Morgunblaðið - 15.11.1992, Side 1

Morgunblaðið - 15.11.1992, Side 1
64 SIÐUR B 262. tbl. 80. árg. Reykingakonur líkari körlum KONUM sem reykja hættir til að fitna um magann þrátt fyrir þá útbreiddu trú manna að reykingar haldi þyngd- inni niðri. Rannsókn, sem kynnt var í International Journal of Obesity, tíma- riti um offitu, sýnir að reykingar valda hormónábreytingum í konum og karl- mannlegri vexti. Fitan safnast þá frek- ar á kvið og maga en á mjöðmum og þjóhnöppum. Fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna að reykingar breyti hormónajafnvægi kvenna, sem verður þá líkara því sem einkennir karla. Þetta veldur því að konur komast fyrr á bréýtingaskeið, auk þess sem þær hafa sjaldnar á klæðum og hárvöxtur þeirra eykst. Fílarnir gerast æ heimtufrekari BÍLSTJÓRAR á Indlandi verða oft að múta fílahjörðum með banönum til að fá að komast leiðar sinnar á þjóðvegun- um í norðausturhluta landsins. Bílstjór- arnir neyðast því til að hafa með sér miklar birgðir af ávöxtunum og fyrir hina óforsjálu hafa sprottið upp ban- anasölubásar beggja vegna þjóðveg- anna. „Það er sama hvað bílstjórarnir hamast á flautunni, fílarnir harðneita að hreyfa sig nema þeir fái banana,“ sagði embættismaður. Fílum hefur fjölgað gífurlega að undanförnu á þess- um slóðum og þorpsbúar óttast mjög árásir fílahjarða í leit að matvælum. Þeir segja að fíiarnir hafi drepið 400 manns undanfarin átta ár og valdið gífurlegu Ijóni á uppskeru. Yfirvöld hafa látið reisa rafmagnsgirðingar umhverfis þau þorp sem eru í mestri hættu vegna ágengni fílanna. Finnskir kommun- istar gjaldþrota? Kommúnistaflokkurinn í Finnlandi, sem var áður ríkur og áhrifamikill, kann að verða gjaldþrota á næstunni. Formaður flokksins, Ilelja Ketola, seg- ir að ákveðið verði á miðstjórnarfundi um helgina hvort leggja eigi fram gjaldþrotsbeiðni. Skuldir flokksins nema nú 125 milþ'ónum marka (1,5 milljörðum ÍSK) og eignirnar ípO millj- ónum marka (1,2 milljörðum ÍSK), en flokkurinn á meðal annars Menningar- húsið sem finnski arkitektinn Alvar Aalto hannaði. Flokkurinn tapaði miklu fé á hlutabréfabraski fyrir nokkrum árum, þegar hann keypti meðal annars hlutabréf i tiskufataverslun í Helsinki. Flokkurinn var stofnaður í Moskvu árið 1918 og er einn af sex elstu komm- únistaflokkum heims. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 15. NOVEMBER 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins kynnir skoðanakönnun VIÐ TOLLSTOÐINA Morgunblaðið/Kristinn Stuðningur almennings við Maastricht fer minnkandi Brussel. The Daily Telegraph. STUÐNINGUR almennings við Maastricht-sáttmálann um aukinn samruna ríkja Evrópu- bandalagsins hefur minnkað frá því í vor, samkvæmt könnun sem framkvæmdastjórn bandalagsins birti á föstudag. Mest er andstaðan við sáttmálann í Bretlandi, þar sem 62 af hundraði aðspurðra sögðust andvígir honum. Danir koma næstir með 53%. í þeim tveimur ríkjum sem hafa beitt sér mest fyrir auknum samruna EB-ríkjanna kom fram vaxandi óánægja almennings með Maastricht-sáttmálann. í Frakklandi voru 46 af hundraði andvígir sáttmálanum og í Þýska- landi 41%. Skoðanakönnunin var gerð skömmu eftir að Bretar gengu úr Gengissamstarfí Evrópu (ERM) og eftir ringulreiðina á gjaldeyrismörk- uðum í september. í löndunum í heild minnk- aði stuðningurinn við Maastricht um 3-5 prósentustig og mestur var hann í Suður-Evr- ópu. 85% ítala og 80% Portúgala voru hlynnt sáttmálanum. Flestir þeirra sem tóku þátt í könnuninni viðurkenndu að þeir hefðu litla þekkingu á sáttmálanum og kyndir það undir gagnrýni á framkvæmdastjórnina og stjórnvöld í aðild- arríkjunum um að þau hafi ekki kynnt hann nægilega. Ef marka má könnunina er þekking Dana mest, því 41 af hundraði þeirra kvaðst hafa kynnt sér málið. Aðeins 17% Breta sögðust vita eitthvað um sáttmálann og 8% Spán- Hlaupararnir voru á aldrinum 20-40 ára og virtust við góða heilsu áður en þeir urðu örendir. Þeir bjuggu allir í Dölunum í Sví- þjóð og þekktust vel. Talið er að þeir hafi dáið af völdum lungnabólguveiru, sem smit- ast líkt og kvef og getur verið banvæn við veija. í löndunum í heild kvaðst einn af hveij- um fimm vita um hvað málið snerist. Þrír af hveijum fimm voru þeirrar skoðun- ar að sáttmálinn væri af hinu góða fyrir bandalagið. 27% töldu að hann myndi bæta lífskjör þeirra en 17% voru á öndverðum meiði. Sjá Baksvið á bls. 4. mikla áreynslu. Læknar segja hugsanlegt að sama veira hafi valdið dularfullum dauðsfollum í öðrum íþróttum. Nokkrir ungir hjólreiðamenn hafa til að mynda dáið skyndilega í Hollandi og Belgíu á undanförnum árum. Banvæn veira heijar á sænska íþróttamenn 3.000 hlauparar rannsakaðir Stokkhólmi. The Daily Telegraph. SÆNSK heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að rannsaka 3.000 víðavangshlaupara vegna veiru, sem talin er hafa valdið átta dularfullum dauðsföllum á meðal vel þjálfaðra hlaupara á undanförnum þremur árum. FORSJÁRDEILUR OG FORDÓMAR ? NÚ ER LOKS EITTHVAÐ GOTT A0 GERASTí ÁSGEIR ÁSGEIRSSON UBAN0N 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.