Morgunblaðið - 01.08.1992, Síða 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ Q99 BARCELOIMA ’92 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992
Reuter
Summer Sanders bítur í gullpen-
inginn, sem hún fékk fyrir sigurinn í
200 metra flugsundi.
Barcelona ’92
■ SÉRSTAKUR staður er í
ólympíuþorpinu, þar sem safnað er
saman öllu óskiladóti. Þar á meðal
eru kvennærbuxur, öryggispassar,
skartgripir og fleira.
■ BOGAMAÐUR nokkur hefur
komið þar við daglega án árangurs.
Hann gleymdi boga sínum og örvum
og hafa hlutirnir ekki komið í leitirn-
ar. Sömu sögu er að segja af einum
spjótkastara, sem fínnur hvergi spjót
sitt.
■ TRINE Hattestad frá Noregi
mun að líkindum heyja einvígi um
sigurinn í spjótkasti kvenna við Na-
talju Shíkolenko frá Úzbekístan".
Hattestad kastaði 67,20 í undan-
keppninni en Shíkolenko 67,36. Aðr-
ir kastarar köstuðu mun styttra.
■ XU Demie heimsmeistari í spjót-
kasti komst ekki í úrslit, hafnaði í
14. sæti af 25 í undankeppninni í
gær. Xu gerði tvö fyrstu köstin ógild
og kastaði síðan aðeins 59,98 í þriðju
og síðustu tilraun.
■ GRÍSKA stúlkan Anna Verouli
komst heldur ekki í úrslit, kastaði
aðeins 56,96 metra. Hún varð Evr-
ópumeistari 1982 og þriðja á HM
árið eftir. Hún féll á lyfjaprófi 1984.
■ ÞÝSKI Ólympíumeistarinn frá í
Seoul, Petra Meier, og Tessa Sand-
erson frá Englandi, sem sigraði í
Los Angeles, komust báður í úrslitin
sem fram fara í dag.
■ ZOLA Budd Pieterse frá Suður-
Afríku olli vonbrigðum er hún varð
aðeins í níunda sæti í fyrsta riðli
3.000 metra hlaupsins á 9:07,10
mínútum og komst ekki í úrslit.
■ TATJANA Dorovskíkh frá Or-
enburg í Ukraínu átti hins vegar í
engum erfiðleikum með að komast
í úrslitin sem fram fara á sunnudag.
Þá ver hún titil sinn frá í Seoul. Hún
hljóp á 8:42,45 sem var næstbesti
tími riðlanna.
■ DORO VSKÍKH varð heims-
meistari í 3000 metrum bæði 1987
og 1991. Hún er tvígift og bar eftir-
nafnið Samolenko í Seoul. Hún varð
þriðja í 1500 metrunum í Seoul og
vann gull í þeirri grein á HM 1987
og silfur á HM 1991.
■ FJÓRTÁN stökkvarar keppa til
úrslita í hástökki á morgun sunnu-
dag. Lágmarkið inn í úrslitin var
2,29 en aðeins tveir stökkvarar
stukku þá hæð. Hins vegar stukku
12 menn yfir 2,26 m. Meðal þeirra
eru Svíinn Patrik Sjöberg.
■ DIETMAR Mögenburg,
Ólympíumeistari 1984 var hins veg-
ar ekki svipur hjá sjón og stökk
aðeins 2,15 metra, varð 14.-15. í
fyrri stökkhópi og féll úr keppni.
Hann setti heimsmet unglinga og
fullojðinna 1980, stökk 2,35.
■ ÍGOR Paklín frá Kirghizíu sem
setti heimsmet í hástökki 1985 er
hann stökk 2,41 metra, féll einnig
úr keppni í gær. Hann stökk 2,20
og varð 12.-13. í seinni stökkhópi.
SUND
Sanders bætti gulli ísafnið
Summer Sanders frá Banda-
ríkjunum fagnaði sigri í 200
metra flugsundi kvenna og vann
þar með þriðju verðlaun sína á
leikunum. Hún vann brons í 400
m fjórsundi og silfur í 200 metra
f'jórsundi.
Sanders, sem er heimsmestari
í greininni, kom í mark á undan
Wang Xiahong frá Kína og Susan
O’Neill frá Ástralíu eftri spenn-
andi keppni og vann fyrstu ólymp-
íugullverðlaun sín.
O’Neill, sem hafði besta tímann
í undanrásunum, byijaði sundið
vel - kannski full hratt og hafði
forystu eftir 150 metra og var
með betri tíma en þegar Mary
Meagher setti heimsmetið. Hún
synti fyrstu 50 metrana á 28.96
og 1:01.28 eftir 100. Sanders tók
forystuna á síðustu metrunum og
kom í mark á 2:08.67 mín. en
heimsetið frá 1981, 2:05.96, og
ólympíumetið frá 1984, 2:06.90
mín., stóðust. Wang synti á
2:09.01 og vann O’Neill með að-
eins 0.02 sekúndum.
Kínversku
stúlkurnar
slógu í gegn
Summer Sanders frá Banaríkjunum fagnaði sigri.
Reuter
Kínversku sundkonumar hafa
heldur betur slegið í gegn á
Ólympíuleikunum. Þær settu enn
eitt heimsmetið í gær á síðasta
degi sundkeppninnar er Yang
Wengyi frá Kína sigraði í 50 metra
skriðsundi og bætti eigið heimsmet
um 0.19 sekúndur, synti á 24.79
sekúndum.
Sigur Wengyi var fjórði sigur
Kínveija á leikunum og annað
heimsmet þeirra því áður hafði Li
Lin bætt metið í 200 metra fjór-
sundi kvenna. Kínverska stúlkan
Yong Zhuang, sem var með besta
tímann í undanrásum, varð önnur
og vann þriðju verðlaun sín á
leikunum.
Bandaríska stúlkan Angel Mart-
ino, sem var sett í keppnisbann
eftir að hún féll á lyfjaprófi eftir
ÓL í Seoul fyrir fjórum árum, vann
bronsverðlaunin. Jenny Thompson
frá Bandaríkjunum, sem á heims-
metið í 100 metra skriðsundi og
varð önnur í 100 metrunum, náði
aðeins fimmta sæti á 25.37 sek-
úndum.
Þróun heimsmetsins
25.28 Tamara Costache (Ítalíu).23. 8. ’86
24.98 YangWengyi (Kína).......11. 4. ’88
24.79 YangWengyi..............31. 7. ’92
TENNIS
Églék
illa
- sagði Stich eftirtap-
ið gegn Steeb
„ÉG lék illa, kannski vegna þess
að ég hef leikið á mörgum mót-
um að undanförnu og virðist
ekki vera í góðu formi,“ sagði
Wimbledonmeistari síðasta árs,
Michael Stich, eftir að hafa tap-
að óvænt fyrir samlanda sínum
Carl Uwe Steeb í 2. umferð
tenniskeppninnar í gær. Steeb
vann tvær fyrstu loturnar 4:6 og
2:6, Stich tók þá þriðju 6:4, en
Steeb innsiglaði sigur sinn í
þeirri fjórðu, 3:6.
Steeb komast þar með í sextán
manna úrslit og keppir þar við
Leondardo Lavalle frá Mexíkó, sem
lagði Frakkann Henri Leconte í gær.
Hann -sagði að það skipti engu máli
hversu langt hann kæmist á leikun-
um ef hann næði ekki í verðlauna-
sæti. „Það eina sem skiptir máli á
þessu móti er að komast á pall,“
sagði Steeb.
Systkinin Emilio og Arantxa Sanc-
hez-Vicario, sem eru frá Barcelona,
Reuter
Henri Leconte frá Frakklandi var
heldur óhress eftir að hafa tapað í
annarri umferð fyrir Leondardo La-
valle frá Mexíkó.
sigruðu bæði í annarri umferð. Em-
ilio sigraði Omar Camporese frá ítal-
íu næsta auðveldlega í þremur hrin-
um, og sömu sögu er að.segja af
systur hans, en hún tók Mönu Endo
frá Japan létt í gær, 6-0 og 6-1.
Andrei Chesnokov, sem sigraði
Svíann Stefan Edberg í fyrstu um-
ferð, tapaði óvænt í þeirri annarri
fyrir Italanum Renzo Furlan. Italinn
þurfti ekki nema þijár hrinur til að
sigra Samveldismanninn.
Michael Chang datt einnig út í
annarri umferð. Hann tapaði á móti
Jaime Oncins frá Brasilíu, vann eina
hrinu en Brasilíumaðurinn þijár.
Darnyi varði annan titil
Ungveijinn Tamas Darnyi hélt
uppteknum hætti í 200 metra
fjórsundi og sigraði, en hann hefur
ekki tapað í greininni síðan 1985.
Darnyi, sem var fyrstur allra til
að verja titilinn í 400 metra í'jór-
sundi á Ólympíuleikum, þegar
hann kom fyrstur í mark á mánu-
dag, bætti annarri rós í hnappa-
gatið í gær, þegar hann varði fyrst-
ur allra titilinn í-200 metra fjór-
sundinu.
Ungveijinn var í fimmta sæti
eftir flugsundið, en komst í íjórða
sæti eftir baksundið. Hann var enn
á sama stað í röðinni eftir bringu-
sundið, en reynslan, tæknin og
seiglan vógu þungt í skriðsundinu.
Han fór framúr keppinautunum
og kom fyrstur í mark á 2.00,76.
Gregory Burgess frá Bandaríkjun-
um varð annar, en Ungveijinn
Attila Czene, sem var fyrstur eftir
baksundið og bringusundið, varð
að sætta sig við bronsið.
Damyi hefur haft mikla yfir-
burði í 200 og 400 m fjórsundi og
sigraði m.a. í báðum greinum á
heimsmeistaramótinu 1986 og
1991. Heimsmet hans í 200 metr-
unum er 1.59,36, en ólympíumetið,
sem hann á líka, er 2.00,17.
Bandaríkjamaðurinn Ron Karn-
augh ákvað að vera með þrátt fyr-
ir andlát föður síns á opnunarhátíð-
inni og varð í sjötta sæti.
„Músin“ með þrjúgull
Litla „músin“ frá Ungveijalandi,
Krisztina Egérszegi, vann
þriðju gullverðlaun sín á leikunum
er hún sigraði í 200 metra bak-
sundi kvenna og varði um leið
ólympíutitilinn frá því Seoul, en þá
var hún aðeins 14 ára.
Egerszegi, sem var einnig ólymp-
íumeistari í 400 metra ijórsundi og
100 metra baksundi, bætti ólympíu-
metið í gær, synti á 2:07.06 mínút-
um. Þetta var fimmti ólympíutitill
Ungveija í sundi á leikunum og
önnur í gær þar sem Tamas Darny
sigraði í 200 metra fjórsundi. „Mús-
in“ eins og hún er oft nefnd var
2.40 sekúndum á undan þýsku
stúlkunni Dagmar Hase og Nicole
Stevenson frá Ástralíu nældi sér í
bronsið.
Egerszegi, sem varð tvöfaldur
heimsmeistari í Perth í fyrra, vann
einnig þessar þrjár greinar - eins
og í Barcelona, á Evrópumótinu í
Aþenu í fyrra en þá setti hún heims-
met í 200 metra baksundi, 2:06.62
mín. og stendur það enn.