Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992 38 t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR SIGURGEIRSSON, Droplaugarstöðum, andaðist á Droplaugarstöðum þann 6. október sl. Sigurgeir Þórðarson, Jóna Kristinsdóttir, Theódóra Þórðardóttir, Þorleifur K. Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Maðurinn minn og faðir okkar, GÚSTAFLÁRUSSON, er látinn. Kristjana Samúelsdóttir og börn. Bróðir okkar, GUNNAR SIGURÐSSON, Lftlahvammi, Mýrdal, lést í Landspítalanum 4. október. Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 10. október kl. 14.00. Systkini hins látna. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNAS ÞÓRÓLFSSON, Lynghaga, Miklaholtshreppi, andaðist 2. október. Útförin fer fram frá Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 10. októ- ber kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Guðriður Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, bróðir og tengdasonur, KRISTJÁN MATTHÍAS GUÐJÓNSSON, Barðaströnd 8, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, fimmtudaginn 8. október, kl. 13.30. y Hrafnhildur V. Garðarsdóttir, Hólmfríður Benediktsdóttir, Guðjón M. Jónsson, Magnús Benedikt Guðjónsson, Svanhvft Árnadóttir, Garðar Jóhannsson. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS EIRÍKSSON fyrrum bóndi á Skúfslæk, verður jarðsettur frá Villingaholtskirkju laugardaginn 10. október kl. 14.00. Blóm vinsamiegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Orgelsjóð Villingaholtskirkju. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdasonur og mágur, KARLJ. BIRGISSON, Hrauntúni 31, Vestmannaeyjum, lést af slysförum laugardaginn 26. september. Minningarathöfn fer fram frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laug- ardaginn 10. október kl. 14.00. Sigrfður Bjarnadóttir, Kolbrún Stella Karlsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Esther Birgisdóttir, Ólafía Birgisdóttir, Lilja Birgisdóttir, Kristín Haraldsdóttir, Haraldur Bjarnason, Ari Bjarnason, Haraldur Ari Karlsson, Birgir Jóhannsson, Stefán Agnarsson, Óskar Freyr Brynjarsson, Marinó Traustason, Bjarni Arason, Katrfn R. Frímannsdóttir, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir. Minning Reynir M. Einarsson Fæddur 27. mars 1956. Dáinn 27. september 1992. Það haustar að, trén fella lauf sitt og þungbúin ský sigla um him- inninn. Sumarið er búið. Það haustaði líka snemma hjá vini mínum og laufin féllu af lífstré hans. Reynir Már Einarsson, sem mig langar að minnast með örfáum lín- um, fæddist í Reykjavík þann 27. mars 1956, sonur hjónanna Einars Guðmundssonar leirkerasmiðs og Jóhönnu Kristínar Oddsdóttur sem lést þann 3. september síðastlið- inn. Það er mikill harmur kveðinn að fjölskyldunni í Eskihlíð 20 á skömmum tíma; fyrst að sjá á bak ástkærri eiginkonu og móður og síðan í sama mánuði kærum synir og bróður. Reynir Már var annað barn þeirra hjóna Einars og Jó- hönnu og eftir lifa þau Guðmund- ur og Guðbjörg. Reynir Már ólst upp í foreldra- húsum en dvaldi lengi hjá ömmu sinni, Guðbjörgu Eiríksdóttur, sem enn lifir í hárri elli. Hann naut þeirrar víðsýni og hlýju sem ávallt hefur auðkennt bæði heimilin. Reynir Már varð fljótt unnandi fagurra lista og náttúrunnar enda átti hann ekki langt að sækja list- + Elsku drengurinn okkar, GUÐMUNDUR ÓLI HAUKSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. október kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Fræðslu- og minningarsjóð í hans nafni, sem hefur það hlutverk að hjálpa börnum, sem haldin eru ótta eða fælni. Ávfsanareikningur sjóðsins er nr. 240 í Búnaðarbanka íslands í Kópavogi. Birna Bjarnadóttir, Haukur Ingibergsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÉTAR SVEINBERGSSON bifreiðastjóri, Skúlabraut 27, Blönduósi, lést 2. október síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 10. október kl. 16.00. Guðrún Steingrímsdóttir, Steingrimur Albert Grétarsson, Esther Arnardóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Auður Sandra Grétarsdóttir, Grétar Bragi Steingrímsson. + Hjartkær bróðir okkar og mágur, EGGERTTHEODÓRJÓNSSON, sem lést 28. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. október kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á kristniboð. Kristin S. Jónsdóttir, Kornelíus Jónsson, Sigríður Pétursdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Trausti Guðjónsson, Kristrún S. Jónsdóttir, Anna G. Jónsdóttir, Björgvin Eiriksson og fjölskyldur. + Frænka okkar, PÁLÍNA GUÐRÚN ÞORGILSDÓTTIR frá Kleifárvöllum, sfðast til heimilis í Hátúni 10b, lést 1. október. Minningarathöfn verður f Fossvogskapellu föstudaginn 9. október kl. 13.30. Jarðað verður frá Fáskrúðarbakkakirkju 10. október kl. 17.00. Bílferð verður frá Fossvogskirkju kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hansina Þóra Gfsladóttir, Hansfna Ósk Lárusdóttir. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR HALLGRÍMSSON, Kaupvangsstræti 3, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 8. október, kl. 13.30. Sigrfður Þorvaldsdóttir, Ólafur Larsen, Halla Þorvaldsdóttir, David Jakes, Gunnar Þorvaldsson, Katrfn Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. gáfur og náttúruskoðun þar sem afi hans, listamaðurinn Guðmund- ur Einarsson, hefur verið honum góð fýrirmynd. Félagslyndur var Reynir Már með afbrigðum og unnandi ljúfs lífs. Greiðvikni hans var við brugð- ið; hann var ávallt reiðubúinn að leggja góðu máli lið eða rétta hjálparhönd ef eitthvað þurfti að mála eða laga hjá vinum og félög- um. Reynir Már stundaði almenna skólagöngu og byrjaði í mennta- skóla en hætti þar og hóf störf í tölvudeild Skeljungs hf. Ungur hleypti Reynir Már heimdraganum og fluttist til Kaupmannahafnar með vini sínum Veturliða Guðna- syni. Þar starfaði Reynir Már í tölvudeild Det Ostasiatiske Kompagni í fjögur ár. Á Kaup- mannahafnarárunum voru húsa- kynni þeirra ætíð opin öllum vina- og kunningjaskaranum, sem átti leið um, og eru þeir ófáir félagam- ir sem nutu gistivináttu þeirra í lengri eða skemmri tíma. Eftir heimkomuna sagði Reynir Már skilið við tölvurnar og lét þann draum sinn rætast að reka leirkeijaverkstæði og stundaði jafnframt framreiðslustörf. Ég hafði þá ánægju að kynnast Reyni Má fyrir um það bil tíu ámm og allan þann tíma bar aldrei skugga á vináttu okkar. Þær eru ófáar ánægjustundirnar sem við áttum á þessum árum, bæði við störf að félagsmálum og öðrum áhugamálum okkar. Um listir var ávallt gaman að ræða við Reyni Má. Hann var óþrótandi brannur upplýsinga og fróðleiks um þessi málefni enda víðlesinn í listasögu og hafði kynnt sér listasöfn bæði heima og erlendis. Einnig var oft spjallað um ferðlög og útivist enda málefni hugstætt báðum. Reynir Már naut þess í ríkum mæli að ferðast um landið og njóta fegurð- ar þess. Á síðasta ári þegar Reynir Már sá að hveiju stefndi með þann mannskæða sjúkdóm sem hann var haldinn komu eiginleikar Reynir Más best í ljós. Hann fyllt- ist eldmóði til að njóta hvers dags til fullnustu. Það var aðdáunarvert að sjá hann nýta hvern dag sum- arsins til að fegra heimili sitt og prýða garðinn. Nú er komið að leiðarlokum og sjúkdómur sá, sem engum eirir, hefur lagt Reyni Má að velli. Ég bið góðan Guð að styrkja ástvini hans í sorg þeirra og veita þeim blessun sína. Reyni Má kveð ég með söknuði og þakka ánægjulega samferð. Minning um góðan dreng lifir í bijóstum okkar allra. K.S. Reynir Már var jarðsunginn í kyrrþey 1. október síðastliðinn. Vinir Reynis Más koma saman og minnast hans að kvöjdi laugar- dagsins 10. október í Ásmundar- salnum við Freyjugötu. ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð sími 620200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.