Morgunblaðið - 01.08.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELONA '92
LAUGARDAGUR 1. ÁGUST 1992
C 9
ísland í
70.-73. sæti
- á verðlaunatöfiunni.
Bandaríkin með flest
verðlaun
Bandaríkjamenn höfðu unnið til
flestra verðlauna á Ólympíuleikj-
um, þ.e.a.s sumarleikjunum, þegar
keppni hófst á leikunum í Barcel-
ona. Alls höfðu þeir unnið 731 gull-
verðlaun, 575 silfurverðlaun og 480
brons.
Þar næst koma Sovétríkin með
395 gull, 319 silfur og 286 brons.
Þau heyra nú sögunni til því að
þessu sinni keppa íþróttamenn frá
12 fyrrum sovétlýðveldum af 15
undir merkjum Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar en í framtíðinni sem
sjálfstæðar keppnisþjóðir.
Þjóðveijar hafa unnið 308 gull-
verðlaun, 335 silfurverðlaun og 337
brons á leikjunum að meðtöldum
160 gull-, 153 silfur- og 141 brons-
verðlaunum sem keppendur unnu í
nafni Austur-Þýskalands.
í fjórða sæti eru Bretar með 164
gull, 212 silfur og 205 brons. í
fimmta sæti ítalir með 141 gull,
115 silfur og 121 brons. Í sjötta
sæti Frakkar með 138 gull, 161
silfur og 158 brons. Svíar eru
fremstir Norðurlandaþjóða með 132
gull, 138 silfur og 161 brons. í átt-
unda sæti eru Ungveijar með 122
gullverðlaun, 106 silfur og 134
brons. Þá koma Finnar í níunda
sæti með 97 gullverðlaun, 76 silfur-
peninga og 109 brons. í 10. sæti
eru svo Japanir með 87 gull, 75
silfur og 82 brons.
ísland er með sín tvenn verðlaun
í 70.-73. sæti yfir þær 93 þjóðir sem
unnið hafá til verðlauna á sumar-
leikjunum. Aðeins helmingur aðild-
arríkja Alþjóðaólympíunefndarinn-
ar (IOC) hefur því unnið til verð-
launa en þær eru rétt tæplega 200.
FRJALSIÞROTTIR
Ben Johnson með gullkeðjuna um hálsinn.
Reuter
cnristiiie WdohtGi ur loilc
Þýska hlaupadrottningin Christine Wachtel féil úr keppni í fyrstu
umferð 800 metra hlaupsins í Barcelona í gær, varð aðeins í fjórða
sæti í sínum riðli á 2:01,39 og hefði þurft að hiaupa hálfri sekúndu
hraðar til þess að komast inn á tíma.
Waehtel má muna íífil sinn fegurri en þessi 27 ára hlaupakona hefur verið á verð-
launapalli á helstu stórmótum heims undanfarin ár. Vann silfur á Ólympíuleikjunum
1988 og á HM 1987. Heimsmeistari innanhúss þrisvar í röð, árin 1987, 1989 og
1991, Evrópumeistari innanhúss 1987 og I öðru sæti á EM utanhúss 1990. Setti ungl-
ingaheimsmet i 800 1983 og heimsmet ! 1.000 metrum 1990.
______________________________I______________________
Stóri Benni
grennri og
hægari
ÍÞRÓTTAMAÐUR með keppn-
isnúmer 266 og gullkeðju um
hálsinn rauk af stað úr blokk-
unum í 100 metra hlaupinu í
Barcelona í gær og um heim
allan fylgdust sjónvarpsáhorf-
endur með af áhuga. „Corre
Ben“ (Hlauptu Ben) stóð á borð-
um í stúku Ólympíuleikvangsins
og áhorfendur hrópuðu nafn
hans. Klöppuðu þeir mest þeg-
ar þulur las nafn hans er hann
kynnti keppendur.
Venjulega vekur fyrsta umferð
100 metra hlaupsins ekki svo
mikla athygli því tvær aðrar umferð-
ir þarf áður en fyrir liggur hveijir
keppa til úrslita.
En á þriðju braut í sjötta riðli var
keppandi að nafni Benjamin Sinclair
Johnson, með númer 266 á bijóst-
inu, 30 ára, fæddur í Falmouth á
Jamaíku, búsettur í Toronto í
Kanada. Annað nafn: „Stóri
Benni“ (Big Ben).
Þátttaka í Ólympíuieikum: Þrisv-
ar. Hér mætti bæta við: Hreinn
af steralyfjum.
Undir öflugri smásjá fjölmiðla lýk-
ur hann hlaupi í öðru sæti á 10,55
sekúndum og komst áfram í millir-
iðla sem fara áttu fram í gærkvöldi.
Árangurinn ekki sérstakur en
ekki svo slæmt að vera kominn aftur
Christie von Evrópumanna
Enski hlauparinn Linford Christie
hefur tröllatrú á sjálfum sér
og þykist sigurviss í 100 metra
hlaupinu sem fram fer síðdegis í
dag. Spurningin er hins vegar hvort
32 ára sprettharðasti maður Evrópu
geti orðið bestur í heiminum orðinn
32 ára gamall. Eitt er víst að það
finnst honum sjálfum.
Christie fæddist í St. Andrews á
Jamaíku 1960 og hefur verið kon-
ungur evrópskra spretthlaupara í
mörg ár, varð Evrópumeistari í 100
metrum 1986 og 1990 og setti
Evrópumet 1988 og 1991. Hann
mætir til leiks í Barcelona með sig-
ur í 20 mótum af 21 í sumar undir
belti. Á móti í Gateshead í heima-
landinu skömmu fyrir leikana bar
hann sigurorð af Bandaríkjamann-
inum Leroy Burrell en þeir þykja
líklegastir til að bítast um sigur í
dag.
Hefur Christie náð fimmta besta
tíma ársins, 10,09 sekúndum, en í
Gateshead vann hann fljótasta
mann ársins, Bandaríkjamanninn
Mike Marsh, auk þess að vinna
Burrell.
Christie varð þriðji í Seoul á eft-
Þátltökutilkynn-
ing gleymdist
Franski spretthlauparinn
Bruno Marie-Rose, lykilmað-
ur í heimsmeistaraliði Frakka,
sem setti heimsmet í 4 x 100
metra hlaupi á Evrópumótinu í
Split 1989, fór sneypuför til
Barcelona. Hann hafði unnið sér
rétt til að keppa í 100 metra
hlaupi og mætti sem slíkur á
miðvikudag, en fékk ekki að
taka þátt í gær — fijálsíþrótta-
sambandi Frakklands láðist að
tilkynna um þátttöku hans.
Hlauparinn náði lágmarkinu
fyrir 100 m hlaupið 8. júlí, degi
áður en fresturinn rann út, hljóp
á 10,30 í Lausanne.
Serge Bord, formaður frönsku
ólympíunefndarinnar, viður-
kenndi mistökin, „Ég hringdi í
skipuleggjendur leikanna, en
gleymdi að senda skriflega stað-
festingu á þáttöku Brunos. Ég
hélt að allt væri klappað og
klárt, en annað kom á daginn.“
„Draumurinn varð að engu
vegna óskiljanlegra mistaka,"
sagði Marie-Rose, sem á heims-
metið í 200 metra hlaupi innan-
húss. „Ég trúi ekki að þetta
hafi gerst. Þetta er sem mar-
tröð.“
Bord' sagði að Marie-Rose
gæti þrátt fyrir þetta tekið þátt
í boðhlaupinu, en hlauparinn var
ekki á sama máli. „Það átti að
velja boðhlaupssveitina eftir ár-
angurinn í einstaklingsgreinun-
um o g því á ég enga möguleika.“
ir Ben Johnson og Carl Lewis en
fékk síðan silfurverðlaunin þegar
Johnson var sviptur gulli fyrir lyfj-
asvindl. Lewis keppir ekki nú en
nýlega sagði hann að Linford væri
einn af fjórum mestu spretthlaupur-
um heims frá upphafi. „Haiin hefur
jafnan staðið sig best á stórmótum
og bera keppinautarnir því mikla
virðingu fyrir honum. Hljóp hann á
9,97 í Seoul og 9,92 á HM í fyrra
og með slíkan árangur fyrir áratug
hefði hann verið talinn mesti hlaup-
ari frá upphafi. Það er hins vegar
ólán hans að vera uppi á sama tíma
og menn eins og Leroy Burrell og
ég,“ sagði Lewis.
Og Lewis veðjar á vin sinn og
æfingafélaga í úrslitunum í dag.
Hann telur að Burrell sé upp á 9,90
sekúndur.
KRINGLUKAST
Hringurinn
umlukinn
búri úr stál-
stöngum
og neti
Upphafið
Kastarinn snýr baki
í kaststefnuna og
sveiflar kringlunni
fram og aftur (boga
án þess aö lyfta
tótunum
Kasthringurinn
2,5 metrari þvermál
aö utanverðu en snún'
ingssvæöið 2,13 m
Bolvindan
Heldur kringlunni undir
axlarheeð og snýr
upp á líkamann
i tveimur snúningum um
leiö og hannfærir
sig fram i hringinn
Utkastið
í útkastinu reynir kastarinn
að koma sem mestri hröðun
f áhaldið og hnykkir á með
snöggri.úlnliðssveiflu. Út-
kastshornlð miðað við
jörð 30-35 gráður.
REUTER
ÓLYMPÍUMETIN
KARLAR
Jurgen Schult (A-Pýskalandi)
68,82m (1988)
KONUR
Martina Hellmann (A-Þýskal.)
72,30m (1988)
Barcelona ’92
ÖQO
HEIMSMETIN
KARLAR
Jurgen Schult (A-Þýskalandi)
74,08m (1986)
KONUR
Gabriele Reinsch (A-Þýskal.)
76.80m (1988)
til keppni á Ólympíuleikunum eftir
rúmlega tveggja ára fjarveru frá
keppni á síðustu fjórum árum vegna
mesta lyfjahneykslis í íþróttasög-
unni.
í milliriðlunum í gærkvöldi
tryggði hann sér svo sæti í undanúr-
slitunum sem fram fara í dag; varð
fjórði í fjórða riðli á 10,30 sem reynd-
ist 10. besti tími þeirra 16 sem betj-
ast um átta sæti í úrslitum sem einn-
ig fara fram í dag.
„Ég ætla ekki að lofa neinum
sigri. Ég gleðst einungis yfir því að
keppa hér aftur,“ sagði hann.
„Mér líður vel, andlega og líkam-
lega. Verð bara að eiga góðan dag.
Þetta var ekki svo slæm byijun,"
sagði hann eftir fyrstu umferð.
Síðast þegar Ben Johnson klædd-
ist gaddaskónum á Ólympíuleikum
var það í einvígi aldarinnar við Carl
Lewis í úrslitum 100 metra hlaups-
ins í Seoul fyrir fjórum árum.
Hann þaut áfram á eldingarhraða
og kom fagnandi í mark á 9,79 sek-
úndum. Á eftir kom bandaríski
keppinautur hans tortrygginn á svip.
Stóri Benni var nú orðinn heims-
og Ólympíumeistari, heimsmethafi,
hlauparinn sem skaust út úr rásb-
lokkunum eins og byssukúla.
Síðan bárust fréttir af því sem
flestir keppinautar hans þóttust allir
vita. Fijótasti maður heims var út-
troðinn af hormónalyfjum í þokka-
bót.
Johnson var rekinn heim af leik-
unum með skömm. Gullverðlaunin
voru tekin af honum og afhent Carl
Lewis. Heimsmetin frá því á HM í
Róm 1987 og Ólympíuleikunum í
Seoul voru strikuð út af metaskrám.
Þetta var mesta hneyksli í sögu
Ólympíuleikanna og það beindi kast-
ljósinu betur og kröftugar en nokkur
annar atburður fyrr og síðar að þeirri
plágu sem lyfjanotkun íþróttamanna
er.
Fijálsíþróttirnar hafa ekki verið
samar eftir Seoul. Ekki Johnson
heldur. Nú er hann 79 kíló og aug-
ljóslega vöðvaminni - og greinilega
ekki eins sprettharður.
Vésteinn með
áttunda besta
árangurinn
steinn Hafsteinsson hefur
” náð áttunda besta árangri
kringlukastaranna sem mættir
eru til leiks á Ólympíuleikunum
í Barcelona sé miðað við árangur
í ár.
Undankeppni kringlukastsins
fer fram á mánudag og úrslitun
á miðvikudag. Alls eru þátttak-
endur 31 og hafa 27 þeirra kast-
að yfir 60 metra.
Bestum árangri kastaranna í
ár hefur Bandaríkjamaðurinn
Mike Buncic náð eða 69,36 metr-
um. Þá kemur Þjóðveijinn og
heimsmethafinn Jurgen Schult
með 69,04, Litháinn Romas
Ubartas hefur kastað 68,18 og
Hollendingurinn Erik De Bruin
68,12.
Með fimmta besta árangur
ársins er Þjóðveijinn Lars Ried-
el, 67,90, og næstur honum kem-
ur Bandaríkjamaðurinn Anthony
Washington með 67,88. í sjötta
sæti er Samveldismaðurinn Dím-
ítrí Tsjevtsjenko með 67,30 en
þá kemur Vésteinn með 67,16 í
ár.
7