦
Píanóið var
ekki vistvænt
London. Reuter.
ENSKUR biskup sem hugðist
flylja forláta píanó sitt frá Banda-
ríkjunum heim til sín var stöðvað-
ur af bandarískum tollyfirvöldum
þar sem nótnaborðið er úr fíla-
beini. Það brýtur í bága við lög
sem eiga að stuðla að verndun fíla.
Biskupinn segist hafa verið spurð-
ur af tollþjónum hvar fíllinn sem
fórnaði skögultönnum sínum í slag-
hörpuna hefði verið skotinn. Hann
segist ekki hafa sjálfur staðið í slík-
um Stórræðum og vera almennt
hlynntur fílum.
* Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að í Landmannalaugum
Verslunarmannahelgin er gengin í garð og vafalaust hyggjast margir njóta dásemda íslenskrar nátt-
úru líkt og þessir ferðamenn í Landamannalaugum. Morgunblaðið óskar landsmönnum ánægjulegrar
og slysalausrar helgar.
Evrópubandalagið:
Hlutleysi
Svía sam-
ræmist
ekki aðild
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
í UMSÖGN framkvæmdastjórn-
ar Evrópubandalagsins (EB) um
aðildarumsókn Svía er lögð á það
áhersla að hlutleysi samræmist
ekki markmiðum EB. Fram-
kvæmdastjórnin mælir með því
að formlegar viðræður um aðild
Svía hefjist um Ieið og samþykkt-
ir leiðtogafundar EB í Maastricht
hafi verið staðfestar af öllum
ríkjum bandalagsins. Frans
Andriessen úr framkvæmda-
sljórn bandalagsins sagði við
blaðamenn í Brussel í gær að ný
ríki yrðu að taka upp allar sam-
þykktir EB, þar með taldar sam-
þykktirnar frá Maastricht sem
m.a. gera ráð fyrir auknu sam-
starfí í utanríkis- og varnar-
málum.
Ulf Dinkelspiel, Evrópumálaráð-
herra Svía, sagði í gær að of
snemmt væri fyrir Svía að ákveða
þátttöku í Vestur-Evrópusamband-
inu sem talið er að verði síðar undir-
staða varnarsamvinnu EB-ríkjanna.
Almennt er umsögn fram-
kvæmdastjórnarinnar jákvæð og
ekki er gert ráð fyrir neinum um-
talsverðum vandamálum í aðildar-
viðræðunum hvað snertir efnahags-
mál. Andriessen sagði ný aðildarríki
ekki verða í aðstöðu til að draga
sig út úr tilteknum samþykktum
né lýsa yfir hlutleysi innan sam-
starfs aðildarríkjanna.
Andriessen sagði einnig að samn-
ingaviðræðurnar um Evrópska
efnahagssvæðið (EES) hefðu leitt í
ljós vandamál bæði hvað varðaði
landbúnað og ríkiseinokun, fyrst og
fremst á áfengissölu. Ljóst væri að
einkasala á áfengi samræmdist
engan veginn Rómarsáttmálanum.
Andriessen benti og á að aðild Svía
fylgdu ný byggðavandamál þar sem
EB væri öldungis óvant að fást við
vanda heimskautabyggða.
Hundruð manna farast
í tveim flugslysum í Asíu
^ Bangkok, Katmandú, Lundúnum. Reuter.
ÓTTAST er að rúmlega tvö hundruð manns hafi farist í tveimur
flugslysum sem urðu í Asíu í gær. Hið fyrra varð í gærmorgun er
tælensk farþegaþota af gerðinni Airbus A310-300 með 113 manns
innanborðs brotlenti í gærmorgun í skóglendi um 100 km suður af
Katmandú, höfuðborg Nepals. Ekki er enn vitað um orsakir slyssins
en óttast er að allir um borð hafi farist. Seinna slysið varð síðar
um daginn þegar kínversk Yak-42-farþegaflugvél með 126 manns
um borð fórst í flugtaki frá Nanjing-flugvelli í austurhluta Kína.
Tælenska flugvélin var á leið frá
Bangkok í Tælandi til Katmandú
og var í aðflugi að flugvellinum þar
þegar hún hvarf skyndilega af rat-
sjárskjám flugstjórnarmanna.
Skömmu áður en vélin brotlenti
hafði flugturninn í Katmandú gefið
flugmönnum vélarinnar fyrirskipun
um að hætta við lendingu vegna
slæmra lendingarskilyrða á flug-
vellinum en úrhellisrigning var á
svæðinu og skyggni lítið. Var flug-
mörtnunum sagt að breyta um
stefnu og fljúga suðvestur á bóg-
inn. Þeir tilkynntu flugturninum að
breytt hefði verið um stefnu en eft-
ir það heyrðist ekkert frá vélinni.
Flugvélin brotlenti í skóglendi
um 100 kílómetra suður af Kat-
mandú og tilkynntu þorpsbúar í
nágrenni við slysstaðinn að mikil
sprenging hefði orðið í vélinni þegar
hún skall niður.
99 farþegar og fjórtán manna
áhöfn var um borð í vélinni. Meðal
farþeganna voru að minnsta kosti
32 frá Nepal, 21 Japani, ellefu
Bandaríkjamenn og fimm Finnar.
Flugvöllurinn í Katmandú hefur
löngum verið óvinsæll meðal flug-
manna. Hann er í þröngum dal, sem
er umkringdur flöllum á allar hlið-
ar. í aðflugi að vellinum þarf að
fljúga svokallað gormflug, sem
reynir mjög á hæfni flugmanna við
erfiðar aðstæður.
X/nhua-fréttastofan kínverska
sagði að hundrað manns hefðu lát-
FLUGVÉL HRAPAR
INEPAL
ist þegar YAK-42-flugvélin fórst í
flugtaki frá Nanjing-flugvelli en
hún var í eigu ríkisrekins flugfé-
lags. Ekki er nánar vitað um tildrög
eða orsakir slyssins en vélin fór út
af flugbrautinni og varð alelda um
600 metrum frá henni.