Morgunblaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.08.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992 Akureyrarbær einn af stofnaðilum Málræktarsjóðs: Hálf milljón í málrækt BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur ákveðið að leggja fram 500.000 krónur til Málræktarsjóðs. Með þessu framlagi verður Akureyrarbær einn af stofnaðilum sjóðsins. íslensk málnefnd stofnaði sjóðinn en hon- um er ætlað að styrkja margs konar málræktarstarf fjárhagslega. Jakob Björnsson sem á sæti í sú hugmynd að greiða 100 krónur bæjarstjórn Akureyrar sagði að í vor hefði komið beiðni um styrkveit- ingu til Málræktarsjóðsins og hefði verið ákveðið við endurskoðun fjár- hagsáætlunar 14. júlí sl. að veita kr. 500.000 úr bæjarsjóði til sjóðs- ins. Hann sagði að upp hefði komið fyrir hvem bæjarbúa en samkomu- lag hefði síðan náðst um fyrrgreinda upphæð. Að sögn Jakobs er mögu- legt að bæjarfélagið leggi til frekari styrki til sjóðsins í framtíðinni og vonar hann að framlag Akureyrar- bæjar hvetji aðra til þess að styrkja Málræktarsjóðinn. Nú stendur yfir söfnun sem er ætlað að ná inn 50 milljónum króna fyrir Málræktarsjóð en stefnt er að því að safna 100 milljón króna höf- uðstól fyrir árslok 1992. Einstakl- ingar, fyrirtæki, sveitarfélög, og menningarsamtök sem leggja fram- lög í sjóðinn fyrir lok ársins teljast stofnendur sjóðsins og fá jafnframt fulltrúa í fulltrúaráð hans. FYRSTA barnið, sem fæðist eftir glasafijóvgun hér á landi, fæddist í gær, föstudaginn 31. júlí. Fæðingin var eðlileg og á áætluðum tíma. Fyrsta íslenska glasabamið er stúlka sem fæddist laust fyrir klukkan tvö í gær. Jón Hilmar Alfreðsson, læknir, sagði að fæðingin hefði gengið eðlilega fyrir sig og mæðgunum heilsist vel. Það var Þórður Óskarsson, sérfræðingur á glasafrjóvgunardeild Landspítalans, sem tók á móti stúlk- unni sem er 14 merkur. Morgunblaoið/Þorkell Fyrsta fæðing eftir glasa- frjóvgun hér á landi Merkar fornleifar fundust við uppgröft á Grænlandi Sperrur og ílát úr hvalbeini Vel varðveittar miiyar fundust við fornleifauppgröft sem hófst í sumar í bæjarrústum frá miðöldum á Grænlandi. Það sem m.a. fannst var ausa, spaði úr hvalbeini, taflmaður, lampi, og tveggja metra langt rif úr vefstað, sem var notað til að vefa vaðmál. Á myndinni sjást þaksperrur fornleifafræðings virðist bæði af bakhúsi, sem kom í ljós þegar byrjað var að moka sandi ofan af rústunum. Á innfelldu mynd- inni er hryggjarliður úr hval, sem að sögn Guðmundar Ólafssonar hafa verið notaður sem skurðar- borð og ílát. Guðmundur tók þessar myndir en honum var boðið að taka þátt í rannsókninni sem Þjóðminjasöfn Grænlands og Danmerkur standa fyrir. Að sögn Guðmundar lítur út fyrir að yngstu híbýlin hafi verið yfír- gefín vegna eldsvoða. En athygli vekur að engu að síður finnast margir heillegir hlutir í rústun- um. Það má nefna sem dæmi að ausan sem fannst í góðu ástandi var umkringd koluðum timbur- bútum. Samningum um ál- ver verður lokið inn- an tveggja mánaða Eftir það verður beðið eftir samþykki stjórna Atlantsálfyrirtækjanna VAN DER ROS, forsljóri liollenska fyrirtækisins Hoogovens, sem ásamt bandaríska álfyrirtækinu Atlantal og sænska fyrirtækinu Granges mynda Atlantsálhópinn, segist telja að öllum samningum milli íslenskra sljómvalda og einstakra aðila annars vegar og Atlantsáls hins vegar vegna fyrirhugaðrar álbræðslu á Keilisnesi eigi að vera lokið innan tveggja mánaða. „Eftir það á allt að vera reiðubúið, og þá er bara að bíða eftir því að stjórnir fyrirtækj- anna þriggja gefi grænt yós á framkvæmdir,“ sagði Van der Ros í samtali við Morgunblaðið í gær. Van der Ros sagði að enn væru engar vísbendingar á lofti um að heimsmarkaðsverð á áli færi hækkandi. Álframleiðendur, bæði í Evrópu og vestan hafs, hefðu stórdregið úr framleiðslu sinni, til þess að draga úr framboði. Horf- urnar fyrir næstu misseri væru alls ekki svo góðar. Á hinn bóginn sagði Van der Ros að horfurnar væru bjartari þegar til lengri tíma væri litið. „Meirihluti sérfræðinga sem ijalla um málmmarkaði heimsins eru þeirrar skoðunar að síðari hluta næsta árs fari heimsmarkaðsverð á áli hækkandi 'svo um munar. Þeir telja að efnahagsástand heims muni hægt og sígandi fara batn- andi og batinn verði fyrst sjáanleg- ur svo um munar á næsta ári, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og enn frekari hækkunum er spáð á árinu 1994. En þeir benda jafn- framt á að áður en til verulegra verðhækkana á áli kemur, verði álbirgðir heims að minnka til muna frá því sem nú er. Það er geysi- legt magn af áli sem liggur í Rott- erdam, en væntanlega mun smám saman draga úr þeim birgðum, þar sem framleiðendur hafa dregið svo mikið úr álframleiðslu sinni,“ sagði Van der Ros. Ríkissljómin mat 12 þúsund þorskígilda kvóta Hagræðingarsjóðs á 525 millj.: Yerðmætið um 470 millj. miðað við gangverðið nú VERÐMÆTI aflaheimilda Hagræðingarsjóðs, 12.000 tonna þorskígilda, er um 471 milljón króna á fijálsum markaði, samkvæmt útreikningum Morgunblaðsins. Þá er miðað við núverandi gangverð á kvóta þeirra sex botnfisktegunda, sem kvóti sjóðsins er settur saman úr. Ríkisstjórn- in hefur áformað að fá 525 milljónir króna fyrir veiðiheimildir sjóðs- ins og greiða rekstur Hafrannsóknastofnunar með þeim. Kystján Ragn- arsson, formaður Landssambands útvegsmanna, sagði í Morgunblaðinu í gær að stjórnin hygðist selja kvótann of dýru verði og útgerðarmenn vildu varla kaupa hann á verði, sem væri hærra en markaðsverð. í Hagræðingarsjóði eru 7.400 tonn um. Samkvæmt sömu upplýsingum af þorskkvóta. Veiðiheimildir í þorski hafa undanfarið selzt á 38-40 kr. kílóið, samkvæmt upplýsingum frá Kvótabankanum og Kvótamarkaðin- fer verð á ýsu lækkandi og hefur kílóið af ýsukvóta selzt á tæpar 30 krónur og allt niður í 25 krónur undanfarið. Ástæðan er sú að ekki hefur allur ýsukvóti ársins náðst og einnig hefur það áhrif til lækkunar að samkvæmt ákvörðun stjórnvalda hefur ýsukvótinn verið aukinn veru- lega á næsta fískveiðiári. í Hagræð- ingarsjóði eru 2.300 tonn af ýsu- kvóta. Aðrar tegundir botnfísks, sem Hagræðingarsjóður hefur veiðiheim- ildir fyrir, eru skarkoli, grálúða, karfi og ufsi. Verð á karfa- og ufsakvóta hefur undanfarið verið um 20 kr. á kílóið, skarkolakvótinn hefur selzt á 35 kr. kílóið og grálúðuheimildir á um 40 kr. Ef veiðiheimildir Hagræðingar- sjóðs eru umreiknaðar í tonn af slægðum fiski, eins og miðað er við í nýútgefínni reglugerð um sjóðinn, og tonnafjöldi hverrar tegundar margfaldaður með gangverði á kvóta undanfarið, er kvóti sjóðsins um 471 milljónar króna virði. Það er talsvert lægra en sú upphæð, sem stjórnvöld hafa hugsað sér að fá fyrir veiðiheim- ildir sjóðsins, 525 milljónir. Að sögn Kristjáns Skarphéðins- sonar, deildarstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu, er ekki ljóst hvert end- anlegt söluandvirði veiðiheimilda Hagræðingarsjóðs verður. Kristján segir að verðið sveiflist oft innan ársins og kvóti sjóðsins verði ekki seldur fyrr en í september. Ef mikið verði eftir af óveiddum veiðiheimild- um í ákveðnum tegundum geti þær lækkað í verði, einnig séu möguleik- ar á slíku í tegundum, sem kvóti hefur verið aukinn á, til dæmis ýsu, ufsa og karfa. Kristján segir að hins vegar sé til í dæminu að þegar þeir, sem eiga forkaupsrétt að hluta af veiðiheimildum Hagræðingarsjóðs, verði búnir að neyta þess réttar, verði beðið með að selja afgang kvótans til hæstbjóðanda þar til verð á kvóta verði hagstæðara og ríkissjóður fái meira fyrir hann. Embættistaka forseta Islands: Athöfnin er í hönd- um kvenna KONUR eru í fyrsta skipti í æðstu embættum við emb- ættistöku forseta Islands í dag. Embætti forseta ís- Iands, forseta Hæstaréttar, og forseta Alþingis eru öll skipuð konum, en aðeins embætti forsætisráðherra er skipað karli. Auk þess er embætti hæstaréttarritara skipað konu. Þegar athöfnin hefst klukk- ann 15.30 ganga frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, og Guðrún Erlendsdótt- ir, forseti Hæstaréttar, fremstar í flokki frá Alþingis- húsinu til Dómkirkju. Næst þeim koma Salóme Þorkels- dóttir, forseti Alþingis, og Davíð Oddsson, forsætisráð- herra. Þegar frú Vigdís Finnboga- dóttir, undirritar kjörbréf sitt fyrir fjórða kjörtímabilið sem forseti verður athöfnin alhliða í höndum kvenna. Guðrún Erlendsdóttir lýsir forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og mælir fram eiðstafínn, sem frú Vig- dísi er ætlað að undirrita. Við undirritunina sér Erla Jóns- dóttir, hæstaréttarritari, um að færa eiðstafinn á milli for- seta Hæstaréttar og forseta íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.