Morgunblaðið - 04.11.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NOVEMBER 1992
. be,rrar
m nu9sjónar
tytuT "**>«'f
Hótelrekstrarfræði-
menntun í Sviss
fyrstir ti) að bjóða viðurkennt svissneskt-amerískt
prófskt'rteini á háskólastigi I hótelrekstrarfræðum.
Giöríð svo vel og fáíð ókeypis ráðgjöf/námsmat.
SFMI 90.41 25 81 '38 62.
Fax 90 4.1 25 81 36 50. .
Skrifið SHCC Colleges Admissions Office
CH-1897 t_e Bouveret.
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Miele ÞVOTTAVÉL?
MIELE W701: VINDUHRAÐI600-1200 SN.,
MIELEGÆÐI.
II
TILBOÐSVERÐ: 99.108,- KR. STGR.*
VENJULEGT VERÐ: 117.763,-
Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
W W Jóhann Ólafsson & Go
r M!NI)AHOI«. 13 • 104 KKYKjAVfK • SlMI AWi SHH
Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18.
Lokað á laugardögum.
*Verð miðast við gengi þýska marksins 15.10. 1992.
DUIUULPUR
Verð kr. 7.990,-
Stærðir S-XXL.
Litir: Blátt, rautt, og grænt.
Stærðir: 140-170.
Verð kr.6.490.-
300 gr. dúnn. Ytra byrði: 100% bómull
5% staðgreiðslu afsiáttur.
Sendum í póstkröfu.
»hummel~®
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, SfMAR 813555, 813655
Átak RKÍ í skyndihjálp
RATJÐI kross íslands gengst fyr-
ir átaki í skyndihjálp þessa dag-
ana. Markmið átaksins er að fá
sem allra flesta til að læra
skyndihjálp og í því skyni hafa
leiðbeinendur í skyndihjálp boðið
stuttar kynningar í uin 500 fyrir-
tækjum um land allt. I kynning-
unum eru boðin námskeið sniðin
að þörfum einstakra vinnustaða,
á sérstökum kjörum. I tengslum
við átakið eru í boði námskeið í
skyndihjálp fyrir almenning viða
um land. Einnig er sjónum beint
að skólunum og þeir hvattir til
að sinna skyndihjálparkennslu,
segir í frétt frá RKÍ.
Námsefni í skyndihjálp er að-
gengilegt öllum grunnskólum. Ný-
lega er komin út önnur prentun
námsefnis í skyndihjálp fyrir grunn-
skóla á vegum RKI. Námsefnið er
í tvennu lagi, ætlað tveimur aldurs-
hópum. Það var fyrst gefið út fyrir
tveimur árum og dreift endurgjalds-
laust í grunnskóla. Móttökurnar
voru góðar og fljótlega kom í ljós
að ráðast þyrfti í endurprentun
löngu fyrr en ráðgert var. Fyrra
upplagið var 5.000 eintök en nú
voru prentuð 10.000 eintök. Þegar
hefur námsefninu verið dreift í um
150 skóla.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um gagnsemi þess að kunna
að bregðast rétt við á slysstað.
Athuganir hafa sýnt að oft eru
börn einu vitnin að slysi og því er
ekki síður nauðsynlegt að þau kunni
skyndihjálp og hafi sjálfstraust til
að bregðast við en fullorðnir. En
skyndihjálparfræðsla meðal barna
hefur á undanförnum árum þróast
æ meira í þá átt að kenna þeim að
forðast slys með því að benda á
hættur í umhverfinu. Einnig er leit-
ast við að leiða börnum fyrir sjónir
að stríðni og hrekkir geta valdið
vanlíðan og jafnvel leitt til slysa.
Þess vegna er í námsefninu lögð
rík áhersla á mannleg samskipti.
í stuttu máli er fyrri hluti náms-
efnis 8 til 10 stunda fræðsla í slysa-
vörnum, mannlegum samskiptum
og andlegri og líkamlegri skyndi-
hjálp þegar óhapp eða slys hefur
átt sér stað. Annar hlutinn er 12
til 14 stunda námskeið í slysavörn-
um, skyndihjálp og mannlegum
samskiptum.
Vilborg Guðnadóttir, skólahjúkr-
unarfræðingur, er höfundur fyrra
hluta námsefnisins og auk pess
skrifaði hún kennsluleiðbeiningar
fyrir annan hluta efnisins, en nem-
endaheftið var þýtt úr norsku. Sig-
rún Eldjárn myndskreytti fyrri hlut-
ann. Dreifingu annast Námsgagna-
stofnun.
Kostnaður Rauða kross íslands
af útgáfu námsefnisins í skyndi-
hjálp fyrir grunnskólanema er ná-
lægt 7 milljónum þegar allt er talið.
(Fréttatilkynninfr)
r\* JtrV
Þorbjörn Ásgeirsson að störfum.
Ný nuddstofa opnuð
ÞORBJORN Asgeirsson nudd-
fræðingur opnaði nuddstofu í
Skeifunni 7, Reykjavík, 3. nóvem-
ber sl.
Þorbjörn býður upp á á heildrænt
nudd, djúpskynjunarnudd, slökun-
arnudd, punktanudd ásamt öðrum
nuddaðferðum, en sérsvið hans er
heildrænt nudd.
Nuddstofan er opin mánudaga
til fimmtudaga frá kl. 10-18 og
föstudaga frá kl.10-15 og tíma-
pantanir eru á sama tíma.
Aðalfundur
Samtaka um
byggingu
tónlistarhúss
S AMTÖK um byggingu tónlistar-
húss halda aðalfund í sal FÍH við
Rauðagerði 27, í kvöld, miðviku-
dag.
Samtökin hafa að undanförnu
kynnt hugmyndir um nýtt staðarval
tónlistarhúss við Reykjavíkurhöfn.
Hafa viðbrögð við þessum hug-
myndum verið hin jákvæðustu.
Ríkisútvarpið og samtökin stóðu
sameiginlega að kynningu á tónlist-
arhúsinu á íslenskum tónlistardegi
síðastliðinn laugardag og fór fram
söfnun til styrktar húsinu á báðum
rásum. Þetta var í fyrsta skipti sem
Rás eitt leggur slíkri söfnun lið.
Áheyrendur sýndu góð viðbrögð og
fjöldi nýrra styrktarmanna gékk
þessa dagana til liðs við samtökin.
(Úr fréttatilkynningu.)
Kvikmvndahátíðin Harðfiskur í Háskólabíói
Afríka séð með barns augum
Kvikmyndlr
, Sæbjörn Valdimarsson
Chocolat
Leikstjóri og handrítshöfundur
Glaire Denis. Aðalleikendur
Isaach de Bankole, Giulia Bosc-
hi, Francois Cluzet, Cécile Duc-
asse. Frönsk. 1988.
Ung kona er á ferðalagi um
Kamerún, fyrrum nýlendu Frakka
í Afríku, og rifjar upp æskuár sín
á þessum slóðum. Þá voru tímarn-
ir aðrir. Faðir hennar sveitarstjóri
í dreifbýlu og frumstæðu héraði
í nýlendunni uppúr síðari heims-
styijöld. Allt slétt á yfirborðinu
en undir niðri grunnt á óánægju
frumbyggjanna enda framkoma
frönsku valdamannanna í þeirra
garð hrokafull og niðurlægjandi.
Húskarlinn (Bankole) nýtur þó
vissrar virðingar meðal hvítra
húsbónda sinna, einkum tekst
kærleiksríkt samband á milli hans
og einkadóttur hjónanna (Duc-
asse). Þá dylst það ekki að þjónn-
inn er ástfanginn af sinni fögru
húsmóðir (Cluzet).
Denis segir frá á lágu nótunum,
stutt tilsvör, augnagotur og svip-
brigði segja meira en mörg orð
ef vel er á haldið og það tekst
leikstjóranum snilldarvel þó ein-
hverjum þyki sjálfsagt nóg um
hægaganginn. Hún ýjar að hlut-
unum líkt og er sveitarstjórinn
segir að þeir verði ekki endalaust
í Afríku; þegar spurt er hvað
þorpsbúar séu að gera í skólanum
„að tala"; allt samband Bankoles
og Ducasse litlu or ástar- haturs-
samband nýlenduherra og hinna
undirokuðu í hnotskurn. Og eTót-
íkin liggur í loftinu. En afstaða
svarta leigubflstjórans til konunn-
ar í myndarlok er afdráttarlaus;
hún á að koma sér heim sem fyrst.
Skoðun leikstjórans er því 6vé-
fengjanleg.
Myndmálið er ljóðrænt og yfir-
vegað, það er enginn asi á neinum
frammi fyrir né aftan við tökuvél-
arnar. Því meira finnur maður
fyrir þeim þrýsting sem liggur á
aðalpersónunum og þjóðfélags-
breytingunum sem liggja í loftinu.
Umhverfið er fagurt og framandi
og leikurinn yfir höfuð góður,
einkum hjá Ducasse iitlu og Ban-
kole. Mynd sem segir meira en
það sem gerist á yfirborðinu og
skapar sértök hughrif hjá áhorf-
andanum.