Morgunblaðið - 08.10.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
unni að athuga fengu alveg sérstaka
meðferð: „Kommúnistar! - í grænni
sauðargæru." Töfraorðið, bara að
nefna það. Upp úr því var ekki ann-
að eftir en að draga þá út í næsta
öskutunnuport og skjóta eins og
hunda. PaulJohnson talar fjálglega
um siðmenntaðar þjóðir; það ætti
að vera honum og skoðanabræðrum
hans umhugsunarefni að „forystu-
þjóð siðmenntaðra þjóða“, eða öllu
heldur stjómvöld hennar, aðstoðuðu
Pinochet við að ryðja úr vegi lýðræð-
islega kjömum forseta Chile og
myrða hann. En hvað um það. Hag-
vöxtur tók kipp og verðbólga hélst
lág. En hin sjálfvirka umbótastefna
einkaframtaksins, lét á sér standa.
í júlí sl. þurfti að loka skólum og
verksmiðjum í Santiago í tvo daga
vegna mengunar og foreldrar voru
varaðir við að láta börn sín vera
utan dyra. Af hvetju? Af því að það
er ekkert til sem heitir „einkafram-
takskerfi með sjálfvirkri umbóta-
stefnu". Nema í blautum draumum
heittrúaðra markaðshyggjumanna.
Hrokinn sem birtist í þessum orðum
Johnsons er ekki skyldur þeim sem
vísaði á bug öllum þjóðfélags- og
umhverfismeinum í Sovétríkjunum;
þetta er hann. Nákvæmlega. Reynd-
ar er óhugnanlegt hvernig þetta tal
um „markaðinn" er oftar en ekki
gjörsamlega siðblindur þvættingur.
Þegar minnst er á atvinnuleysi eða
efnalegt misrétti, þá verða menn
staurblankir í framan: sko, markað-
urinn, hann segir ... Hagsmunir,
pólitík, sanngirni, réttlæti, það leys-
ist einhvern veginn allt saman upp.
Vegir markaðarins eru órannsakan-
legir.
Kjarni málsins er sá að spurning-
arnar sem liggja fyrir eru pólitískar
o g siðferðilegar og það getur ekkert
„sjálfvirkt kerfi“ svarað þeim. Hins
vegar er hver og einn fijáls að því
hvemig hann svarar og Paul John-
son gerir það fyrir sitt leyti með
því að stinga höfðinu í sandinn.
Hann lýkur reyndar grein sinni
með því að benda á að lýðræði sé
vænlegt til vamar mengun í 3. heim-
inum og rambar þar á eina gmnd-
vallarforsendu sem til þarf. Lýð-
ræði, það var lóðið. Og eins og hand-
fylli af því fólki sem Johnson segir
hafa staðið fyrir Ríó-ráðstefnunni,
því fólki sem dró alla þjóðarleiðtoga
veraldar á einn stað - nauðuga vilj-
uga - að horfast í augu við heiminn.
Eitt lag enn
Hér hefur flestu því sem gaman
er að í grein Johnsons verið and-
mælt. Þó er eitt eftir, en það era
ummæli sem koma við nýlendu-
stefnu Vestur-Evrópuríkja. Þau eru
svona:
„Þróaðri ríkin hafa ekkert að
skammast sín fyrir. Nýlenduveldin,
sem sum þeirra ráku, vora mun
forsjálli yfirvöld en þau braðlunar-
sömu sjálfstæðu ríki sem tóku við.
Fyrstu verndaraðgerðimar gagn-
vart dýram í útrýmingarhættu era
frá árinu 1822, og til þeirra var
gripið í bresku Höfðanýlendunni í
Suður-Afríku."
Með svipaðri hundalógík mætti
segja að kjamorkusprengjan sem
hent var á Hírósíma hafi leyst mörg
vandamál borgarbúa. Menn hafa
náð fram ýmsu í umhverfismálum
síðan 1822 þótt þeir hafi haft minna
umleikis en eins og eina nýlendu-
stefnu. Nýlendustefnan hneppti
milljónir manna í þrældóm. Ný-
lendustefnan er óumdeild sem ein-
hver sú glóralausasta slátran á fólki
sem gervöll mannkynssagan kann
frá að greina. Og hún er með nokkr-
um hætti grundvöllur vestrænna
lifnaðarhátta.
A/AM, International
Prentvélar, plötugeröartækl,
setnlngartæki og flelrl
tæki fyrir prentiðnað.
Varityper
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
21
Vesturlönd bera ekki ein ábyrgð
í umhverfismálum og þau geta ekki
ein og sér „bjargað" heiminum. Þau
ein hafa hins vegar efnahagslegt
þrek, og vonandi pólitískt og sið-
ferðilegt líka, til að ráða úrslitum -
en nauman tíma.
Lifnaðarhættir Vesturlandabúa
era óhæfir til útflutnings og þeir
þurfa að breytast. Breytingarnar
ganga ekki út á að fórna lífsgæðum,
heldur sækjast eftir meiri lífsgæð-
um. Og hafi umhverfísvemd verið
borin uppi af vondu fólki framan
af, þá er hún löngu orðin almenn-
ingseign. Því jafnvel ofstækisfullir
hægrimenn á borð við Paul Johnson
þurfa af og til að gera hlé á sínum
formælingum og draga andann.
Höfundur er rafeindavirki.
Sænguruer: 140H20O cm
Koddauer: 50h70 cm
Hður: 1.590,- settið
RLNHUBRR
flísar
Rður allt
55W BlÉÍíríw*
iÐUBSttiáS
HFMHELISRUMIÐ . 170H200 CITl
með springdýnum
Rður: 34.890
d Skeifan 13 Auðbrekku 3 óseyri 4 q)
0 108 Reykjavík 200 Kópavogi 600 Akureyri^