Morgunblaðið - 01.10.1992, Síða 50

Morgunblaðið - 01.10.1992, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1992 KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA Fyrstatap Þórsara Stjarnan vann með einu marki á Akureyri ÞÓRSARAR töpuðu sínum fyrsta leik í 1. deild karla í handknattleik ígærkvöldi. Þeir tóku á móti Stjörnunni úr Garðabæ, sem gerði 26 mörk en heimamenn einu færra. Eg er mjög ánæður með að ná í bæði stigin hér því það er erfitt að sækja Þórsara heim. Ég er hins vegar ekki eins ánægð- ur með leik minna Anton manna því vörnin Benjaminsson var slök síðasta skrífar stundarfjórðunginn og við verðum að leika betur en þetta ef við ætlum að vera með í baráttunni," sagði Gunnar Einars- son þjálfari Stjörnunnar. „Þórsarar leika skynsamlega og skemmtileg- an handbolta,“ bætti Gunnar við. Það voru heimamenn úr Þór sem bytjuðu betur og voru með undir- tökin allan fyrri hálfleikinn. Stjörnumenn vikuðu fremur daufir og það var helst markvörðurinn, Ingvar Ragnarsson, sem hélt þeim á floti í fyrri hálfleik með góðri markvörslu. Stjörnumenn jöfnuðu strax í upphafi síðari hálfleiks og hélst leikurinn í járnum fram und- ir miðjan hálfleikinn en þá gerðu gestirnir fjögur mörk í röð og náðu tveggja marka forystu. Þórsar gáfust ekki upp og náðu með mikilli baráttu að jafna leikinn 25:25 þegar ein mínúta var til leiksloka, en Hafsteinn Bragason svaraði fyrir Stjörnuna og gerði sigurmarkið er 38 sekúndur voru eftir af leiknum. Ingvar var góður í markinu eins og áður segir og Magnús var öflug- ur í stöðu skyttu á hægri vængn- um. Skúli og Patrekur voru einnig mjög drjúgir í síðari hálfleik. Þórsliðið getur leikið betur en það gerði í gærkvöldi en þó voru þeir Sigurpáll Árni og Rúnar Sig- trygssson öflugir á vinstri vængn- um. Hermann Karlsson, markvörð- ur og fyrirliði Þórsara, sagði að sínir menn hefðu ekki náð upp sömu hörku í vörninni og í undan- förnum leikjum. „Því fór sem fór,“ sagði hann. „Við vorum ekki nógu þolinmóðir og skutum úr slökum færum. Stjörnumenn hegndu okk- ur í staðinn með því að keyra á okkur hraðaupphlaupin," sagði Hermann. Morgunblaðið/Rúnar Þór Flnnur Jóhannsson Þórsari og Stjörnumaðurinn Magnús Sigurðsson eigast við á lokasekúndum ieiksins. Þama vildu Þórsarar fá vítakast, en aukakast var dæmt. FOLK ■ BREIÐABLIK sigraði Keflavík 100:87 í síðasta leik Reykjanesmóts- ins í körfuknattleik í gærkvöldi. Þetta var eini sigur liðsins í mótinu. Egill Viðarsson var stigahæstur Blika með 25 stig en Jonathan Bow hjá ÍBK, gerði 18 stig. ■ MIKIL viðbrögð hafa verið í Bandaríkjunum við þeirri yfirlýs- ingu körfuboltakappans „Magic“ Johnson um að hann ætli að leika með Los Angeles Lakers á næsta keppnistímabili. ■ RANDY Pfund nýr þjálfari La- kers sagði að hann hafi verið búinn að skipuleggja 100 mismundandi sóknir fyrir veturinn. „Eftir að Magic talaði við mig setti ég allar fyrri hugmyndir niður í skúffu,“ sagði Pfund. ■ MARIÓ Lemieux fyrirliði Pitts- burgh Penguinses í NHL-deildinni í íshokkí skrifar væntanlega í dag undir nýjan samning við lið sitt. Samningurinn er til sjö ára og fær hann um 2,3 milljarða ÍSK í grunn- laun, eða um hundrað milljónum meira á ári en nokkur annar leik- maður í deildinni. ■ HELGI Helgason verður að öll- um líkindum næsti þjálfari 2. deild- _ arliðs BÍ frá ísafirði. Helgi hefur leikið með BÍ en var áður með Völs- ungi frá Húsavík. Hann tekur við af Amunda Sigmundssyni sem hef- ur verið þjálfari liðsins síðustu tvö keppnistímabil. „Það er svo gott sem ákveðið að Helgi taki við liðinu. Það á aðeins eftir að ganga frá formsatr- iðum,“ sagði Jóhann Torfason, for- maður BI. Spenntur fyrir að þjálfa Fram - segir Ásgeir Sigurvinsson sem hefur átt viðræður við foiráða- menn félagsins. Bjarni Jóhannsson yrði þá aðstoðarmaðurÁsgeirs FORRÁÐAMENN knattspyrnudeildar Fram hafa rætt við Ás- geir Sigurvinsson, fyrrum landsliðsfyrirliða og atvinnumenn, um að hann taki viðþjálfun 1. deildarliðs félagsins fyrir næst- as keppnistímabil. Asgeir segist spenntur fyrir því að taka við starfinu, hann kemur til landsins til frekari viðræðna í næstu viku og þá verður jafnvel gengið frá samningi. Eg er tiltölulega spenntur fyrir að þjálfa Fram, en það á eftir að ganga frá samningum endanlega. Ég kem heim til ís- lands í næstu viku til frekari við- ræðna við forráðamenn Fram,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson við Morgunblaðið í gær. „Ef ég tek að mér þjálfun liðsins verður Bjami Jóhannsson aðstoðarmaður minn. Bjami myndi þá byrja með liðið og ég kæmi svo inní þetta um leið og deildin hæfist heima næsta vor.“ Bjami þjálfaði 2. deildarlið Grindavíkur síðastliðin tvö keppnistímabil. Samningur Ásgeirs við Stutt- gart rennur út í júní á næsta ári. Hann sagðist þó reikna með að geta fengið sig lausan í apríl eða maí til að stjóma Framliðinu allt frá keppnistímabilsins hér á landi. Ásgeir hyggst áfram eiga lög- heimili í Þýskalandi, þó svo hann komi hingað í sumar, og fer aftur tU Stuttgart eftir keppnistímabilið og dvelur þar yfír vetrarmánuð- ina. Ásgeir var í Kaiserslautern og sá Evrópuleik Fram og Kaisers- lautem á þriðjudagskvöld. Eftir leikinn settist hann niður með for- ráðamönnum Fram þar sem þjálf- aramálin voru rædd. „Þar var komist að samkomulagi um að ég kæmi heim til frekari viðræðna í næstu viku,“ sagði Ásgeir. - En hvað er það sem fær þig til að taka að þér þjálfun núna? „Ég er búinn að vera starfandi hjá Stuttgart í tvö ár eftir að ég hætti að leika og farinn að hafa löngun til að gera eitthvað annað. Ég hef tekið nokkur þjálfaranám- skeið hér í Þýskalandi og svo hef ég verið mikið í kringum þjálfun- ina hjá Stuttgart. Reynsla mín sem knattspymumanns í gegnum árin ætti einnig að koma sér vel og ég ætti að geta miðlað ein- hverju af því sem ég hef fengið að kynnast á þessum tíma.“ Ásgeir sagðist hafa fengið fleiri tilboð um þjálfun frá íslenskum félögum, en vildi ekki nefna þau á þessu stigi. Bjami Jóhannsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að Framarar hefðu haft samband við sig rétt áður en þeir fóru út til Bjarni Jóhannsson Kaislersiautem. „Þetta hefur verið stutt meðganga og margir óljósir punktar í þessu enn. Það eru að- eins viðræður sem hafa farið fram en ekkert formlegt ennþá. En ég neita því ekki að þetta er mjög spennandi sem gaman væri að taka þátt í því,“ sagði Bjami. Albert Sævar Guðmundsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar Fram, sagði að málin myndu skýr- ast í næstu viku þegar Ásgeir Sig- urvinsson kæmi til landsins. „Það er vonandi að samningar náist og ég tel reyndar verulegar líkur á því. Það er gréinilegt að Ásgeir hefur áhuga og áhugi okkar er ekki minni. Það yrði mikill akkur í því fyrir íslenska knattspymu á fá hann til starfa hér,“ sagði Al- bert Sævar. Ásgelr Sigur- vlnsson segist spenntur fyrir því að taka við þjálfun Fram- llðslns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.