Morgunblaðið - 01.10.1992, Blaðsíða 31
seet HHwVrao .t auo^nurMMiH qigAJawuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1992
08
31
Haustferð aldraðra í Kópavogi
STARFSFÓLK Toyota bauð
fyrir nokkru öllum íbúum á elli-
heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi
til haustferðar á Þingvelli.
Starfsfólk Toyota notaði til far-
arinnar bíla í .eigu Toyota og
höfðu sumir á orði að verið
væri að viðra bílana.
Á leiðinni til Þingvalla var kom-
ið við á Nesjavöllum og virkjunin
skoðuð í boði Hitaveitu Reykjavík-
ur. Eftir skoðunarferð um virkjun-
ina var öllum boðið í kaffi á Nesja-
völlum. Starfsfólk Toyota hafði
einstaklega gaman af þessari ferð
og Þingvellir skörtuðu sínu feg-
ursta með haustlitum sem spönn-
uðu nánast allt litrófíð,“ segir í
frétt frá Toyota.
VIN-K (f.v.) Gunnþór Sigurðsson,
Gunnar Erlingsson og Mike
Pollock.
VIN-K á 22
Rokksveitin VIN-K heldur tón-
leika á veitingahúsinu 22 Lauga-
vegi 22 fimmtudaginn 1. október.
Einnig koma fram skyggnulýs-
ingarmaðurinn GAK og dúóið
SUKKAT. Tónleikarnir hefjast kl.
22.30. Aðgangur er ókeypis.
----» ♦ ♦----
Bogomil
Font á
Púlsinum
BOGOMIL Font og hljómsveit
hans, Milljónamæringarnir, leika
á Púlsinum í kvöld, fimmtudags-
kvöld. Tónleikarnir verða sendir
út í beinni útsendingu í þættinum
Púlsinn á Bylgjunni - íslenskt i
öndvegi. Tónleikarnir hefjast kl.
22 og standa u.þ.b. til kl. 24.
Bogomil Font hafa ákveðið að
taka hlé á tónléikahaldi í bili vegna
fyrirhugaðrar tónleikaferðar með
rokkhljómsveitinni U2 en söngvar-
inn Bogomil er Sigtryggur Baldurs-
son, trommuleikari Sykurmolanna.
Hljómsveitina Milljónamæringana
skipa þeir Sigurður Jónsson, saxa-
fónleikari, Astvaldur Traustason,
píanóleikari, Úlfar Haraldsson,
bassaleikari og Steingrímur Guð-
mundsson, trommuleikari.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Tískuverzlunin Mari
opnuð á Hverfisgötu
NÝ tízkuvöruverzlun, Mari, hef-
ur verið opnuð að Hverfisgötu
52 í Reykjavík. Verzlunin selur
einvörðungu klæðnað frá ítalska
tízkuhúsinu Max Mara.
Að sögn Þóru Emilíu Ármanns-
dóttur og Kristbjargar Ólafsdóttur,
eigenda Mara, hæfir klæðnaður frá
Max Mara konum á öllum aldri og
er lögð áherzla á fallega hönnun
og vönduð efni. í verzluninni verða
tvær fatalínur í boði, annars vegar
Max Mara, sem er sígildur fatnað-
ur, og hins vegar Sportmax, sem
er fatnaður hannaður í frjálsfegri
stíl. Næsta vor á þriðja línan, Week-
End, að bætast við. Mikið úrval
verður af kápum, frökkum, drögt-
um, stökum jökkum, pilsum, síð-
buxum, blússum og peysum. Yfir-
leitt er um 2-3 flíkur af hverri gerð
að ræða, að sögn eigendanna.
Max Mara er með virtari tízku-
húsum í Evrópu, stofnað 1951. Frá
1963 hafa starfað þar margir
þekktir hönnuðir, svo sem Lison
Bonfils, Graziella Fontana, Jacques
Delahaye, Karl Lagerfeld, Jean
Charles de Castelbajac, Emmanu-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tízkuverzlunin Mari á Hverfis-
götu.
elle Kahn, Guy Paulin og Anne-
Marie Beretta. Um 300 verzlanir
um allan heim selja eingöngu föt
frá Max Mara.
Eigendur Mara hafa boðið upp á
'þá nýbreytni að viðskiptavinir geti
pantað tíma utan hefðbundins af-
greiðslutíma og segja þær margar
konur ánægðar með þetta fyrir-
komulag.
íslensk verslun
Fundur um niðurfell-
ingu aðstöðugjalds
ÍSLENSK verslun, þ.e. Félag íslenskra stórkaupmanna, Bílgreina-
sambandið og Kaupmannasamtök íslands, boðar til hádegisverðar-
fundar í dag, fimmtudaginn 1. október, kl. 12.00 í Átthagasal,
Hótels Sögu.
Hinn 19. mars sl. skipaði félags-
málaráðherra starfshóp sem fjallað
hefur um breytingar í tekjuöflun
sveitarfélaga við niðurfellingu að-
stöðugjalds. Nú nýverið skilaði
starfshópurinn skýrslu til félags-
málaráðherra um málefnið (fáanleg
á skrifstofu FÍS).
Gestir fundarins verða Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og
Óttar Yngvason framkvæmdastjóri,
formaður starfshópsins. Munu þeir
fjalla um áðurnefnda skýrslu. Að
loknum framsöguerindum verður
opnað fyrir fyrirspurnir fundar-
manna. (Fréttatilkynning)
HAUSTLITIRNIR ’92
Förðunarfræðingur kynnir G l V E N C H Y
haustlitina í dag frá kl. 12-17.
Aca
Austurstrœti, sími 14033.