Morgunblaðið - 01.08.1992, Síða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ 099 BARCELONA ’92 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992
FOLX
■ MIKILL áhugi á handknattleik
var meðal þeirra rúmlega 70 áhorf-
enda sem fylgdu Sigurjóni og Úlf-
ari þegar þeir lögðu af stað í síð-
asta hringinn. Sífellt var verið að
spyija hvernig staðan væri og var
farsími blaðamanns notaður óspart
til að kanna stöðuna.
■ Á MEÐAN Úlfar beið eftir að
pútta á 5. braut gekk hann til kylfu-
sveins síns og unnustu, Kolbrúnar
Guðmundsdóttur, og bað um ban-
ana. Ekki tókst betur til en svo að
rennilásinn á „matarhólfinu“ rifn-
aði þegar bananinn var sóttur, enda
golfpoki Úlfars úttroðinn af alls-
konar golfdóti og mat.
■ TVEIR ungir piltar gengu um
meðal áhorfenda með stór skilti þar
sem á var letrað „ÞÖGN“ og fóru
áhorfendur í einu og öllu eftir til-
mælum þeirra. Allir þögðu nema
mávarnir, sem sveimuðu yfir golf-
vellinum sí gargandi.
■ STRAX á fyrstu braut kom til
kasta dómara mótsins, Þorsteins
Svörfuðar Stefánssonar, sem er
annar tveggja íslenskra alþjóð-
legra dómara. Bolti Úlfars lá í
glompu og Kolbrún, kylfusveinn
hans og unnusta, rakaði ójöfnu
með hrífu áður en Úlfar sló. Úlfar
lét dómarann vita og eftir að hann
hafði flett upp reglubókum úr-
skurðaði hann að ekki skyldi dæma
víti. __
■ ÚLFAR leikur með Maxfli sett
og bolta sömu tegundar. Árni
Arnason sem flytur vaminginn inn
sagði að margir hefðu bent sér
góðlátlega á að það væfu fleiri sem
notuðu Titleistbolta. „Það eru
gæðin en ekki magnið sem ræður,“
svaraði Árni slíkum ábendingum.
■ HELGI Eiríksson, úr GR sigr-
aði í 1. flokki karla. Hann lék í
síðasta riðli síðasta daginn og hann
var einnig í síðasta riðli í fyrra, en
þá í meistaraflokki.
■ SIGURÐUR Hafsteinsson úr
GR var bennt á að líma yfir
merki frá Teppabúðinni sem var
á pokanum hans. Sigurður, sem
er mikill spaugari, gerði það af
samviskusemi. Hann náði sér í
teppabút og límdi hann yfir merk-
ið!
■ RAGNAR Ólafsson, úr GR er
svili Úlfars Jónssonar. Eitt sinn
er Ragnar heimsótti hann til
Bandaríkjanna sagðist hann hafa
bent Úlfari á að hann yrði að fá
sér linsur í stað gleraugna ef hann
ætlaði að geta eitthvað í golfi. Úlf-
ar gerði það og „nú sér hann
hvað hann er að gera,“ sagði
Ragnar.
■ ÁHORFENDUR sem fylgdust
með meisturunum á síðasta hring
voru fjölmargir. Þegar kapparnir
fóru út voru áhorfendur rúmlega
70 en frá 10. braut og til þeirrar
16. voru þeir tæplega 400 og um
1000 manns fylgdust með síðustu
tvær holumar.
■ KAREN Sævarsdóttir náði
eina fugli sínum í gær á 8. holu
sem er par fjórir. Það blés þó ekki
byrlega fyrir henni. Eftir upphafs-
höggið lenti boltinn á milli tveggja
steina en hún náði að bjarga sér.
„Eg hugsaði með mér, hvaða kylfu
má ég helst við að missa úr pokan-
um því ég bjóst alveg eins við að
eyðileggja kylfuna. Eg tók níuna
og lét vaða og boltinn fór tveimur
metrum frá holu,“ sagði Karen.
■ Á 2. holu í gær lenti Ólöf
María Jónsdóttir, úr GK í sand-
glompu. Eftir eina árangurslausa
tilraun til að slá upp úr henni reyndi
hún aftur og nú tókst henni betur
upp. Boltinn fór beint ofan í holuna.
■ MEÐ sigri sínum jafnaði Kar-
en met Jakobínu Guðlaugsdóttur
úr Eyjum. Þess má geta að Karen
sló móður sinni, Guðfinnu Sig-
þórsdóttur, við, en hún varð þrisv-
ar íslandsmeistari.
GOLF / LANDSMOTIÐ
Með Ulfari og Sigur-
jóni á síðasta hring
ÞEGAR Úlfar og Sigurjón hófu leik á síðasta degi Landsmóts-
ins hafði Úlfar leikið á 212 höggum og var einu höggi undir
pari vallarins. Sigurjón var á 214 höggum, eða á einu höggi
yfir pari. Hér á eftlr verður lýst síðasta hring kappanna og
sagt hvernig staðan er eftir hverja holu.
1. braut: 310 m 11 8. braut: 362 m
Upphafshögg Siguijóns lenti í
brautarkanti, hoppaði illa en bolt-
inn rétt slapp við að fara í glompu.
Úlfar sendi hins vegar sinn boita
beint í glompu. Annað högg Úlf-
ars fór úr glompunni yfír aðra og
á kaf í þá þriðju. Þriðja höggið
var síðan yfír flötina, innáspilið
mjög gott og eitt pútt. Annað
högg Siguijóns var inn á flöt og
tvípútt.
Úlfar: 5, skolli (0)
Siguijón: 4, par (+1)
2. braut: 151 m
Sigurjón var of stuttur, rétt
utan við flöt, tók pútterinn og
setti 15 metra pútt glæsilega nið-
ur. Úlfar var hins vegar á flöt-
inni, aðeins hægra megin á móts
við holu, en þurfti tvö pútt.
Úlfar: 3, par (0)
Siguijón: 2, fugl (0)
3. braut: 408 m
Báðir á braut í upphafshöggi,
og Úlfar inn á í öðru höggi, en
Siguijón aðeins of stuttur, var í
flatarkantinum. Þá átti hann mis-
heppnað inná skot.,_ sló of fast og
þurfti að tvípútta. Úlfar lagði hins
vegar átján metra pútt við holu
qg síðan niður.
Ulfar: 4, par (0)
Sigurjón: 5, skolli (+1)
4. braut: 439 m
Úlfar á braut, en Siguijón of
langt hægra megin, og átti erfítt
annað högg, sem tókst þó vel, svo
til inn á flöt. Þokkalegt innáskot
og tvö pútt. Úlfar átti glæsilegt
annað högg, sem rétt náði inn á
flöt. 25 metra pútt hans var frá-
bært og hann þurfti aðeins að
velta boltanum ofan i.
Úlfar 4, fugl (-1)
Siguijón: 5, par (+1)
5. braut: 333 m
Góð upphafshögg, Úlfar lék inn
á í öðru en Siguijón yfír flötina.
Hann tók pútterinn og lagði alveg
við. Úlfar átti tíu metra pútt upp
í móti, og boltinn stoppaði tíu
sentimetrum frá holu.
Úlfar: 4, par (-1)
Siguijón: 4, par (+1)
6. braut: 173 m
Báðir voru þeir inná flöt, Úlfar
þó heldur nær, eða aðeins 3 metra,
og setti púttið örugglega niður.
Siguijón þurfti hins vegar að tvíp-
úta.
Úlfar: 2, fugl (-2)
Siguijón: 3, par (+1)
7. braut: 324 m
Úlfar á braut og stórglæsilegt
annað högg tvo metra frá holu,
og eitt pútt. Siguijón var hins
vegar rétt utan brautar hægra
megin og í öðru höggi inná flöt,
en þurfti tvö pútt.
Úlfar: 3, fugl (-3)
Siguijón: 4, par (+1)
Báðir á góðum stað á miðri
braut eftir upphafshögg en annað
höggið of stutt þjá báðum þó svo
að þeir næðu inná flöt. Löng pútt
þeirra misfórust og því fóru báðir
á pari.
Úlfar: 4, par (-3)
Siguijón: 4, par (+1)
9. braut: 339 m
Boltar Úlfars og Sigutjóns lágu
meter frá hvor öðrum rétt utan
brautar hægra megin, Siguijón á
milli tveggja glompa en Úlfar í
annarri þeirra. Innáskotin hjá
báðum voru frábær aldei þessu
vant, sýnu betra hjá Siguijóni og
báðir tvípúttuðu. Fyrra pútt Sig-
uijóns var ekki nema um 5 metr-
ar en boltinn snar breytti um
stefnu þegar hann lenti í skemmd
á flötinni.
Úlfar: 4, par (-3)
Siguijón: 4, par (+1)
10. braut: 359 m
Úlfar hóf síðari hringinn með
Qögur högg á Siguijón. Báðir
voru þeir á braut eftir upphafs-
högg, og þykir það nú varla frétt-
næmt. Innáskotin voru góð en
bolti Siguijóns, sem lenti alveg
við pinna, hoppaði asnalega, frá
holu og þurftu báðir að tvípútta.
Úlfar: 4, par (-3)
Siguijón: 4, par (+1)
11. braut: 167 m
Hvorugur hitti flötina, Úlfar
var hægra megin við hana en Sig-
uijón í glompu fyrir framan hana.
Bolti hans lá mjög illa þannig að
hann rétt náði honum upp úr
glompunni, síðan inná og eitt pútt.
Ulfar vippaði fallega inná og ein-
púttaði.
Úlfar: 3, par (-3)
Siguijón: 4, skolli (+2)
12. braut: 485 m
Siguijón átti.eitt af sínum risa
upphafshöggum. Boltinn fór í
flugi um 290 metra, yfir holtið
og lenti á braut við 150 metra
hælinn. Annað högg hans var rétt
vinstra megin við flötina en inná-
spil hans var hræðilegt - yfír flöt-
ina og rúllaði niður bakkann. Það-
an sló hann inná og tvípúttaði.
Úlfar var á braut í upphafshögg-
inu en heldur stuttur í öðru högg-
inu. Það kom þó ekki að sök því
innáspilið var gott og öruggt pútt
niður og átti hann nú sjö högg á
Siguijón.
Úlfar: 4, fugl (-4)
Siguijón: 6, skolli (+3)
13. braut: 334 m
Úlfar á góðum stað á braut en
Siguijón útaf vinstra megin í háu
grasi. Hann náði þó góðu öðru
höggi, boltinn lenti efst í brekk-
unni en rúllaði til baka alveg nið-
ur á jafnsléttu. í þriðja höggi inná
en hann var enn og aftur of stutt-
ur í púttinu og fékk skolla. Úlfar
lék listavel inná flötina en rétt
missti púttið.
Úlfar: 4, par (-4)
Siguijón: 5, skolli (+4)
14. braut: 380 m
Aldrei þessu vant var Úlfar
ekki á brautinni eftir upphafs-
högg, heldur í brautarglompu. En
það kom ekki að sök því snilling-
urinn var kominn í stuð og sló
snilldarlega inná flöt, en rétti
missti púttið. Siguijón var hins-
vegar lengra til hægri, boitinn lá
ofaní stórri holu með gijót allt
um kring og einhverntímann hefði
þetta verið merkt sem grund. Það
var ekki þannig að Siguijón varð
að slá, náði ágætis höggi en þó
heldur stuttu.
Úlfar: 4, par (-4)
Siguijón: 5, skolli (+5)
15. braut: 528 m
Ulfar á braut, Siguijón útí
drasli og lá mjög illa. Annað högg
Siguijóns skondraði aðeins 50
metra, það þriðja inn á braut en
flórða alveg upp við holu. Mjög
gott par. Annað högg Úifars var
nákvæmlega eins og það á að
vera - og það þriðja inn á flöt.
Úlfar: 5, par (-4)
Siguijón: 5, par (+5)
16. braut: 349 m
Þar kom að því að þeir voru
báðir loksins á braut. Annað högg
Úlfars var of stutt og í þriðja
höggi varð hann að fara yfír
glompu. Það gerði hann svo sann-
arlega og vippaði ofaní. Annað
högg Sigúijóns rétt náði inn á
flöt en sem fyrr missti hann pútt-
ið en gaf kúlunni þó möguleika
að þessu sinni því hann var heldur
of langur, en var búinn að vera
of stuttur fram að því.
Úlfar: 3, fugl (-5)
Siguijón: 4, par (+5)
17. braut: 173 m
Siguijón inná flöt, gott pútt en
dróg ekki alveg. Úlfar var aldrei
þessu vant í vandræðum. Boltinn
fór hægra megin við flötina, lá
þó þokkalega en yfir glompu að
fara. Það vafðist fyrir meistaran-
um, upp fór boltinn lenti í hol-
unni, fór þar einn hring og uppúr
aftur. Óheppinn!
Úlfar: 3, par (-5)
Siguijón: 3, par (+5)
18. braut: 349 m
Úlfar var í glompu hægra meg-
in, 160 metra frá holu. Hann sló
glæsilga uppúr henni en yfír flöt-
ina. Siguijón náði einu af sínum
löngu upphafshöggum, sló glæs-
ilga inná, boltinn lenti við holu
en skrúfaðist til baka eina 8
metra. Úlfar vippaði inná, boltinn
rúliaði og rúllaði og stoppaði 7
metra frá holu. Hann varð því að
pútta fyrir nýju vallarmeti, gerði
það glæsilega en boltinn stoppaði
á sfðasta stráinu. Þannig að hann
varð að sætta sig við að jafna
vallarmet sitt frá þriðja degi.
Úlfar: 5, skolli (-4)
Sigurjón: 4, par (+5)
LOKASKOR:
Úlfar Jónsson, GK........68
Siguijón Arnarsson, GR...75
Úlfar Jónsson slær hér upp úr brautarglor
Lék fjóra hringi í Grafarl
ÚLFAR Jónsson úr Golfklúbbnum
Keili í Haf narfirði varð í gær ís-
landsmeistari í golfi í sjötta sinn.
Úlfar er vel að titlinum kominn,
hann lék hreint frábært golf og var
unun að fylgjast með honum. Þriðja
dag mótsins setti hann nýtt vallar-
met og í gær jafnaði hann met
fimmtudagsins, og var ef til vill
óheppinn að ná ekki að bæta það.
En það voru fleiri met sem féllu.
sem er fjórum höggum undir pari vallar-
ins, sem þykir ekki sá
Skúli Unnar léttasti hér á landi. Úlfar
Sveinsson jafnaði annað met sem
skrifar Björgvin Þorsteinsson
átti einn, báðir hafa sex
sinnum orðið íslandsmeistarar, en Björg-
vin er sá eini sem sigrað hefur fimm
sinnum í röð, a.m.k. um sinn.
Það var unun að fylgjast með Úlfari
í gær. Þrátt fyrir að Siguijón Arnars-
son, sem var tveimur höggum á eftir
honum þegar þeir hófu leik, næði að
jafna við hann á tveimur fyrstu holunum,
hélt hann stillingu sinni. Hann lék sitt
golf, upphafshöggin voru örugg, högg
með járnkylfunum glæsileg, innáleikur-
inn hreint ótrúlega nákvæmur og púttin
hjá honum voru einstök. Þetta má orða
á styttri hátt: Stórkostlegt golf!
Gleggsta dæmið um hvernig Úlfar lék
er að hann fór 14 brautir á „regulation"
sem þýðir að hann er inni á flöt á tilsett-
um höggafjölda. Sex sinnum á hringnum
notaði hann aðeins eitt pútt og einu sinni
þurfti hann ekki einu sinni að taka upp
pútterinn, hann vippaði glæsilega í holu
á 16. braut.