Morgunblaðið - 24.11.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.11.1992, Qupperneq 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 269. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ríkisstjórnin tilkynnir efnahagsaðgerðir og boðar þróunargjald á aflakvóta GJALDTAKA YTIR UNDIR SÆTTIR í ÞJÓÐFÉLA GINU Þýskaland Nýnasistar myrða inn- flytjendur Mölln, Bonn, Amsterdam. Reutcr. MIÐALDRA, tyrknesk kona og tvær tyrkneskar stúlkur biðu bana þegar nýnasistar kveiktu i tveimur húsum í bænum Mölln suður af Liibeck í Þýskalandi aðfara- nótt mánudags. Þýska stjórnin fordæmdi glæpinn harðlega í gær og tyrknesk stjórnvöld lýstu aðför nýnas- ista að tyrkneskum innflylj- endum sem glæp gegn mannkyninu. Upp úr miðnætti sl. nótt hringdi ókunnur maður til lög- reglu og slökkviliðs og lét vita af því að eldur logaði í húsun- um. Lauk hann símtalinu með nasistakveðjunni: „Heil Hitl- er.“ Hollensk yfirvöld brugðust ókvæða við í gær er í ljós kom að tveir ungir þýskir nýnasistar höfðu myrt 53 ára Þjóðveija, ekið með líkið yfir hollensku landamærin og losað sig við það. Morðingjamir segjast hafa talið hinn myrta vera gyðing sem hann var ekki. Reuter Reiðir bændur í Frakklandi Franskir bændur kveikja í hjólbörðum og spýtnabraki við kókverksmiðju í suðurhluta Parísar í gær. Ástæðan fyrir reiði bændanna er einkum krafa Bandaríkjamanna um að Frakkar og fleiri þjóðir Evrópubandalagsins dragi úr niðurgreiðslum og styrkjum sem hindra erlenda framleiðendur í að keppa á mörkuðum EB. Nokkrir franskir fjölmiðlar vöruðu í gær við því að hagsmunir ákveðins hluta bændastéttarinnar væru látnir ráða stefnunni. Sjá frétt á bls. 27. Talsmaður norskrar fiskvínnslu um gengisfellingu á íslandi Áfall fyrir sjávar- útveg- Norðmanna Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. „GENGISFELLING íslensku krónunnar er mikið áfall fyrir okkur,“ sagði Geir Andreassen, einn af frammámönnum í samtökum norskra fiskvinnslustöðva, í gær þegar hann frétti af efnahagsaðgerðum is- lenskra stjórnvalda. Bætti hann því við að fiskvinnslan í Noregi krefðist þess að gengi norsku krónunnar yrði fellt í kjölfar gengis- fellingar gjaldmiðla í mörgum helstu viðskipta- og samkeppnislönd- um Norðmanna. Fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu í Noregi kemur gengisfelling ís- lensku krónunnar ofan í gengisfell- ingu á Spáni og í Portúgal og áður hafði gengið fallið í löndum, til dæmis í Bretlandi og Ítalíu, sem eru mikilvægir markaðir fyrir norskar sjávarafurðir. „Lönd sem svara til 75% af mark- aðinum fyrir norskar sjávarafurðir hafa annaðhvort fellt gengið eða látið það fljóta. Afleiðingin er sú að verulega hefur hægt á fisksölu meðan markaðimir bíða eftir því til hvaða aðgerða Norðmenn grípa. Greiðsluflæðið er því lítið og það er farið að valda mörgum fyrirtækj- um vandræðum," sagði Andreassen. Andreassen segir að með því að fella krónuna um sex prósent hafi íslendingar ,jafnað“ stöðuna gagn- vart stóru fiskmörkuðunum og hjá því verði heldur ekki komist fyrir Norðmenn. Síðan í haust þegar gengi sterl- ingspunds og líru var látið fljóta hafa norskir fiskframleiðendur átt í vaxandi erfíðleikum með að koma frá sér vöra og það gildir einnig um iaxeldið. Paul Birger Torgnes, framkvæmdastjóri í samtökum norskra laxeldisstöðva, segir að 10% af norska laxinum fari til Spánar þar sem allt sé orðið erfiðara en áður samtímis því að Skotar, helstu keppinautar Norðmanna, njóti gengisfeliingar pundsins. Segir hann að annaðhvort verði að láta gengi norsku krónunnar fljóta eða létta mikið álögum af atvinnugrein- inni. Sjá ennfremur frétt á bls. 27. - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra — Gengið fellt um 6% — Verðbólga verður 4,5% — Afkoma sjávarútvegs batnar um 5% — Kaupmáttur skerðist um 4,4% — Komin út úr þjóðarsátt, segir formaður VMSÍ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ákvörðun ríkissljórnar- innar að taka upp þróunargjald á aflakvóta frá og með fiskveiðiár- inu 1996-1997 sé til þess fallin að ýta undir sættir í þjóðfélaginu og sé tekin í anda lagaákvæðis um að fiskimiðin séu sameign þjóðar- innar. Ríkisstjórnin tilkynnti í gær efnahagsaðgerðir, sem styrkja eiga stöðu atvinnulífsins og sporna gegn atvinnuleysi. Gengi krón- unnar er fellt um 6% til að auka tekjur útflutningsatvinnuvega. Aðstöðugjald fyrirtækja er fellí niður. Tekjuskattur einstaklinga er hækkaður, lagður á hátelyuskattur og benzíngjald er hækkað. Undanþágum frá virðisaukaskatti er fækkað. Stofnaður verður þróunarsjóður sjávarútvegsins, sem úrelda á fiskiskip og vinnslu- stöðvar, og á þróunargjaldið meðal annars að standa undir tekjum hans í framtíðinni. Aðgerðir ríkissljórnarinnar fengu neikvæðar viðtökur á þingi Alþýðusambandsins á Akureyri. „Við erum komin út úr stöðugleikanum. Við erum komin út úr því sem einhvern tím- ann var kallað þjóðarsátt," sagði Björn Grétar Sveinsson, formað- ur Verkamannasambandsins. Helztu atriði efnahagsaðgerða rík- isstjómarinnar era þessi: • Gengi íslenzku krónunnar er fellt um 6%. Gengi Bandaríkjadals hækk- ar um 7,9% og er nú 63,60 krónur en var 58,94 kr. fyrir helgi. Flestir evrópskir gjaldmiðlar hækka um 5-6%. Sterlingspundið hækkar úr 90,53 kr. í 96,07 kr. og dönsk króna úr 9,68 lfr. í 10,17 kr. • Aðstöðugjald fyrirtækja verður fellt niður en sveitarfélögum bætt upp tekjutapið til bráðabirgða með hlutdeild í tekjum ríkissjóðs. • Auk áður ákveðinna aðgerða verður 500 milljónum króna varið til aðgerða í atvinnumálum á Suður- nesjum og 500 milljónum til bygging- ar og viðhalds opinberra mannvirkja. • Tekjuskattshlutfall einstaklinga verður hækkað um 1,5% og lækka skattleysismörk því um 2.000 krón- ur. Næstu tvö ár verður lagður sér- stakur 5% hátekjuskattur á tekjur, sem era yfír 200.000 kr. hjá einstakl- ingi og 400.000 hjá hjónum. • Strax um áramót leggst 14% virð- isaukaskattur á húshitun og afnota- gjöld útvarps og sjónvarps, 1. júlí á blöð, bækur og tímarit og 1. septem- ber á hótelgistingu og fólksflutninga. Frá áramótum verður endurgreiðsla af virðisaukaskatti af vinnu við íbúð- arhúsnæði lækkuð í 60%. • Benzíngjald verður hækkað um 1,50 kr. á iítra frá því sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. • Viðmiðunarmörk reiknaðra launa einstaklinga í atvinnurekstri hækka um 15% og skatteftirlit verður hert. • Ríkisútgjöld verða skorin niður um 1.240 miHjónir frá fjárlagafrum- varpi. Auk þess á að draga úr út- gjöldum vegna bamabóta um 10%. • Stjómin vill stuðla að vaxtalækk- un með óbeinum aðgerðum. Dráttar- vextir verða lækkaðir um 2-2,5%. • Þróunarsjóður sjávarútvegsins fær fjóra milljarða króna til ráðstöf- unar með skuldabréfum. Að auki eiga gjöld á fiskiskip og vinnslustöðv- ar að renna til sjóðsins. Kvótaárið 1996-1997 verður lagt þróunargjald á hvert kíló úthlutaðs kvóta, sem renna á í sjóðinn. Að mati Þjóðhagsstofnunar verða helztu efnahagsleg áhrif aðgerðanna þau að verðbólga verður 4,5% á næsta ári og kaupmáttur ráðstöfun- artekna dregst saman um 4,4%. Af- koma sjávarútvegsins batnar um tæplega 5% og viðskiptahalli, sem spáð var að yrði 12 milljarðar á næsta ári, lækkar í um 8 milljarða. Á þingi Alþýðusambandsins á Akureyri fengu aðgerðir ríkisstjóm- arinnar neikvæðar viðtökur. Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ sagði þær valda sér vonbrigðum, þar sem hann hefði talið að stjómin myndi fara eftir hugmyndum verkalýðs- hreyfingarinnar. Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, sagði aðspurður hvort ákvarðanir stjómar- innar kölluðu á aðgerðir verkalýðs- hreyfingarinnar, að samningar væra lausir 1. marz og sú dagsetning yrði mönnum æ hugstæðari. í umræðum á Alþingi um efna- hagsráðstafanimar sagði Jón Bald- vin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins að frumkvæði aðila vinnu- markaðarins hefði skilað góðu verki og þess sæjust rækilega merki í að- gerðum stjómarinnar. Steingrímur Hermannsson formaður Framsókn- arflokksins taldi ekki nóg að gert fyrir sjávarútveginn og hvað vaxta- lækkun varðaði, taldi hann að ríkis- stjómin yrði að beita „handaflinu einnig". Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í gærkvöldi að hann teldi efna- hagsaðgerðimar í heild sinni ein- hveijar þær merkustu, sem ráðizt hefði verið í. „Þær era skilvirkar og varanlegar. Þær eru ekki byggðar á að skattpeningar ríkisins séu sendir eitthvert. Það er að vísu stofnaður lánasjóður, en hann verður síðan endurgreiddur ríkisvaldinu. Þannig að þetta er alger hugarfars- og stefnubreyting. Eg er viss um að ef tekið verður á þessum niðurstöðum af ábyrgðartilfinningu, sem ég veit að almenningur gerir kröfu til, era menn búnir að leggja góðan grund- völl að framtíðinni hér,“ sagði Davíð. Sjá umfjöilun á bls. 2, 20-25, 28-29, 32, 34 og baksíðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.