Morgunblaðið - 04.11.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
CO
" n&t
tehns's<yrk
P&trrar
0 hu3sjónar
fy"Í''9Ut*ZUr ’
t,n’ans.“
VlC,°rHugo
Hótelrekstrarfræði-
menntun í Sviss
Fyrstir til að bjóða viðurkennt svissneskt-amerískt
prófskírteini á háskólastigi í hótelrekstrarfræðum.
Giörið svo vel og fáið ókeypis róðgjöf/námsmat.
SiMI 90 41 25 81 38 62.
Fax 90 41 25 81 36 50.
Skrifið SHCC Colleges Admissions Office
CH-1897 Le Bouveret.
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Mteie ÞVOTTAYÉL?
MIELE W701: VINDUHRAÐI600-1200 SN„
MIELEGÆÐI.
r
TILBOÐSVERÐ: 99.108,- KR. STGR*
VENJULEGT VERÐ: 117.763,-
Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
m ip Jóhann Ólafsson & Go
~ SIINDABOHU M • 104 KKVKJAVlK • SfMIAKBSKH
Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18.
Lokað á laugardögum.
*Verð miðast við gengi þýska marksins 15.10. 1992.
Verð kr. 7.990,-
Stærðir S-XXL.
Litir: Blátt, rautt, og grænt.
Stærðir: 140-170.
Verð kr.6.490,-
DÚIUÚLPUR
300 gr. dúnn. Ytra byrði: 100% bómull
5% staðgreiðslu afsláttur.
Sendum í póstkröfu.
whummel^P
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, SÍMAR 8 1 35 55, 8 1 365 5
1
Átak RKÍ í skyndihjálp
RAUÐI kross íslands gengst fyr-
ir átaki í skyndihjálp þessa dag-
ana. Markmið átaksins er að fá
sem allra flesta til að læra
skyndihjálp og í því skyni hafa
leiðbeinendur í skyndihjálp boðið
stuttar kynningar í um 500 fyrir-
tækjum um land allt. I kynning-
unum eru boðin námskeið sniðin
að þörfum einstakra vinnustaða,
á sérstökum kjörum. í tengslum
við átakið eru í boði námskeið í
skyndihjálp fyrir almenning víða
um land. Einnig er sjónum beint
að skólunum og þeir hvattir til
að sinna skyndihjálparkennslu,
segir í frétt frá RKÍ.
Námsefni í skyndihjálp er að-
gengilegt öllum grunnskólum. Ný-
lega er komin út önnur prentun
námsefnis í skyndihjálp fyrir grunn-
skóla á vegum RKI. Námsefnið er
í tvennu lagi, ætlað tveimur aldurs-
hópum. Það var fyrst gefíð út fyrir
tveimur árum og dreift endurgjalds-
laust í grunnskóla. Móttökumar
voru góðar og fljótlega kom í ljós
að ráðast þyrfti í endurprentun
löngu fyrr en ráðgert var. Fyrra
upplagið var 5.000 eintök en nú
voru prentuð 10.000 eintök. Þegar
hefur námsefninu verið dreift í um
150 skóla.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um gagnsemi þess að kunna
að bregðast rétt við á slysstað.
Athuganir hafa sýnt að oft em
böm einu vitnin að slysi og því er
ekki síður nauðsynlegt að þau kunni
skyndihjálp og hafí sjálfstraust til
að bregðast við en fullorðnir. En
skyndihjálparfræðsla meðal barna
hefur á undanfömum ámm þróast
æ meira í þá átt að kenna þeim að
forðast slys með því að benda á
hættur í umhverfinu. Einnig er leit-
ast við að leiða börnum fyrir sjónir
að stríðni og hrekkir geta valdið
vanlíðan og jafnvel leitt til slysa.
Þess vegna er í námsefninu lögð
rík áhersla á mannleg samskipti.
í stuttu máli er fyrri hluti náms-
efnis 8 til 10 stunda fræðsla í slysa-
vörnum, mannlegum samskiptum
og andlegri og líkamlegri skyndi-
hjálp þegar óhapp eða slys hefur
átt sér stað. Annar hlutinn er 12
til 14 stunda námskeið í slysavöm-
um, skyndihjálp og mannlegum
samskiptum.
Vilborg Guðnadóttir, skólahjúkr-
unarfræðingur, er höfundur fyrra
hluta námsefnisins og auk þess
skrifaði hún kennsluleiðbeiningar
fyrir annan hluta efnisins, en nem-
endaheftið var þýtt úr norsku. Sig-
rún Eldjárn myndskreytti fyrri hlut-
ann. Dreifingu annast Námsgagna-
stofnun.
Kostnaður Rauða kross íslands
af útgáfu námsefnisins í skyndi-
hjálp fyrir grunnskólanema er ná-
lægt 7 milljónum þegar allt er talið.
(Fréttatilkynning)
Þorbjörn Ásgeirsson að störfum.
Ný nuddstofa opnuð
ÞORBJÖRN Ásgeirsson nudd-
fræðingur opnaði nuddstofu í
Skeifunni 7, Reykjavík, 3. nóvem-
ber sl.
Þorbjörn býður upp á á heildrænt
nudd, djúpskynjunamudd, slökun-
arnudd, punktanudd ásamt öðmm
nuddaðferðum, en sérsvið hans er
heildrænt nudd.
Nuddstofan er opin mánudaga
til fímmtudaga frá kl. 10-18 og
fóstudaga frá kl.10-15 og tíma-
pantanir em á sama tíma.
Aðalfundur
Samtaka um
byggingu
tónlistarhúss
SAMTÖK um byggingu tónlistar-
húss halda aðalfund í sal FÍH við
Rauðagerði 27, í kvöld, miðviku-
dag.
Samtökin hafa að undanförnu
kynnt hugmyndir um nýtt staðarval
tónlistarhúss við Reykjavíkurhöfn.
Hafa viðbrögð við þessum hug-
myndum verið hin jákvæðustu.
Ríkisútvarpið og samtökin stóðu
sameiginlega að kynningu á tónlist-
arhúsinu á íslenskum tónlistardegi
síðastliðinn laugardag og fór fram
söfnun til styrktar húsinu á báðum
rásum. Þetta var í fyrsta skipti sem
Rás eitt leggur slíkri söfnun lið.
Áheyrendur sýndu góð viðbrögð og
fjöldi nýrra styrktarmanna gékk
þessa dagana til liðs við samtökin.
(Úr fréttatilkynningll.)
Kvikmyndahátíðin Harðfisknr í Háskólabíói
Afríka séð með barns augum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Chocolat
Leikstjóri og handritshöfundur
Claire Denis. Aðalleikendur
Isaach de Bankole, Giulia Bosc-
hi, Francois Cluzet, Cécile Duc-
asse. Frönsk. 1988.
Ung kona er á ferðalagi um
Kamerún, fyrrum nýlendu Frakka
I Afríku, og rifjar upp æskuár sín
á þessum slóðum. Þá voru tímam-
ir aðrir. Faðir hennar sveitarstjóri
f dreifbýlu og frumstæðu héraði
í nýlendunni uppúr síðari heims-
styijöld. Allt slétt á yfírborðinu
en undir niðri grunnt á óánægju
frumbyggjanna enda framkoma
frönsku valdamannanna í þeirra
garð hrokafull og niðurlægjandi.
Húskarlinn (Bankole) nýtur þó
vissrar virðingar meðal hvítra
húsbónda sinna, einkum tekst
kærleiksríkt samband á milli hans
og einkadóttur hjónanna (Duc-
asse). Þá dylst það ekki að þjónn-
inn er ástfanginn af sinni fögru
húsmóðir (Cluzet).
Denis segir frá á lágu nótunum,
stutt tilsvör, augnagotur og svip-
brigði segja meira en mörg orð
ef vel er á haldið og það tekst
leikstjóranum snilldarvel þó ein-
hveijum þyki sjálfsagt nóg um
hægaganginn. Hún ýjar að hlut-
unum líkt og er sveitarstjórinn
segir að þeir verði ekki endalaust
í Afríku; þegar spurt er hvað
þorpsbúar séu að gera í skólanum
„að tala“; allt samband Bankoles
og Ducasse litlu er ástar- haturs-
samband nýlenduherra og hinna
undirokuðu í hnotskum. Og erót-
íkin liggur í loftinu. En afstaða
svarta leigubílstjórans til konunn-
ar í myndarlok er afdráttarlaus;
hún á að koma sér heim sem fyrst.
Skoðun leikstjórans er því óvé-
fengjanleg.
Myndmálið er ljóðrænt og yfir-
vegað, það er enginn asi á neinum
frammi fyrir né aftan við tökuvél-
amar. Því meira fínnur maður
fyrir þeim þrýsting sem liggur á
aðalpersónunum og þjóðfélags-
breytingunum sem liggja í loftinu.
Umhverfíð er fagurt og framandi
og leikurinn yfir höfuð góður,
einkum hjá Ducasse litlu og Ban-
kole. Mynd sem segir meira en
það sem gerist á yfírborðinu og
skapar sértök hughrif hjá áhorf-
andanum.