Morgunblaðið - 15.11.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1992
27
AUGLYSINGAR
Fiskimálastjóri
Fiskifélag íslands auglýsir lausa stöðu fiski-
málastjóra, sem er jafnframt framkvæmda-
stjóri félagsins.
Umsóknum um starfið sé skilað til auglýs-
ingadeildar Mbl. merktar: „Fiskimálastjóri -
11297“ fyrir 25. nóvember nk.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
HÆFINGARDEILD
YFIRLÆKNIR
Yfirlæknir óskast til að veita forstöðu nýrri
deild, sem verið er að setja á fót á Ríkisspít-
ölum. Deildin verður hæfingardeild og starf-
rækt í húsnæði núverandi endurhæfingar-
deildar Landspítalans og á Kópavogshælinu.
Yfirlæknirinn verður að vera sérfræðingur í
orkulækningum og vera tilbúinn að vinna að
undirbúningi og stofnun deildarinnar og
framtíðarstefnumótun ásamt fagfólki, sem
fyrir er. Yfirlæknirninn verður að geta hafið
störf sem allra fyrst, helst 1. mars 1993.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri Ríkisspít-
ala.
Umsóknir ber að senda stjórnarnefnd Rík-
isspítala fyrir 31. desember 1992.
LANDSPITALINN
HANDLÆKNINGADEILD 12-G
HJUKRUNARFRÆÐINGUR
Á handlækningadeild 12-G bráðvantar hjúkr-
unarfræðing til starfa frá 1. janúar 1993. Á
deildinni eru 23 rúm. Hún er mjög fjölbreytt
og þar starfa sérfræðingar á sviði meltingar-
færa-, slagæða- og bæklunarlækninga.
Deildin er þekkt fyrir góðan starfsanda og
samhent vinnubrögð. Um er að ræða allar
vaktir, en þó kemur til greina að ráða ein-
göngu á næturvaktir.
Nánari upplýsingar veitir Anna Lilja Reimars-
dóttir, deildarstjóri, í síma 601400, og Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri
, í síma 601366.
KOPAVOGSHÆLI
VINNUSTOFUR
ÞROSKAÞJÁLFAR
Okkur vantar nú þegar þroskaþjálfa til starfa
við uppbyggingu á nýopnaðri fjölfötlunar-
deild. í vinnusali vantar einnig þroskaþjálfa,
sem vanur er stjórnun og að leiðbeina starfs-
fólki.
Um er að ræða fullt starf deildarþroska-
þjálfa, en einnig koma hlutastörf til greina.
Vinnutími er frá kl. 8.30 til 16.30 eða eftir
nánara samkomulagi. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi reynslu í þjálfun fjölfatlaðra og
á sviði stjórnunar.
Nánari upplýsingar um kjör og starfshætti
veitir Árni Már Björnsson, yfirþroskaþjálfi
vinnustofanna, í síma 602735 eða Hulda
Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi Kópavogshæl-
is, í síma 602700.
RANNSOKNAST. HASKOLANS
FRUMULÍFFRÆÐIDEILD
SAMEINDALÍFFRÆÐINGUR -
FAGDEILDARSTJÓRI
Óskum eftir að ráða tímabundið starfskraft
til sameindalíffræðilegra rannsókna á
krabbameinsfrumum. Líffræðimenntun,
meinatæknimenntun eða önnur sambærileg
menntun nauðsynleg. Um er að ræða hluta-
starf. Frekari upplýsingar veitir Rósa Björk
Barkardóttir í síma 601908.
BORGARSPÍTALINN
Aðstoðarlæknar
Staða reynds aðstoðarlæknis við lyflækn-
ingadeild er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. mars 1993 til eins árs.
Umsóknir sendist yfirlækni lyflækningadeild-
ar fyrir 1. desember nk.
Rekstrartækni-
fræðingur
frá Danmörku (1985), viðskiptafræðinám
1985-1987, sækir um starf við verkefna-
stjórnun eða framleiðslustjórnun.
Hann starfar í Danmörku sem ráðgefandi
tæknifræðingur. Starfsreynsla: 2 ár við fram-
leiðslustjórnun í skipasmíðastöð, 2 ár við
verkefnastjórnun í hugbúnaðarfyrirtæki og
síðastliðin 4 ár sem ráðgjafi við verkefna-
stjórnun og þróun hugbúnaðar við bygging-
ar-, umhverfismála- og orkuverkefni.
Góð þekking á ISO 9000 og innfærslu þess
í fyrirtæki. Tungumálaþekking er góð.
Upplýsingar hjá Hirti Eiríkssyni, Vinnumála-
sambandi samvinnufélaganna, sími 686855.
Vilt þú
vinna sjálfstætt
í eigin fyrirtæki og hafa
umtalsverða tekjumöguleika?
Af sérstökum ástæðum er til sölu, að hálfu
eða öllu leiti, þrifalegt og fallegt fyrirtæki í
framleiðslu- og þjónustugeiranum.
Fyrirtækið er vel staðsett og í góðu hús-
næði. Starfsmannafjöldi 3-6 á vakt f einu.
Áætluð velta á næsta ári 15-20 milljónir á
mánuði. Mjög góð álagning.
Fyrirtækið hentar jafnt konum sem körlum
eða heilli fjölskyldu.
Söluverð 9 millj. 50% eða 18 miilj. 100%.
Hluti af kaupverði má vera góð fasteign eða
fasteignaverð.
Áhugasamir sendi bréf með helstu upplýs-
ingum, s.s. nafni, heimilisfangi, síma og
starfsreynslu, til auglýsingadeildar Mbl.,
Aðalstræti 6, merkt: „Kjörið tækifæri - 6789".
Kennarar
Frá áramótum vantar kennara við grunn-
skóla Njarðvíkur í alls 32 stundir.
Kennslugreinar: Enska, samfélagsfræði,
líffræði og myndmennt.
Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson, skóla-
stjóri í síma 92-14399 eða 92-14380.
Skólastjóri.
Bæjarstjóri
Laus er til umsóknar staða bæjarstjóra
Ólafsfjarðar.
Starfssvið bæjarstjóra:
★ Bæjarstjóri hefur með höndum daglega
framkvæmdastjórn bæjarfélagsins og
fylgir eftir samþykktum og ákvörðunum
bæjarstjórnar hverju sinni.
★ í starfinu felst yfirstjórn fjármála bæjarfé-
lagsins, umsjón með gerðfjárhagsáætlana.
★ Yfirumsjón með starfsmannahaldi.
★ Bæjarstjóri gætir hagsmuna bæjarfélags-
ins út á við og annast samskipti við stofn-
anir, fyrirtæki og samtök.
Ráðningarskilmálar:
Ráðningarsamningur bæjarstjóra gildir til
loka yfirstandandi kjörtímabils,
þ.e. maí 1994.
Bæjarstjóri þarf að geta haf ið störf sem fyrst.
Við leitum að hæfum einstaklingi í þetta
mikilvæga starf, sem hefur þekkingu og
reynslu áf stjórnunarstörfum. Reynsla og
þekking á málefnum sveitarfélaga er æski-
leg, en þó ekki skilyrði. Viðkomandi þarf að
hafa frumkvæði og lifandi áhuga á stjórnun
og starfsemi bæjarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Bæjarstjóri Ólafsfjarðar",
fyrir 21. nóvember nk.
Haevai nirurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Simi 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Norræna listamiðstöðin
auglýsir lausar til umsóknar tvær norrænar stöður sem skipað er
ítil fjögurra ára (með hugsanlegum möguleika á framlengingu).
Norræna listamiðstöðin er samnorræn stofnun sem
hefur það að verkefni að stuðla að framgangi norrænn-
ar samvinnu á sviði myndlistar. Skrifstofa stofnunarinn-
ar er í Sveaborg, sem er eyjaklasi við innsiglinguna til
Helsinki. Starfsemin gengur út á að setja saman og
dreifa sýningum, gefa út listatímaritið SIKSI, reka gesta-
vinnustofur, skrásetningarvinnu, ráðstefnuhöld o.s.frv.
Frá árinu 1990 er norræn lista- og listiðnaðarnefnd
(NKKK) stjórn miðstöðvarinnar. Starfsmenn miðstöðvar-
innar telja eins og stendur fimmtán og hefur fram-
kvæmdastjóri yfirumsjón með starfseminni. Sýninga-'
stjóri er yfirmaður sýningadeildarinnar en þar að auki
eru starfandi sýningaumsjónarmaður, sýningaritari og
tæknimaður.
Sýningastarfsemin gengur fyrst og fremst út á norræna
samtímalist, sem aðallega er sýnd innan Norðurland-
anna. Tveir sýningasalir eru í Sveaborg, einn 400 fm
og annar 200 fm og eru settar upp um tíu sýningar í
þeim á ári. Norræna sýningin Borealis, sem fer fram
annað hvert ár, er dæmi um stærri verkefni sem mið-
• stöðin stendur fyrir.
Sýningastjóri
Staðan krefst skjalfestrar reynsiu af sýningastarfsemi
í tengslum við list, vísindalega menntun á sviði lista sem
og víðtæka þekkingu á norrænni samtímalist og nor-
rænu listalífi.
Mikil áhersla er lögð á góða skipulagningar-
og stjórnunarhæfileika sem og góða samstarfshæfi-
leika. Reynsla af verkstjórn er kostur.
Umsækjenda ber að hafa vald á dönsku, norsku eða
sænsku og þar að auki ensku.
Laun greiðast samkvæmt launaflokki A 23 (byrjunarlaun
eru 11.268 FIM á mánuði og hámarkslaun að meðtöld-
um öllum aldurshækkunum 14.390 FIM á mánuði).
Fyrir embættismann, sem ekki er finnskur ríkisborgari,
bætist þar að auki við styrkur til að koma sér fyrir og
staðaruppbót, sem er skattlögö í Finnlandi, sem og
fiutningastyrkur.
Sýningaumsjónarmaður
Sýningaumsjónarmaðurinn heyrir undir sýningastjór-
ann, en starfar sjálfstætt að sýningaverkefnum sem
ákveðin hafa verið. Staðan krefst skjalfestrar reynslu
af sýningastarfsemi og vísindalegri menntun á sviði lista.
Umsækjanda ber að hafa vald á dönsku, norsku eða
sænsku auk ensku.
Laun greiðast samkvæmt launaflokki A 20 (byrjunarlaun
eru 8.998 FIM á mánuði og hámarkslaun að meðtöldum
öllum aldurshækkunum 11.491 FIM á mánuði).
Fyrir embættismann, sem er ekki finnskur ríkisborgari,
bætist þar að auki við styrkur til að koma sér fyrir og
staðaruppbót, sem er skattlögð í Finnlandi, sem og
flutningastyrkur.
Umsóknir verða að berast miðstöðinni í síðasta lagi
4. desember 1992. Störf ber að hefja sem allra fyrst
eða samkvæmt sérstöku samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Staffan Carlén, framkvæmda-
stjóri miðstöðvarinnar.
Umsóknir sendist Nordisk Konstcentrum, Sveaborg,
SF-001909 Helsingfors.
Sími 90-358-0-668143, fax 90-358-0-668594.