Morgunblaðið - 26.11.1992, Page 1

Morgunblaðið - 26.11.1992, Page 1
72 SIÐUR B/C 271. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Efnahagsundur Þjóðveija Kohl minnir á þátt útiendinga Bonn. Reuter. The Daily Telegraph. HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, varaði í gær við útlendinga- hatri í landinu og sagði að ef útlendingar hefðu ekki komið til starfa í landinu væri velmegun Þjóðverja mun minni. Þetta er í fyrsta sinn sem Kohl ræðir vaxandi útlendingahatur í landinu eftir að ný-nasistar kveiktu í húsi á mánudag með þeim afleið- ingum að tyrknesk kona og tvær tyrkneskar stúlkur biðu bana. Þessi atburður olli miklu uppnámi í Tyrk- landi og stjórnin í Ankara tilkynnti í gær að hún hygðist senda nefnd til að rannsaka aðstæður tyrk- neskra innflytjenda í Þýskalandi. Kohl virtist vera í mun að halda hægrisinnuðum kjósendum góðum því hann lagði áherslu á að lýðræð- inu í Þýskalandi stafaði jafn mikil ógn af vinstrisinnum og ný-nasist- um. Háttsettur embættismaður í varnarmálaráðuneytinu sagði hins vegar að ný-nasistar væru mun fleiri en herskáir vinstrimenn. Um 6 milljónir útlendinga eru í Reuter Kosið á írlandi Mary Robinson, forseti írlands, greiðir atkvæði í þingkosning- unum sem voru í gær. Ef marka má kannanir getur Albert Reynolds, forsætisráðherra og formaður Fianna Fail-flokks- ins, ekki gert sér vonir um meirihluta og því líkur á sam- steypustjóm eftir kosningam- ar. Auk þingkosninganna voru greidd atkvæði um tillögu þar sem kveðið er á um takmarkað- an rétt kvenna til fóstureyð- inga, sem nú em bannaðar, og var talið að hún yrði felld. Þýskalandi og Kohl sagði að þeir hefðu upphaflega komið til landsins að beiðni þýskra stjórnvalda til að aðstoða við að endurreisa efnahag- inn eftir ósigur nasista í síðari heimsstyrjöldinni. „Hver sem lætur leiða sig út í útlendingahatur ætti að átta sig á að án þessa fólks væri velmegunin í landinu alls ekki möguleg," sagði Kohl. Hann bætti við að erlendir launþegar og at- vinnurekendur í vesturhluta Þýska- lands hefðu lagt mikið af mörkum, eða um 9% af vergri þjóðarfram- leiðslu sameinaðs Þýskalands í fyrra. „Af 1,9 milljónum erlendra launþega í vesturhluta Þýskalands starfar ein milljón við iðnað, náma- gröft, byggingar og þjónustu. Ef þeir væm ekki hér væri þjóðarfram- leiðsla okkar miklu minni." Erlendir verkamenn, einkum Tyrkir, flykktust með fjölskyldur sínar til Vestur-Þýskalands á sjö- unda og áttunda áratugnum að frumkvæði vestur-þýsku stjómar- innar og áttu stóran þátt í þýska „efnahagsundrinu". Sjá frétt á bls. 23. Reuter Frakkar hóta aðfella GATT- samning Lögreglumenn í París fá yfir sig skæðadrífu af járngrindum og öðru braki frá bændum er mót- mæltu samningi Evrópubanda- lagsins (EB) og Bandaríkjanna um landbúnaðarhluta GATT-við- skiptasamkomulagsins. Tugir- manna slösuðust í átökum víða um landið. Framkvæmdastjórn EB samþykkti samninginn í gær einróma. Franska' stjómin hélt velli í atkvæðagreiðslu á þingi í gærkvöldi er greidd vom atkvæði um tillögu Pierre Beregovoys for- sætisráðherra um að Frakkar beittu neitunarvaldi gegn samn- ingnum ef hann yrði ekki endur- skoðaður. Beregovoy vísaði til svonefndrar Lúxemborgar-mála- miðlunar er veitir EB-ríkjum rétt til hafna meirihlutaákvörðunum í ráðherraráði bandalagsins telji ríkið mikilvægum hagsmunum ógnað. Beregovoy sagði að til þess myndi þó ekki koma fyrr en endanleg gerð alls GATT- samkomulagsins lægi fyrir en stjórnmálaskýrendur telja að það verði vart fyrr en eftir nokkra mánuði. Stjórnarandstaða hægri- og miðflokkanna óttast að erfa málið ef stjóm sósíalista fellur í þingkosningum í mars eins og allar skoðanakannanir benda til. Samkomulag milli stjómar og launþega um efnahagsaðgerðir í Finnlandi Skattar verða hækkaðir og allsheij ai*verkfalli aflýst Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. FINNSKU ríkisstjórninni og launþegasamtökum tókst naumlega að ná sáttum í gær um skattahækkanir sem gripið verður til í stað lækk- unar á atvinnuleysisbótum. Fundi ríkisstjómar og leiðtoga launþega lauk aðeins nokkrum klukkustundum áður en aðalstjórn Alþýðusam- bandsins, SAK, átti að taka endanlega ákvörðun um allsheijarverk- fall er hefjast skyldi í dag. Auk verkamanna innan vébanda SAK ætluðu öll önnur stærri launþegasamtök að taka þátt i verkfallinu. Með þessum samningum lauk glímu ríkisstjórnar borgaraflokk- anna og SAK með nokkurs konar 'biðstöðu. Hefði verið farið út í póli- tískt allsheijarverkfall eins og útlit var fyrir undanfama daga er líklegt að ríkisstjórnin hefði fallið. Ágrein- ingur launþega og ríkisstjómar fjall- aði m.a. um 500 milljóna marka sparnað sem ná átti fram með lækk- un atvinnuleysisbóta. Tekjutap vegna allsheqarverkfallsins var hins vegar metið á um milljarð á dag. Ákveðið var að hækka svokallaðan nefskatt landsmanna, sem er ein- staklingsbundinn aukaskattur allra skattgreiðenda. Kom þessi hækkun í stað tillögu ríkisstjómarinnar um að spara með því að skera niður langtímabætur til atvinnuleysingja og lengja biðtíma áður en útborgan- ir á atvinnuleysisbótum hefjast. SAK féllst á skattahækkun með þeim Niðurstaða alþjóðlegs fundar um ósóneyðingu í Kaupmannahöfn skýringum að meira réttlæti væri í því að láta þá borga sem hafa ennþá vinnu en að minnka tekjur þeirra sem hvergi geta fundið vinnu. Hinum eiginlegum kjarasamning- um við vinnuveitendur var lokið á örstuttum fundi eftir að gengið hafði verið frá pólitískum ágreiningsmál- um. Samið var um kaup og kjör til næsta árs með þeirri niðurstöðu að engar launahækkanir yrðu nema verðbólga færi yfir 4,3% á árinu. Þýðir þetta í raun að kaupmáttur finnskra launþega er skertur um 4%. Banni við ósóneyðandi efnum flýtt Kaiinmannaliiifn Qinminn TlnvíAmlAilnr fr/»Hoi*iioro \lnt*<nmhlnAaino 'mr Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Daviðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞRIGGJA daga fundi á vegum umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóð- anna og danska umhverfisráðuneytisins um verndun ósónlagsins lauk í Kaupmannahöfn í gær. Á fundinum náðist mikilvæg samstaða um enn frekari takmörkun á notkun þessara efna og bráðabirgðasjóður til að styðja þróunarlöndin við að draga úr notkun efnanna var festur í sessi. Þegar hafa verið gerðar al- þjóðasamþykktir um að hætta notkun ýmissa ósóneyðandi efna. Á fundinum nú var samþykkt að hætta notkun verstu efnanna mun fyrr en áður var ætlað, í síðasta lagi 1995. Á íslandi eru umrædd efni fyrst og fremst notuð við frauðplastframleiðslu, í kælikerfí, slökkvikerfi, úðabrúsa og sem leysi- og hreinsiefni. Önnur hættuleg efni eru notuð gegn skordýrum í ávaxtarækt, mest í Suður-Evrópu og þriðja heimin- um. Flest þessi efni eru einnig talin valda gróðurhúsaáhrifum. Árið 1990 var stofnaður bráða- birgðasjóður á vegum SÞ til að styrkja þróunarlönd í að hætta notk- un ósóneyðandi efna. Síðan átti að leggja hann undir Alþjóðabankann, sem sinnir ýmsum svipuðum verk- efnum. Þróunarlöndin voru flest á móti þeirri tilhögun, því þau mega sín lítils innan bankans og höfðu áhyggjur af að sjóðurinn týndist þar. Undir forystu Mustafas Tolbas, yfirmanns umhverfisstofnunar SÞ, og Pers Stigs Möllers, um- hverfisráðherra Dana, tókst að ná samkomulagi um að sjóðurinn starfaði áfram sem sjálfstæður sjóður og framlag til hans fest næstu tvö árin. Hlutur íslands er um tvær og hálf milljón ÍSK. í lok fundarins sagði Eiður Guðnason umhverfisráðherra í samtali við Morgunblaðið að sér sýndust niðurstöður _ fundarins vera vel viðunandi. íslendingar hefðu staðið við allar skuldbind- ingar um að draga úr notkun ósó- neyðandi efna, samstiga Norður- landaþjóðunum. Iiro Viinanen fjármálaráðherra (Hægrifl.) sagði á fréttamannafundi að sér þætti sögulegt að ganga frá þjóðarsátt sem væri fólgin í því að launþegar vildu skattahækkun. Hefði þetta ekki verið að ósk hægri- manna; Finnar borguðu nú hærri skatta en nokkur önnur þjóð í Evr- ópu. Næst þyrfti að fara sparnaðar- leiðina. I samningunum var einnig tekið fram að ríkisstjórnin mætti ekki skerða verkfallsrétt með lögum á samningstímabilinu. Hafa launþega- samtök haldið því fram að ríkis- stjómin vildi draga sem mest úr áhrifum launþegahreyfíngarinn- ar í þjóðmálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.