Morgunblaðið - 01.08.1992, Síða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELOMA ’92 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1992
ÓLYMPÍULEIKAR NÚTÍMANS
Al Oerter sigraði
ijögur skipti í röð
í kringlukasti
ÓLYMPÍULEIKAR nútímans hafa verið haldnir á fjögurra ára fresti
síðan 1896, með lengri hléum þó vegna heimstyrjaldanna tveggja.
Munurinn á fyrstu leikunum sem haldnir voru í Aþenu 1896, þar
sem hugmyndir barónsins franska Pierre de Coubertin um að
endurvekja hina fornu Ólympíuleika fengu hógværan hljóm-
grunn, og 25. leikunum í Barcelona nú, stærstu íþróttahátíð
samtimans, gæti vart verið meiri. Hér á eftir fylgir stutt yfirlit
yfir þá leika sem haldnir hafa verið og helstu viðburði.
Al Oerter vann fjögur gull í kringlukasti.
AÞENA 1896
Fyrstu Ólympíuleikar nútímans.
Franski baróninn Pierre de Cou-
bertin fékk þá hugmynd að endur-
vekja hina fornu Ólympíuleika,
kynnti þá hugmynd víða og stofn-
aði Alþjóða Olympíunefndina, sem
enn þann dag í dag er aðal fram-
kvæmdaaðili Ólympíuleikanna.
Leikamir voru settir 6. apríl af
gríska konunginum, en einungis 13
þjóðir tóku þátt végna þess hve boð
um þátttöku bárust seint.
PARÍS 1900
Aðrir Ólympíuleikar nútímans vom
haldnir í heimaborg de Coubertins,
en vora misheppnaðir að flestra
mati. Grikkir vildi halda leikana
sem og alla aðra Ólympíuleika eftir
1896, en til þess að miðla málum
var leikunum bætt við sem atriði á
heimssýningunni sem haldin var í
París þetta ár.
ST.LOUIS 1904
Þriðju leikarnir vora mun mis-
heppnaðari en Ólympíuleikamir í
París fjóram árum áður. Einungis
76 af 617 íþróttamönnum komu frá
löndum utan Norður Ameríku, og
eðlilega unnu Bandaríkjamenn til
flestra verðlauna á leikunum.
LONDON 1908
Leikamir í London 1908 gerðu
Ólympíuleikana að þeim stórvið-
burði í íþróttaheiminum sem þeir
eru í dag. Yfír 2000 íþróttamenn
frá 22 þjóðum tóku þátt.
STOKKHÓLMUR
Bandaríkjamaðurinn Jim Thorpe
var stjama leikanna. Hann sigraði
eftirminnilega í fímmtar- og tug-
þraut, en var seinna sviptur ðlymp-
íutitlunum vegna þess að hann hafði
leikið sem atvinnumaður með
hafnaboltaliði. Verðlaunapeningum
hans var skilað til eftirlifandi bama
hans fyrir leikana í Los Angeles
1984.
ANTWERPEN 1920
Leikunum 1916 sem átti að halda
í Berlín var aflýst vegna heimstyij-
aldarinnar fyrri, en um leið og það
var gert var ákveðið að halda leik-
ana 1920 í Antwerpen í Belgíu.
Þjóðimar sem lutu í lægra haldi í
fyrri heimsstyrjöldinni sátu heima,
en þeim var ekki boðið til leikanna.
PARÍS 1924
Pierre de Coubertin fór fram á það
að áttundu Ólympíuleikarnir yrðu
haldnir í París og var farið að ósk-
um hans. Hann vildi bæta upp fyr-
ir Parísarleikana aldamótaárið og
tókst það. Mörg heimsmet féllu og
sextíu árum síðar var gerð kvik-
mynd um sögulega frammistöðu
tveggja Breta á leikunum, myndin
„Chariots og Fire“. Kvikmynda-
stjaman Johnny Weissmuller vann
til þriggja gullverðlauna í sundi.
Finninn Paavo Nurmi vann til fjög-
urra gullverðlauna og setti heims-
met í 10.000 metra hlaupi.
AMSTERDAM 1928
Konur tóku fyrst þátt í frjálsum
íþróttum á Ólympíuleikunum í
Amsterdam. Álls tóku um 3000
íþróttamenn frá 46 löndum þátt í
leikunum, þar af 290 konur. Þjóð-
imar sem höfðu verið útilokaðar
árið 1920 tóku nú aftur þátt, en
Sovétmenn héldu sína eigin leika
og sendu því ekki íþróttafólk til
Amsterdam.
LOS ANGELES 1932
Sérstakt Ólympíuþorp var byggt í
fyrsta skipti og hefur sá siður hald-
ist nær óslitið síðan. Flestum til
undranar varð mikill fjárhagslegur
ávinningur af leikunum, en þeir
vora haldnir meðan heimskreppan
mikla stóð sem hæst. íþróttakonan
Mildred Didrikson setti heimsmet í
þremur greinum og varð fyrst
kvenna til að komast á stall með
Ólympíustjömum.
BERLÍN 1936
Það var Bandaríkjamaðurinn Jesse
Owens sem stal senunni í Berlín
þar sem hann vann til fjögurra
gullverðlauna. Þýski kanslarinnn
Adolf Hitler setti svip sinn á leik-
ana, en hann kom sér undan því
að óska Owens og öðram þeldökk-
um sigurveguram til hamingju. í
fyrsta skipti var Ólympíueldurinn
tendraður í Ólympíu í Grikklandi
með hjálp sólargeisla og fluttur með
kyndli til Berlínar, og hefur sá sið-
ur haldist allar götur síðan.
LONDON 1948
Seinni heimsstyijöldin gerði það að
verkum að Ólympíuleikar voru ekki
haldnir í tólf ár. Árið 1940 áttu
þeir að vera í Tokyo en vegna styij-
aldar Japans og Kína voru þeir
fluttir til Helsinki. í september 1939
hemámu Sovétmenn Finnland og
undirbúningi fyrir leikana var því
hætt enda heimstyijöldin hafin.
Næstu leikar áttu að vera í London
1944, en Alþjóða Ólympíunefndin
taldi ekki rétt að halda þá það ár,
og árið 1946 var ákveðið að halda
næstu leika í London. Hollenska
konan Fanny Blankers-Koen vann
til fjögurra gullverðlauna í fijálsum,
met sem aðrar fijálsíþróttakonur
hafa ekki enn slegið.
HELSINKI 1952
Sovétmenn tóku aftur þátt eftir 40
ára hlé og kræktu í 17 gullverð-
laun. Hjónin Emil og Dana Zatopek
unnu samtals til fjögurra gullverð-
launa í fijálsum. Alls tóku um 5000
íþróttamenn frá 69 löndum þátt í
leikunum.
MELBOURN 1956
Þijár þjóðir hættu við þátttöku í
mótmælaskyni vegna stríðsins við
Súez-skurð. Aðrar þijár mættu ekki
til leiks til að mótmæla innrás
Sovétmanna í Ungveijaland. Ung-
veijar hefndu innrásarinn með því
að sigra Sovétmenn í sundknattleik
á leikunum. Larisa Latýnína frá
Sovétríkjunum vann fjögur gull-
verðlaun í fímleikum.
RÓM 1960
Rúmlega 5000 íþróttamenn tóku
þátt frá 83 löndum. Þetta voru síð-
ustu leikar S-Afríku þar til nú, en
aðskilnaðarstefna stjórnvalda hélt
íþróttamönnum þaðan frá leikunum
í yfír 30 ár. Abebe Bikila varð fyrst-
ur þeldökkra Afríkubúa til að vinna
til gullverðlauna, þegar hann hljóp
maraþonhlaupið berfættur og sigr-
aði. Cassius Clay, síðar Muhammad
Ali, sigraði í léttþungavigt í hnefa-
leikum.
TÓKÝO 1964
Fyrstu leikarnir sem haldnir voru í
Asiu. Yoshinori Sakai, sem fæddist
í Hírósíma daginn sem kjarnorku-
sprengjan sprakk, bar Ólympíueld-
inn síðasta spölinn inn á Ólympíu-
leikvanginn. Dawn Fraser vann
þriðju gullverðlaun sín í röð í 100
m skriðsundi.
MEXÍKÓ 1968
Leikarnir vora haldnir í skugga
dauða 260 stúdenta, sem létust í
óeirðum í Mexíkó, einungis 10 dög-
um fyrir leikana. Bandaríkjamaður-
inn Á1 Oerter vann líklega mesta
afrek sem unnið hefur verið á
Ólympíuleikum til þessa, þegar
hann sigraði í fjórða skiptið í röð í
kringlukasti. Bob Beamon setti
heimsmet í langstökki, sem menn
töldu lengi vel að erfitt yrði að slá.
MÚNCHEN 1972
Ellefu íþróttamenn frá ígrael vora
myrtir af palestínskum hryðju-
verkamönnum, og skyggði það nær
algjörlega á aðra viðburði á leikun-
um. Alls tóku 7000 íþróttamenn
þátt í leikunum frá 122 löndum.
Sovéska stúlkan Olga Korbut vann
þrenn gullverðlaun í í fímleikum og
Bandaríkjamaðurinn Mark Spitz
vann sjö gullverðlaun í sundi.
MONTREAL 1976
Tuttugu og þijár Afríkuþjóðir
mættu ekki til leiks þar sem Al-
þjóða Ólympíunefndin neitaði að
vísa Nýja-Sjálandi úr keppni vegna
þess að þeir sendu ruðnings-lið til
Suður Afríku. Fjórtán ára rúmensk
stúlka, Nadia Comaneci, vann fern
gullverðlaun.
MOSKVA 1980
Til að mótmæla íhlutun Sovét-
manna í málefni í Afganisthan
hættu 61 þjóð auk Bandaríkjanna
við þátttöku á leikunum. Austur-
Evrópu þjóðir áttu því ekki í miklum
erfíðleikum með að hirða flest verð-
launin á leikunum. Aleksandr Dity-
atin varð fyrstur til að vinna til
átta gullverðlauna á einum leikum,
en hann keppti í fimleikum.
LOS ANGELES 1984
Sovétmenn svöruðu fyrir sig fjórum
árum síðar og sátu heima ásamt
14 öðram þjóðum. Carl Lewis
krækti í fjögur gullverðlaun, á leik-
um þar sem tæplega 7000 íþrótta-
menn frá 140 þjóðum tóku þátt.
SEOUL 1988
Fjórar þjóðir sátu heima en það var
kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson sem stal senunni. Eftir
ótrúlegt 100 m hlaup þar sem hann
kom fyrstur í mark var hann svipt-
ur heimsmetinu sem hann setti sem
og gullverðlaununum, vegna lyfja-
misnotkunar. Rúmlega 9000
íþróttamenn frá 160 þjóðum tóku
þátt.
Signrsælustu
keppendurnir
Eftirtaldir íþróttamenn hafa unnið til flestra verðlauna á
Ólympíuleikunum en þá eru verðlaun unnin í Barcelona ekki
meðtalin. Á listanum eru a.m.k. tveir íþróttamenn, Bandaríkja-
mennimir Matt Biondi og Carl Lewis, sem eiga möguleika á að
bæta stöðu sína með því að vinna til verðlauna í Barcelona:
1) Laríssa Latínína, Sovétr. 1956-1964 fímleikar G-S-B 9-5-4
2) Paavo Nurmi, Finnlandi 1920-1928 fijálsíþróttir 9-3-0
3) Mark Spitz, Bandar. 1968-1972 sund 9-1-1
4) Sawao Kato, Japan 1968-1976 fimleikar 8-3-1
5) Ray C. Ewry, Bandar. 1900-1908 frjálsíþróttir 8-0-0
6) Níkolaj Andríanov, Sovétr. 1972-1980 fimleikar 7-5-3
7) Borís Sjachlín, Sovétr. 1956-1964 fímleikar 7-4-2
8) Vera Caslavska, Tékk. 1960-1968 fímleikar 7-4-0
9) Víktor Tjúkarín, Sovétr. 1952-1956 fimleikar 7-3-1
10) Aladar Gerevich, Ungv. 1932-1960 skylmingar 7-1-2
11) Edoardo Mangiarotti, ít. 1936-1960 skylmingar 6-5-2
12) Hubert van Innis, Belgíu 1900-1920 bogfími 6-3-0
13) Akinori Nakayama, Japan 1968-1972 fímleikar 6-2-2
14) Gert Fredriksson, Svíþjóð 1948-1960 róður 6-1-1
15) Matt Biondi, Bandar. 1984-1988 sund 6-1-1
16) Carl Lewis, Bandar. 1984-1988 fijálsíþróttir 6-1-0
17) Rainer Klimke, Þýskal. 1964-1988 hestaíþr. 6-0-2
18) Pal Kovacs, Ungv. 1936-1960 skylmingar 6-0-1
19) Nedo Nadi, Ítalíu 1912-1920 skylmingar 6-0-0
20) Rudolf Karpati, Ung. 1948-1960 skylmingar 6-0-0
21) Kristin Otto, A-Þýskl. 1988 sund 6-0-0