Morgunblaðið - 04.11.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
7
Loðnuaflinn og verðmæti hans 1982-92
\ Mil'iarðar
Veromæti ^
A verðlagi 1992.
Miðaðervið4
þús. hvert tonn
V 4W
1000
þús. tonn
upp ur s o
Landssöfnun til styrktar Sophiu
Rúmar tvær millj
ónir hafa safnast
Loðnuaflinn
Aflaverðmæti í ár svipað og 1989
MEÐ ákvörðun um aukningu
loðnuaflans á þessari vertíð er
yóst að verðmæti hans verður
svipað og árið 1989 en talsvert
minna en árin 1984-88 þegar veiði
var sem mest. Miðað við að um
4.000 krónur fáist fyrir tonnið af
loðnu upp úr sjó er verðmæti
loðnuaflans á þessu fiskveiðiári
um 2,6 milljarðar króna en árið
1989 nam verðmætið um 2,7 millj-
örðum reiknað til núvirðis.
Þegar skoðuð er tafla yfir þróun
aflaverðmætis loðnuaflans á síðustu
tíu árum, mælt á núvirði, kemur í
ljós að hámarki náði það árið 1985
eða tæplegá 4 milljörðum króna enda
aflinn það ár tæplega milljón tonn.
Hinsvegar var nær ekkert veitt af
loðnu árið 1982 og aflaverðmætið
það ár aðeins 52 milljónir króna.
Ef skoðuð eru árin 1991 og 1992
hvað hlutdeild loðnuaflans í verð-
mæti heildaraflans vegur þungt kem-
ur í ljós að þessi afli nú eykur heildar-
aflaverðmætið um 7% á milli þessara
ára. f krónum talið eru þetta 1,5
milljarðar króna sem bætast við afla-
verðmætið sökum hinnar miklu
aukningar á loðnuaflanum.
RÚMAR 2 milljónir króna
höfðu safnast í landssöfnun til
styrktar málarekstri Sophiu
Hansen í Tyrklandi um kl. 16
í gær. Flest framlög höfðu
komið frá einstaklingum en
hæsta framlagið nam 400.000
kr.
„Við erum yfir okkur ánægð
með söfnunina það sem af er. Nær
eingöngu einstaklingar hafa
hringt eða haft samband en þó
hafa nokkur fyrirtæki sent okkur
geninga. Stærsta sendingin er frá
Ómari Kristjánssyni í Þýsk-
íslenska, 400.000 kr, og 50.000
kr. frá starfsmannafélagi Toyota.
Síðan komu 32:500 kr. frá starfs-
mannafélagi reiknisstofu bank-
anna, 25.000 frá Kentucky," sagði
Sigurður Pétur.
Vegna mikils áhuga var ákveðið
að taka við framlögum í síma
684455 fram til miðnættis fyrsta
söfnunardaginn og verður svo
næstu daga að minnsta kosti.
Söfnunin, sem hófst á mánudag,
stendur yfir í tvær vikur.
Stöðvaður á
140 km hraða
ÖKUMAÐUR um tvítugt var
stöðvaður á Sæbraut í Reykja-
vík aðfaranótt mánudagsins
þar sem hann ók á rúmlega
140 km hraða á klukkustund.
Hann var færður á lögreglu-
stöð og þar var hann sviptur
ökuréttindum.
Að sögn lögreglunnar stendur
yfir umferðarátak þessa dagana
og beinist það gegn ýmsum um-
ferðarlagabrotum. Meðal annars
verður sérstaklega hugað að því
að draga úr umferðarhraða á göt-
um borgarinnar.
íslandskortið frá 1566, sem boðið
verður upp hjá Sothesby’s síðar
í mánuðinum.
Sotheby’s í London
*
Islandskort
frá 1566 á
uppboði
MEÐAL sjaldgæfra muna, sem
boðnir verða upp hjá Sotheby’s í
London fimmtudaginn 19. nóv-
ember, er íslandskort frá 1566.
A uppboðinu verða boðin upp
ýmis gömul kort og myndskreyttar
ferðabækur fyrri tíma. Sem dæmi
má nefna fjögur fyrstu bindi af sex
af Civitates orbis terrarum, en sú
ritverkaröð var gefin út árið 1588.
í henni er t.d. að finna litaðar mynd-
ir af evrópskum bæjum. Áætlað verð
bókanna fjögurra er á bilinu 4,5 til
6,3 milljónir króna.
í frétt frá Sotheby’s kemur fram,
að meðal sjaldgæfra korta á uppboð-
inu verða 16. aldar kort af Irlandi,
Sikiley og íslandi. íslandskortið er
teiknað af Ferando Bertelli árið 1566
og er áætlað verð þess á bilinu
90-108 þúsund krónur. Kortið af
„Islanda" líkist í fáu því íslandi, sem
sýnt er á kortum nú til dags. Inn á
það eru færðir ýmsir merkisstaðir.
Þar má t.d. þekkja Scalholdin (Skál-
holt), Holentis (Hóla í Hjaltadal) og
Mont Helgafíel (Helgafell). Þá hefur
teiknarinn fært samviskusamlega
inn hafís norður af landinu, eða
vinstra megin við landið, eins og það
snýr á korti hans. Hér og þar eru
svo eldstöðvar færðar inn á kortið
og táknaðar með eldtungum upp úr
jörðunni. Þar er fært inn orðið
„caos“.
ara
1 992
Ivbiðurþér H
afínaélisveislu!
AF OLLUM VORUM
I > gp
wwm
kÆt, rni ctcddi
lypiúl
m
OGIAUGARDAG
SSADAGA J
mym
GÓLFTEPPI - GÓLFDREGLAR
FILT GÓLFTEPPI 2m-4m
HÖHNS parket
VEGGFÓDUR
VEGQlDUKAR 5|cm á brell!
RIMmGARDÍNÍIR plast-ál\
GÓliFDÚKAR 2m-3m-4m breiðir
VILLEROY OG BOCH gólfflísar
KVERKLISTAR 6 gerðir
LOFTRÓSIR 14 gerðir
ROWNEY Listmálaravörur
MÁLNINGAVÖRUR
Harpa-Sadolin-Polytex
lifambou
Grensásveg 11 • Sími 813500
<ð9QQ9QQQQQQQ9QQQQQ999Q9QQQQQQKl