Morgunblaðið - 18.08.1992, Side 1
80 SIÐUR B/C
185. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Serbar hóta að
skjóta á flugvél-
ar í neyðarflugi
Sarcyevo. Daily Telegraph, Reuterr
SKOTIÐ var af sprengjuvörpum á fjölfarna götu í miðborginni og
fleiri staði í Sarajevo í Bosníu-Herzegóvínu í gær og fórust a.m.k.
átta manns. Ein sprengjan kom niður á bíl rétt hjá aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna og féllu þar fjórir menn. Nokkrum stundum
fyrr komst bílalest á vegum SÞ, sem flutti nær 50 tonn af matvælum
og ýmsum hjálpargögnum til borgarinnar Gorazde, slysalaust aftur
til Sarajevo. Sjónvarpið í Belgrad sagði serbneskan herforingja hafa
hótað að skjóta niður flugvélar sem hann sagði varpa niður vopnum
til skæruliða í grennd við Sarajevo.
Ratko Mladic, einn herforingja
Serba í Bosníu, hótaði í gær að
skjóta niður flugvélar, sem flyttu
hjálpargögn á vegum Sameinuðu
þjóðanna, og sagði, að þrisvar sinn-
um að minnsta kosti hefði verið
varpað úr þeim vopnum til liðs-
sveita Króata og múslima. Eru
þessar ásakanir taldar út í hött en
óttast er, að með þær að skálka-
skjóli ætli Serbar að hætta öllu
samstarfi við SÞ.
Liðsmenn franskra verkfræð-
ingasveita voru sendir frá Sarajevo
til að eyða jarðsprengjunum á leið-
inni til Gorazde en þangað hefur
engin aðstoð borist fyrr og voru
matvæli þar á þrotum, ekkert raf-
magn er þar að fá eða rennandi
vatn, að sögn liðsmanna SÞ. Borg-
arbúar tóku á móti bílalest SÞ-lið-
anna á aðaltorgi borgarinnar með
tárum og blómum á laugardag,
Múslimskur hermaður í Gorazde.
fölir og aðþrengdir eftir hörmungar
undangenginna mánaða. „Aðstæð-
urnar [í Gorazde] eru hræðilegar,"
sagði franskur herlæknir er var í
fylgd með frönsku og úkraínsku
friðargæslusveitunum sem fóru til
Gorazde. „Ég hef séð þetta gerast
í Afríku en aldrei í Evrópu.“ íbúa-
fjöldinn hefur aukist úr 35.000 í
um 50.000 vegna straums flótta-
fólks frá nágrannabyggðum.
Hvergi var ástandið verra en í Sam-
okavlja-sjúkrahúsinu. Þar var um
60 sjúklingum veitt allra brýnasta
hjálp í byggingum sem búið er að
skjóta sundur og saman. Deyfilyf
eru nær alveg úr sögunni.
Flokksþing repúblikana hafið
Reuter
Flokksþing bandarískra repúblikana hófst í Houston
í Texas í gær og fer það fram í Houston Astro-
dome, risastórri íþróttahöll þar í borg. Það getur
farið eftir því hvernig til tekst á þinginu, sem stend-
ur í fjóra daga, hvort George Bush forseti á mögu-
leika á endurkjöri í kosningunum í nóvember en
hann stendur nú mjög höllum fæti fyrir Bill Clint-
on, frambjóðanda demókrata, samkvæmt skoðana-
könnunum. Flokksþingið hófst í gær með sigri hægri
armsins en hann fékk því framgengt, að ákvæði
stefnuskrárinnar um fóstureyðingar var samþykkt
óbreytt. Við það tækifæri ítrekaði Bush andstöðu
sína við fijálsar fóstureyðingar.
Sjá „George Bush heldur ...“ á bls. 25.
Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar ætla að koma shítum til varnar:
Bush varar Iraksstjórn
við hörðum viðbrögðum
Pn.'fnn li'i.i, lfni.li Blnndnl f»*ÁH n **iín „n MnfminklqAoinD
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgnnblaðsins.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í viðtali við sjónvarps-
stöðina CNN í gær að Banda-
ríkjamenn gætu með rétti „beitt
valdi ef nauðsyn krefur“ til þess
að knýja Saddam Hussein, for-
seta íraks, til að hlíta alþjóðleg-
um kröfum um eftirlit og bætti
við að hann ætti ekki að^fá að
„misþyrma eigin þjóð“. írakar
virtust í gær hafa komið í veg
fyrir að Bandaríkjamenn gerðu
alvöru úr meintum áætlunum
um sprengjuárás á Bagdad er
Heill áratugur fór í súginn í Suður-Ameríku
Skuldakreppunni lokið
Buenos Aires. Rcuter.
SKULDAKREPPAN, sem óttast var, að myndi sliga þriðjaheimsrík-
in og valda jafnvel efnahagslegri kollsteypu um allan heim, virðist
vera að líða hjá, að minnsta kosti í Rómönsku Ameríku. „Skuldasög-
unni er lokið, ekki aðeins í Brazilíu, heldur einnig í öðrum ríkjum
Mið- og Suður-Ameríku,“ sagði Marcilio Marques Moreira, efna-
hagsmálaráðherra Brazilíu nýlega en afleiðingar skuldasöfnunar-
innar erlendis voru þær, að hagvöxtur í heilan áratug fór i súginn.
Segja má, að skuldakreppan
svokallaða hafi hafist fyrir 10
árum, 20. ágúst 1982, þegar Mex-
ikóstjórn tilkynnti, að hún gæti
ekki lengur greitt af erlendum
skuldum ríkisins. Versta martröð
bankanna var orðin veruleika, allt
að 220 milljarðar dollara virtust
glataðir.
Nú, tíu árum síðar, er búið að
endursemja um og afskrifa að
nokkru meira en 90% lánanna til
Rómönsku Ameríku og útlit er
fyrir, að bankarnir fái einhvern
hluta þeirra til baka. Skuldabyrði
ríkjanna er ekki nema brot af því,
sem var, en íbúarnir vita hvað fyr-
irhyggjuleysið kostaði.
„Launin lækkuðu, atvinnuleysi
óx, framlög til félagsmála minnk-
uðu og fátæktin jókst, allt vegna
skuldasöfnunarinnar," segir dr.
Frances Stewart, sérfræðingur í
alþjóðaþróun hjá Oxfordháskóla.
Bankamenn og ríkisstjórnir hafa
lært sína lexíu af þessu öllu sam-
an. Lánsumsóknir eru skoðaðar
ofan í kjölinn og bankarnir gera
sér nú miklu betri grein fyrir því
hvar áhættan liggur og grípa því
fyrr til viðeigandi ráðstafana. Þar
að auki keppast ríkisstjórnir í Róm-
önsku Ameríku við að draga úr
ríkisafskiptum af efnahagslífinu
og um leið minnka líkur á, að þær
taki risalán erlendis til að fjár-
magna framkvæmdir á sínum veg-
um.
eftirlitssveit Sameinuðu þjóð-
anna fékk óáreitt að ljúka erind-
um sínum. Hussein hafði vart
sneitt hjá þessum vanda þegar
hermt var að Bandaríkjamenn,
Bretar og Frakkar ráðgerðu að
grípa til aðgerða til þess að
veija shíta í suðurhluta íraks
árásum íraska hersins.
Sagt var að aðgerðum þessum
myndi svipa til þeirra, sem gripið
var til í því skyni að vernda Kúrda
í norðurhluta íraks á síðasta ári.
Nú fær íraski flugherinn ekki að
athafna sig norðan 36. breiddar-
baug og gert er ráð fyrir að það
muni eiga við sunnan 32. breiddar-
baugsins.
Þessari áætlun er ætlað að
fylgja eftir 688. ályktun öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna_ um
mannúðlega meðferð íbúa íraks.
Alyktunin var samþykkt er Persa-
flóastríðinu lauk.
Bandarískir embættismenn
sögðu í gær að Hussein myndi eiga
yfir höfði sér hernaðaraðgerðir
vestrænna ríkja ef ráðist yrði á
shíta í suðurhluta íraks og í frétt-
um sjónvarpsstöðvanna NBC og
CNN kom fram, að beitt yrði flug-
vélum frá flugmóðurskipinu Inde-
pendence, sem nú á Persaflóa, og
frá stöðvum í landi.
Þetta er öðru sinni á tveimur
dögum, sem bandarískum fjölmiðl-
um berast spurnir af fyrirhuguðum
aðgerðum gegn írökum. Dagblaðið
The New York Times greindi á
sunnudag frá því að Bandaríkja-
menn hygðust láta hart mæta
hörðu á mánudagsmorgun (í gær)
ef eftirlitsmenn SÞ fengju ekki að
fara erinda sinna óhindrað. í frétt-
inni var haft eftir embættismönn-
um að stjórnvöld mætu stöðuna
svo að sprengjuárásir á Bagdad
myndu veita Bush aukinn styrk á
flokksþingi repúblikana, sem hófst
í gær.
Eftirlitsmennirnir fengu hins
vegar að fara allra sinna ferða
óáreittir í gærmorgun og Níkíta
Smídovítsj, sem hefur forystu fyrir
þeim, sagði að hvergi hefði dregið
til tíðinda. Eftirlitssveitin er skipuð
22 mönnum og hefur starfað með
mikilli leynd í Irak undanfarna tíu
daga. Hjá Sameinuðu þjóðunuijj
var tilkynnt, að hún hefði komist
yfir mikilvægar upplýsingar um
eldflaugaáætlun íraksstjórnar.
Bush neitaði því staðfastlega á
sunnudag að hann hygðist nota sér
ástandið í írak til pólitísks fram-
dráttar og kallaði fréttina í The
New York Times „grófa móðgun“.