Morgunblaðið - 04.11.1992, Side 10

Morgunblaðið - 04.11.1992, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992 1 51500 Maríubakki - Rvik Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1. hæð. Herb. fylgir í kj. Hafnarfjörður Ölduslóð Til sölu tvær hæðir samtals ca 215 fm auk bílsk. á þessum vin- sæla stað. Fráb. útsýni. Allar nánari uppl. á skrifst. Laufvangur Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á 2. hæð í sex íbúða stigahúsi. Áhv. ca. 2 millj. Hjallabraut Góð 4-5 herb. íb. á 1. hæð. Trönuhraun Til sölu gott rúml. 300 fm skrifst- húsn. Hentar vel fyrir félagasam- tök eða sem kennsluaðstaða. Allar nánari uppl. á skrifst. Vantar Vantar gott einb. í Hafnarfirði fyrir fjársterkan aðila, helst í skiptum f. glæsilega hæð og ris í Hafnarf. Milligjöf staðgreidd. Allar nánari uppl. á skrifst. Arni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., Linnetsstíg 3,2. hæð, Hfj., simar 51500 og 51601 Fasteignasala, Suðurlandsbraut 10 Ábyrgð - Reynsla - Öryggi Hilmar Valdimarsson. SÍMAR: 687828 OG 687808 UÓSHEIMAR Vorum að fá í sölu mjög góða 3ja herb. 83 fm íb. á jarðh. Suðursv. Góð lán áhv. GRETTISGATA Til sölu ný glæsil. og fullb. 100 fm íb. á 1. hæð. Tvö einkabílast. fylgja. Verð 7,6 m. Skipti á ódýrari eign mögul. GÓÐ KAUP Til sölu við Dalsel góð 4ra herb. 106 fm íb. á 1. hæð. Nýtt bílskýli. Góð langtl. áhv. Verð aðeins 7,5 m. REYKÁS Til sölu 5 herb. 153 fm íb. hæð og ris i þriggja hæða húsi. Parket og marm- araflísar á gólfum. Laus nú þegar. Skipti á minni eign mögul. VESTURBERG Vorum að fá í sölu raðh. á tveimur hæöum ásamt bílsk. samt. 170 fm. Frábært útsýni. Góð lantl. áhv. Skipti á 4ra herb. íb. mögul. DÍSARÁS Raðh. 170 fm auk 42 fm tvöf. bílsk. Góöar innr. Arinn í stofu. Mögul. á 6 svefnherb. Góð langtl. Eignaskipti mögul. Hilmar Valdimarsson, Sigmundur Böðvarsson hdl., Brynjar Fransson. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL, loggiltur fasteignasau Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: I fjórbhúsi - sérþvottahús Nýl. stór og góð 2ja herb. íb. á neðri hæð v. Kambasel 70,3 fm. Góð lán fylgja. Laus fljótl. Vinsæll staður. Á betra verði við Egilsgötu Endurn. 4ra herb. neðri hæð tæpir 100 fm í þrib. Góð sameign. Lang- tíma lán 2,1 millj. Tilboð óskast. Hentar m.a. fötluðum Nýl. glæsil. sér neðri hæð 4ra herb. 104,3 fm í tvíbhúsi skammt frá Háskólanum. Gott skipulag. Allt sér. Góður bílsk. Laus fljótl. Stór og góð sérhæð - tvíbhús 5 herb. aðalhæð 138 fm v. Lyngbrekku, Kóp. Glæsil. trjágarður. Bílsk- réttur. Mjög gott verð. Skipti mögul. á góðri 3ja herb. íb. í borginni. Á vinsælum stað í gamla austurbænum efri hæð og rishæð. Á hæðinni er 3ja herb. íb. I risi er svefnherb., bað og geymsla. Góð geymsla í kj. Bflskúr. Tilboð óskast. Skammt frá Menntask. v/Hamrahlið Glæsil. 6 herb. neðri hæð í þríb. Forstherb. m. sérsnyrtingu. Allt sér. Góður bílsk. Ágæt sameign. Öll eins og ný. • • • 2ja herb. íbúðir óskast í borginni, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Opið á laugardaginn. ALMENNA FASTEIGNASAUM LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 SIJÐURLANDSBRAUT - VEGMÚLI TILLEIGU Þetta glæsilega hús er til leigu. Húsnæðið leigist tilbúið undir tréverk með fullfrágeng- inni glæsilegri sameign og lyftu. Lóð fullfrágengin. Næg bílastæði. Til afh. nú þegar. Húsiðeralls 2.249 m2. Verslunarhúsnæði Verslunarhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Geymsluhúsnæði 143 m2 436 m2 436 m2 436 m2 436 m2 362 m2 leigt. á jarðhæð er á jarðhæð er á 3. hæð er á 3. hæð er á 4. hæð er á jarðhæð er Upplýsingar í síma 62 29 91 á daginn og á kvöldin í símum 7 74 30 og 68 76 56. Grafík frá Suður-Ameríku Myndlist Bragi Asgeirsson Sérstæð sýning hefur ratað hingað til lands frá Suður-Amer- íku, og er að auki í óyenjulegu umhverfí slíka sýningarviðburða. Um er að ræða farandsýningu á listagrafík og umgjörðin er gamla Geysishúsið í hjarta borgarinnar, þar sem ýmsar sýningar hafa verið settar upp er tengjast sögu borgar- innar, en einnig á íslenzkum mynd- verkum. Ekki var hægt að óska þessu gamla húsi betri örlög en að verða að eins konar sögusafni, og það er vel til fundið að hafa þarna rammíslenzka ferðaskrifstofu og lifandi sýningarhúsnæði. Slíkt framtak er í samræmi við hið besta sem maður sér um varðveislu gam- alla húsa og fornminja í útlandinu, sem um leið eru virkjuð fyrir líf- ræna starfsemi. Frammi liggja upplýsingar á ein- blöðungum um að „Aðaistræti 2 var byggt 1854 og Vesturgata 2 á síðari hluta aldarinnar. Aðalstræti 2 er elsta verzlunarhús í Reykjavík. Þar hafa margir þjóðkunnir menn rekið verzlun og má þar nefna Róbert Peter Tærgesen, sem reisti húsið, H.P. Duus, Mogens Mogens- en með Ingólfs Apótek og loks ' Geysismenn, sem Reykjavíkurborg keypti húsið af.“ Einnig segir forstöðumaður hússins, Ólafur Jensson, þar: „Með tilliti til sögu húsanna, virðingu fyrir fortíð þeirra og nýju og breyttu hlutverki er að mínu mati rétt að nefna þau Borgarhús. Slík nafngift undirstrikar að í húsunum ér hafín ný starfsemi í þeim til- gangi að lyfta undir og treysta fagurt, öflugt og gott mannlíf í miðbæ Reykjavíkur.“ Inn á milli er sjálfsagt lofsvert að vera með sýningarframtak líkt og þetta á staðnum, þótt eðlilega ætti þessi sýning kannski frekar heima í einum af okkar fínustu og viðurkenndustu sýningarsölum, en það er af hinu góða að stokka stundum upp í hlutunum og tjúfa regluna. Af slíku sprettur líf. Þá er þetta framtak mjög merki- legt og lærdómsríkt fyrir okkur og er sem þíður gustur frá löndum þar sem kynning menningarverðmæta og framkvæmd þeirra er með nokkrum öðrum hætti en hér á útskerinu. Það eru samtök sem nefnast Alþjóðsamskiptaráðið, sem standa að þessari framkvæmd sem hefur hlotið heitið „ Valin verk sam- tíma grafíklistar Suður-Ameríku". Alþjóðasámskiptin vísa til þessa heimshluta, en það er Mexíkóbanki sem kostar sýninguna, sem er hluti nýlegrar gjafar frá fyrirtækinu Smurfít Cartón y Papel de Mexico, S.A. de C.V. og telur 40 valin graf- íkverk. Þetta er mjög merkileg stofnun sem vert er að kynna að- eins nánar, en hún hefur komið á fót menningarmiðstöðvum handa starfsmönnum fyrirtækisins, fjöl- skyldum þeirra og bæjarfélögum í nánd við vinnustað þeirra. M.a. gefur hún á hveiju ári út stórt verk sem sýnir einhvern sérstakan hluta af ríkri menningararfleifð Mexíkó. Og árið 1971 var hafin útgáfa, sem nú er þekkt undir heit- inu AGPA, sem er skammstöfun á „Sam-amerískri grafíklist", sem upphaflega var tileinkuð grafíklist í Mexíkó, en síðar látin ná yfir alla Suður-Ameríku. Er um að ræða frumþrykk fremstu listamanna ein- stakra þjóða í takmörkuðum up: plögum og númeruðum útgáfum. í það 21 ár, sem útgáfan hefur verið starfrækt, hafa verið gefín út 350 verk snjöllustu listamanna þessa meginlands, eins og það heitir. Stefnumörkin eru, að kynning myndlistar sé einn mikilvægasti þáttur menningarþróunar hvers lands, og jafnframt að vekja at- hygli á því sem sögulega og list- rænt hefur komið fram hjá viðkom- andi þjóðum. Mexíkóbanki á einstætt safn 19. aldar ætimynda og steinþrykkja og því ákvað Smurfit-fyrirtækið að gefa safn 350 frummynda eftir ýmsa listamenn frá Mexíkó og Suður-Ameríku sem skyldi verða vísir að hliðstæðu safni 20. aldar listar. Stjórn bankans tók þá ákvörðun að kynna þessa gjöf og suður-amer- íska list um leið, með því að setja saman farandsýningu á úrvali þess- ara verka undir fyrrnefndu heiti, sem dæmi um listrænan metnað í þessum heimshluta. Auk þess hefur Alþjóðsamskiptaráð Mexíkó átt virkan þátt að framkvæmdinni með því að leggja nafn sitt við sýning- una sem listkynningu í öðrum lönd- Úrvalið á öðru fremur að gefa hugmynd um breiddina í grafíklist í þessum heimshluta á árunum 1970-1986 og þá ekki einungis myndræna breidd heldur einnig tæknilega og þannig kennir margra grasa á sýningunni hvað þrykkað- ferðir snertir. Um er að ræða bæði fornar sem nýjar tegundir þrykk- tækni sem sumar eru jafnvel á til- raunastigi. Steinþrykk er algeng- ast, en næst kemur sáldþrykk og síðan koma málmstungur, akva- tinta, mezzotinta, carborundum, dúkskurður og blönduð tækni. Það má taka undir það sem sagt er, að perla sýningarinnar sé mynd- in „Drengur" eftir Rufinu Tamayo, sem gerð er í blandaðri tækni. Tamayo, sem er jafn gamall öldinni (1899-1991), telst einn hinn stóru í mexíkanskri list. Hann á sér aðdá- endur um allan heim ekki síður en þríeykið fræga, José Clemente Orozco (1883-1949), Diego Rivera (1886-1957) og José David Alfaro Siqueiros (1896-1974), og er oft nefndur um leið og þeir. Tamayo er mýkri, ljóðrænni og alþjóðlegri sem málari, en grunn- tónninn í myndum hans eru þjóðleg minni, sem hann magnar upp með dulúðugri útfærslu þar sem mettað- ir sterkir litir, einkum rauðir lita- tónar, djúpir og seiðandi, gegna miklu hlutverki. Myndin „Drengur" er gott dæmi um þetta og þannig séð er hún hvalreki á fjörur okkar og ein sér mikilsháttar listviðburð- ur, sem enginn myndlistarmaður má láta fram hjá sér fara. Aðrir nafnkenndir brautryðjend- Rufino Tamayo (1899- 1991) Dreng- ur, blönduð tækni. Traustfyrirtæki Til sölu er vönduð og traust kvenfataverslun í Hagkaupskringlunni. Mikill fjöldi af föstum við- skiptavinum, enda búðin aðeins þekkt fyrir vand- aðar og góðar vörur. Eigin innflutningur. Góð umboð. Húsnæðið, sem er á einum besta stað í húsinu, er jafnvel til sölu líka. Með góðri jóla- sölu er hægt að greiða niður stóran hluta kaup- verðs fyrirtækisins. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆItlASALAN SUÐURVERI SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. „Night on Earth“ á Harðfískshátíð Kvikmyndahátíðin Harðfisk- ur, haldin af Hreyfimyndafélag- inu og Samtökum kvikmynda- leikstjóra, stendur nú yfir í Há- skólabíó, en á hátíðinni eru sýnd- ar verðlaunamyndir frá Banda- ríkjunum, Frakklandi og Tékkó- slóvakíu. Opnunarmynd hátíðarinnar var „Night on Earth“, nýjasta mynd Jims Jarmusch. Vegna fjölda fyrir- spurna hefur tekist að tryggja nokkrar sýningar til viðbótar. „Night on Earth“ verður sýnd mið- vikudagskvöldið 4. nóvember kl. 21, fimmtudagskvöld á sama tíma og föstudagskvöld kl. 23. (Fréttatilkynning) Wil- fredo Lam (f. 1902) Andlits- mynd, stein- þrykk 1982. 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.