Morgunblaðið - 08.10.1992, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.10.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992 9 Ferð á EXPO-PESCA í Chile MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning: „í tilefni þess að ein mesta fisk- veiðiþjóð heimsins, Chilebúar, efnir til stórrar sjávarútvegssýningar í Santiago de Chile dagana 2.-5. desember nk. býður Heimsklúbbur Ingólfs ferðatilboð á sýninguna dagana 29. nóv. til 7. des. Nokkur íslensk fyrirtæki taka þátt í sýning- unni en Heimsklúbburinn aðstoðar alla sem hafa áhuga á að kynna sér hana og hið fagra land Chile um leið. Flug og gisting á fyrsta floks hóteli kostar um 140 þúsund krónur á mann að meðtalinni kynn- isferð um Santiago sem þykir ein fegursta borg Suður-Ameríku. Ingólfur Guðbrandsson telur að hægt sé að stórlækka ferðaksotnað Islendinga á erlendar sýningar séu rétt sambönd nýtt og að sem flest- ir ferðist eftir sömu áætlun." OLYMPUS Þegar hvert orð skiptir máli! PEARLCODER L200. 3 tíma upptaka, notað af læknum, lögreglu, blaðamönnum, skólafólki og fl. Margar gerðir fáanlegar. Borgartúni 22 S 61 04 50 TOSHIBA Attþú plrlrj ^ örbylgjuofn ? Þeir sem eiga TOSHIBA örbylgjuofn segja að þaö sé tækið, sem þeir vildu síst vera án. TOSHIBA eru mest seldu örbylgjuofnarnir á Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara. Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ? Við bjóðum yfir 10 gerðir af TOSHIBA örbylgjuofnum á verði og kjörum, sem allir ráða við! Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 S622901 og 622900 Tfminn má ekki taka af okkur ráðin Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri for- sætisráðuneytisins, ritar grein í Stefni, tímarit Sambands ungra sjálfstæðis- manna, undir yfirskriftinni „ísland utan EB - tíminn má ekki taka af okkur ráð- in“. Hann fjallar þar um ýmsar hliðar á aðild að Evrópubandalaginu og er ekki úr vegi að sýna þær bollaleggingar, þótt aðild íslands að EB sé ekki á dagskrá. Niðurstaða fæst aðeins í aðildarsamn- ingnm „Það er oft afar erfitt að meta ávinninginn af alþjóðlegri samvinnu ná- kvæmlega til fjár og þess vegna er ógemingur að gera tæmandi úttekt á því, hver ávinningur og kostnaður við EB-aðild er,“ segir Ólafur í grein sinni. Hann fjallar um úttekt, sem finnska ríkis- stjómin lét gera á kost- um og göllum EB-aðildar og segir síðan: „Mér sýn- ist þessi finnska skýrsla staðfesta þá skoðun, sem einnig hefur komið fram hjá öðrum þjóðum sem hyggja á aðUd, að þótt nauðsynlegt sé að gera úttekt á hugsanlegum áhrifum EB-aðildar þá fáist ekki endanleg nið- urstaða um þessi áhrif fyrr en í aðUdarsamning- unum og þau verði reyndar aldrei hægt að meta til hlítar.“ Pólitísk ákvörðun Seinna í grein sinni segir Ólafur: „Mat á hugsanlegri aðild að EB hlýtur að byggjast bæði á efnahagslegum og póli- ttskum forsendum. Þann- ig hefm- það verið hjá öUum þeim þjóðum sem upphafiega stofnuðu bandalagið og þeim sem siðan hafa sótt um aðild eða munu sækja um. Eins og áður sagði, eru efna- hagsleg áhrif vanmetin svo nákvæmt sé og því er þetta í raun pólitísk ákvörðun þegar til kast- anna kemur." Könnunarvið- ræður svara ekki öllu „í könnunarviðræðum er aldrei hægt að fá svör við öllum spumingum og kannski ekki þeim mikil- vægustu. Þetta á senni- lega við um sjávarútvegs- málin. Umræðan um hugsanlega aðild Islands að EB beinist yfirleitt strax að þessum málum og markmiði okkar um yfirráð yfir fiskimiðun- um,“ segir Ólafur. „Þetta er ekkert óeðlilegt þótt aðildarspurningin snúist auðvitað um mörg önnur atriði eins og ég hef nefnt hér að framan. Það má setja fram ýmsar skoðanir á þvi, og vera með vangaveltur um það, hvort og hvemig hags- munir okkar geti sam- rýmzt fiskveiðistefnu EB í nútið og framtíð. Þótt meginmarkmið okkar um yfirráð yfir fiskimið- unum muni væntanlega ekki breytast þá getur innlend löggjöf um mál- efni sjávarútvegsins og framkvæmd íslenzkrar fiskveiðistefnu haft áhrif á endanlegt mat okkar á stöðunni gagnvart EB. Þessir þættir geta breytzt í framtíðhmi. Auðvitað má ræða þessi mál við EB en ég tel ekki að slíkar viðræður muni skila neinum marktæk- um niðurstöðum. Við er- um því í eins konar sjálf- heldu hvað þessi mál varðar. Ég tel ekki að við getum losnað úr henni með því að fara í aðildarvíðræður til þess, eins og það heitir, „að láta reyna á það“ hvaða niðurstöðu við getum fengið. Slíkar viðræður „með fyrirvara“ geta aldrei skilað sömu niður- stöðu og þegar báðir aðil- ar ganga skilyrðislaust til samninga. Mér sýnist því að hug- myndin um aðildarum- sókn „til reynslu" sé varla raunhæf og jafnvel varhugaverð." Pólitískur meirihluti skil- yrði „Það sækir engin þjóð um aðild að Evrópu- bandalaginu nema fyrir því sé pólitískur meiri- hluti á þingi, að landið gerist aðili að EB og sá meirihluti trúi þvi að meirihluti þjóðarinnar muni styðja aðild þegar þar að kemur. Eins og áður sagði er endanleg ákvörðun þó aldrei tekin fyrr en fullfrágenginn aðildarsamningfur liggur fyrir. Umræða um. stöðu ís- lands í samfélagi þjóð- anna - og þá sérstaklega í Evrópusamvinnu - hlýt- ur jafnan að fara fram og þá í ljósi aðstæðna á hveijum tíma og þeirrar þróunar sem fyrirsjáan- leg er. Hluti af þessari umræðu verður að kanna með ýmsum hætti áhrif þess og afleiðingar fyrir markmið okkar og hags- muni að vera utan eða innan Evrópubandalags- ins. Einnig þurfum við að líta til þess metnaðar sem við sem þjóð viljum hafa á alþjóðlegum vett- vangi. Við þurfum að leggja mat á ávinning og óhag- ræði þeirra kosta sem við teljum okkur hafa, eftir þvi sem unnt er. Við þurfum að leggja raunsætt mat á það hvert er innihald efnahagslegs og pólitisks sjálfstæðis þjóðar við aðstæður í heiminum á hveijum tíma. Ákvarðanir um stöðu okkar í alþjóðlegu sam- starfi í framtíðinni verða einungis teknar að und- angenginni rækilegri umræðu og athugun á öllum hliðum þess máls. Tíminn má ekki taka af okkur ráðin í þessum efnum. Við ákveðum sjálf hvenær komið er að því að taka nýjar ákvarðan- ir,“ segir Olafur Davíðs- son. íHAUSTVÖRUR GARDEUR Stakir jakkar Pils, margar gerðir Síðbuxur, íjölbreytt úrval - trevira-buxur - ullar-buxur - stretch-buxur Hnébuxur - bermudas Ullarpeysur GEISSLER Dragtir Kápur Kápujakkar Frá DIVINA Blússur Pils Jersey-fatnaður Seidensticker blússur Jáger-Grote peysur EmDee silkiblússur Oðuntv fataverzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Opið daglega kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.