Morgunblaðið - 01.08.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 099 BARCELONA '92 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992
C 3
HANDKNATTLEIKUR
Jakob Sigurðsson og Héðinn Gilsson fagna sigrinum yfir Ungveijum.
Morgunblaðið/RAX
Vamarleikur og mark-
varsla í hæsta gæðaflokki
Geysilegur stígandi í leik íslenska handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum
Vörn íslands fór einfaldlega á
kostum í fyrri hálfleiknum og
Ungverjarnir komu hvað eftir annað
að lokuðum dyrum.
Skapti ís-múrinn var reistur
Hallgrímsson og framhjá honum
skrlfarfrá átti greinilega ekki
Barcelona að hleypa neinum
nema fuglinum fljúgandi. Guðmund-
ur Hrafnkelsson komst strax í gang
og varði vel, og munurinn í hálfleik
var fimm mörk, 8:3. Hefði þó getað
verið orðinn enn meiri ef allt hefði
verið með felldu í sókninni. Of mörg
góð færi fóru í súginn. En baráttan
var góð, menn voru að reyna og
lögðu sig vel fram. Og það var
ánægjulegt að sjá hve menn voru
geysilega ákveðnir í að hirða frá-
köstin í vörninni; nokkuð sem oft
áður hefur verið í ólagi og kostað
sitt, en nú var barist um boltann í
hvert einasta skipti og yfirleitt náðu
íslensku strákarnir honum.
Sigur var í augsýn strax í leik-
hléi, en strákarnir héldu sínu striki.
Enn voru mistökin í sóknarleiknum
reyndar of mikil en vörnin var enn
góð, þó svo Ungveijamir næðu að
skora 13 mörk í hálfleiknum. Þeir
skutu líka mun betur þá en fyrir
hlé. Síðustu tíu mínúturnar gripu
Ungveijarnir til þess örþrifaráðs að
leika maður gegn manni í vörninni,
leikurinn leystist upp en íslendingar
réðu vel við stöðuna sem upp kom,
létu ekki slá sig út af laginu og
skoruðu fimm mörk gegn sex á þess-
um kafla.
íslenska liðið lék mjög vel í gær,
liðsheildin var sterk. Guðmundur
mjög góður í markinu, hefur staðið
sig geysilega vel hér í mótinu, og
vörnin gerist varla betri. Jakob og
Valdimar léku nánast allan tímann
í hornunum og tókst mjög vel að
stöðva hina hættulegu hornamenn
Ungveija. Og múrinn á miðjunni
mynduðu Héðinn, Júlíus, Geir Gunn-
ar og Einar — sannarlega ekki
árennilegur kvartett fyrir skyttur
andstæðinganna. Héðinn náði sér
loks vel á strik í sókninni, gerði
mjög falleg mörk, Geir var mjög
góður á línunni svo og Birgir eftir
að hann kom inn á. Sigurður Bjarna-
son lék mjög vel í seinni hálfleik,
og var dýrmætur í lokin þegar Ung-
veijamir léku maður gégn manni í
vöminni. Gunnar Gunnarsson gerði
einnig góða hluti. Júlíus var óhepp-
inn með skot sín og gerði ekki mark,
sem tvö stig komast í höfn.
Nú eru eftir leikir gegn Kóreu og
Svíþjóð í riðlinum. Menn eru bjart-
sýnir, en verða auðvitað að hafa
báður fætur á jörðinni. Liðið hefur
verið mjög vaxandi og spurning hvar
þetta endar allt saman. Miðað við
það sem gerst hefur er alls ekki
óraunhæft að ætla að liðið geti kom-
ist í undanúrslit, en tvö lið komast
ÍSLENDINGAR eru komnir vel á skrið í handknattleikskeppni
Ólympíuleikanna, unnu mjög öruggan sigur á Ungverjum í gær,
22:16, eftir að Ungverjar gerðu aðeins þrjú mörk í fyrri hálfleik.
Varnarleikur íslenska liðsins var hreint frábær, markvarslan einn-
ig og margt gott sást í sóknarleiknum þó það verði að segjast
eins og er að ýmislegt má þar enn betur fara. En sigurinn var
sætur og dýrmætur, og nú hefur stefnan verið tekin á að komast
í undanúrslit. Mennirnir sem komu bakdyramegin inn á leikana
ætla sér greinilega að standa upp úr, a.m.k. úr þeim hópi sem
þegar hefur lokið kepprii.
sem er óvenjulegt, og þó Valdimar
hafi gert sex mörk lét hann veija
fimm sinnum úr dauðafæri. Einnig
óvanalegt. En það er svo sem ágætt
að taka þetta út í svona leikjum, þar
áfram úr hvorum riðli. Og sumir eru
eflaust famir að láta hugann reika
æ oftar til Evrópukeppninnar í
knattspyrnu í Svíþjóð í sumar...
Island - Ungverjaland 22:16
íþróttahöllin í Granollers, A-riðill handknattleikskeppni Ólympíuleikanna,
föstudaginn 31. júlí 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 4:3, 8:3, 12:3, 12:4, 13:4, 13:5, 14:5, 14:7,
15:7, 18:9, 16:9, 16:10, 17:11, 17:12, 20:14, 21:16, 22:16.
Island: Valdimar Grímsson 6/4, Héðinn Gilsson 4, Geir Sveinsson 4, Sigurð-
ur Bjarnason 3, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Birgir Sigurðsson 2, Jakob
Sigurðsson 1. Aðrir í hópnum: Júlíus Jónasson, Gunnar Gunnarsson, Konráð
Olavson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15 (þar af 3 þar sem knötturinn fór
aftur til mótheija). Bergsveinn Bergveinsson kom ekki inná.
Utan vallar: 10 mínútur.
Ungverjaland: Laszlo Marosi (nr. 6) 6, Attila Horvath (nr. 17) 4‘ Attilla
Borsos (nr. 3) 2, Jozsef Eles (nr. 10) 2, Sandor Gyorffy (nr. 5) 1 og Fer-
enc Fuzesi (nr. 14) 1.
Varin skot: Imre Bire 15, Janos Szsatmari 1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Lelong og Tancrez frá Frakklandi.
Áhorfendur: Um 3.000.
Yfir mig
ánægður
- sagði Þorbergur
Aðalsteinsson
landsliðsjDjálfari eftir
stórsigurinn
„ÉG ER yfir mig ánægður,
fyrst og fremst með stigin.
Þá var varnarieikurinn eins
og hann gerist bestur — við
fengum ekki nema þrjú
mörk á okkur í fyrri hálfleik,
og það segir sína sögu. Og
Guðmundur er stvaxandi í
markinu," sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, iandsliðs-
þjálfari, kampakátur eftir
sigurinn á Ungverjum i gær.
Þorbergur sagði gífurlegt
sjálfstraust í hópnum.
„Sumir leika kannski undir getu
ennþá, en ég veit að hópurinn á
miklu meira inni. En við verðum
að vara okkur á Kóreu, liðið er
geysisterkt, passar okkur afar
illa,“ sagði hann um leikinn á
morgun. Við erum nú mjög lík-
lega búnir að tryggja okkur að
leika um 5-6. sæti en við sættum
okkur ekki við það, við erum það
nálægt því að komast alla leið.“
Það var mikill munur á liðun-
um í dag. Kom það þér á óvart
eða varstu búinn að búa þína
menn svona vel undir að taka á
móti Ungveijunum?
„Ég átti von á alveg gífurlega
jöfnum leik, en held að við höfum
unnið mikla og góða heimavinnu
sem er að skila sér. Við höfum
iegið yfír þeim og farið vandlega
gegnum þetta allt.“ Þorbergur
hafði óttast homamenn Ungverja
sérstaklega, en sagðist hafa und-
irbúið lið sitt vel til að taka á
móti þeim, og það gekk upp.
Þeir gerðu harla lítið í leiknum.
Þorbergur sagði lið sitt taka
einn leik fyrir í einu og hugsa
um að hafa gaman af því sem
verið væri að gera. „Við lékum
illa gegn Brasilíu, aðeins betur á
móti Tékkum og mjög vel í þriðja
leik, en samt sem áður em nokkr-
ir leikmenn sem leika ekki enn
af fullri getu,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn og bætti við að hann
ætti von á að enn meira kæmi
út úr liðinu 5 framhaldinu.
Islendingar
léku vel
- sagði Attila Joosz
þjálfari Ungverja
^Jjálfari Ungverja, Attila Joosz,
hældi íslenska landsliðinu í hást-
ert á blaðamannafundi eftir leikinn í
gær. Sagði leikmennina greinilega
mjög ákveðna en sína menn aftur á
móti ekki jafn hungraða í góðan
árangur.
Joosz óskaði íslendingum til ham-
ingju með frammistöðuna. „Þeir léku
sérstaklega vel. Við þekktum íslend-
ingana áður en við komum, höfðum
til dæmis tapað fyrir þeim í sumar
og þegar við komumst að því að ís-
lendingar yrðu með hér í stað Júgó-
slava urðum við langt frá því ánægð-
ir. Við vissum að við mjög erfiðan
andstæðing yrði að etja. Ég get að-
eins sagt að skortur á einbeitingu og
áhugaleysi hjá okkur en frábær ein-
beiting og mikill áhugi íslensku leik-
mannanna er það sem réð úrslitum í
dag.“
Þeirri spurningu Morgunblaðsins
hvers vegna menn hans hefðu jafn
lítinn áhuga og Joosz vildi vera láta,
sagðist hann varla geta svarað. „En
aðalvandamálið er að margir leik-
manna minna leika með erlendum lið-
um og þegar þeir koma heima virðast
þeir satt að segja ekki hafa mjög
mikinn áhuga á að beijast fyrir ung-
verska liðið.“