Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 4
2 . seer HaaM:-r/ðn ,as huoagutmmfí araAjanuoflOM 4---------------------------------------------------:M<ffiGUWBtiABíÐ- FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER W Skýrsla ákæruvaldsins í Flórída Tálbeitan varaði Islend- ingana við lögbrotinu Frá Atla Steinarssyni Flórida. TALBEITAN sem tollgæslan í Flórída notaði í máli Islendinganna tveggja sem sakaðir eru um ólöglegan innflutning á hormónalyfjum til Bandarikjanna aðvaraði íslendingana ítrekað við ólögmæti aðgerða þeirra. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu ákæruvaldsins í málinu. Tál- beitan, sem hefur dulnefnið CI-1 í skýrslunni, benti öðrum íslending- anna á ólögmæti innflutnings lyfjanna bæði í símtölum og á fundum þeirra sl. sumar er innflutningurinn var undirbúinn og viðskiptasam- banda vegna hans aflað í Bandaríkjunum. Um samskipti CI-1 og íslending- anna í skýrslunni segir að verulegur skriður hafi verið kominn á málið í lok september sl. er annar íslending- urinn tjáði CI-1 í símtali, hinn 26. september, að hann væri í sambandi við kaupendur hormónalyfja_ í Los Angeles, Miami og Virginu. íslend- ingurinn lét þess getið að kaupandinn í Los Angeles væri reiðubúinn að kaupa hormónalyf fyrir 1-2 milljónir dollara í desember og fyrir eina millj- ón dollara á mánuði eftir þann tíma er hann hefði komið fyrstu sending- unni í verð. í öðru símtali, hinn 1. október, tjáir annar íslendinganna CI-1 að hann sé kominn í samband við dreif- ingaraðila í Evrópu sem sé reiðubú- inn að senda hormónalyf á fölskum pappírum til Bandaríkjanna og að hann geti sent lyf fyrir 10 milljónir dollara á mánuði. Hinsvegar fari hann fram á mjög hátt verð fyrir vaminginn. Eins og kunnugt er af fréttum um málið fluttu íslendingamir fyrstu sendinguna af hormónalyfjum til Bandaríkjanna frá Indlandi og kom sú sending til Orlando í byijun nóv- ember. íslendingunum hafði þá tekist að útvega kaupendur að henni í St. Petersburg. í sendingunni var að fmna 44.000 einingar af anabolic steriods og 35.000 einingar af neura- bol stanozolo auk ýmissa annarra hormónalyfja í mun minna magni. í skýrslunni er að fínna frásögn af því er íslendingamir hittu kaup- enduma frá St. Petersburg, tvo Bandaríkjamenn, Miller og Crowell, á skrifstofu CI-1 í Orlando. Auk þessara fjögurra og CI-1 var önnur tálbeita frá alríkislögreglunni við- stödd á fundinum. Á þessum fundi féllust íslending- amir á að afhenda Bandarílq'amönn- unum sendinguna án þess að fá greiðslu fyrir. Miller og Crowell hlóðu henni í sendiferðabíl sem þeir voru á og voru síðan handteknir af toll- gæslumönnum er þeir ætluðu að yfír- gefa staðinn samhliða því sem toll- gæslumenn réðust inn á skrifstofu CI-1 og handtóku íslendingana. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 26 NOVEMBER YFIRLIT: Yfir norðausturlandi er víðóttumikið 950 mb djúp lægð sem mun þokast norðvestur og síðar suðvestur og grynnast. 8PÁ: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi með éijagangi sunnanlands og vestan en léttir til norðaustanlands. Hiti nálægt frostmarki og fer heldur kólnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él á víð og dreif um landið, þó einkum vestanlands. Hiti um og undir frost- marki. HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi suðaustanátt með snjókomu og síð- an slyddu um sunnan- og vestanvert landið en líklega þurrt á Norð- og Norðausturlandi. Hlýnandi í bili. Nýir veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað * / * * r r * r Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma & Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka 3ti9-. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30ígær) Á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði er skafrenningur og hálka. Fært er á þessum vegum og í nágrenni Reykjavíkur og til Suðumesja. Fært er um Suðurland og með suðurströndinni til Austfjarða. Fært er um Borgar- Qörð, á Snæfellsnesi er ófært um Fróðárheiði, Keriingarskarð og í Mikla- holtshreppi. Fært er um Heydal og norðanvert Snæfellsnes til Óíafsvíkur og í Dali, verið að moka vestur í Reykhólasveit. Brattabrekka er ófær. Allar heiðar á Vestfjörðum eru ófærar og beðið með mokstur á þeim heiðum sem áætlað var að moka. Frá ísafirði er verið að moka til Boiungarvikur og Súða- víkur. Ófært er um Holtavörðuheiði, þar er blindbylur og ekkert ferðaveður, annars er fært til Hólmavíkur, Siglufjarðar, Akureyrar og þaðan til Ólafsfjarð- ar. Skafrenningur og hálka er á heiðum og annesjum norðaniands. Frá Akureyri er fært austur um Þingeyjarsýslur, til Grenivíkur, Húsavfkur og með ströndinni til Vopnafjarðar. Fært í Mývatnssveit. Austanlands eru vegir yffr- leítt færir, beöiö er átekta með mokstur á Fjarðarheiði. Mikil hálka er á vegum víða um land, aðallega á heiðum og fjallvegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima hlti veður Akureyri 2 rigningð Reykjavik 0 slydda Bergen 7 rigning Heisinki +1 anjókoma Kaupmannahöfn 8 rigning Narssareauaq +10 léttakýjað Nuuk +10 léttskýjaö Osló 0 siydda Stokkhólmur 4 alskýjað Þórshöfn 7 skýjað Algarve 16 þokumóða Amsterdam 11 skúr Barcelona 16 þokumóða Berlín 8 rigning Chicago 6 alskýjað Feneyjar 7 þokumóða Frankfurt 8 skúr Glasgow 8 úrkoma Hamborg 10 skúr London 10 rigning Los Angeles 12 téttskýjað Lúxemborg 10 léttskýjað Madríd 11 mistur Malaga 18 heiðskfrt Vallorca 21 lóttskýjað Montreal 4 rigning NewYork vantar Orlando 22 þokumóða Parfa 13 skýjað Madelra 22 léttskýjað Róm 20 skýjað Vfn 6 alskýjað Waahlngton 11 þokumóða Winnipeg +4 alskýjað V íDAG kl Heimild: Veðutsiola íslands (Byggt á veðurepé ki. 16.15 í gaer) Landssöfnunin kynnt. Jóhannes Tómasson blaða- og fræðslufull- trúi, Hanna Pálsdóttir úr stjórn Hjálparstofnunarinnar og Jónas Þórisson framkvæmdastjóri. Hjálparstofnun kirkjunnar Treyst á stuðning almennings í söfnun TVEIR viðburðir marka upphaf árlegrar Iandssöfnunar Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, Brauð handa hungruðum heimi, um næstu helgi. Annað er formleg þátttaka Hjálparstofnunarinnar í bindindis- degp fjölskyldunnar á laugardag. Eru menn hvattir til að gefa and- virði einnar bjórkippu til verkefna stofnunarinnar. Hitt er sameigin- leg aðventusamkoma Breiðholtssafnaðar og Hjálparstofnunarinnar í Breiðholtskirkju næstkomandi sunnudag kl. 16. Verið er að dreifa, fréttabréfi, baukum og gíróseðlum í tengslum við landssöfnunina, en leitað er eftir stuðningi við áframhaldandi verkefni Hjálparstofn- unarinnar, m.a. þróunarverkefni á Indlandi og í Kenýa, til að afla Qár í neyðarsjóð og innanlandsverkefni. Um 150% aukning hefur orðið á innanlandsbeiðnum frá einstaklingum milli tveggja síðustu ára. Á blaðamannafundi vegna söfnunarinnar kom fram að þó tvær safnanir hefðu farið fram í ár treysti Hjálparstofnunin á stuðning almennings um þessi jól eins og áður. Fyrri söfnunin á árinu fór fram í janúar og var þá, eins og mörgum er í fersku minni, safnað fatnaði handa Kúrdum. Hjálparstofnunin stóð að þeirri söfnun í samstarfi við Slysavamafélagið og söfnuðust um 250 tonn af fatnaði. Um mánaðamótin ágúst og sept- ember var svo ýtt úr vör söfnun- inni „Hjálpum þeim“ í samstarfí við Rauða kross íslands. Stærsti liðurinn var neyðarhjálp til Só- malíu og íbúa á Balkanskaga. Fulltrúar Hjálparstofnunar- innar lögðu áherslu á að þó neyð- araðstoð væri mikilvæg væri ekki síður þörf á að sinna þróun- arverkefnum. Slík verkefni hafa farið fram á vegum stofnunar- innar bæði í Kenýa og á Ind- landi. Má í því sambandi nefna að íslendingar eru svokallaðir fósturforeldrar rúmlega 200 bama í Indlandi. Fólkið Ieggur til 1.000 kr. á mánuði en Hjálpar- stofnunin er ábyrgðaraðili og hefur reist bæði skóla og sjúkra- hús fyrir börnin um 400 km fyr- ir norðan borgina Madras í Aust- ur-Indlandi. Mikilvægt er að stöðugt fjármagn renni til verk- efna af þessu tagi, en jólasöfnun- in er helsta tekjulind Hjálp- arstofnunarinnar. Þá eru fastir styrktaraðilar um 1.000 og greiða reglulega fjárframlög til verkefna stofnunarinnar. Er það undir gefendunum komið hversu fjárframlag þeirra er hátt. Minntu fulltrúar Hjálparstofn- unarinnar á í þessu sambandi að margt smátt gerði eitt stórt. Ragnar Jónsson sknf- stofusij. ÁTVRlátinn RAGNAR Jónsson fyrrverandi skrifstofusljóri Áfengis- og tób- aksverslunar ríkisins, er látinn, 77 ára að aldri. Ragnar fæddist 24. ágúst 1915, í Bjóluhjáleigu í Djúpárhreppi, Rang- árvallasýslu. Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi þar og síðar í Þjóðólfs- haga og Hrafntóftum og kona hans Anna Guðmundsdóttir. Ragnar brautskráðist frá Verzlunarskóla ís- lands árið 1936 og stundaði síðan framhaldsnám í Þýzkalandi á árun- um 1938 til 1939. Hann var við verzl- unarstörf hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu árið 1936 til 1938 og við skrif- stofustörf í Reykjavík árið 1939 til 1942. Hann var fulltrúi hjá Kaupfélaginu Þór frá 1942 til 1950 og fram- kvæmdastjóri Verzlunarfélags V- Skaftfellinga í Vík frá stofnun árið 1951 til 1961. Ragnar varð skrif- stofustjóri Áfengis- og tóbaksverzl- unar ríkisins árið 1961 til áramóta 1985 en þá tók hann við stöðu for- stjóra um nokkurra mánaða skeið. Ragnar átti sæti á Alþingi sem landskjörinn varaþingmaður á ámn- um 1963 til 1968, og var varaþing- maður fyrir Suðurland á árunum 1964 til 1969. Hann var og lands- kjörinn þingmaður árið 1967. Átti Ragnar sæti í milliþinganefnd í sam- göngumálum á árunum 1956 til 1958 og var endurskoðandi Landsbanka íslands frá árinu 1963. Ragnar átti sæti í stjóm Verzlun- arsambandsins hf. frá árið 1957, var formaður Sjálfstæðisfélags V- Skaftafellssýslu um skeið og í stjórn FUS Heimdallar í Reykjavík á árun- um 1941 til 1942. Eftirlifandi kona Ragnars er Krist- ín Einarsdóttir og varð þeim hjónum flögurra bama auðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.