Morgunblaðið - 04.11.1992, Blaðsíða 48
JLtlusCopco
SINDRI
- sterkur í verki
MORGUNBLADW, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Háskólastúdentar
Samskot
í laun
kennara
SJÖTÍU neraar á fyrsta ári í við-
skiptafræði við Háskóla íslands
skutu saman í greiðslu fyrir
kennslu í dæmatímum í stærð-
fræði á þessari önn. Akveðið hafði
verið af hálfu Háskólans að hætta
að greiða fyrir kennsluna vegna
fjárskorts.
Árni Oddur Þórðarson, fjórða árs
nemi í viðskiptadeildinni og annar
leiðbeinenda í dæmatímunum, sagði
að allir fyrsta árs nemar færu í
fyrirlestra í námskeiðinu en aðeins
helmingur þeirra sækti dæmatíma
og væru þeir einkum ætlaðir þeim
' ‘ sem hefðu lélega undirstöðu í grein-
inni. Hann sagði að fjórða árs nem-
ar hefðu yfírleitt séð um að aðstoða
í dæmatímunum. Vegna niðurfell-
ingu greiðslu hefði deildarfélagið
staðið fyrir því að nemendur skytu
saman fyrir greiðslu. Hver stúdent
greiddi 2.000 kr. fyrir kennsluna á
önninni.
Ámi sagði að sér þætti í raun
eðlilegt að nemendur greiddu sjálfir
fyrir námskeiðið, þar sem það væri
ekki metið til eininga. Aftur á móti
^sagði hann að ýmsar aðrar spam-
aðaraðgerðir hefðu slæm áhrif.
Stefnt er að því að spara um 20%
í viðskiptadeildinni.
-----♦ ♦ «---
Ríkisstjómin veitir Jámblendífélaginu 50 milljóna króna fyrirgreiðslu
Svanur í vígahug
Morgunblaðið/Gunnar Blöndal
Tveir skokkarar áttu fótum fjör að launa á Tjarnarbakkanum í Reykjavík þegar þeir hættu sér inn á yfirráðasvæði fuglanna og fengu óblíðar
móttökur hjá bálreiðum svani.
Grípu þjóf
á hlaupum
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
handtók í fyrrinótt á hlaupum
ungan mann sem reyndi að brjót-
ast inn í verslun Freeman’s pönt-
unarlistans við Bæjarhraun. Við-
vörunarkerfi verslunarinnar fór
í gang og starfsmenn Vara létu
lögreglu vita um yfirstandandi
innbrot.
Lögreglumenn lögðu hald á kú-
bein og skrúfjám sem þjófurinn
hafði beitt við innbrotið. Ekkert
þýfí hafði hann upp úr krafsinu.
Maðurinn er grunaður um aðild að
fleiri innbrotum.
Starfsemi haldið gangandi
meðan eigendur ákveða sig
Héldum ekki út lengur, segir Jón Sigurðsson framkvæmdasljóri
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær að veita íslenska jám-
blendifélaginu á Grundartanga
50 milljóna króna fyrirgreiðslu,
sem annað hvort verður fólgin í
Iáni eða ábyrgð á bankaláni. Að
sögn Friðriks Sophussonar fjár-
málaráðherra dugar þetta fé til
að halda rekstri verksmiðju fé-
lagsins gangandi í um það bil
mánuð, þar til (jóst er hvort með-
eigendur rikisins í verkmiðjunni
vilja taka þátt í aðgerðum til að
bjarga fyrirtækinu með aukningu
hlutafjár.
Staða Járnblendifélagsins er afar
erfíð og var 38 af starfsmönnum
verksmiðjunnar á Grundartanga
sagt upp fyrir rúmum mánuði. Tap
fyrirtækisins var 220 miipnir króna
á fyrri hluta ársins. Ekki er útlit
fyrir bata á mörkuðum þess fyrir
kísiljárn eitt eða tvö næstu ár. Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur
sent meðeigendum fslenzka ríkisins
í Járnblendifélaginu, norska fyrir-
tækinu Elkem og japanska fyrirtæk-
Forysta Alþýðusambandsins fjallar áfram um leiðir í efnahagsmálum
Gengið ræðst af afstöðu ASÍ
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins
FORYSTUMENN innan Alþýðusambands íslands funduðu í gær um
stöðu efnahags- og atvinnumála, en önnur niðurstaða fékkst ekki á
fundinum en sú að málin yrðu skoðuð áfram næstu daga. Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, lýsir yfir miklum vonbrigðum
með að forysta ASÍ hefði ekki tekið skýra afstöðu til framhaldsins og
sagði að fastgengisstefnan stæði og félli að vissu marki með viðbrögð-
um verkalýðsforystunnar á næstu dögum.
Ásmundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambandsins sagði, eftir langan
fund forystumanna ASÍ í gær, að
eitt þýðingarmesta málið væri hvem-
ig afla eigi tekna sem tapast ef að-
stöðugjald sveitarfélaganna verður
lækkað eða fellt niður. „Það varð
niðurstaða í ýmsum atriðum en við
erum ekki með samstæðan pakka.
Við þurfum að fara yfir málin betur
og það verður áframhald á vinnu af
okkar hálfu. Menn voru sammála um
það að það skipti mjög miklu að við
fyndum einhvern flöt sem gæti geng-
ið upp,“ sagði Ásmundur.
„Aðstöðugjaldið er eitt af þeim
atriðum sem hefur verið til umræðu.
Það er í sjálfu sér ekki snúið mál
að ná um það samstöðu að fella gjöld
burtu. Vandinn kemur upp þegar
farið er yfir það með hvaða hætti
er hægt að afla fjár í staðinn og að
hvaða marki það er nauðsynlegt. Það
er viðkvæma hliðin í öllum umræðum
af þessu tagi,“ sagði Ásmundur.
Hann sagði að margir dagar gætu
liðið áður en niðurstaða fengist.
Þórarinn V. Þórarinsson sagði að
málið snerist um það hvort unnt
væri með breytingu á kostnaði at-
vinnulífsins að styrkja stöðu þess
þannig að gengi krónunnar fáist
staðist. Hins vegar væri tíminn til
aðgerða orðinn naumur. „Ef verð-
bólguleiðin verður niðurstaðan þá er
það vegna þess að menn hafa ekki
treyst sér til að taka á málunum og
það mun fara verst með atvinnustig-
ið og þá sem lakast standa," sagði
Þórarinn.
Hann sagði gríðarlega aðkallandi
að ná samstöðu innan verkalýðs-
hreyfíngarinnar um úrræði til að
lækka kostnað atvinnulífsins. Annars
yrði ekki komist hjá mikilli gengis-
fellingu, og þá stæði þjóðin frammi
fyrir svipuðum vanda og Finnar
hefðu gert, er gengi finnska marks-
ins féll. Um þessi úrræði yrðu menn
að koma sér saman fyrir miðjan
þennan mánuð.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands, sagði
ekki koma til greina af hálfu Verka-
mannasambandsins að taka þátt í
tillöguflutningi sem skerti laun lág-
launafólks. „Eg ætla að vona að til
séu peningar annars staðar í þjóðfé-
laginu,“ sagði hann.
Örn Friðriksson, formaður Félags
járniðnaðarmanna, sagði að ASÍ
vænti þess að árangur næðist af
auglýsingaherferð íslensks iðnaðar
sem ákveðið hefur verið hleypa af
stokkunum í útvarpi og sjónvarpi.
Öm sagði að lögð hefði verið fram
greinargerð á fundinum um ástand
og horfur í atvinnumálum og þar
hefði m.a. komið fram að íslenskur
iðnaður færi mjög halloka fyrir inn-
fluttri vöru. Örn sagði aðstöðugjaldið
koma illa niður á innlendum iðnaði,
enda bæri innlend vara margföld
aðstöðugjöld miðað við innflutta.
inu Sumitomo, bréf þar sem spurt
er um afstöðu þeirra til aðgerða til
að auka eigið fé fyrirtækisins. Svar
hefur borizt frá Sumitomo og að
sögn Friðriks Sophussonar er jap-
anska fyrirtækið ekki tilbúið að taka
þátt í slíkum aðgerðum. Elkem hefur
ekki gefíð svar, en gífurlegir erfíð-
leikar eru hjá fyrirtækinu. Framtíð
þess er í óvissu og til greina kemur
að norski ríkissjóðurinn komi Elkem
til bjargar.
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Jámblendifélagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að fyrir-
greiðsla ríkissjóðs væri bráðabirgða-
ráðstöfun, til þess ætluð að kaupa
tíma á meðan fjallað væri um neyð-
aráætlun þá, sem framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins hefur lagt fyrir
eigendur, lánardrottna og viðskipta-
menn. „Við einfaldlega héldum ekki
út lengur," sagði hann.
Jón sagði að í áætlun fyrirtækis-
ins væri ekki lagt mat á horfur á
kísiljárnmarkaði næstu tvö ár, en
gert ráð fyrir að fyrirtækið yrði að
standa sig við óbreyttar aðstæður.
„Fyrir utan þær margbrotnu og
hörðu sparnaðaraðgerðir, sem við
höfum ráðizt í heima fyrir, höfum
við leitað samninga við Landsvirkjun
um lækkun orkuverðs og samninga
við alla okkar helztu viðskiptamenn.
Einnig er leitað til hluthafanna um
aukið hlutafé og við leitum eftir
samningum við banka um einhverja
umlíðun á endurgreiðslu lána. Öllum
er ljóst að þetta er mjög vond staða
og allir eru að reyna að leggja eitt-
hvert mat á hana til að komast að
viti borinni niðurstöðu."