Morgunblaðið - 01.08.1992, Síða 1
Tc
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1992
3R9#r$mtMat> lí*
■ LAUGARDAGUR 1.ÁGÚST
BLAÐ
adidas
...annað ekki
OLYMPIULEIKARNIR I BARCELONA
Ferskir
úrlyQa-
banni
- og unnu öll verðlaunin
Keuter
Kieren Perkins frá Ástralíu sigraði í 1500 m skriðsundi í gær og setti glæsilegt heimsmet, bætti eldra met sitt um fimm sekúndur. Allt um sundið / C2,C12
Fá bresku lyftingamenn-
imir uppreisn æru?
BRESKU lyftingamönnum, sem voru sendir heim frá Barcelona
eftir að hafa fallið á lyfjaprófi, fá hugsanlega uppreisn æru og svo
getur verið að þeir fái að keppa um helgina.
JIM Stulce frá Bandaríkjunum
vann fyrstu gullverðlaun í
frjálsíþróttakeppni Ólympíuleik-
anna í gærkvöldi með sigri í kúlu-
varpi karla. Landi hans James Doe-
hring vann silfur og Rússinn Vjatsj-
eslav Lykho bronsverðlaun en þess-
ir þrír kastarar voru allir dæmdir í
keppnisbann fyrir lyfjanotkun árið
1990 og mættu því til leiks í sumar
eftir að hafa tekið út keppnisbann.
Svisslendingurinn Werner
Giinthor þótti sigurstranglegastur
en hann varð aðeins í fjórða sæti
eftir harða og tvísýna keppni um
silfur- og bronsverðlaunin.
Stulce hafði mikla yfirburði og
náði sigurkastinu, 21,70 metrum, í
fimmtu umferð. Doehring varpaði
20,96 og Lykho 20,94 en Giinthor
20,91. Olympíumeistarinn frá í Seo-
ul, Þjóðveijinn Ulf Timmermann
varð fimmti með 20,49 og meistar-
inn frá í Los Angeles 1984, ítalinn
Alessandro Andrei, 11. með 19,62.
Stulce er 23 ára Texasbúi og
fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem
verður Ólympíumeistari í kúluvarpi
frá því Randy Matson vann titilinn
í Mexíkóborg 1968. Hann sagði að
lyfjabann sitt ætti ekki að draga
úr sigrinum.
Lykho varð í þriðja sæti á EM í
Split fyrir tveimur árum en var síð-
an sviptur þeim verðlaunum. Doe-
hring er á fímm ára skilorði vegna
dóms sem hann hlaut eftir að fíkni-
efni fundust í fórum hans en sann-
að þótti að hann ætlaði að selja þau.
I3reska sjónvarpsstöðin ITN sagði
í gær að sýnin frá Andrew
Saxton og Andrew Davies hefðu ef
til vill ruglast saman við sýni annars
manns með svipuðu nafni. Breska
ólympíunefndin í Barcelona sagðist
ekki geta tjáð sig um fréttina, en
sagði að málið væri í athugun, bæði
í Barcelona og London. „Það er
möguleiki á að þeir verði aftur tekn-
ir inní hópinn," sagði Caroline Se-
arle, talskona nefndarinnar.
Hún sagðist ekki geta sagt hvers
vegna efasemdir væru nú uppi í sam-
bandi við lyfjaprófin, en ákvörðun
um framhaldið yrði væntanlega tekin
í dag. „Það eru margir lausir endar
og tíma tekur að loka hringnum."
Saxton var skráður í keppni í 100
kg flokki á morgun, en Davies í 110
kg flokki á mánudag. Samkvæmt
lögum Alþjóða lyftingasambandsins
fóru þeir í lífstíðar keppnisbann um
leið og niðurstöður úr lyfjaprófínu
voru birtar, en báðir hafa ákveðið
að áfrýja úrskurðinum og Saxton
segist ekki hafa neytt ólöglegra lyija.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
TeKur og Ólafur hælta hjá Lyn
Teitur Þórðarson, sem hefur
þjálfað norska knattspyrnul-
iðið Lyn í tvö ár, hættir hjá félag-
inu» Ngar samn-
Erhngur ingurinn rennur út
Jóhannsson 1. nóvember næst
skrífarfrá komandi. Viðræð-
Noregi ur forráðamanna
Lyn við Teit um áframhaldandi
störf hafa staðið yfir að undan-
förnu, en báru ekki tilætlaðan
árangur. Nú vilja forráðamenn
ráða nýjan þjálfara í haust.
Teitur sagði við Morgunblaðið
að hann væri ekki ánægður með
þesa ákvörðun forráðamanna fé-
lagsins. „Það hafa verið smávægi-
legir samstarfsörðugleikar nú í
sumar á milli mín og forráða-
manna félagsins. Þetta stafar
fyrst og fremst af því að stjórnar-
menn hafa verið að skipta sér af
hlutum, sem þeir hafa ekkert með
að gera. Ég hef allan þann tíma,
sem ég hef verið hjá Lyn, stefnt
að því að gera liðið eitt af bestu
liðum Noregs. Nú að undanfömu
hef ég orðið var við önnur viðhorf
hjá forráðamönnum félagsins og
þegar málum er þannig háttað
hef ég ekki áhuga á að starfa
fyrir félagið."
En hvað um framtíðina?
„Enn sem komið er er allt óvist
hvað ég geri eftir fyrsta nóvem-
ber. Fyrst ætla ég að ljúka þessu
timabili hjá Lyn, en við eigum
ennþá möguleika á að komast í
Evrópukeppni á næsta ári.
Það er enginn vafi á því að
Teitur hefur náð góðum árangri
hjá Lyn, m.a. var liðið í 4. sæti í
deildinni í fyrra eftir að það kom
upp úr 2. deild og nú á liðið mögu-
leika á Evrópusæti.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur franskt lið haft
samband við Teit, en hann vildi
ekki tjá sig um það.
Samningur Ólafs, bróður Teits,
sem leikur með Lyn rennur einnig
út að loknu þessu tímabili. Að
sögn Teits verður Ólafur ekki
áfram hjá félaginu.
GOLF: ULFAR OG KAREN MEISTARAR FJORÐA ARIÐIROD / C6,C7,C12