Morgunblaðið - 04.11.1992, Side 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1992
EFNI
Gúrkur ræktaðar við raflýsingu í Hveragerði
Hægtað
framleiða
allt árið
MEÐ ÞVÍ að nota raflýsingu
við ræktun á gúrkum má fá
helmingi meiri uppskeru á ári
en næst með hefðbundinni að-
ferð. Óttar Baldursson, garð-
yrkjumaður í Gróðurmörk 4 í
Hveragerði, setti upp raflýs-
ingu í einu gróðurhúsa sinna
og stefnir að þvi að framleiða
70-90 kíló af gúrkum á fer-
metra í stað 30—35 kílóa með
hefðbundinni aðferð.
Óttar plantaði út í húsið 2. sept-
ember þegar rafljósabúnaðurinn
var tilbúinn í húsið og fékk fyrstu
uppskeruna 26. sama mánaðar en
það er sami tími og gerist um
hásumar við hefðbundna ræktun.
Óttar kynnti sér raflýsingu í
Noregi og samkvæmt kokkabók-
um þaðan verður framleiðslan
helmingi meiri yfír árið. Með því
að nota raflýsinguna segist Óttar
ná jafnari framleiðslu yfír árið og
ná meiri veltu út úr fjárfesting-
unni. Þegar framleitt er í gróður-
húsinu allt árið þarf að skipta
þrisvar um plöntur í húsinu.
Kostnaður við uppsetningu ljós-
anna var um 1,8 milljónir í 380
fermetra húsi, eða um 4.700 krón-
ur á fermetra, en kostnaður við
nýtt gróðurhús er um 11 þúsund
krónur á fermetra. Óttar segir
ljósabúnaðinn því gefa möguleika
á mun meiri nýtingu á fjárfesting-
unni.
Óttar sagðist fá raforkuna á
víkjandi taxta hjá RARIK sem
felur það í sér að slökkva þarf í
húsinu á álagstoppum. Ef allt
gengur upp og verðið á gúrkunum
verður gott sagði Óttar að fram-
leiðslan ætti að borga sig. Hann
sagði rafljósagúrkur sínar keppa
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Óttar Baldursson garðyrkjumaður með nýjar haustgúrkur.
við innfluttar gúrkur yfír vetrar-
tímann og sagði þá samkeppni
leggjast vel í sig. Fólk mætti hafa
í huga að gúrkurnar frá honum
spöruðu gjaldeyri.
Sig. Jóns.
Aðgerðir til
að ná fram
betri lgörum
Lögreglan enn með
lausa samninga
ALMENNUR fundur í Lögreglu-
félagi Reykjavíkur samþykkti í
vikunni ályktun þar sem heitið
er fulllum stuðningi við hveijar
þær aðgerðir sem nauðsynlegar
séu til að ná fram betri kjörum
fyrir stéttina hafi samningar
ekki tekist fyrir miðjan nóvem-
ber næstkomandi. Lögreglu-
menn drógu sig út úr samfloti
félaga í Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja við samningagerð-
ina í vor og hafa samningar ekki
tekist síðan.
Jón Pétursson, formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur, segir að
lögreglumenn hafi ekki getað verið
' aðilar að kjarasamningunum í vor
vegna vanefnda á samningi við lög-
reglumenn þegar þeir afsöluðu sér
verkfallsrétti. Að auki vildu lög-
reglumenn fá greidda áhættuþókn-
un vegna starfa sinna, en þau kjör
sem lögreglunni væru boðin upp á
væru ekki réttlát.
Aðspurður hvaða aðgerðir kæmu
til greina ef ekki tækjust samning-
ar, sagði Jón að það væri annað
mál og það yrði ekki sýnt á þau
spil fyrr en þar að kæmi.
♦ ♦-»-
Bílvelta á Sval-
barðsströnd
FÓLKSBIFREIÐ kastaðist út af
veginum og valt á Svalbarðs-
strönd, austan Eyjafjarðar, á sjö-
unda tímanum í fyrrakvöld.
Tveir menn voru í bílnum og
voru þeir fluttir á sjúkrahús til
læknisskoðunar en þeir virtust þó
hafa sloppið við alvarleg meiðsl.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
hefur bíllinn kastast um 30 til 40
metra út fyrir veginn og oltið. Er
hann mikið skemmdur og óökufær.
Þrotabú Stálfélagsins
Lokauppboð verður
líklega haldið eftir
tvær til þrjár vikur
REIKNAÐ er með að þriðja og
síðasta nauðungaruppboð á
eignum þrotabús íslenska stál-
félagsins verði haldið eftir tvær
til þrjár vikur en eins og fram
kom í Morgunblaðinu síðastlið-
Sophia sá
ekki dæt-
ur smar
HALIM Al, fyrrum eigin-
maður Sophiu Hansen, kom
ekki með dætur þeirra til
fundar við hana í gær. Er
það í 9. sinn sem hann brýt-
ur gegn umgengnisrétti
Sophiu.
Halim A1 kom ekki með
stúlkurnar til Sophiu á tilsett-
um tíma og feðginin fundust
ekki við leit í Istanbúl. Sophia
hélt upp á 10 ára afmæli
Rúnu, yngri dóttur sinnar,
með systkinum sínum, blaða-
manni frá kvennablaðinu Kim
og lögreglufulltrúa, sem sá um
leitina að stúlkunum, í gær-
morgun.
inn fimmtudag hefur banda-
ríska stáliðjufyrirtækið St. Lou-
is Colddrawn hætt við að kaupa
verksmiðjuna þar sem kostnað-
ur við brotajárnsöflun og sjó-
flutninga til Bandaríkjanna
þótti of hár miðað við þær áætl-
anir sem fyrirtækið hafði gert.
Sænski SE-Banken, sem er
einn af stærstu kröfuhöfum Stál-
félagsins, hefur afturkallað áfrýj-
un sína á öðru uppboði eignanna
sem átti að taka fyrir í Hæsta-
rétti nú í októbér og er því ljóst
að þriðja og síðasta uppboðið get-
ur farið fram og verður væntan-
lega haldið eftir tvær til þijár vik-
ur, samkvæmt upplýsingum Helga
Jóhannessonar bústjóra.
Talsverður fjöldi fyrirtækja
bæði í Evrópu og Bandaríkjunum
hafa sýnt áhuga á verksmiðju
Stálfélagsins frá því að eignirnar
voru auglýstar til sölu í tímaritinu
Metal Bulletin síðastliðinn vetur
en stærstu lánardrottnar félags-
ins, tveir sænskir bankar, hol-
lenski bankinn Mees & Hope, Bún-
aðarbankinn og Iðnþróunarsjóður,
hafa staðið sameiginlega að sölu-
tilraunum á undanfömum mánuð-
um.
Að sögn Helga eru engar við-
ræður í gangi í dag. Verður þeim (
væntanlega ekki haldið áfram fyrr
en að loknu uppboði.
Morgunblaðið/Þorkell
Bandaríkjamaðurinn James Perry og Magnús Ver Magnússon
reyna með sér í gærmorgun.
Sterkasti maður heims
Hart barist á loka-
spretti keppninnar
MAGNÚS Ver Magnússon féll úr fyrsta sæti í annað til þriðja
sæti í keppninni um titilinn Sterkasti maður heims eftir fyrstu
keppnisgrein gærdagsins. Fólst hún i að halda þungri exi fyrir
framan sig við Höfða.
Magnús varð í 7. sæti og bætti Suður-Afríkubúinn Gerrit Baden-
því aðeins 4 stigum við þau 42 horst.
sem hann hafði fyrir. Samtals var Tvær keppnisgreinar voru eftir
Magnús þá með 46 stig eða jafn þegar blaðið fór í prentun í gær.
mörg og Bretinn Jamie Reeves. Fólust þær í að draga 14 tonna
Forystu hafði Hollendingurinn Fokker-flugvél á Reykjavíkur-
Van der Parre, sem vann fyrstu flugvelli og hlaupa með Húsafells-
keppnisgreinina í gær, með 47 helluna á Þingvöllum.
stig. Fjórði með 4572 stig var
Það er eitthvað að
►Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, telur að taka þurfi
íslensku skólalöggjöfinatil um-
fangsmikillar endurskoðunar því
ýmsar brotalamir séu í skólakerf-
inu./ 10
Hömlur settar á Sam-
bandið
►Samband íslenskra samvinnufé-
laga virðist ætla að hverfa úr ís-
lensku viðskiptalífi án þess að til
pólitískra eða annarra stórátaka
komi./ 12
Nútíma nornaveiðar?
►Miklar umræður hafa orðið um
blóðskömm og meðferð slíkra mála |
í Danmörku að undanfömu og
sýnist sitt hveijum./ 14
Prófessor Sigrún
►Sigrún Amdradóttir er aðeins
27 ára gömul og hefur undanfarin
tvö ár verið prófessor við Fylkis-
hásklólann í Madison, Wiscons-
in./18
Að gera hlutina rétt
►Margir laxastigar og fiskvegir
hafa verið gerðir á íslandi með
misjöfnum árangri. Hér segir frá
velheppnaðri laxarækt í Mið-
firði./20
Við eigum alltaf val
►Rætt við fíknimálaráðgjafann
og rithöfundinn Melody Beatty./24
B
► 1-28
Féll fyrir Islandi
►Peter Jennings, einn virtasti
sjónvarpsfréttamaður Bandaríkj-
anna, segir hér frá ást sinni á ís-
landi, jafnframt því sem hann
greinir Morgunblaðinu frá ríkjandi
viðhorfum bandarísku þjóðarinnar
í kosningabaráttu þeirra George
Bush, Bandaríkjaforseta, og Bill
Clintons, ríkisstjóra í Arkansas,
þar sem hann telur líklegt að Clint-
on leggi Bush að velli./l
Kósakkarnir koma
►Áhrif Kósakka í Rússlandi hafa
stöðugt aukist síðan upplausn Sov-
étríkjanna hófst og nú krefjast
þeir sams konar sjálfstjómar og
fyrir byltinguna 1917./4
Húsið við veginn
►Rætt við hjónin Snorra Ingi-
marsson lækni og Kolbrúnu Finns-
dóttur í Ásgarði í Skagafirði./6
Heilsudagar í Hvera-
gerði
►Með munnherkjur af stressi
koma menn á heilsudaga í Hvera-
gerði en fara þaðan sléttir í fram-
an og fullir af fróðleik um eigin
heilsu./lO
Berglitir og birtuspil
► í þverhníptum björgum Vest-
mannaeyja má víða finna ótrúleg
náttúruundur og hefur Sigurgeir
verið iðinn við að festa þau á
filmu./14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 13c
Leiðari 22 Fóik í fréttum 18c
Helgispjall 22 Myndasögur 20c
Reykjavíkurbréf 22 Brids 20c
Minningar 26 Stjömuspá 20c
íþróttir 38 Skák 20c
Útvarp/sjónvarp 40 Bió/dans 21c
Gárar 43 Bréf til blaðsins 24c
Mannlífsstr. 8c Velvakandi' 24c
Dægurtónlist 12c Samsafnið 26c
INNLENDARFI ÍÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
I
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
► Lyfsalinn myrti sendisveininn til
ijár og sendi líkið í grænsáputunnu
til Ameríku./16