Morgunblaðið - 29.08.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
AMERÍKANINN
Sontana stof nar glæpagengi í L.A., en er að mestu inn-
an fangelsismúranna og stýrir þaðan genginu og endar
í dópi, stórglæpum og dauða.
Aðalleikarar: Edward J. Olmos (sem leikstýrir líka),
William Eorsyth og Pepe Serna.
Stórblöð eins og L.A. Times, N.Y. Times og US
Today lofa þessa mynd í hástert. ★ ★ ★ ★
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.10. - Bönnuð innan 16 ára.
Á STÓRU TJALDI í
Myndin sem
tekur alla með trompi.
Sýnd kl.3,5,7,9og11.
Ath.: í A-sal kl. 3 og 5.
HRINGFERÐTIL
PALM SPRINGS
Tveir viilir stela Rolls
Royce og fara í stelpuleit.
Sýnd kl. 3,9 og 11.
Bönnuði. 12ára.
Miðav. kr. 300 kl. 3.
STOPPEÐAMAMMA
HLEYPIRAF
Grínari með
Sylvester Stallone.
Sýnd kl. 3,5og7.
Miðaverð kr. 300.
Óeðli,
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Astríðuglæpir — „Love
Crimes“.
Leikstjóri Lizzie Bord-
en. Handrit Allan Moyle.
Aðalleikendur Sean Yo-
ung, Patrick Bergin,
Arnetia Walker, James
Read. Bandarísk. Sover-
eign 1992.
Sá grunur hefur löngum
læðst að mönnum að því
sem við viljum skilgreina
sem „normal kynlífshegð-
un“ sé hætt við hrösun á
þröskuldum svefnher-
bergjanna. Ástríðu-
glæpir veltir þessu ofurlít-
ið fyrir sér á köflum en
gefst smám saman upp
við að taka nokkra vit-
ræna afstöðu hvað snertir
kynlífsmynstur Vestur-
heimsbúa. Leysist hins
vegar upp í tætingslegan
sálfræðiþriller.
Saksóknarinn Young
ogþó
fær til rannsóknar mál
fjölda kvenna sem hafa
allar verið forfærðar af
myndarlegum ljósmynd-
ara (Bergin) sem hefur
fengið þær til gera hina
ólíklegustu hluti og setja
sig í hinar afkáralegustu
stellingar í friðhelgi heim-
ilisins. Síðan hefur hann
horfið á braut. Fæstar
vilja þó kæra groddann,
finnst sem hann eigi öllu
frekar eitthvað inni hjá
þeim. Hann hafi leyst þær
úr sálrænum hömlum.
Young, sem sjálf er bæld
kynferðislega vegna áfalls
í bernsku, býr sig nú und-
ir að verða næsta „fórnar-
lamb“ Bergins. Hvað vill
hún með hann?
Það bregður fyrir for-
vitnilegu og fersku hand-
bragði hjá kvenleik-
stjóranum Borden sem hér
fæst við sína fyrstu, stór'u
bíómynd eftir að hafa vak-
ið verðskuldaða athygli
fyrir „Working Girls",
leikna heimildarmynd um
lífsbaráttu gleðikvenna.
Hún er ekki á fjarlægum
slóðum hér en það dugar
ekki til. Handritið er sam-
hengislítil molla með aðal-
persónurnar tvær hang-
andi í lausu lofti. Hliðar-
sögurnar sem eiga að út-
skýra atferli og sála-
rástand söguhetjanna
detta niður dauðmátt-
lausar. Sorglegt, því efnið
er átakanlegt og á skilið
vandaðri umfjöllun. Til að
bæta gráu ofan á svart
er Young, sem á að eiga
samúð manns óskipta, svo
hörmuleg leikkona að
flestum hlýtur að standa
nákvæmlega á sama um
persónuna. Slær næstum
út eymdarleik Rósönnu
Arquette í The Big Blue
og er þá langt til jafnað.
En Bergin, sem fer með
hlutverk „þess slæma“,
hrífur áhorfendur með sér
því hann getur þó alltjent
leikið og handritsmuskan
gerir persónuna aldrei að
því óféti sem hún ætti að
vera svo myndin gengi
upp. Og áhorfandinn situr'
uppi að leiðarlokum jafnó-
viss um hvað það sé sem
ekki má.
Ný raðganga hjá Útivist
1 FJÖRUGÖNGUNNI, 8.
raðgöngri Utivistar, verða
teknar upp nýjungar. Ekki
verður gengin samfelld
leið í hverri dagsgöngu,
heldur verður henni skipt
í 2 til 3 áfanga innan
ákveðins svæðis. í áföng-
unum verður lögð áhersla
4 fjörulífið, rekann og
mipjar á ströndinni.
Fyrsta gangan verður á
morgun, sunnudag, og hefst
að venju við skrifstofu Úti-
vistar í Iðnaðarmannahús-
inu, Hallveigarstíg 1, kl.
9.30. Þaðan verður gengið
eftir gömlu þjóðleiðinni niður
í Grófina og að Hafnarhús-
inu, en síðan ekið í rútu upp
í Víðines og gengið með fjör-
unni í Gunnunes og að Þer-
neyjarsundi og síðan feijað
yfir í Þerney. Þar verður
gengið um eyjuna og fjörulíf-
ið skoðað. Að því loknu verð-
ur selflutt yfir í Engey og
þar gengið á reka og mann-
vistarminjar skoðaðar. Þeir
sem sleppa vilja Þemey geta
byijað fjörugönguna með því
að sigla út í Engey kl. 13
frá Grófarbryggju og sam-
einast þar hópnum. Komið
verður í land úr ijöru-
göngunni milli kl. 18 og 19
og henni lýkur við skrifstofu
Útivistar.
Ef ekki er gott sjóveður
verður haldið áfram að
ganga með Þerneyjarsundi
og yfir að Álfsnesi og þaðan
selflutt yfír á annað svæði.
Þá myndi þeim sem mæta
við Grófarbryggju kl. 13
verða ekið í rútu til að sam-
einast fyrri hópnum.
Útivist og Vestfjarðaleið
bjóða í stutta kynnisferð í
tengslum við Fjörugönguna,
hina nýju raðgöngu Útivist-
ar. Þeir sem vilja taka þátt
í henni mæti við skrifstofu
Útivistar kl. 9.30 á sunnu-
dagsmorgun. Gengið verður
niður að höfn og síðan verð-
ur boðið í rútuferð upp í Víði-
nes og gengið að Þemeyjar-
sundi, síðan til baka í rútuna
og ferðinni lýkur við skrif-
stofu Útivistar. Þátttaka í
þessari ferð er ókeypis,
göngukort verða afhent og
teljast þátttakendur hafa
farið í fyrstu ijömgönguna.
(Úr fréttatilkynningu)
35
1 »1 Iggg
VARNARLAUS
Nuisiimini
ÓGNAREDLI
★ ★★’/, BlÖL.
★ ★★★GÍSLI E. DV
Sýnd kl. 5,9 og 11.15.
Bönnuði. 16ára.
LOSTÆTI
★ ★ ★ ★ S V MBE.
★ ★★ BÍÓLÍNAN
Sýnd kL 5,7, 9 og 11.
Bönnuði. 14.
HONIOFABER
I lll' lllll) llllll" IIHIIT nIiiiI klllL'lllilll llll' kllllll'J Uil\lln* IIHllhl'.
DGFERESGLESS
Hörkuspennandi þriller með frábærum leikurum. Allir
héldu að Steven væri virtur viðskiptajöfur eu þegar
hann er myrtur kemur ýmislegt í 1 jós.
f raun höfðu allir ástæðu til að myrða hann, kona hans
og jafnvel dóttir.
Aðalhlutverk: Sam Shepard (Homo Faber, The Right
Stuff), Barbara Hershey (Shy People, A World Apart, The
Last Temptation of Christ) og Mary Beth Hurt (The
World According to GARP, D.A.R.Y.L.)
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5,7,9,11.
KOLSTAKKUR
Sýnd kl.5,7,9og11.
Bönnuð innan 16 ára.
REGNBOGINN SIMI: 19000
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAOASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Sala aðgangskorta
hefst þriðjudaginn
1. september
Kortin gilda á sex leiksýningar,
verð kr. 7.400,-
Á frumsýningar, verð kr. 12.500,-
Elli- og örorkulífeyrisþegar, verð kr. 6.600,-
Miðasalan er opin daglega kl. 14-20 á meðan kortasalan
fer fram, einnig er tekið á móti pöntunum í sima 680680
alla virka daga kl. 10-12. Greiðslukortaþjónusta.
Ljóðatónleikar í Siguijónssafni
SÍÐUSTU þriðjudagstón-
leikar sumarsins í Sigur-
jónssafni 1. september kl.
20.30 verða ljóðatónleikar.
Þar koma fram þýska
söngkonan Angela Spohr
og Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir píanóleikari. Á efn-
isskrá eru lög eftir Leos
Janacek, Arnold Schön-
berg, Benjamin Britten og
Enrique Granados.
Sópransöngkonan Angela
Spohr er fædd og uppalin í
Norður-Þýskalandi. Hún
stundaði nám við Tónlistar-
háskólann í Freiburg á árun-
um 1978-83 og var síðan við
framhaldsnám í Basel. Ang-
ela Spohr, sem nú er kenn-
ari við Tónlistarháskólann í
Freiburg, hefur hvarvetna
hlotið mikið lof fyrir söng
sinn. Svið hennar spannar
nútímaverk jafnt og verk frá
rómantíska og klassíska
tímabilinu.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari t.v. og Angela
Spohr sópransöngkona.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir
lauk námi frá Tónlistarhá-
skólanum í Reykjavík árið
1978 og stundaði framhalds-
nám í Freiburg og Stuttgart.
Frá árinu 1984 hefur hún
starfað sem píanóleikari og
kennari í Reykjavík og tekið
þátt í ýmiss konar tónlistar-
flutningi. Þóra Fríða er fé-
lagi í íslensku hljómsveitinni.
(Fréttatilkynning)