Morgunblaðið - 04.11.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
47 *
URSLIT
UMFT-Valur 94:87
Sauðárkrókur, úrvalsdeildin í körfuknatt-
leik, þriðjudaginn 3. nóvember 1992.
Gangur ieiksins: 2:6, 10:10, 24:30, 30:37,
42:44, 49:49, 59:59, 72:70, 90:76, 94:87.
Stig UMFT: Valur Ingimundarson 25,
Ingvar Ormarsson 20, Haraldur Leifsson
19, Chris Moore 19, Pétur Vopni Sigurðs-
son 7, Karl Jónsson 4.
Stig Vals: Franc Booker 28, Brynjar Harð-
arson 21, Magnús Matthíasson 15, Símon
Ólafsson 9, Jóhannes Sveinsson 6, Jóhann
Bjarnason 6, Guðni Hafsteinsson 2.
Áhorfendur: Um 650.
Dómarar: Kristinn Albertssson og Kristján
Möller og dæmdu vel.
UMFG - ÍS 86:81
Grindavík, 1. deild kvenna.
Gangur leiksins: 0:2, 6:12, 13:24, 22:28,
29:28, 37:46, 42:46, 48:54, 52:63, 62:63,
67:69, 72:69, 74:74, 76:76, 82:76, 86:81.
Stig UMFG: Stefanía Jónsdóttir 32, Svan-
hildur Káradóttir 16, María Jóhannesd. 15,
Hafdís Hafberg 15, Theresa Spinks 4,
Sandra Guðlaugsd. 2, Guðrún Sigurðardótt-
ir 2.
Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 25, Hildigunn-
ur Hilmarsdóttir 12, Hrönn Harðardóttir
12, María Leifsdóttir 8, Þóra Gunnarsdóttir
8, Ingibjörg Magnúsdóttir 7, Guðrún Áma-
dóttir 5, Fríða Torfadóttir 5.
Áhorfendur: 50 í byijun en 150 er yfir lauk.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Jón Bender
dæmdu vel.
Knattspyrna
Evrópukeppni félagsliða
Seinni leikir í 2. umferð:
Celtic - Dortmund (Þýskalandi)...1:2
Gerry Creaney (13.) - Stepane Chapuisat
(53.), Michaei Zorc (58.). 31.578.
■Dortmund vann 3:1 samanlagt.
Mechelen - Vitesse Arnhem (Hollandi)0:l
- Philp Cocu (73.). 9.000.
■Vitesse Arnhem vann 2:0 samanlagt.
Real Zaragoza - Frem (Danmörku)..5:1
Mateut (7., 38., 82.), Seba (39., 65.) - Cold-
ing (73.). 12.000.
■Zaragoza vann 6:1 samanlagt.
England
1. deild
Bristol Rovers - Bamsley.........1:5
Cambridge United - Luton.........3:3
Grimsby - West Ham...............1:1
Notts County - Derby.............0:2
Oxford - Portsmouth..............5:5
Sunderland - Wolverhampton.......2:0
Swindon - Brentford..............0:2
Tranmere - Southend..............3:0
Watford - Peterborough...........1:2
íkvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Dieranes: HK-ÞórAk ..kl. 20.00
Selfoss: Selfoss-IR ...kl. 20.00
Strandgata: Haukar - Fram ,kl. 20.00
Vestm.: IBV - Stjarnari ...kl. 20.00
KA-húsið: KA-Víkingur.. ...kl. 20.30
Körfuknattleikur
Bikarkeppni karla: __
Njarðvík: UMFN-b - ÍS .... ...kl. 20.00
1. deild karla:
Akureyri: UMFAk. -Þór.. ...kl. 20.20
Blak
1. deild karla:
Digranes: HK - Stjaman.. ...kl. 20.00
HANDKNATTLEIKUR
Sætti mig ekki við þetta
segir Þorbjörn Jensson sem úrskurðaður var í tímabundið leikbann
ÞORBJORN Jensson, þjálfari Vals var í gær úrskurðaður ítíma-
bundið leikbann af aganefnd Handknattleikssambandsins — til
19. nóvember — vegna framkomu við dómara eftir leikinn gegn
FH á laugardaginn var. Þorbjörn missir þvíaf tveimur leikjum;
getur hvorki stjórnað liði sínu gegn Fram í Laugardalshöll 11.
nóvember né gegn Víkingum að Hlíðarenda 18. nóvember.
Eg sætti mig alls ekki við þetta
og ég mun skoða málið vand-
lega og taka ákvörðun um hvað ég
geri á morgun [í dag],“ sagði Þor-
bjöm við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Jón Hermannsson dómari var
kallaður fyrir aganefnd í gær. Hann
vildi meina að Þorbjörn hefði beitt
ofbeldi og fyllti skýrslu sína til aga-
nefndar út skv. því, „en eftir viðræð-
ur við dómarann töldum við þetta
réttast. Töldum rétt að notfæra okk-
ur þann lið i reglugerð um aganefnd
sem leyfir að dæma menn í tíma-
bundið bann, þar sem við töldum
ekki að um hreint ofbeldi hefði verið
að ræða. Annars hefði hann [Þor-
•björn] hlotið fjögurra leikja bann,“
sagði Hjörleifur Þórðarson, formað-
ur aganefndar, við Morgunblaðið í
gær.
„Mér finnst óþolandi að þurfa að
sætta mig við þetta. Dómari leiksins
var kallaður fyrir en hvers vegna
KORFUKNATTLEIKUR
Fjör þegar
UMFG vann
ÍR-stúlkur
GRINDAVÍKURSTÚLKUR sigr-
uöu ÍR í 1. deild kvenna í gær-
kvöldi, 86:81, í skemmtilegum
leik þar sem úrslit réöust ekki
fyrr en í framlengingu.
Það var mikill hraði í leiknum
og stúlkumar vom iðnar við
að skora í fyrri hálfleik og gerðu
þá 88 stig. Heldur
dró úr hraðanum og
hittnin minnkaði_ í
síðari hálfleik en ÍR
stúlkurnar voru yfir
lengst af. Heimastúlkur komust
yfir 71:69 og höfðu yfir 74:71 er 7
sekúndur voru eftir. ÍR-ingar náðu
frákasti eftir misheppnað vítaskot
og Lánda gerði sér lítið fyrir og jafn-
aði með þriggja stiga körfu.
í framlengingunni var enginn
sprungin hvort liðið var sterkara
enda hafði ÍR misst sex leikmenn
útaf með fimm villur.
Bestar í lið heimamanna voru
Stefanía, María og Svanhildur sem
áttu allar góðan leik. ÍR-liðið var
jafnara með Lindu sem besta leik-
mahn.
Frímann
Ólafsson
skrifar
Valur Inglmundarson
KORFUKNATTLEIKUR
„Magic“ hættur við
að byija aftur
Gunnar
Valgeirsson
skrifar
Earvin „Magic“ Johnson, sem
leiddi „draumaliðið" til sigurs
á Ólympíuleikunum, hefur ákveðið
að byija ekki að
leika í NBA-deild-
inni á nýjan leik eins
og hann hafði lýst
yfír fyrr í haust.
Johnson, sem er 33ja ára, ákvað
að hætta í körfuknattleik í fyrra
þegar í Ijós kom að hann var með
HlV-veiruna. Hann ákvað síðar að
vera með á Ólympíuleikunum og
fljótlega eftir leikana var tilkynnt
að hann ætlaði að leika með Los
Angeles Lakers í deildinni næstu
tvö árin. Hann ákvað hins vegar
um helgina að ieika ekki með La-
kers og tók hann ákvörðunina eftir
að hafa rætt málin við Cookie konu
sína.
Forráðamenn LA Lakers hafa
staðfest að Johnson verði ekki með
liðinu í vetur þannig að liðið leikur
án hans í Forum á föstudaginn
þegar NBA-deildin hefst, en hann
hafði leikið flesta leiki liðsins á
undirbúningstímabilinu.
Forráðamenn Lakers segja að ef
til vill sé öllum fyrir bestu að John-
son leiki ekki með því ef hann hefði
leikið hluta af leikjum liðsins, en
ekki alla, hefði liðið þurft að leika
allt annan körfuknattieik þegar
hann væri ekki með. Johnson mun
fá þau laun sem hann hafði samið
um þó svo hann leiki ekkert með
liðinu. Fyrir tímabilið sem er að
hefjast mun hann fá 14,5 milljónir
daia, eða um 840 milijónir ÍSK.
Flestar stórstjömur NBA deildar-
innar hafa látið hafa eftir sér að
Johnson eigi skilið að vera látinn í
friði, en hann hefur verið mikið í
sviðsljósinu eftir að hann sagði frá
því að hann væri með HlV-veiruna.
Samtök eyðnisjúklinga í Bandaríkj-
unum sögðu ákvörðun Johnson sýna
að þeir sem væru með HlV-veiruna
ættu ekki að skýra frá því, til að
fá að vera í friði þyrfti fólk að fara
í felur.
Bjöm
Bjömsson
skrifar
Þorbjörn Jensson
Valsmenn
töpuðuá
Sauðár-
króki
Tndastóll vann Val, 94:87, í úr-
valsdeildinni í gærkvöldi á
Sauðárkróki í miklum baráttuleik
þar sem bæði liðin
ætluðu sér greini-
lega stigin tvö sem
í boði vora. Varnar-
leikurinn var sterk-
ur hjá liðunum í fyrri hálfleik sem
sést best á því að staðan í leikhléi
var 37:37.
Heimamenn hófu að leika svæð-
isvörn í seinni hálfleik og virtust
Valsmenn ekki finna svara við þeirri
vamaraðverð. Tindastóll náði að
jafna 59:59 um miðjan síðari hálf-
leikinn og sigu síðan í rólegheitun-
um framúr og náðu mest 14 stiga
forystu.
Haraldur og Ingvar héldu Tinda-
stóli á fioti í fyrri hálfleiknum með
mjög góðum leik. Alls gerðu þeir
félagar gerðu 30 stig með þriggja
stiga körfum í leiknum, Ingvar
gerði 6 slíkar og Haraldur ijjórar.
Valur var slakur framan af leiknum
og hitti mjög illa en náði sér ágæt-
lega á strik í seinni hálfleik. Páll
Kolbeinsson lék ekki með en hann
hefur verið meiddur að undanförnu.
Pétur Vopni lék sérstaklega vel
í vörninni og hélt Franc Booker
niðri í síðari hálfleiknum. Booker
var atkvæðamikill þrátt fyrir að
hann léku ekki vel en Brynjar og
Símon voru bestir Valsmanna.
var ég ekki líka kajlaður fyrir,“ sagði
Þorbjöm í gær. „Ég óskaði eftir því
þegar ég vissi að Jón [Hermanns-
son] fengi að flytja sitt mál en var
neitað. Svarið var að „það væri ekki
vani þeirra“ eins og það var orðað.
Svona vinnubrögð þekkjast örugg-
lega ekki á mörgum stöðum í heimin-
um. Það er óþolandi að vera dæmd-
ur af einhveijum mönnum úti í bæ
án þess að geta varið sig,“ sagði
Þorbjöm.
í aganefnd HSÍ era Hjörleifur
Þórðarson, formaður, Karl Jóhanns-
son og Egill Bjarnason. Ekki er
hægt að áfrýja úrskurði nefndarinn-
ar. „Það er allt hægt. Við sjáum til
á morgun [í dag] hvað ég geri,“
sagði Þorbjöm.
FOLK
rL- -
■ RÚNAR Kristinsson knatt-
spymumaður úr KR æfir þessa viku
með franska fyrstu deildar félaginu
Paris St. Germain en hann æfði
með Antwerpen í Belgiu í síðustu
viku.
■ BALDVIN Guðmundsson
knattspymumarkvörður sem verið
hefur í herbúðum Víkings undan-
farin ár, verður ekki áfram hjá fé-
laginu. Hann á að baki rúmlega 100
leiki í 1. deild, flesta með Þór.
■ MAGNÚS Guðmundsson, sem *
hættir fljótlega störfum hjá Knatt-
spymusambandinu, sagði ekki upp,
eins og sagt var í blaðinu á laugar-
dag heldur var honum sagt upp.
Magnús óskaði eftir því að hið rétta
kæmi fram og eins það að hann
hefði boðist til að segja upp í sum-
ar vegna ákveðins máls, en þá hefði
verið óskað eftir að hann héldi
áfram.
■ HALLDÓR Hafsteinsson jú-
dómaður úr Ármanni varð í 11. til
14. sæti af 28 keppendum í -86 kg
flokki á Opna bandaríska meistara-
mótinu sem fram fór í Colorado
um siðustu helgi.
■ HALLDÓR vann kanadískan
mótheija á ippon (fullnaðarsigur
fyrir tímamörk) með kröftugu
mjaðmakasti. í næstu umferð mætti
hann bandarískum mótheija, glímdi
vel framan af en tapaði.
■ HALLDÓR fékk ekki uppreisn-
arglímu — Bandaríkjamaðurinn
tapaði í næstu umferð.
■ ARSENAL er nú í þriðja sæti
í ensku deildinni. Liðið sigraði
Crystal Palace á mánudaginn og
er nú með 26 stig, stigi á eftir
Blackburn og Norwich.
„Magic“ leikur ekki með Lakers í
vetur en fær samt 840 milljónir ÍSK
í laun frá félaginu.
Torfæruhlaup á Hellu
Ungmennafélagið Hekla á Hellu stendur
fyrir torfæruhlaupi á laugardaginn kl. 14.
Hlaupið verður frá íþróttavellinum, fjögurra
km hringur um nágrenni Hellu. Keppt verð-
ur i fjórum flokkum 9 - 12 ára og 13 - 16
ára sem hlaupa einn hring en 17 - 34 ára
og 35 ára og eldri hlaupa tvo hringi.
Skráning í hlaupið hefst samdægurs kl.
12 við Sundlaugina á Hellu og er skráning-
argjald kr. 500.
Til að rýma fyrir nýjum vörum
í tollvörugeymslu bjóðum við
nokkrar tölvur á aldeilis frá-
bæru verði: 386SX-20 með
42Mb disk á kr.89.800 krónur,
486DX-25 með 120MB diská
aðeins 159.800 krónur stgr.
Úrvals tölvur - ótrúlegt verð!
MICROTOLVAN
Suðurlandsbraut 12 - Sími 688944 - Fax 679976