Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
23
Nemendur Listdansskóla Islands æfa fyrir skólasýningu á síðast-
liðnum vetri.
Listdansskóli íslands
Fertugasta starfs-
árið að hefjast
FERTUGASTA starfsár Listdansskóla íslands hefst nú i byrjun
september. Á hverju ári tekur skólinn inn nemendur í forskóla
og verða inntðkupróf þann 2. og 3. september. Skráning verður
dagana 31. ágúst og 1. september. Lágmarksaldur nemenda er
9 ár.
Á síðasta vetri voru um 100
nemendur við nám í skólanum
og er núverandi húsnæði, að
Engjateig 1, að verða of lítið
fyrir skólann. Fyrirhugað er að
Listdansskólinn flytji inn í nýtt
húsnæði við Laugarnesveg ásamt
öðrum listaskólum áður en langt
um líður.
(Úr fréttatilkynning)
Ólympíumótið
íslenska liðið í andstreymi
Brids
Guðm. Sv. Hermannsson
EFTIR að hafa haldið vel í horf-
inu um miðbik Ólympíumótsins,
fékk íslenska liðið slæman skell
gegn Bandaríkjamönnum í 16.
umferð og aftur gegn Argent-
ínumönnum í 17. umferð. Við
það datt ísland úr 3. sæti í það
áttunda. í 15. umferð hafði ís-
lenska liðið hins vegar unnið
góðan sigur á Zia Mahmood og
félögum hans í pakistanska lið-
inu en þeir höfðu verið á mik-
illi siglingu fram að því.
Töfluröðin í riðli íslands réði
því, að í upphafí undankeppninnar
spilaði liðið við léttari andstæðing-
ana en um miðbikið komu allar
sterkari þjóðimar nánast allar í
röð. Undir lokin ættu leikirnir að
léttast aftur þótt raunar sé aldrei
hægt að tala um létta leiki á al-
þjóðlegum mótum sem þessu. Tak-
markið hjá íslenska liðinu var að
ná nokkum veginn meðalskori
gegn sterkari þjóðunum en fram
að tapinu gegn Bandaríkjamönn-
unum var liðið vel yfir þessu
marki.
Ólafur Ragnar Grímsson
Krefur utanríkisráðuneytið
svara um skoðanakönnun
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, segir að
upplýst hafi verið á fundi utanríkismálanefndar í gær að utanríkis-
ráðuneytið hefði fengið Félagsvísindastofnun til að gera skoðana-
könnun um afstöðu íslendinga til samningsins um Evrópskt efnahags-
svæði í nóvember á síðasta ári en niðurstöður hennar voru birtar í
desember. Ólafur boðaði til fréttamannafundar í gær þar sem hann
gagnrýndi þátttöku utanríkisráðuneytisins í gerð skoðanakannana
og sagði að aldrei hefði verið upplýst, hvorki af Félagsvísindastofn-
un, á Alþingi, í utanríkismálanefnd eða í fjölmiðlum að utanríkisráðu-
neytið hefði verið verkbeiðandi og borgað fyrir þessa skoðanakönn-
un á síðasta ári.
„Það er ekki mjög algengt að
ráðuneyti séu hvað eftir annað að
gera pólitískar kannanir. Égóskaði
þess vegna eftir því við Þröst Ólafs-
son, aðstoðarmann utanríkisráð-
herra, að hann svaraði því form-
lega, hvar það hefði komið fram
af hálfu utamíkisráðuneytisins, að
það hefði staðið að þessari könn-
un,“ sagði Ólafur.
„Nú blasir það við að utanríkis-
ráðuneytið hefur látið fjármagna
tvær svona ítarlegar pólitískar
kannanir og notar þær síðan sem
grunngögn í áróðursstarfsemi
sinni,“ sagði Ólafur. Hann sagði
einnig að frá því í nóvember í fyrra
hefði utanríkisráðherra varið mikl-
um fjármunum til kynningar á
EES-samningnum en á sama tíma
hefði andstaðan við samninginn
aukist meðal þjóðarinnar ef litið
væri á niðurstöður skoðanakönnun-
ar sem utanríkisráðuneytið lét gera
í júlí sl., en Morgunblaðið greindi
frá niðurstöðum hennar í gær.
Þrátt fyrir að ísland hafi leng-
staf verið í efstu sætum riðilsins
em liðsmennirnir ekki alveg
ánægðir með frammistöðu sína og
telja sig geta spilað mun betur.
Aðstæðurnar á mótsstað, þá sér-
staklega mikill hiti, hafa þar ör-
ugglega einhver áhrif. En ef til
vill gera íslensku spilararnir of
miklar kröfur til sín, því eins og
lesendur Morgunblaðsins hafa get-
að séð undanfarna daga, er spila-
mennska þeirra oft á tíðum eins
og best gerist í heiminum.
íslendingar unnu Liechtenstein
17-13 í 12. umferð mótsins og
voru nokkuð ánægðir með þann
sigur. Það er ekki langt síðan Liec-
htensteinbúar fóm að taka þátt í
alþjóðlegum bridsmótum en þeir
eiga þó nokkra góða bridsspilara,
til dæmis A. Jezioro, sem varð
Evrópumeistari með pólska landsl-
iðinu 1981 en hefur nú flust bú-
ferlum. Þetta spil stuðlaði að ís-
lenska sigrinum.
Norður
♦ 4
¥ ÁD9863
♦ 9
♦ K10864
Vestur Austur
♦ 53 4Á97
¥ KG1072 ¥ 5
♦ Á76 ♦ KD8532
♦ D95 ♦ G73
Suður
♦ KDG10862
¥4
♦ G104
♦ Á2
Vestur Norður Austur Suður
GPA Polyetilo ÞJ Jezioro
1 2 tíglar 2 spaðar
3 tíglar pass pass 4 spaðar/
+100
Gegn 4 spöðum spilaði Guð-
mundur Páll út tígulás og Þorlák-
ur lét tíguláttuna í slaginn. Þetta
var hæsti tígulhundurinn sem sást,
og samkvæmt merkjakerfí Guð-
mundar og Þorláks bað hann um
hæsta litinn, eða spaða! Hefði Þor-
lákur fylgt lit með fímmunni var
það beiðni um hjarta en tígultvist-
urinn hefði beðið um lauf.
Guðmundur hlýddi kallinu og
spilaði spaða á ás Þorláks sem tók
tígulhjónin. Einn niður.
Við hitt borðið misstigu AV sig
í vörninni og. Örn Arnþórsson og
Guðlaugur R. Jóhannsson fengu
að vinna 4 spaða, svo ísland
græddi 12 stig.
113. umferð spiluðu íslendingar
við Þjóðveija. Þjóðveijamir tefldu
fram sama liði og vann Ros-
enblumheimsbikarinn fyrir tveim-
ur árum en þeir urðu samt að lúta
í lægra haldi fyrir íslenska liðinu.
í þessu spili fékk Rohowski þunga
refsingu fyrir að koma inn á sagn-
ir með lítil spil.
Norður
♦ G52
¥ Á54
♦ 8753
♦ 1052
Vestur Austur
♦ D96 ♦ Á1087
¥ 10832 ¥K9
♦ ÁD42 ♦ G96
♦ D6 ♦ KG83
Suður
♦ K43
¥ DG76
♦ K10
♦ Á974
Vestur Norður Austur Suður
ÞJ Nippgen GPA Rohowski
- - 1 lauf dobl
redobl pass pass 1 hjarta
dobl dobl/ pass pass 1 grand
+800
Redobl Þorláks sýndi áhuga á
refsingu og þegar Guðmundur
passaði redoblið var hann að lýsa
jafnskiptri hönd með 12-14
punkta. Þorlákur refsidoblaði síð-
an bæði 1 hjarta og 1 grand.
Þorlákur spilaði út spaðasexu.
Guðmundur tók ásinn og spilaði
meiri spaða sem Þorlákur fékk á
drottningu og spilaði 3. spaðanum
á kónginn. Rohowski spilaði litlu
laufí sem Guðmundur fékk á gosa.
Hann tók spaðaslaginn sinn og
Rohowski taldi sig geta misst tíg-
ul í borði. Guðmundur spilaði þá
tígulníu og þegar Rohowski stakk
upp kóng tók Þorlákur á ás og
spilaði hjarta í gegn um blindan.
Guðmundur fékk á kóng, tók tígul-
gosa og spilaði tígli á drottningu
Þorláks sem tók 9. slag varnarinn-
ar á tígultvistinn. Þrír niður og
800 til íslendinga, en við hitt borð-
ið spiluðu Ludevig og Bittschené
1 grand í AV og fengu 8 slagi, 120.
Skákþing Islands
Spennandi keppni Helga og Margeirs
Skák
Bragi Kristjánsson
Tíunda og næstsíðasta um-
ferð I landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands var tefld á
fimmtudagskvöld í íþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafnar-
firði. Helgi Ólafsson, meistar-
inn 1991, og Margeir Pétursson
heyja spennandi baráttu um tit-
ilinn. Helgi gerði stutt jafntefli
við Hannes Hlífar Stefánsson
og fannst mörgum, að sá síðar-
nefndi hefði haft ástæðu til að
tefla skákina áfram til vinn-
ings. Margeir átti í þungri bar-
áttu við Jón Garðar Viðarsson.
Skákin fór í bið eftir miklar
sviptingar, en jafntefli var sam-
ið án frekari taflmennsku.
10. umferð:
Haukur Angantýsson - Jón Á. Jónsson 1-0
Helgi Ólafsson - Hannes H. Stefánsson 1/2
Sævar Árnason - Bjöm F. Bjömsson 1-0
Þröstur Ámason - Þröstur Þórhallsson 0-1
ÁmiÁ.Ámason-RóbertHarðarson Vi
JónG.Viðarsson-MargeirPétursson 1/2
Haukur vann Jón Áma nokkuð
örugglega og sama má segja um
sigur Sævars á Bimi Frey. Þrest-
irnir tefldu mikla baráttuskák, þar
sem Þórhallsson stóð allan tímann
betur, en náði ekki afgerandi yfir-
burðum fyrr en í æðisgengnu
tímahraki beggja. Þröstur Þór-
hallsson vann þar með fjórðu
skákina í röð. Ámi Ármann stóð
allan tímann betur gegn Róbert,
en skorti herslumuninn til að ná
vinningi.
Um skákir efstu manna var
fjallað að framan, en síðasta um-
ferðin verður mjög spennandi, en
þá tefla Margeir-Sævar, Róbert-
Helgi, Jón Ámi-Jón Garðar, Björn
Freyr-Þröstur Á., Þröstur Þ.-Arni
Ármann, Hannes Hlífar-Haukur.
Sérstök athygli skal vakin á þvi,
að síðasta umferð, sem átti- að
tefla í dag, laugardag, var færð
fram, þannig að búið verður að
tefla hana, þegar þessar línur birt-
ast á prenti!
Staða efstu manna fyrir síðustu
umferð:
1. Helgi, 8'A v.
2. Margeir, 8 v.
3. Hannes Hlífar, 7 v.
4. Haukur, 6 v.
5. -6. Þröstur Þ., 5'/2
5.-6. Jón Garðar, S'A
7.-8. Sævar, 5 v.
7.-8. Róbert, 5 v.
• Önnur umferð í kvennaflokki
var tefld á sama tíma og urðu
úrslitin þessi: Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir vann Guðnýju
Hrund Karlsdóttur, Áslaug Krist-
insdóttir vann Svövu Bjarneyju
Sigbergsdóttur, Eyrún Edda Hjör-
leifsdóttir vann Sólveigu Snorra-
dóttur, Ragnheiður Kristjánsdótt-
ir van Berglind Aradóttur, en jafn-
tefli gerðu Helga Guðrún Eiríks-
dóttir og Sigrún Þorvarðardóttir
og Guðfríður Lilja og Áslaug hafa
unnið báðar skákir sína og tefla
því saman í þriðju umferð. Sú
skák verður mjög mikilvæg fyrir
úrslit mótsins, því þar mætir Guð-
fríður Lilja, sterkast skákkona
íslands undanfarin ár, tvöföldum
Íslandsmeistara fyrri ára.
Að lokum skulum við sjá skák
úr annarri umferð í kvennaflokki.
Hvítt: Guðfríður Lilja Grétarsdótt-
ir
Svart: Guðný Hrund Karlsdóttir
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4
— exd4, 4. Rxd4 — Rxd4?!
(Svartur flýtir sér of mikið í
manhakaup og gefur með því
hvíti mun meira svigrúm. Þekkt
er 4. — Rf6, 5. Rxc6 — bxc6, 6.
e5 - De7, 7. De2 - Rd5, 8. c4
— Ba6, 9. b3 — 0-0-0, með flók-
inni stöðu, sem m.a. var tefld í
16. skákinni í heimsmeistaraein-
vígi Kasparovs og Karpovs í Lyon
1990.)
5. Dxd4 - b6
(Annar möguleiki er 5. — Re7,
6. Bc4 — d6, 7. Rc3 — Be6, 8.
Bb3 - Rc6, 9. Dd3 - Be7, 10.
Be3 - með lítið eitt betra tafli
fyrir hvít.)
6. Rc3 - Bb7, 7. Bc4 - Df6,
8. Dd3 - Bc5, 9. 0-0 - 0-0-0,
10. Be3 - d6, 11. a3 - De7?!
(Eftir þennan leik vinnur hvítur
mikinn tíma með því að ógna
svörtu drottningunni. Betra var
11. — Dg6 ásamt — f5, — He8
og — Rf6 við tækifæri.)
12. Rd5 - Dd7, 13. Bg5! - f6
(Þvingað, því annars tapar svartur
manni eftir 14. b4.)
14. Bd2 - c6, 15. Rf4! - d5
(Annars kemur 16. Be6 o.s.frv.)
16. exd5 - cxd5,17. Bb5 - Bv6
(Eða 17. Df7, 18. Hfel ásamt
19. Re6 með mjög góðri stöðu
fyrir hvít.)
18. Ba6+ - Bb7, 19.,Bb5 -
Bc6, 20. Bxc6 — Dxc6, 21. Hfel
(Hvítur hefur náð yfírburðastöðu
með markvissri taflmennsku.
Svartur hefur misst tökin á e-lín-
unni, kóngsstaðan er veik, riddar-
inn á g8 og hrókurinn á h8 eru
utangátta.
21. - Hd7?
(Eftir 21. — Re7, 22. He6 ásamt
23. Hael verður svarta staðan
ekki glæsileg, en leikurinn í skák-
inni flýtir fyrir lokunum.)
22. He8+ - Kb7
(Ekki 22. - Hd8, 23. Da6+ -
Db7, 24. Hxd8+ og vinnur.)
23. Re6 - Db6
(Eða 23. — Be7 (aðalhótunin er
24. Rd8+) 24. Bf4 - Bd6, 25.
Rd4 - Dc4, 26. Df6 - He7, 27.
Bxd6 — Hxe8, 28. Dd7+ með
vinningsstöðu fyrir hvít.)
24. Bf4
og svartur gafst upp, því drottn-
ingin fellur (24. — Dc6, 25. Hb8+
mát.)