Morgunblaðið - 08.10.1992, Page 49
MORGUNBLÁÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ll 11 aiGA.iaviuoflOM
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
4&_
KNATTSPYRNA
í
I
I
I
í
Mikil-
vægur
sigur
- sagði Panagoulias
þjálfari Grikkja
GRIKKIR fögnuðu gífurlega eftir
að flautað var til leiksloka og í
búningsklefanum ríkti mikil
gleði. Leikmenn, þjálfarar og
aðstoðarmenn föðmuðust og
kysstust í bak og fyrir eins og
Grikkja er siður.
Eg held að í kvöld höfum við stig-
ið mikilvægt skref í átt að úrsli-
takeppninni í Bandaríkjunum 1992,“
sagði Alketas Panagoulias þjálfari
Grikkja við Morgunblaðið eftir leik-
inn. „Ég var reyndar ekkert allt of
glaður með leikinn sem slíkann en
því ánægðari með úrslitin," bætti
hann við.
„Þetta var geysilega erfiður leikur
og ég vissi það fyrirfram því ég sá
leik Islands og Grikklands í Aþenu
í vor og þá sá ég að íslensku leik-
mennimir voru í mjög góðri lík-
amlegri þjálfun og að þeir eru sterk-
ir. Það sannaðist í kvöld, íslenska
liðið lék ágætlega og ég er ánægður
með að við skyldum ná að halda út
þegar þeir pressuðu okkur hvað
mest í upphafi leiks. Vörnin hjá okk-
ur var traust og lék af mikilli yfir-
vegun þannig að ísland fékk ekki
mörg færi.
Sigurinn er sérstaklega mikilvæg-
ur fyrir leikmennina því nokkrir Ieik-
menn mínir hafa ekki leikið marga
landleiki og það urðu nokkrir eftir
heima sem gátu ekki komið með í
þessa ferð þannig að sjálfstraustið
verður í lagi hjá liðinu í næsta leik,“
sagði Panagoulias.
Þegar hann var spurður um leik-
menn íslenska liðsins sagði hann:
„Ég þekkti einn leikmann, „Siggi
Gretars" og þegar hann lék á Grikk-
landi vildi ég fá hann til mín í liðið
sem ég þjálfaði. Það eru fimm eða
sex mjög góðir leikmenn í íslenska
liðinu og í kvöld léku þeir Siggi,
þessi frá Tottenham [Guðni Bergs-
son] og sá frá Anderlecht [Arnór
Guðjohnsen] mjög vel og reyndar
fleiri. Ég var hræddur fyrir leikinn
og því var sigurinn enn sætari. Við
erum búnir að sigra í báðum leikjum
okkar í riðlinum, erum með 100%
árangur og núna höfum við forskot
á ísland, sem margir töldu líklegast
til að verða í öðru sæti og komast
áfram. Ég er feginn að við erum
búnir að ná svona góðum árangri
gegn íslandi því ég er sannfærður
um að öll liðin í riðlinu, meira að
segja Rússar, lenda í vandræðum í
Reykjavík," sagði Panagoulias.
Ánægjulegt mark
Panagiotis Tsalouhidis (nr. 8) var
vel fangað eftir leikinn en hann gerði
mark Grikkja. Hann hafði áður gert
tíu mörk fyrir Grikkland í þeim 46
landsleikjum sem hann hafði leikið.
Hann var að vonum kátur eftir sigur-
inn. „Þetta mark var eiginlega ósköp
venjulegt fyrir mig. Ég og Nikolaos
Tsiantakis [nr. 7] sem gaf fyrir á
mig erum í sama liði, leikum báðir
með Olympiakos, og við höfum gert
mörg svona mörk í gegnum tíðina.
Hann komst upp undir endamörk
og sendi fyrir. Við þekkjumst ngög
vel og því var þetta eiginlega sjálf-
gefið," sagði Tsalouhidis við Morg-
unblaðið.
„Leikurinn var gríðarlega erfiður
og við vissum það reyndar fyrir. ís-
lenska liðið lék hratt framan af leik
en okkur tókst að stöðva þá og beyta
skyndiupphlaupum. Þetta voru því
mikil hlaup en við komumst í gegn-
um prófið, erum með fjögur stig
eftir tvo leiki. Sigurinn var mjög
mikilvægur fyrir okkur því íslend-
ingar voru taldir sigurstranglegri
fyrir leikinn, en nú erum við með
forskot á þá í baráttunni um sæti á
HM,“ sagði Tsalouhidis.
Svelnbjön Hikonarson kom inná sem varamaður og lék sinn fyrsta leik í heimsmeistarakeppni. Hér er hann í baráttu um knöttinn. MorK“ntlaí>'fl''Kristinn
Sárt ad þurfa að tapa
- sagði Sigurður Grétarsson, f/rirliði íslenska landsliðsins
„ÞAÐ var sárt að þurfa að tapa
þessum leik,“ sagði Sigurður
Grétarsson, fyrirliði íslenska
liðsins. „Við höfðum góð tök á
leiknum en Grikkir skoruðu úr
eina færinu sem þeir fengu.
Sanngjörn úrslit hefði verið
jafntefli og Grikkir hefðu verið
ánægðir með það. En ég heid
að við höfum ætlað okkur um
of í seinni hálfleik."
Sigurður sagði að eftir markið
hefði þurft að taka áhættu.
„Við vorum þá nær því að jafna en
þeir að bæta við. Við náðum þó ekki
opnum færum. Eyjólfur náði nokkr-
um sinnum að skalla til baka inní
vítateignum en það vantaði að fylgja
því eftir. En það þýðir ekkert að
hengja haus yfir þessum úrslitum.
Það lögðu sig allir fram og börðsut
vel.“
Of óþolinmóðir
Þorvaldur Örlygsson sagðist
ánægður nieð leik íslenska liðsins
lengst af. „í fyrri hálfleik var aðeins
eitt lið á vellinum og þá var mikil
vinnsla hjá okkur. Við vorum
kannski of óþolinmóðir í síðari hálf-
leik og markið drap okkur gjörsam-
lega. Þeir bökkuð eftir markið og
við urðum að flýta okkur en náðum
ekki að nýta okkur það þó svo að
þeir væru einum færri síðustu mín-
útumar. En það kemur annar leikur
eftir þennan. Við sýndum það í fyrri
hálfleik að við getum spilað vel sam-
an. Nú reynum við að gleyma þess-
um leik sem fyrst og snúum okkur
að Rússum." sagði Þorvaldur.
Ekki nógu grimmir
„Þessi leikur var ekki nægilega
góður hjá okkur. Við hefðum aldrei
þurft að fá á okkur þetta mark,“
sagði Eyjólfur Sverrisson. „Við vor-
um ekki nógu grimmir í þá úti á
vellinum. Þeir voru mun harðari eins
og sést á spjöldunum sem þeir fengu.
Ég fékk lítinn frið - var togaður
niður eða þá sparkaður niður. Við
vorum óheppnir og náðum ekki að
skapa okkur færi. Völlurinn var
blautur og því erfiður og bauð ekki
Morgunblaðið/Bjami
SlgurAur Grétarsson.
upp á stutt spil og því reyndum við
meira langar sendingar fram. Hætt-
an var sú að tapa ekki boltanum
aftarlega því þá gátu skapast vand-
ræði. Nú verðum við bara að vinna
næsta útileik gegn Rússum til að
eiga möguleika í riðlinum."
Eyjólfur hefur staðið í ströngu að
undanfómu og er nýlega stiginn upp
úr meiðslum í kálfa og var vafinn í
leiknum. „Það er spenna í vöðvanum
og hann er eins og grjót. En þetta
Morgunblaðið/Bj ami
Þorvaldur Örlygsson.
háði mér ekki í leiknum." Hann hélt
til Barcelona í morgunn þar sem
hann leikur með Stuttgart gegn
Leeds annað kvöld.
Þarf færi tíl að skora
„Við þurfum að skapa okkur færi
til að geta skorað og það vantaði í
þessum leik,“ sagði Rúnar Kristins-
son. „Við héldum boltanum vel frá
vöm og fram að miðju en boltinn
gekk ekki nægilega vel frá miðju
Morgunblaðið/Bjami
Rúnar Krlstinsson.
að sókn. Við náðum ekki fyrirgjöfum
eða gegnumbrotum. Það var eins og
við hefðum ekki trú á því að við
gætum þetta. Það virðist ekki henta
okkur að stjóma leiknum. Við fáum
á okkur eina skyndisókn og mark.
Við fómm of mikið útúr stöðum
okkar í síðari hálfleik til að reyná
að opna vörnina hjá þeim. Við hefð-
um getað hangið á jafnteflinu en
menn höfðu vilja til að vinna,“ sagði
Rúnar.
IMýliðamir mætast
í fyrstu umierð
Nýliðarnir í 1. deildinni í knatt-
spymu, ÍBK og Fylkir mæt-
ast í fyrstu umferð mótsins, en
dregið var um töfluröð í gær. í
annari deild mætast nýliðarnir
einnig, þ.e.a.s. liðin sem féllu úr
þeirri fystu. í fyrstu umferð í
fyretu deild leika ÍBV - Fram, ÍBK
- Fylkir, Valur - Víkingur, FH -
ÍA og KR - Þór.
í síðustu umferð leika Fram
KR, ÍBV - Fylkir, ÍBK - Víkingur, Tindastóll - ÍR.
Valur - ÍA og FH - Þór.
Einnig var dregið um töfluröð í
2. deild og þar leika í fystu um-
ferð Grindavík - Þróttur, Breiða-
blik - KA, Stjaman - Leiftur, BÍ
Grótta/Þróttur Neskaupstað og