Morgunblaðið - 04.11.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVÉMBER 1S95Í ~
Hættuleg blýmengnn
Frá David Butt:
SAMKVÆMt tímaritinu „Newswe-
ek“ í febrúar 1992 er blýmengu-
nefst á lista yfír umhverfísspillandi
efni og efni sem skaða heilsu barna
og unglinga mest.
Það gengur hægt í Bandaríkjun-
um að útrýma notkun blýs en í
Evrópu gengur það enn hægar.
Framleiðsla á blýi hefur aukist um
það bil 75% síðustu 30 ár.
Fyrir tuttugu árum var talið að
böm þyldu 40 mikrógrömm blýs í
hveijum desilítra blóðs. í dag hefur
þetta breyst talsvert. Samkvæmt
US Centre fór disease control er
hámarkið núna talið 10
míkrógrömm blýs í hveijum de-
silítra blóðs.
Talið er að blýmengun sé skaðleg
vegna þess að það fer upp í heilann
og hægir á starfsemi hans auk þess
að rugla starfsemi annarra hluta
líkamans. Böm em mjög viðkvæm
fyrir þessu og er sagt að 50% af
blýi sem fer inn í líkama þeirra
uppsogist, en eingöngu 10% í full-
orðnu fólki.
Það er hægt að koma algjörlega
í veg fyrir blýeitrun. Samt sem
áður er það algengasti og skað-
mesti umhverfissjúkdómur í ungum
Lestrarerfiðleikar
Frá Guðrúnu H. Sederholm:
HÓPUR nemenda í framhaldsskól-
um landsins býr við lestrarerfíðleika
og þarfnast sérstakra námstækja
þess vegna. Námstækin sem hér
er átt við eru hljóðbækur, þ.e.a.s.
snældur með lesnu námsefni.
Vegna markvissari vinnu í skólum
með þessum nemendum hefur hóp-
urinn stækkað sem þarf á þessari
þjónustu að halda. Lestrarmiðstöð
tók til starfa nú í haust í tengslum
við Kennaraháskóla íslands. Eitt af
markmiðum hennar er að greina
lestrarerfíðleika og má því búast
við að hópurinn stækki enn frekar
sem þarf á hljóðbókum að halda í
framtíðinni.
Blindrabókasafnið hefur veitt
þessum nemendum þjónustu undan-
farin ár og framleitt hljóðbækur
handa þeim samkvæmt bókalistum
hinna einstöku árganga frá skólun-
um. Þjónustan hefur alltaf verið til
fyrirmyndar og ekki skort viljann
LYKLAKIPPA
Lyklakippa tapaðist á veit-
ingahúsinu Berlín á föstu-
dagskvöld. Finnandi er vin-
samlegast beðinn um að
hringja í síma 672195 að deg-
inum.
JAKKI
Svartur ieðuijakki var tek-
inn í misgripum á veitingahús-
inu Laugavegi 22 aðfaranótt
laugardags. Viðkomandi er
vinsamlegast beðinn að skila
jakkanum í afgreiðslu veit-
ingahússins eða hringja í síma
79616.
VEL HEPPNUÐ
FERÐ
E. Pálína Þorleifsdóttir:
til að mæta þörfum þessa hóps þó
ekki teljist einstaklingarnir blindir.
Augljóst er að peninga þarf til
að framleiða hljóðbækur og þess
vegna viljum við námsráðgjafar
framhaldsskólana vekja athygli á
að fjárveitingarvaldið þarf að veita
fé til þessa starfs.
Hljóðbækumar skipta alla þessa
nemendur mjög miklu máli og gerir
þeim kleift að ijúka prófí úr fram-
haldsskóla til jafns við þá sem lesa
reiprennandi.
Ef tala á um jafnrétti til náms
þá er það skýlaus réttur les-tregra
nemenda að eiga þess kost að fá
hljóðbækur og fyrir því viljum við
beijast með þessari ábendingu til
fjárveitingavaidsins.
Fyrir hönd námsráðgjafa í MH,
FB, FÁ, Kvennaskólanum, Iðnskól-
anum og MK.
GUÐRÚN H. SEDERHOLM
námsráðgjafi í MS
gulbrúnn og svartur og ólar-
laus. Eigandi hans er beðinn
að hringja í síma 679844 eða
Kattavinafélagið.
ARMBAND
Armband úr gulli og hvíta-
gulli tapaðist miðvikudaginn
28. október. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 13192.
PÁFAGAUKUR
Gulur páfagaukur fannst
við Þjónustumiðstöð aldraðra,
Aflagranda 40. Upplýsingar í
síma 622571.
HJÓL
Nýtt DBS-kvenreiðhjól hef-
ur verið í óskilum við Lauga-
teig í mánuð. Upplýsingar í
símum 32434 og 14007.
GLERAUGU
Kvenmannsgleraugu í
brúnni umgerð og gráu hulstri
töpuðust í síðustu viku.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 76583.
ARMBAND
Gullarmbandskeðja tapaðist
mánudaginn 27. október.
Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 36203.
PEYSA
Peysa tapaðist fyrir nokkru,
tómatrauð peysa, handpijón-
uð, með gulum bekk með
fuglamynstri, stærð 8. F
53388. Fundarlaun.
bömum. Vamaðarorð dr. Loius
Sullivan, US Secretary of Health
and Social Services.
Læknir og vísindamenn um allan
heim hafa varað við notkun blýs
og það óbætanlega heilsutjón sem
þetta eitruð efni valda en samt
hafa margar opinberar stofnanir
lítið gert til að hindra eða banna
notkun þess efnis.
í Evrópu er vandamálið mjög
svipað jafnvel verra. Notkun blýs í
vatnsrömm, málning og blýbensín
eru algengasta orsök blýeitrunar.
Notkun blýbensíns í Evrópu er
um 66% af heildar bensínnotkun.
Jafnvel blýlaust bensín er í rauninni
ekki blýlaust, það er blýminna.
Þrátt fyrir nýja reglugerð um
útrýmingu á blýbensíni í EB fyrir
árið 1993 verða eftir margar millj-
ónir bíla sem nota blýbensín.
Notkun blýbensíns hefur minnk-
að verulega síðustu ár á íslandi,
en samt sem áður er talið að blý-
mengun á götum Reykjavíkurborg-
ar sé talsverð.
Hvað er til ráða?
1. Bílaeigendur sem nota blý-
bensín geta kannað hvort hægt sé
að breyta bflum þeirra til þess að
nota blýlaust (blýminna) bensín.
2. Með notkun brennsluhvata á
borð við Powerplus eða Cleanbum
er hægt að nota blýminna bensín
án þess að gera nokkra breytingu
á bflnum. Rannsókn á þessum bún-
aði sýnir að blýmengun í útblæstri
bfls sem notar blýbensín minnkar
um 50% og í bíl sem notar blý-
minna bensín (blýlaust) minnkar
magn blýs í útblæstri um 30%. Með
notkun Powerplus eða Cleanbum
og því að skipta frá blýbensíni yfír
í blýlaust er hægt að minnka blý-
mengun um 90%.
Fyrir utan talsverðan spamað
fyrir bíleigendur, að skipta yfír á
ódýrara bensín er nauðsynlegt fyrir
heilsu bama okkar að útrýma notk-
un blýbensíns sem fyrst.
Staðfestar fréttir, meðal annars
frá Bretlandi, segja frá mörgum
opinberum aðilum sem nota
brennsluhvatann í þeim tilgangi að
draga úr blýmengun og útblásturs-
mengun almennt, auk þess hefur
talsvert sparast í eldsneytiskaup-
um.
Samkvæmt útreikningum sem
komu fram í fyrra hjá Karli Ragn-
arssyni hjá Bifreiðaskoðun íslands
gæti útrýming blýbensíns lækkað
blýmengun um 20 tonn á ári sem
fellur á götur og fer út í umhverfið
á íslandi.
DAVID BUTT
Jaðarsbraut 7, Akranesi
Pennavinir
Átján ára Ghanapiltur með
áhuga á borðtennis, tónlist, knatt-
spyrnu og bréfaskriftum:
Andy Baafi Boampong,
P.O. Box 14,
Abetifi-Kwahu,
Ghana.
Breti sem getur ekki um aldur
en óskar eftir 16-22 ára pennavin-
um og hefur áhuga á íþróttum,
ferðalögum, tónlist og vera meðal
fólks:
Graeme Tagg,
28 Sylvia Avenue,
Hatch End,
Pinner,
Middlesex HAS 4QE,
England.
Tvítug þýsk stúlka með áhuga á
ferðalögum, útivist, erlendum ríkj-
um o.fl.:
Nicole Bublat,
von-Kniprode-Weg 32,
D-W 4018 Langenfeld,
Germany.
Frá Ítalíu skrifar karlmaður sem
getur hvorki um aldur né segir á
sér önnur deili en vill skrifast á við
íslenskar stúlkur:
Renzo Grendene,
Via Levrena No 10/A,
36013 Piovene Rocchette,
Vicenza,
Italy.
Bestu kveðjur til fararstjóra
Úrvals-Útsýnar frá konum
sem fóru á vegum orlofs hús-
mæðra til Portúgals 22. sept-
ember til 6. október, fyrir alúð-
legheit ykkar við farþega. Og
að öllum öðrum ólöstuðum,
bestu kveðjur til Jesus farar-
stjóra, sem var með okkur í
ferð til Lissabon 2. og 3. októ-
ber — ógleymanleg ferð, sem
hann átti stóran þátt í með
góðri leiðsögn og fróðleik sem
hann miðlaði okkur um sögu
Portúgals. Þakkir til orlofs-
nefndar húsmæðra, María og
Þóranna. Ferðin var einstak-
lega ánægjuleg frá upphafí til
enda.
KETTLINGUR
Kettlingur fannst við Kópa-
vogsskóla. Hann er hvítur,
VELVAKANDI
Windows 3.1 • PC grunnur
hk-9281
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir alla sem þurfa að nota PC tölvur.
Vandað námskeið sem skilar þér vel á leið.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfræöistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegt 16 • stofnuö 1. mars 1986
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Mmele RYKSUGU?
MIELE S254I: RAUÐ EÐA HVÍT, 1100 W,
STILLANLEGUR SOGKRAFTUR, MIELE GÆÐI.
TILBOÐSVERÐ: 17.434,- KR. STGR*
VENJULEGT VERÐ: 19.849,-
Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
W W Jóhann Ólafsson & Co
' ■ SIINIWBOW; II • 104 RKYKJAVtK • SfMlhKH WK
Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18.
Lokað á laugardögum.
*Verð miðast við gengi þýska marksins 15.10. 1992.
GOOD'fYEAR
VETRARH J Ó LBARÐ AR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
HEKLA
FOSSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363