Morgunblaðið - 09.08.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1992
Aðalheiður Ág. Axels-
dóttír — Kveðjuorð
Fædd 24. október 1931
Dáin 27. júlí 1992
Hinn 4. ágúst var til grafar bor-
in Aðalheiður Ágústa Axelsdóttir,
móðursystir mín.
Aðalheiður Ágústa Axelsdóttir
fæddist á Akureyri 24. október
1931. Hún ólst upp hjá ömmu sinni,
Margréti Sæmundsdóttur, og
frænda sínum, Karli Björnssyni, að
Dvergasteini í Kræklingahlíð.
Hinn 25. desember 1951 giftist
hún Brynleifi Jóhannessyni frá
Akureyri og eignuðust þau fimm
böm sem öll eru á lífi; Jón Axel,
Brynju Ingibjörgu, Jóhannes, Karl
Heiðar og Tobías Rúnar. Einnig ólu
þau upp dótturson sinn Jósep. Auk
þess að ala upp sex börn vann
Aðalheiður Ágústa við ræstingar
og fleira á Keflavíkurflugvelli.
Ég var stödd erlenais er ég frétti
andlát hennar. Fregnin kom ekki á
óvart. Ég gat því ekki verið við
jarðarförina.
Alla, eins og allir kölluðu hana,
var einstök kona, glaðleg, traust
og reyndist mér og ijölskyldu minni
sem besta móðir. Ég minnist þess
frá bemskudögum þegar Alla og
Brynleifur komu norður til Akur-
eyrar með bömin. Þá fannst mér
og bræðrum mínum, Sigurði og
Þórhalli, aldeilis gaman, og við eig-
um margar góðar minningar frá
þeim tíma.
Þegar ég fluttist frá Akureyri til
Keflavíkur átti ég mitt annað heim-
ili hjá þeim Öllu og Brynleifi. Þá
kynntist ég Öllu á nýjan hátt sem
fullorðin manneskja. Varla liðu
margir dagar svo að við hefðum
ekki samband og mun hún eiga sinn
þátt í því að ég ílengdist í Keflavík
í átta ár.
Ávallt vom vinir mínir velkomnir
á heimili hennar og þegar ég kynnt-
ist Jóni, manninum mínum, tók hún
honum sem tengdasyni sínum. Síð-
an þegar okkur fæddist sonur átti
hann góða ömmu þar sem Alla var.
Okkur Jóni, sem umgengumst
hana svo mikið mun fínnast það
tómleg tilfinning að koma til Kefla-
víkur eftir fráfall Öllu, svo og
bræðrum mínum, Sigurði og Þór-
halli og konu hans Margéti sem
dvöldu svo oft á heimili þeirra Öllu
og Brynleifs, en þessa tilfinningu
munum við ein skilja.
Þijú ár eru nú liðin síðan Alla
greindist með sjúkdóm þann sem
nú hefur lagt hana að velli. Allan
tímann stóð hún sterk og óbuguð
í baráttunni.
Með sárum söknuði kveðjum við
Jón, Sigurður, Þórhallur og Margrét
elskulegu frænku okkar. Innilegar
samúðarkveðjur sendum við Bryn-
leifí, Jóni Axel, Brynju, Jóhannesi,
Karli, Tobíasi, Jósep og fjölskyldum
þeirra.
Guðrún Bergþórsdóttir.
Gengin ér mæt k‘tína, Áðalheiður
Ágústa Axelsdóttir, eða Alla eins
og hún var ævinlega kölluð. Eftir
stutta en erfiða sjúkdómslegu varð
hún að lúta í lægra haldi fyrir sjúk-
dómi þeim er hún kenndi sér fyrst
meins fyrir um þremur árum. Bar-
átta hennar gegn þeim skæða sjúk-
dómi, krabbameini, var hörð og
óvægin á báða bóga. Það vakti
aðdáun okkar sem fylgdumst með
að aldrei lagði hún árar bát, heldur
reri hún þótt stundum blési hressi-
lega á móti, gafst ekki upp, það
var ekki í hennar anda. Með sinni
rólegu og hlýju framkomu laðaði
hún að sér fólk enda var hún vina-
mörg. Allir sem kynntust Öllu fundu
trausta og heilsteypta manneskju
sem gott var að eiga að vini. Alla
fæddist á AKureyri og var annað
barn þeirra hjóna Aðalheiðar Ág-
ústu Sigtryggsdóttur húsmóður og
Axels Björnssonar vélstjóra. Fyrir
áttu þau eina dóttur, Jónínu, sem
búsett er á Akureyri. Aðalheiður
Ágústa lést af bamsförum þegar
Alla fæddist. Henni var þá komið
í fóstur hjá föðurömmu sinni, Mar-
gréti Sæmundsdóttur, sem þá var
orðin ekkja en bjó með syni sínum,
Karli Björnssyni á Litlu-Brekku í
Amarneshreppi í Möðruvallasókn.
Eftir nokkurra ára búskap fluttust
þau að bænum Dvergasteini sem
var skammt utan við Akureyri.
Axel gifti sig aftur Jónínu Jónsdótt-
ur og eignuðust þau tvær dætur,
Unni, fædda 1934, búsett í Reykja-
vík, og Jónínu, fædda 1937, en hún
lést fyrir allnokkmm árum. Árið
1948 kynnist Alla eftirlifandi manni
sínum, Brynleifí Jóhannessyni frá
Helli í Blönduhlíð, fæddur 3. ágúst
1930. Þau giftu sig 25. desember
1951 á Akureyri. Hann var þá
starfsmaður Bifreiðaverkstæðis
Akureyrar og bjuggu þau þar fyrstu
árin. Árið 1955 fluttust þau suður
til Keflavíkur og fór Brynleifur þá
að vinna í lögreglunni og síðar hjá
bæjarfógetaembættinu í Keflavík.
Hann rak bifreiðasölu í Keflavík
ásamt yngsta syni sínum, Tóbíasi.
Alla og Binni kunnu vel við sig í
Keflavík og 1963 byggðu þau
myndarlegt hús á Sunnubraut 40.
Fyrir nokkmm ámm keyptu þau
einbýlishús í Baugholti 20, glæsi-
legt hús, og er heimili þeirra í anda
Öllu, hlýlegt og myndarbragur á
öllu. Þar var engum í kot vísað, hún
var höfðingi heim að sækja og engu
til sparað. Binni bauð okkur fjöl-
skyldunni í gríðarmikla grillveislu
nú um verslunarmannahelgina.
Vom þær kræsingar miklar á borð
bornar svo borðin svignuðu undan.
Þetta var notaleg stund og fundum
við að húsmóðirin var ekki langt
undan. Binni hafði á orði að veislan
væri í anda Aðalheiðar sinnar,
svona vildi hún hafa það, öllum
átti að líða vel.
Þeim varð fímm barna auðið og
þau eru: Jón Axel, f. 1951, maki
Guðbjörg Gísladóttir, búsett í Innri-
Njarðvík; Brynja Ingibjörg, f. 1953,
maki Philipp Mallios, þau eru bú-
sett í Bandaríkjunum; Jóhannes
Guðmundur, f. 1956, maki Sigríður
Garðarsdóttir, búsett í Þorlákshöfn;
Kveðjuorð:
t
Móðir okkar,
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR,
Hjalteyri,
Vestmannaeyjum,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að morgni 7. ágúst.
Börnin.
t Jarðarför
RAGNARS KRISTJÁNSSONAR,
Lindargötu 9b,
Siglufirði,
fer fram frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Systkini hins látna.
t
Minningarathöfn um eiginmann, föður, tengdafööur, afa og langafa,
KNÚT MAGNÚSSON
málarameistara,
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. ágúst kl.
13. 30.
Sjöfn Jóhannsdóttir,
Sonja Larsen, Guðmundur Bragi Torfason,
Jóhann Larsen, Hildur Valgeirsdóttir,
Edda Larsen, Guðmundur Ásgeir Sölvason,
Axel Knútsson, Jóhanna Jónsdóttir,
Hilmar Knútsson, Jónfna ívarsdóttir,
Gerða Knútsdóttir, Crister Olsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jón Hjörleifsson
Fæddur 27. júlí 1928
Dáinn 28, júlí 1992
„Eru ekki allir hressir og kátir
heima“, spurði ég Anítu systur mína
þegar hún kom í heimsókn til okkar
hérna í Osló 29. júlí. Auðvitað bjóst
ég við að heyra það sama og venju-
lega að allir væru hressir og byðu
að heilsa, en ekki í þetta skiptið,
því að Jón frændi var dáinn. Ég
vissi að hann var búinn að vera
veikur en bjóst ekki við þessu.
Ég hugsa til baka og riljast þá
upp margar skemmtilegar stundir
sem ég átti með Jóni frænda og
Eddu. Ég var bara 9 ára og nýflutt-
ur í Kópavoginn þar sem Jón og
Edda bjuggu líka þegar Jón hringdi
og bauð mér og Aroni bróður í veiði-
ferð austur í Vík í Mýrdal, hann
kenndi mér allar kúnstir í sambandi
við veiðar sem ég kann enn þann
dag í dag.
Svo þegar ég eignaðist fyrsta
bílinn minn og eitthvað var í ólagi
þar þá var það bara að hringja í
Jón frænda og hann var alltaf tilbú-
inn að kippa öllu í Iag, betri frænda
var ekki hægt að fá.
Elsku Edda, Lilja og fjölskylda,
sendum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Með kærri kveðju.
Ervin og fjölskylda í Noregi.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ EYJÓLFSDÓTTIR,
Efstaleiti 14,
sem lést í Borgarspítalanum 4. ágúst, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl. 10.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Rauða kross
(slands.
Kristján Þorvaldsson,
Björg Kristjánsdóttir, Ásgeir Theodórs,
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Birgir Einarsson,
Helga Kristjánsdóttir, Jeffrey Wieland,
Hans Kristjánsson, Snjólaug E. Bjarnadóttir,
Kristján Kristjánsson, Birgit Mogensen,
Eyjólfur Kristjánsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, bróðir, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNJÓNSSON
frá Klausturseli,
Útgarði 6,
Egilsstöðum,
verður jarðsunginn frá Egilsstaöakirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl.
14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vilja minn-
ast hans, er bent á Sjúkrahúsiö á Egiisstöðum.
Guðrún Aðalsteinsdóttir,
Sigurður Jónsson,
Hrafnkell A. Jónsson,
Aðalsteinn I. Jónsson,
Jón H. Jónssson,
Rósa Jónsdóttir,
Ingibjörg J. Jónsdóttir,
og barnabörn.
Sigurlaug Jónsdóttir,
fna G. Gunnlaugsdóttir,
Sigrfður M. Ingimarsdóttir,
Ólavfa Sigmarsdóttir,
fris D. Randversdóttir,
Bjarni S. Richter,
Dagur Emiisson
Birtíng afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Karl Heiðar, f. 1958, maki Jónína
Skaptadóttir, búsett í Keflavík;
Tóbías Rúnar, f. 1960, maki Mar-
grét Jónsdóttir, búsett í Innri-
Njarðvík. Dótturson sinn, Jósep, ól
hún upp sem sitt eigið barn frá
tveggja ára aldri og var hann ömmu
sinni sérlega handgenginn. Barna-
börnin eru orðin 11, myndarlegur
hópur sem amma var stolt af. Þau
voru henni hugleikin og breiddi hún
arma sína og hlýju yfir þau, lék við
þau og var í orðsins fyllstu merk-
ingu eins og góð amma á að vera.
Fjölskylda hennar var henni allt og
lagði hún sínar fórnfúsu hendur til
að laga allt og bæta sem úrskeiðis
fór og taldi ekkert eftir sér í því
frekar en öðru. Hún gat verið stíf
fyrir ef því var að skipta og gaf
þá sinn hlut ekki auðveldlega eftir.
En hógværð og góðmennska ein-
kenndu hana og lagði hún engum
manni illt til. I vinahópi á góðri
stund brá hún gjarnan á glaðværð
og minningarnar eru margar sem
koma upp í hugann á kveðjustund
eftir 44 ára óslitna vináttu. Kynni
okkar hófust sumarið 1948, þá
unnum við saman sumarlangt í ull-
arverksmiðjunni Gefjun á Akureyri.
Okkur varð strax vel til vina enda
á svipuðum aldri og áhugamálin lík.
Eftir að hún giftist bróður mínum
urðu vinaböndin sterkari svo aldrei
bar skugga á og hefur samgangur
fjölskyldna okkar verið mikill.
Éerðalögin sem við fórum öll saman
um ísland eru mér ógleymanleg,
stórbrotið landslag og áningarstaðir
sem urðu margir í gegnum árin.
Gjarnan var fundinn tjaldstaður við
á eða lækjarsprænu og margt spjall-
að og rætt þegar kyrrð var kominn
á barnahópinn.
Maðurinn minn var Eyfirðingur
eins og Alla svo ekki var óvenjulegt
þó stefnan hafi oft verið tekin norð-
ur á bóginn. Öllu þótti vænt um
Eyjafjörð og átthagarnir áttu vissan
stað í hjarta hennar.
Það er hveijum manni mikilvægt
að eiga góðan vin. Alla var vinur
vina sinna og kom til dyranna eins
og hún var klædd. Það var gott að
leita ráða hjá henni, hún sagði
umbúðalaust hvort henni fyndist
þetta eða hitt rétt eða rangt án
þess að særa eða móðga því hún
hafði sérstakt lag á að umgangast
fólk með einstaklega blíðri fram-
komu. Ég fór ætíð betri manneskja
af hennar fundi. Á kveðjustund
vefst mér tunga um tönn, hjartað
er hrært og söknuðurinn mikill.
Mestur er þó söknuður eiginmanns,
barna og barnabama sem sjá á eft-
ir elskulegum vin sem var svo stór
hluti af lífi þeirra.
Starfsfólki Sjúkrahúss Keflavík-
ur vil ég færa innilegar þakkir frá
fjölskyldu rninni fyrir frábæra
umönnun og nærgætni við Öllu
mína á erfiðum stundum.
Megi elskuleg mágkona mín fara
í friði. Friður Guðs blessi hana og
hafí hún þökk fyrir allt og allt.
Heiðbjört Jóhannesdóttir.
f$t#£pS«N
ÞlaMfr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGI