Morgunblaðið - 21.08.1992, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1992
---: I)., ■(' 'i I 'i i' I •1 t 'i> ■*) I 1 j i jr..i--i» >Df) ;V
Vönsýniagar
næstu mánuði
París 25.okt-29.okt. Alþjóð-
tóg matvælasýning
Zurich 9.október-ll.okt.
Sölusýning á notuðum bátum
og fylgihlutum
Hamborg 31.okt.-8.nóv. Al-
þjóðleg bátasýning
Leiðzig 30.okt.-4.nóv Alþjóð-
leg by ggingasýning
Málmey 14.okt-17.okt. Heim-
ur barnsins- sýning um allt sem
viðkemur börnum
Frankfurt 30.sept.-5.okt. Al-
þjjóðlega bókasýningin
Utrecht 12.okt.-16.okt. Al-
þjóðleg sýning um efna-olíu-
iðnað og umhverfismál
Brussel 24.nóv-26.nóv. Al-
þjóðleg ferðakaupstefna
London 24.nóv-27.nóv. Al-
þjóðlegi ferðamarkaðurinn
Tókíó 10.des.-13.des Alþjóð-
leg ferðakaupstefna
Atlanta 20.okt-22.okt. Al-
þjóðleg sýning um byggingu
og viðhald flugvalla og flug-
stöðva
Nurnberg 3.okt.-5.okt. Al-
þjóðleg sýning á gjafavörum
og minjagripum
Munchen 20.okt.-23.okt Al-
þjóðleg sýning um tölvur til
samsetningar í iðnaði
Osló 14.okt.-17.okt. Norsk
húsgagnasýning ■
Stór ráðstefna um
ferðavilja miðaldra
og eldra tólks
RÁÐSTEFNA verður á Möltu
í nóvember nk. um ferðalög,
ferðavenjur og áfangastaði
miðaldra og roskinna evr-
ópskra ferðamanna en sá
hópur ferðalanga verður
stærstur næstu áratugi. Evr-
ópska ferðamálanefndin hef-
ur birt fréttatilkynningu um
ráðstefnuna og er þar tekið
fram að mjög takmarkaðar
rannsóknir hafi verið gerðar
fram til þessa hvemig þessir
ferðamenn vilja ferðast,
hvert og hversvegna.
Á vegum American Express,
Ferðamálanefndar EB og
Ferðamálaráðs Kanada í sam-
vinnu við ETC var því hleypt
af stokkunum umfangsmikilli
könnun á þessu og verða niður-
stöður kynntar á ráðstefnunni
og fulltrúum úr öllum greinum
ferðaþjónustunnar gefínn kost-
ur á þátttöku. ■
Sungið á ráðhúströppunum í Bonn.
Sðngferðalao sunnlenskia
ungmenna í Þýskalandi
„FERÐIN var sérstaklega ánægjuleg og heppnaðist afbragðs vel og
móttökur sérstaklega góðar og fólk vildi vita meira um okkur eftir
tónleikana ,“ sagði Jón Ingi Sigurmundsson, stjóraandi kórs Fjöl-
brautaskóla Suðurlands eftir söngferðalag til Þýskalands í júní.
Kórinn dvaldi lengst af í bænum
Schönecken, skammt norðan við
Trier og var búið í sumarhúsum og
þaðan var farið í tónleikaferðir.
Fyrst var sungið í Trier á vegum
stúdentafélags háskólans við góðar
viðtökur. Þá söng kórinn á Torgi
heijanna í Lúxemborg. Þeir tónleik-
ar voru haldnir fyrir atbeina borgar-
innar og vóru söngstjóra færð blóm
og óskað eftir að kórinn kæmi sem
fyrst aftur. Bandarískur hljómsveit-
arstjóri, Peter Ray, hitti Jón Inga
að máli og fór lofsamlegum orðum
um söngskrána og bað fyrir kveðjur
til Jóns Þórarinssonar.
í Bonn var sungið á ráðhúströpp-
unum og var torgið þéttsetið fólki.
Þá tók kórinn þátt í alþjóðlegu
móti í Köln, og komu fram um 1.000
manns og áheyrendur skiptu tugum
þúsunda. Þar var sungið á mörgum
sviðum og mikil upplifun fyrir ungt
söpgfólk að taka þátt í þeim. Fyrr
urú daginn skoðuðu kórfélagar
dómkirkjuna og fluttu þrjú lög. Var
kirkjan full af kórfólki og hver kór-
inn af öðrum tók lagið í kirkjunni.
„Ég held að krökkunum hafi þótt
sú stund hápunktur ferðarinnar,"
sagði Jón Ingi.
Síðustu tónleikarnir voru í ka-
þójskri kapellu í Prum og síðan
kynnti Ingi S. Ingason land og þjóð
fyrir viðstöddum. Ingi er þýsku-
kennari við Fjölbrautaskólann og
var í Trier sl. ár við nám.
„Greinilegt var að fólk kunni að
meta sönginn og vildi vita meira
um hann og iögin, einkum sýndi
fólk áhuga á fimmundarlögunum
og eitt þeirra var ísland farsælda
frón. Er talið að þannig hafi verið
sungið á landnámsöld og fannst
fólki það sérstakt. Ómetanlegt er
fyrir krakkana að komast í slíka
ferð og þeir stóðu sig mjög vel,
bæði í söngnum og allri fram-
komu,“ sagði Jón Ingi. Hann sagði
að kórinn hefði notið góðrar farar-
stjórnar Þórs Vigfússonar sem
kynnti lög kórsins og fór nokkrum
orðum um hann á hveijum stað.
Kórfélagar höfðu söngferðalagið
sem átaksverkefni sl. vetur og stóðu
í ströngu við að safna fé til fararinn-
ar en án stuðnings væri slík ferð
ekki möguleg. Islandsvinafélagið í
Köln greiddi götu kórsins vegna
mótsins þar. Kórfélagar fengu þar
skilning á orðinu íslandsvinur, en
einn forsvarsmanna þess, Bácker
að nafni, lagði á sig ómæída fyrir-
höfn til að aðstoða kórinn.
■
Sig. Jónss.
Jensen lúxusbílaverk-
smidjurnar gjaldþrota
Athugaóu vedurspána,
en haföu í huga að á
fjöllum er allra veðra
von og veðrabrigði
snögg.
Ábending frá Slysavarna-
féiagi íslands
Reuter.
BRESKU lúxusbílaverksmiðjura-
ar Jensen, sem á árum áður sáu
stórstjörnum á borð við Clark
Gable fyrir sportbílum eru nú að
leggja upp laupana vegna al-
menns samdráttar í efnahagslíf-
inu, að því er endurskoðendur
fyrirtækisins lýstu yfir á þriðju-
daginn. „Fáar pantanir liggja fyr-
ir og það ásamt því að engin bata-
merki eru sjáanleg í náinni fram-
tíð á markaðinum fyrir lúxusbíla
gerir það að verkum að ákveðið
hefur veirð að gera fyrirtækið
upp,“ sagði talsmaður endurskoð-
endafyrirtækisins Grant Thorn-
ton.
Jensen-verksmiðjurnar hafa
framleitt hágæða sportbíla allt frá
1976 þar á meðal hinn háþróaða og
eftirsótta Interceptor á áttunda ára-
tugnum. Fyrirtækið státaði af
heimsfrægum viðskiptavinum á borð
við breska söngvarann Cliff Richard
og fyrrnefndan Clark Gable.
Endurskoðendurnir áætla að óska
eftir gjaldþrotaskiptum í næsta mán-
uði en þó er enn leitað að kaupanda
að verksmiðjunum til að reyna að
bjarga hinu fornfræga nafni Jensen-
bílanna.
Upphaflega fyrirtækið með þessu
nafni varð gjaldþrota 1976 en síðan
ítalskur verkfræðingur hjá Alfa-
verksmiðjunum er hins vegar þeirr-
ar skoðunar að landar sínur muni
aldrei fást til að kaupa sjálfsskipt-
ingar í bfla sína. „ítalir munu aldr-
ei kaupa sjálfskipta bíla. Þeir eru
kynferðislega þrúgaðir. ítalir vilja
gæla við bílana sína og þeim fínnst
þeir verða að taka á gírstönginni
þúsund sinnum á dag,“ segir Ales-
sandro Piccone í viðtali við breska
tímaritið Autocar and motor.
Þrátt fyrir þessa hópsálgreiningu
hefur starfseminni einkum verið
haldið áfram með viðgerðum og end-
urbyggingum eldri bíla ásamt lítilli
framleiðslu á fyrrgreindum Interc-
eptor. Til þessa hefur það dugað til
að halda lífi í Jensen.
■
Vauxhall sækir á
Ford í Bretlandi
SALA á Vauxhall hefur aukist um
4% í Bretlandi á þessu ári, en þar
hefur heildarbílasalan dregist
saman um 4,3%. Það er salan á
Astra sem kom á markaðinn í
október í fyrra sem er helsta
tromp Vauxhall, og vonast tals-
menn fyrirtækisins til að bílnum
takist á endanum að ryðja Ford
Escort úr fyrsta sæti listans yfir
söluhæstu bílana í Bretlandi.
Um 5% munur er á forskoti Ford
yfir Vauxhall á bílamarkaðnum í
Bretlandi, en það þýðir um 40.000
bílar. Talsmenn Ford eru sannfærðir
um að halda forskotinu á Vauxhall
út þetta ár, þrátt fyrir að sala fyrir-
tækisins hafi dregist saman um 7%
í júlí miðað við sama tímabil í fyrra.
verkfræðingsins eru ítölsk stjórn-
völd þeirrar skoðunar að draga
megi úr mengun í stórborgum ítal-
íu með því að ijölga sjálfskiptum
bílum en í hinum fornu borgum
landsins eru umferðarteppur meiri
en víðast annars staðar. Sjálfskipt-
um bílum fylgir jafnari gangur vél-
ar og slíkt er talið æskilegra þar
sem alvanalegt er að ökumenn kom-
ist ekki nema um 100 metra á 5
mínútum.
Afhverju vilja ítalir
ekki sjúlfskipta bíla?
FIAT-verksmiðjuraar hafa ýtt úr vör herferð á Ítalíu sem ætlað er
að auka útbreiðslu sjálfskiptra bíla. Eins og kunnugt er eru flestir
bílar í Bandaríkjunum búnir sjálfskiptingu og hlutur sjálfskiptra
bíla er einnig mun hærri hér á landi en sem nemur meðaltalinu í
Evrópu, sem er sjálfskipting í 7% bíla. Tregastir allra til að kaupa
sjálfskipta bíla eru Italir, en aðeins 1,4% bíla þar í landi eru með
þennan útbúnað.
Ford og VW sameinast
um f jölnotabíl
FORD og Volkswagenverksmiðj-
urnar vinna nú í sameiningu að
gerð fjölnotabíls sem væntanlega
kemur á markaðinn í ársbyrjun
1994. Bílnum er meðal annars
ætlað að keppa við hinn franska
Renault Espace á markaðnum,
sem var fyrsti bíllinn af þessari
gerð, og einnig aðra álíka sem
fylgt hafa í kjölfarið, eins og t.d.
Toyota Previa, Pontiac Trans-
Sport og Crysler Voyager.
Nýi bíllin verður framleiddur í
VW—Ford verksmiðju sem verið er
að reisa í Portúgal, og er áætlað
að framleiða þar 180 þúsund bfla
á ári. Fyrst um sinn verður bíllinn
eingöngu seldur í Evrópu, og þá í
tveimur útgáfum. Þær verða svip-
aðar að ytra útliti, en með mismun-
andi vélum, þar sem annars vegar
verður um að ræða vél frá Ford,
og hins vegar frá Volkswagen. í
VW útgáfunni verður rými fyrir sjö
farþega, og verður bíllinn fáanlegur
með allt frá íjögurra strokka turbo
díselvél til 2,8 lítra 174 hestafla
V6 vélar, og með íjórhjóladrifi.
Bæði Ford og VW útgáfuna verður
hægt að fá með fimm gíra bein-
skiptingu eða sjálfskiptingu.